Morgunblaðið - 29.06.2009, Page 11

Morgunblaðið - 29.06.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Vífil Júlíusson helgivifill@mbl.is TRYGGINGAFÉLAGIÐ Sjóvá fjárfesti í fasteignaverkefnum í níu löndum en seldi alfarið í Bretlandi og er nú með verkefni í átta lönd- um. Um 60% fjárfestinganna, sé litið til eiginfjárframlags, eru í þróunarverkefnum en 40% í fast- eignum til útleigu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Sjóvá og fjárfestingastarfsemi þess verð- ur skipt í tvö félög í eigu skila- nefndar Glitnis. Sjóvá var áður í eigu Milestone. Fjölmiðlar sögðu frá því í liðinni viku að Sjóvá hefði dregið sig úr fasteignaverkefni í Macau með tapi. Heimildir herma að tapið, eiginfjárframlagið mínus það fé sem fékkst við sölu, nemi 1,5 millj- örðum króna, sem er fyrsta tapið sem fasteignasafn Sjóvár innleys- ir. Yrðu ýmis önnur verkefni seld í dag er fyrirséð að innleysa tap, en unnið er að því halda eignunum áfram. Vandræði í Bandaríkjunum Vandræði eru með verkefni í Milwaukee í Bandaríkjunum, líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum. Óskað hefur verið eftir gjaldþrota- skiptum á félaginu þar, og er Sjóvá að reyna að tryggja sér óskorað vald yfir því, en fjárfestar eru reiðubúnir að leggja verkefn- inu fjármuni, samkvæmt heimild- um. Fari Sjóvá frá verkefninu núna innleysist tap. Stundum gengur vel Unnið hefur verið að því að losa um eigið fé úr verkefnunum og fara fjármunirnir til eigenda. Ekki hefur alltaf verið jafn sársauka- fullt að endurheimta fé og í Ma- cau: 1,7 milljóna punda hagnaður myndaðist þegar selt var í Bret- landi síðastliðið haust, til viðbótar tókst að endurheimta þrjár millj- ónir punda í Bretlandi sem telst 45% hagnaður. Auk þess var lóð seld í Tyrklandi með 40% hagnaði í dollurum talið, herma heimildir. Alþjóðleg fasteignaverkefni Sjó- vár voru 13 þegar best lét, en eru nú tíu. Að því sögðu hefur eitt verkefni til viðbótar verið selt að hluta; lóð var seld í Tyrklandi en tvær eru óseldar. Af tíu verkefn- um eru sjö þróunarverkefni, sem flest hafa verið lögð í salt í ljósi markaðsaðstæðna, en um þessar mundir er erfitt að selja fasteignir. Þrjú þróunarverkefni voru skuld- laus en skuldsetning hinna fjög- urra þróunarverkefnanna var allt að 50%. Í fullri leigu Leigufasteignir Sjóvár eru í Belgíu, Frakklandi og Þýskalandi, og útleiguhlutfallið er 97-100% , samkvæmt heimildum. Leigutakar eru m.a. belgíska ríkið, þýskir bankar og fjöldi verslana í versl- unarmiðstöð í París. Hefðbundinn rekstur íslensku tryggingafélaganna hefur ekki skilað hagnaði síðustu ár. Þau hafa hinsvegar úr töluverðum fjárhæð- um að spila í sjóðum og hafa fjár- fest í annarri starfsemi til þess að vera arðbær.                                ! "  "        # $  %    Sjóvá í níu löndum  Sjóvá innleysti 1,5 milljarða króna tap í Macau  Unnið er að því að halda eignum félagsins áfram Sjóvá seldi íslensk hlutabréf og hóf að fjárfesta í fasteignum um víða veröld. Nokkur óvissa er um þróunarverkefni en leigueignir eru í góðri útleigu. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is NEFNDARMENN í aðaleftirlits- nefnd Bandaríkjaþings (e. House Oversight Committee) þjörmuðu mjög að Ben Bernanke seðla- bankastjóra þeg- ar hann sat fyrir svörum nefnd- arinnar í síðustu viku. Málefnið var þáttur seðla- bankans í yf- irtöku Bank of America (BoA) á Merrill Lynch- fjárfesting- arbankanum í september á síðasta ári. Svaraði Bernanke spurningum nefndarmanna um yfirtökuna í þrjár klukkustundir samfellt. Þar neitaði hann því að hann eða aðrir starfsmenn seðlabankans hefðu á nokkurn hátt haft einhver óeðlileg afskipti af yfirtöku BoA á Merrill. „Seðlabankinn kom að þessu máli af fyllstu ráðvendni í öllum við- ræðum við Bank of America vegna kaupa fyrirtækisins á Merrill Lynch,“ sagði Bernanke frammi fyrir þéttsetnum fundarsalnum í þinghúsinu, samkvæmt frétt New York Times. Segir í fréttinni að Bernanke hefði ekki tekist að sannfæra alla þingmenn eftirlitsnefndarinnar um að þáttur seðlabankans í yfirtök- unni væri eðlilegur. Þingmenn repúblikana hefðu þó verið efa- gjarnari í hans garð en demókrat- ar. Þrátt fyrir það segir í fréttinni að Bernanke njóti enn sem fyrr Seðla- bankastjóri í kröppum dansi Bernanke sat fyrir svörum í þinginu Ben Bernanke Fjárfestingastefna Sjóvár breyttist þegar Milestone, fjár- festingafélag sem Karl Werners- son leiddi, yfirtók trygginga- félagið 2006. Íslensk hlutabréf voru seld og hafist var handa við að fjárfesta í fasteignum um víða veröld. Verkefnin voru fund- in m.a. með aðstoð fjárfestinga- bankans Bear Sterns, JP Morgan og Askar Capital, sem var einnig í eigu Milestone. Nýir vindar 2006 Sjóvá lagði upp fasteignakap- alinn þannig að ef verkefni færi á versta veg myndi ein- ungis eiginfjárframlagið tap- ast. Skuldir myndu ekki flytj- ast á móðurfélag Sjóvár, því það var kirfilega varið með fjölda eignarhaldsfélaga. Yf- irleitt var tekið lán til þess að fjármagna verkefnin. Skuldir lendi á öðrum Fagverk Verktakar ehf. GSM 864-1220 fag@simnet.is Þarftu að malbika? Tökum að okkur viðgerðir á malbiki og einnig minni og stærri verk. Leitaðu tilboða, það borgar sig! VIÐSKIPTI Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is NÝ verksmiðja er farin að mala í Súðavík. Framleiðslan er kattamat- ur sem ber viðeigandi heiti, Murr, eftir mali neytendanna. Við fram- leiðsluna er allt gert sem hægt er til að koma til móts við þarfir og lang- anir kattanna sjálfra. „Ég er alinn upp á dýralækna- heimili og hef alltaf tengst dýrum,“ segir Þorleifur Ágústsson dýralíf- eðlisfræðingur sem gengið hefur með hugmyndina að framleiðslu kattamatar í nokkur ár og hefur nú látið hana verða að veruleika í sam- vinnu við Braga Líndal Ólafsson fóð- urfræðing og fleira fólk. Þorleifur segist hafa velt þessum möguleika fyrir sér í sex ár, frá því hann flutti til Ísafjarðar. Hann hefur unnið að þróun vörunnar í rúm tvö ár með Braga. Sérhæfðar kjötætur Þorleifur hefur unnið á breiðu sviði í rannsóknum, fyrst við horm- ónafræði laxa í Svíþjóð, þá við erfða- rannsóknir manna hjá Íslenskri erfðagreiningu og síðan byggði hann upp rannsóknarmiðstöð í þorskeldi fyrir Matís á Ísafirði. Í fyrra söðlaði hann um og fór að kenna við Menntaskólann á Ísafirði til að geta sinnt kattamatarverkefninu betur. Afurðin var tilbúin í vor og fyrstu pokarnir fóru í verslanir í byrjun júní. Viðtökurnar hafa verið góðar, að sögn Þorleifs. Við framleiðsluna er notað kjöt og aðrar sláturafurðir frá sláturhúsum Norðlenska á Akureyri og SAH á Blönduósi, mest af sauðfé, nautgrip- um og svínum, hráefni sem ekki hef- ur nýst nema að hluta. „Allt þetta ferli gengur út á það að búa til mat sem köttum er eðlilegt að éta. Kettir eru sérhæfðar kjötætur og fá öll sín næringarefni úr kjöti. Fiskur getur verið þeim óhollur og þeim er ekki eiginlegt að éta græn- meti eins og þó má finna í sumum tegundum kattamatar,“ segir Þor- leifur. Kattamaturinn frá Murr er svo- kallaður blautmatur. Hráefnið er unnið, pakkað í litla poka og soðið niður. Kattamatur hefur að mestu leyti verið fluttur til landsins. Hér á landi er þó verksmiðja sem framleið- ir þurrfóður úr fiskimjöli. Ef kettirnir sjálfir fengju að ráða ... Murr framleiðir einnig hundasæl- gæti. Þorleifur og félagar hans eru að þróa fleiri tegundir kattamatar og hafa einnig hug á að hefja fram- leiðslu á blautfóðri fyrir hunda. Fæðing fyrirtækis er erfið, ekki síst á þessum síðustu og verstu tím- um. Þorleifur segir að erfitt sé að hefja framleiðslu þegar enga aðstoð er að fá frá bönkum. Hann segir að stjórnvöld þyrftu að vera mun djarf- ari við að styðja fyrirtæki af stað og leggja meiri peninga í nýsköpun. „Við vorum búnir að leggja það mik- ið í sölurnar að ekki var aftur snúið. Svo höfum við fengið frábæran stuðning hjá sveitarfélaginu,“ segir Þorleifur. Fimm starfsmenn eru við fram- leiðsluna og munar um minna í 200 manna þorpi. Þorleifur er sannfærður um að hann sé með bestu vöruna á mark- aðnum. „Það eru allar forsendur fyrir því að þetta geti gengið. En árangurinn fer eftir viðtökum markaðarins. Eigendur kattanna ráða því hvaða matur er keyptur og þeir vilja það besta fyrir dýrin sín. Ef kettirnir sjálfir fengju að ráða þyrftum við ekki að hafa áhyggjur,“ segir Þor- leifur. „ÉG er ekki viss um að allir framleiðendur gæludýrafóðurs treysti sér til að gera þetta,“ segir Þorleifur Ágústsson, opnar poka af kattamat og stingur upp í sig bita. „Þetta lyktar eins og lifrarpaté, er aðeins grófara og ókryddað,“ bætir hann við. Farið er eftir reglum Evrópusambandsins um val hráefna í kattamatinn. Eingöngu eru notuð efni sem einnig má nota til manneldis og hafa verið borðuð hér, þótt ekki sé mark- aður fyrir þau eins og er. Þorleifur tekur fram að eðlilega sé ekki mælt með því að fólk borði kattamatinn eins og dæmi eru um að fátækt fólk geri erlendis, þótt hann sé vel hæfur til þess. Maturinn sé framleiddur með þarfir katta í huga, ekki fólks. helgi@mbl.is Lifrarpaté fyrir ketti Biti Þorleifur Ágústs- son stingur upp í sig bita til að sanna að framleiðslan hans standist allar kröfur. Murrað á markaðinn  Framleiðsla hafin á kattamat í nýrri verksmiðju í Súðavík  Hráefnið fæst úr aðallega úr sláturaf- urðum sem lítt hafa verið nýttar  Uppskriftin miðast við að uppfylla kröfur kattanna til matarins Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Framleiðsla Pökkunarvélin skammtar í poka. Síðan er varan soðin niður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.