Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 13
Daglegt líf 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
sigrunerna@mbl.is
F
ótboltamaður, þjálfari,
tónlistarmaður, náms-
maður og jógaiðkandi
eru nokkur orð sem
geta lýst Hafnfirð-
ingnum Kristjáni Ómari Björnssyni
sem dúxaði um daginn í ÍAK einka-
þjálfaranámi Keilis með 9,69 í með-
aleinkunn. „Ég hafði virkilega gam-
an af þessu námi og sat oft inni í
kennslustofunni og hló inni í mér yfir
því að það væri til nám í einhverju
svona skemmtilegu. Ég get ímyndað
mér að þetta hafi verið eins og fyrir
tölvuleikjafíkil að fara í nám í því að
búa til tölvuleiki!“segir Kristján Óm-
ar sem allt frá barnæsku hefur haft
mikinn áhuga á íþróttum og manns-
líkamanum.
Kristján Ómar hefur í gegnum tíð-
ina stundað fjölmargar íþróttagrein-
ar og nú síðustu árin einnig þjálfað
ýmsa aldurshópa, allt frá börnum til
eldri borgara, þrátt fyrir að hafa end-
að í þjálfarastarfinu fyrir einskæra
tilviljun eins og hann orðar það sjálf-
ur.
Haukarnir höfðu samband
Fyrir utan íþróttirnar skipar tón-
listin ríkan sess í lífi Kristjáns Ómars
en hann lauk grunn- og meist-
aranámi í tónlistarfræðum frá Gauta-
borgarháskóla árið 2005 eftir að hafa
verið þar við nám í fimm ár. Að því
námi loknu var haldið til Berlínar
sem skiptinemi til þess að læra þýsku
og var ætlunin að halda heim jólin á
eftir og byrja að vinna í ársbyrjun.
„Það gekk hins vegar illa að finna
vinnu í tónlistarbransanum og ég var
farinn að örvænta aðeins þegar upp-
eldisfélag mitt, Haukar, hafði sam-
band í nóvember og spurði hvort ég
væri bæði til í að þjálfa unglinga og
vera í hálfu starfi sem fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeild-
arinnar. Ég ákvað að taka því,“ segir
Kristján Ómar.
Nokkrum vikum eftir heimkom-
una bauðst honum svo óvænt
draumastarf innan tónlistargeirans
en hann ákvað að hafna því. „Þetta
var erfið ákvörðun en eftir að hafa
verið aðeins stuttan tíma í þessu líf-
lega starfi þar sem maður var í stöð-
ugum samskiptum við fjöldann allan
af fólki og að þjálfa unglinga undir
beru lofti úti á fótboltavelli, þá fann
ég að fræðistörfin og skruddurnar
yrðu að fá að bíða í einhvern tíma.“
Tónlistin er þó sem fyrr mikilvæg í
lífi Kristjáns Ómars. „Maður er alltaf
að grúska eitthvað í tónlist á ein-
hvern hátt. Allt mitt tónlistarnám
hefur veitt mér ótal leiðir til að
tengja við fyrirbærið tónlist og um-
hverfi þess, sama hvort það er að
spila, hlusta, greina, semja, lesa um,
eða annað, Það er helst að ég myndi
vilja hafa meiri tíma til að semja og
skapa tónlist en það er iðja sem hefur
alltaf gefið mér mjög mikið andlega.“
Bindindismaður og
borðar ekki kjöt
Heilbrigður lífsstíll er í fyrirrúmi
hjá Kristjáni Ómari sem er yfirlýstur
bindindismaður að eigin sögn og hef-
ur ekki smakkað kjöt í áratug og í
tæp þrjú ár sneitt framhjá öllum
dýraafurðum. „Með tímanum hefur
þetta þróast þannig að mér hreinlega
býður við lyktinni af kjöti. Vissulega
verður maður meira var við hana á
sumrin þegar grilllyktin svífur yfir
öllu en maður lærir að lifa með þessu
rétt eins svitamettuðu loftinu í bún-
ingsherbergjunum og ólyktinni af
umferðarmenguninni,“ segir hann
hlæjandi. Kristján Ómar skilgreinir
sig því sem jurtaætu og segir að
hann hafi orðið var við mikla breyt-
ingu til batnaðar á líkamlegri líðan
eftir að hann hætti að borða kjöt.
Þegar hann tók svo það skref að
hætta að neyta mjólkurafurða hafi
orðið önnur mikil breyting. Núna sé
mun erfiðara að fitna en áður!
Jurtafæði og jóga
Jurtafæðið er líka ríkur þáttur í
jógahugmyndafræðinni sem Kristján
Ómar hefur fylgt í mörg ár þótt hann
játi að því miður fari minna fyrir iðk-
uninni nú en á háskólaárunum. Í
þjálfunarstörfum kemur Kristján
Ómar víða við og hefur meðal annars
nú í tæp þrjú ár sinnt þjálfun eldri
borgara hjá Haukum. „Við tókum þá
stefnu að bjóða eldri borgurum loks
upp á alvöru þjálfun. Haukar er félag
fyrir alla og þar eiga allir að geta
fundið sér eitthvað við hæfi,“ segir
Kristján Ómar. „Við gerum mikið af
æfingum með litlum körfuboltum
sem eru alveg kjörnir til að reyna á
hreyfifærni, liðleika og samhæf-
ingu.“ Starfið byrjaði smátt. Í byrjun
voru 5-7 á æfingum en þetta spurðist
mjög fljótt út og núna eru fjörutíu og
fimm sem æfa og þar af stór kjarni
sem missir ekki úr eina einustu æf-
ingu!, segir Kristján Ómar. „Þau eru
orðin mjög fær og elska hreinlega að
keppa í körfuboltaskotfimi. Við fáum
líka oft áhorfendur sem fylgjast með
af hrifningu!“
Kristján hefur mikla reynslu af því
að þjálfa unga krakka og segir ým-
islegt líkt með hópunum tveimur.
Leikgleði sé til dæmis í fyrirrúmi.
„Það er svo gaman hjá þeim og þeim
finnst skemmtilegt að takast á við
krefjandi hluti. Þetta starf með eldri
borgurum er skemmtilegasta þjálfun
sem ég hef tekið að mér. Þetta eru
mínar fyrirmyndir því sjálfur stefni
ég á að vera svona hress og líflegur
sem eldri borgari.“ Kristján Ómar
tekur sjálfur ekkert fyrir þjálfunina.
„Þetta er svo gaman að ég er að
þessu fyrir mig,“ segir hann. Oft hef-
ur það komið fyrir að hann mæti
þreyttur á æfingarnar en það bregð-
ist ekki að hann gangi þaðan út
syngjandi glaður.
Enginn verkefnaskortur
Kristján Ómar leikur með Þrótti í
úrvalsdeild karla í knattspyrnu og er
þjálfari í fullu starfi. „Einkaþjálf-
aranámið hefur opnað fyrir mér ýms-
ar dyr og ég er kominn með alls kyns
spennandi þjálfunartengd verkefni á
mína könnu, t.d. styrktarþjálfun hjá
Haukum sem og alla afreksþjálfun í
fótboltanum þar. Það er virkilega vel
staðið að íþróttamálum í Hafnarfirði
en þar gefst efnilegum íþróttakrökk-
um í grunnskólum bæjarins og við
Flensborg að taka ákveðna áfanga í
sínu námi hjá Haukum í formi
fræðslu og kennslu í sinni íþrótta-
grein. Þetta samstarf skólanna og
íþróttafélaganna er mjög spennandi
vettvangur,“ segir Kristján Ómar.
Nýverið stofnaði Kristján Ómar
fyrirtækið Mannsrækt þar sem ætl-
unin er að bjóða upp á ráðgjöf á sviði
lífsstíls-, hugar- og líkamsþjálfunar.
Hagnýtast hafi verið að stofna fyr-
irtæki í kringum þau ýmsu verkefni
sem hann hafi nú á sinni könnu. „Eitt
af verkefnum vetrarins er að koma
sér upp þjálfunaraðstöðu í flenn-
istóra bílskúrnum mínum þannig að
ég geti tekið á móti fólki í þjálfun þar.
Æfinga- og vinnuaðstaða í skúrnum,
allt á einum stað. Það væri topp-
urinn,“ segir Kristján Ómar sem er
svo sannarlega ekki maður sem situr
auðum höndum.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Leiðbeinandinn „Við gerum mikið af æfingum með litlum körfuboltum,“ segir Kristján Ómar en hér liggja nemendurnir á maganum og lyfta höndum og fótum frá gólfi..
Úr tónlistinni í fótboltann
Áhugamálin hans hafa alla tíð verið tónlist, íþrótt-
ir og mannslíkaminn og hann hefur lagt rækt við
allt þrennt. Er með meistaragráðu í tónlist-
arfræðum, stundar knattspyrnuþjálfun og leggur
mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl.
Morgunblaðið/Golli
Átök Kristján Ómar og Guðmundur Steinn Hafsteinsson bítast um boltann.