Morgunblaðið - 29.06.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009
Elsku Birkir, þegar
Sigrún systir þín
hringdi í mig til að
segja mér að þú værir
dáinn, gat ég ekki trú-
að því, þú sem varst
svo ungur. Það fyrsta sem mér kom
í hug var að þetta væri einhver mis-
skilningur. Nú sit ég hérna í eldhús-
inu hennar Sigrúnar systur þinnar
á Hjalteyri og hugsa um hvað lífið
getur verið ósanngjarnt. Þú þessi
yndislegi og hressi maður ert tek-
inn frá okkur í blóma lífsins.
Þegar ég hugsa um þig rifjast
alltaf upp minningar úr bernskunni,
þar sem þið fjölskyldan bjugguð á
ská á móti okkur í Höfðahlíðinni.
Ég man svo eftir því þegar þú byrj-
aðir í skóla, ég fór grátandi heim
eftir að mamma þín sagði að þú
værir í skólanum, ég skildi ekki af
hverju ég fengi ekki að fara í skól-
ann eins og þú, við gerðum allt sam-
an. Ég skildi það ekki að ég væri
tveimur árum yngri og að það væru
tvö ár þar til ég fengi að fara í skól-
ann, þetta var svo sárt. Einnig man
ég eftir því þegar ég klemmdi á þér
puttann, við vorum ein heima hjá
mér, þú fórst heim til þín, en neit-
aðir að fara upp á sjúkrahús fyrr en
Sigrún systir þín var farin yfir til
mín, þú hafðir svo miklar áhyggjur
af mér vegna þess að ég var grát-
andi og leið svo illa. Svona varstu
alltaf, hafðir áhyggjur af mér, hugg-
aðir mig, varðir mig og gættir mín.
Við vorum óaðskiljanleg alveg frá
því að við fluttum í Höfðahlíðina, þá
var ég á öðru ári og þú á fjórða ári.
Við smullum saman strax og urðum
bestu vinir. Þegar við vorum sex og
átta ára vorum við búin að ákveða
það að við ætluðum að gifta okkur
þegar við yrðum stór. En þegar við
komumst á unglingsárin skildi leiðir
okkar og við uxum hvort frá öðru.
En þú varst alltaf Bibbi minn og ég
var alltaf Þórunn þín.
Þú varst ekki alltaf ánægður með
val mitt á kærustum, eitt sinn sagð-
ir þú við mig að það yrði aldrei
neinn nógu góður fyrir mig í þínum
augum. Þú varst í raun mín fyrsta
ást þó sú ást hafi þróast í ást milli
systkina. Ég hef alltaf elskað þig
eins og minn eigin bróður og þá ást
mun ég alltaf geyma í hjarta mínu.
Þú munt alltaf eiga þinn stað þar.
Enda þótt við hittumst ekki oft síð-
ustu áratugi þá var alltaf eins og við
hefðum hist í gær. Við gátum alltaf
talað saman um allt. Það eina sem
ég sé eftir í dag er að hafa ekki haft
meira samband á meðan ég gat, en
þá hélt ég alltaf að við hefðum svo
langan tíma til að endurnýja vin-
skapinn, en þetta kennir mér að líf-
ið er alltof stutt og ég verð að passa
mig á því að vera ekki alltaf að
fresta þeim hlutum sem mig langar
til að gera. Elsku Birkir, ég á eftir
að sakna þín rosalega mikið og það
er svo sárt að vera búin að missa
þig. En ég mun ætíð minnast þín
með ást og virðingu, og mun varð-
veita allar þær stundir sem við átt-
um saman. Guð gefi að þú öðlist frið
og hamingju.
Þín Þórunn.
Elsku Kristrún, Hjörtur, Beggi,
Sigrún, Bjarni, Heiðar, Habbý og
fjölskyldur, guð gefi ykkur styrk í
sorg ykkar, ég veit að þetta er mik-
ill missir og að hans verður sárt
saknað. En ég veit líka að hann
Birkir vakir yfir ykkur og mun
passa upp á ykkur.
Ykkar
Þórunn.
Það er óraunverulegt fyrir okkur
félagana að koma saman og skrifa
Birkir Rúnar
Sigurhjartarson
✝ Birkir Rúnar Sig-urhjartarson
fæddist á Akureyri 2.
nóvember 1974. Hann
lést á heimili sínu á
Akureyri 13. júní
2009 og fór útför
hans fram frá Gler-
árkirkju 24. júní.
minningargrein um
látinn vin. Hann Birk-
ir okkar, eða Bibbi
eins og við kölluðum
hann, er fallinn frá
langt fyrir aldur fram,
aðeins 34 ára. Upp
koma ótal minningar í
hugann um traustan
og tryggan vin sem
alltaf var tilbúinn að
rétta öðrum hjálpar-
hönd ef þörf var á.
Bibbi, þú varst létt-
lyndur og skemmti-
legur vinur sem ein-
staklega gaman var að umgangast.
Ótal gullmola áttir þú til – klass-
ískar setningar sem lifa um ókomna
tíð, og við munum geyma og varð-
veita. Fótbolti átti hug þinn allan og
fengu Þórsarar og Liverpool að
njóta stuðnings þíns dyggilega. Ár-
lega tókum við þátt í Pollamóti Þórs
þar sem þú stóðst vaktina í markinu
og varst hrókur alls fagnaðar. Það
kom sér jafnframt vel hve nálægt þú
bjóst mótsstað og heimili þitt stóð
okkur ávallt opið til að fara yfir leik-
aðferðir og ástæður ótal tapleikja.
Fyrstu minningar okkar félaganna
um Bibba eru yfir 30 ára gamlar og
því margs að minnast. Þær fyrstu
tengjast gjarnan öskudeginum, sem
var stór dagur í lífi ungra drengja á
Akureyri, og grunnskólaárunum þar
sem við fylgdumst að. Á sumrin
fórst þú oftar en ekki í sveit austur
á land og söknuðum við þín ávallt og
hlökkuðum til að hitta þig þegar
hausta tók. Ekki fækkar góðum
minningum þegar unglingsárin
færðust yfir og minnumst við ótal
stunda frá rúntinum á Akureyri og
uppátækjasömum ferðum í Vagla-
skóg og Miðgarð þar sem þú varst
gjarnan í aðalhlutverki. Bibbi gekk
menntaveginn og átti sagnfræði hug
hans allan í upphafi. Úr sagnfræð-
inni lá leiðin í kennslu þar sem þú
varst virkilega á heimavelli. Vinsæll
kennari á Skagaströnd og síðustu
árin á leikskólanum Hlíðabóli á Ak-
ureyri, þar sem yngsta kynslóðin
naut sterkra persónueiginleika
þinna. Þú fórst gjarnan ótroðnar
slóðir. Losaðir þig til dæmis við bíl-
inn og fórst gjarnan ferðir þínar á
tveimur jafnfljótum, og ekki tókst
þú þátt í lífsgæðakapphlaupinu.
Kæri vinur, það er víst komið að
kveðjustund. Þú varst trúaðri en
við, en nú trúum við því að almættið
hafi kallað þig til æðri verka. Sam-
verustundirnar í vinahópnum munu
halda áfram, en við munum halda
þínu sæti auðu. Það verður einfald-
lega ekki fyllt. Við eigum um þig
frábærar minningar sem við mun-
um geyma og aldrei gleyma. Þú átt
stað í hjarta okkar allra og munt
eiga það þar til við hittumst á ný.
Hold out your hands cos friends will
be friends right till the end
eins og uppáhalds hljómsveit þín
orðaði það svo réttilega. Við send-
um foreldrum þínum, systkinum og
ættingjum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Megi góður guð
styrkja þau í sorg sinni.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svefnsins draumar koma fljót.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þínir vinir,
Bjarni, Elvar, Jónas, Jörundur,
Kristinn, Steinmar og fjölskyldur.
Birkir Rúnar, vinur okkar og
samstarfsmaður, er farinn og í
hjarta okkar „stelpnanna hans“ er
söknuður. Við kynntumst honum
fyrir tveimur árum þegar hann sótti
um vinnu í Hlíðabóli, leikskóla
Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri,
og sáum hvílíkur öðlingur hann var.
Birkir var eini karlmaðurinn í
starfsmannahópnum og þurfti því
að hlusta á margar umræðurnar í
kaffistofunni um meðgöngur, fæð-
ingar og annað tengt kvenlegum
vandamálum ásamt því að þola það
að talað var um hópinn í kvenkyni.
Þessu tók hann með stóískri ró og
hló að öllu saman enda með ein-
dæmum jákvæður og glaðlyndur.
Hann var Þórsari fram í fingur-
góma og harður Liverpool-aðdá-
andi, það fór ekki framhjá neinum.
Eftir sigurleik sinna manna (sem
var æði oft) mætti hann með Liver-
pool-hattinn sinn og -trefilinn og
hann fussaði yfir því þegar hann sá
fólk klætt flíkum merktum öðrum
fótboltafélögum. Strax í upphafi
tjáði Birkir okkur að hann væri
alæta á mat en fljótlega kom þó í
ljós að fiskur var ekki á alætu-list-
anum, hafragrauturinn komst eig-
inlega ekki fyrir þar heldur og mik-
ið varð hann sár þegar það var
slátur á svokölluðum „kjötdögum“
(miðviku- og föstudögum) í Hlíða-
bóli.
Birkir var ósérhlífinn, hjálpsam-
ur og jafnan fyrstur í starfsmanna-
hópnum að bjóðast til að fara út ef
það þurfti að hlaupa í skarðið fyrir
einhvern. Núna reynum við að skipa
okkur í það stóra skarð sem mynd-
aðist við andlát hans. Það tók hann
svolítinn tíma að ná réttu handtök-
unum í umönnun barnanna og við
vitum ekki um neinn annan sem
tekist hefur að setja bleiurnar út-
hverfar á börnin en þetta lærðist
eins og allt annað. Börnin elskuðu
vininn sinn hann Birki og nutu þess
að fara í fótbolta með honum. Hann
kenndi þeim eitt og annað eins og
t.d. sálminn „Hver er í salnum“, eft-
ir Friðrik Friðriksson, sem þau
gripu strax og sungu í tíma og
ótíma. Við í Hlíðabóli vitum að frels-
arinn er hjá okkur (í salnum) og á
sorgartímum sem þessum opnar
hann faðminn og hvíslar svo hljótt:
„Hér er ég, vinur minn“. Í þessum
faðmi er gott að gráta.
Núna er Birkir engill hjá Guði,
eins og eitt barnið orðaði það, engill
með vængi og STÓRA gullkórónu á
höfði. Um leið og við þökkum Guði
fyrir að leyfa okkur að kynnast
Birki biðjum við hann að styrkja
foreldra hans og systkini.
Takk fyrir samveruna, elsku
Birkir okkar, við söknum þín óum-
ræðilega mikið.
Fyrir hönd starfsfólks Hlíðabóls,
Jóhanna Benný Hannesdóttir.
Ekki grunaði mig, síðast þegar
við hittumst, að ég ætti eftir að
sitja, rúmum mánuði seinna, og
skrifa um þig minningargrein. Þú
komst í heimsókn til að skoða litla
drenginn okkar Rögnu, íklæddur
rauðri Liverpooltreyju sem þú
klæddist gjarnan eftir sigurleiki hjá
Liverpool.
Þeir höfðu unnið leik fyrr um
daginn og þú spurðir hvort að litli
drengurinn yrði ekki örugglega rétt
trúaður. Ég svaraði því að hann
myndi örugglega halda með Liver-
pool eins og bræður hans. Þú varst
ánægður með það.
Það var stutt í brosið og þú hlóst
og gerðir að gamni þínu. Svona var
Birkir. Svona mundi ég eftir honum
úr grunnskóla. Alltaf í góðu skapi
og stutt í gamanið, þó að alvaran
væri aldrei langt undan.
Eftir grunnskólann slitnuðu
tengslin milli okkar að mestu, en
alltaf spjölluðum við saman ef við
hittumst á götu. Síðastliðið haust
tókum við upp tengslin aftur þegar
Ragnheiður kona mín fór að vinna
með Birki á leikskólanum Hlíðabóli.
Það kom fljótlega í ljós að hann
hafði engu gleymt frá grunnskóla-
árunum enda kominn með BA-próf í
sagnfræði og mundi að því er mér
fannst óþægilega mikið af prakk-
arastrikunum og var duglegur að
segja Ragnheiði frá því. Sjálfur var
Birkir mikill grallari og eru mörg
atvikin honum tengd. Hann gat ver-
ið einstaklega orðheppinn, þó
stundum snerist það reyndar upp í
andhverfu sína og hann yrði sjálfur
fyrir barðinu á eigin orðum. Kvöldið
sem við hittumst um síðustu jól
ásamt fleiri skólafélögum okkar var
ein af þessum skemmtilegu stund-
um þar sem prakkarastrikin og ým-
islegt fleira var rifjað upp. Hann
hafði gaman af því að tala og stund-
um þótti kennurunum nóg um og
höstuðu á hann, en oft átti Bibbi
svar við því og gjarnan lágum við í
hláturskasti þegar hann hafði lokið
sér af. Ég varð því hálf hissa þegar
ég frétti að hann hefði gerst kenn-
ari í grunnskóla og svo seinna meir
starfsmaður á leikskóla. En þarna
virtist hann hafa fundið fjölina sína
og mér fannst hann bara býsna
ánægður og ég veit að börnin voru
ánægð með hann enda jafnan stór
hópur í kringum hann á leikskól-
anum. Þarna var hann kóngurinn.
En því miður er ævilengdin oft
ekki í takt við það sem manni finnst
að hún ætti að vera og á það við í
þessu tilviki. Birkir var tekinn alltof
snemma frá okkur og við sem eftir
stöndum spyrjum okkur hvers-
vegna. Sjálfsagt fáum við aldrei
svar við því hvers vegna hann var
tekinn í burt frá fjölskyldu og vin-
um í blóma lífsins. Þeir sem eftir
standa verða að ylja sér við minn-
ingarnar um góðan dreng.
Aðstandendum og vinum Birkis
vottum við innilega samúð og biðj-
um æðri máttarvöld að styrkja þau í
sorginni.
Björn Hjálmarsson,
Ragnheiður Guðbrandsdóttir.
„Bibbi dó í nótt“ voru einu orðin
sem kærasta Jónasar bróður míns
gat sagt 13. júní sl. Ég í minni ein-
feldni hélt að um óviðeigandi spaug
væri að ræða. En svo var ekki.
Bibba hef ég þekkt allt mitt líf.
Bibbi og Jónas hafa verið vinir síð-
an ég man eftir mér og því hefur
hann verið tengdur mér og minni
fjölskyldu í um þrjátíu ár. Allir í
fjölskyldunni áttu í einhvers konar
samskiptum við Bibba. Við feðgar
aðallega í gegnum enska boltann og
Hilma litla systir í gegnum Þórs-
leikina. Lísa systir sagði mér einu
sinni að hún hefði getað talað við
Bibba um hvað sem var og mamma
aðstoðaði Bibba við dönskukennsl-
una þegar hann kenndi á Skaga-
strönd. Því er hægt að segja að allir
í fjölskyldunni hafi tengst Bibba
miklum tryggðaböndum.
Í upphafi kynntist ég Bibba sem
litli bróðir Jónasar. Þegar ég var
lítill og vinir hans Jónasar komu í
heimsókn leit ég alltaf á Bibba sem
skemmtilega vininn. Hann gaf sér
alltaf tíma til að tala við mig af
áhuga og tók mark á því sem ég
sagði. Eftir að ég varð eldri og
þroskaðri varð Bibbi meira en bara
vinur Jónasar bróður heldur líka
vinur minn.
Ófáar sögur koma upp í huga mér
um Bibba. Hann var náttúrlega al-
veg ótrúlega ónettur og „átti það
til“ að missa fjarstýringuna eða
símann í gólfið og oftar en ekki
bæði í einu. Einu sinni varð hann
svo óheppinn að missa símann á leið
sinni út í bíl og bakkaði svo óvart
yfir hann. Önnur skemmtileg saga
er þegar við fórum í keilu nokkrir
saman og þá vildi ekki betur til en
svo að Bibbi henti kúlunni sinni aft-
ur fyrir sig og seinna inn á vitlausa
braut.
Jónas og Bibbi voru svo sem ekki
alltaf sammála og héldu t.d. hvor
með sínu liðinu í enska boltanum
sem eru miklir andstæðingar. En
Bibbi var alltaf fyrstur til þess að
óska okkur bræðrum til hamingju
með góð úrslit og jafnframt alltaf
síðasti maðurinn til að nudda ein-
hverju framan í mann þegar illa
gekk enda var um hávandaðan ein-
stakling að ræða. Sönn vináttubönd
eru eitthvað sem ekki er hægt að
rjúfa og því voru þeir Jónas bestu
vinir.
Eftir að við Tinna fluttum aftur
til Akureyrar umgekkst ég hann
meira en mína æskuvini sem nú eru
fluttir úr bænum. Og því gat ég
stoltur kallað hann vin minn.
Ég hef haldið því fram að ekki
geti nokkur maður haft of stórt
hjarta en svo virðist því miður vera.
Um kaldhæðni örlaganna er að
ræða því Bibbi var einn hjartahlý-
jasti maður sem ég hef kynnst á
ævinni. Aldrei heyrði ég Bibba tala
illa um nokkurn mann og aldrei hef
ég heyrt nokkurn mann tala illa um
Bibba.
Bibbi átti mjög marga vini og
hann var maðurinn sem batt hópinn
saman. Má því segja að liðið hafi
misst fyrirliða sinn útaf alltof
snemma.
Það er alltaf svo rangt þegar for-
eldrar þurfa að kveðja börnin sín og
get ég ekki ímyndað mér hvað fjöl-
skyldan hans Birkis er að ganga í
gegnum. Ég votta þeim mína
dýpstu samúð.
Símon Hjálmar Z.
Valdimarsson.
Elsku Bibbi.
Við skiljum ekki alveg hvar þú
ert núna eða af hverju þú munt ekki
koma til í heimsókn til okkar. Við
erum að reyna að skilja að þú ert
engill hjá guði og getur alveg kíkt
til okkar, án þess að við sjáum þig.
Það var gaman þegar þú komst
heim til okkar því þú leyfðir okkur
að sitja í fanginu þínu og spjallaðir
alltaf við okkur. Við ætlum að vera
duglegar að kveikja á kerti handa
þér, englakertinu okkar í stofunni
og biðja guð um að passa þig vel.
Kveðja, þínir smávinir,
Sunna Karen og María Björg
Steinmarsdætur.
Fyrstu viðbrögðin við þeim frétt-
um hinn 13. júní að Birkir vinur
okkar væri dáinn voru að finnast
það óréttlátt.
Birkir, eða Bibbi eins og hann var
ávallt kallaður, var vinur fjölskyld-
unnar frá unga aldri. Hann var vin-
ur Jónasar og fylgdumst við með fé-
lögum þroskast og velta framtíðinni
fyrir sér saman í um 30 ár. Vin-
skapur þeirra styrktist með hverju
ári sem leið og hin síðustu ár hittust
þeir eða heyrðust nánast daglega.
Fótboltaáhugi er eitt af því sem
Bibbi deildi með okkur og eru þau
ófá skiptin sem Bibbi var mættur í
sófann heima í Einholti til að horfa
á knattspyrnuleik eða aðrar íþróttir
með okkur. Auk þess að horfa á fót-
bolta í sjónvarpinu hafa þeir fé-
lagarnir Jónas og Bibbi, ásamt
Hilmu, lagt leið sína á nær alla
heimaleiki Þórs í mörg ár. Alltaf
sátu þau á sama stað í brekkunni og
í lok hvers tímabils var farið á
Greifann til fagna árangri liðsins
eftir sumarið.
Í gegnum árin tók Bibbi þátt í að
fagna ýmsum tímamótum með okk-
ur, barnaafmælum, fermingar-
veislum og stúdenta- og útskrift-
arveislum. Eftirminnileg er ferð til
Reykjavíkur fyrir fáum árum þegar
átti að halda upp á afmæli fjöl-
skylduföðurins og kom Bibbi með
okkur í bíl og tók þátt í „surprise“
afmælisveislunni, sem tókst vel í
alla staði.
Að Bibbi skyldi ganga mennta-
veginn og velja sagnfræði kom
okkur ekki á óvart. Hann hafði
gaman af að ræða mál samtímans í
sögulegu samhengi og oft báru
stjórnmál á góma. Bibbi dvaldi þó
ekki við sagnfræðina heldur tók
kennsluréttindanám við Háskólann
á Akureyri og fór í framhaldi af því
að vinna á leikskólanum Hlíðar-
bóli. Þar fann sig vel, enda vinsæll
meðal bæði barna og starfsfólks
þar.
Bibbi hafði ríka réttlætiskennd
og var með stórt hjarta, hann var
jákvæður að eðlisfari og gæddur
þeim hæfileika að sýna öðru fólki
áhuga. Ekki leið ein heimsókn hans
hjá án þess að hann spurði fjöl-
skyldumeðlimi um hagi með miklum
áhuga og eftirtekt.
Við komum til með að sakna
Bibba sem góðs vinar og félaga,
Þórsleikir á vellinum verða ekki
þeir sömu án hans, né heldur verð-
ur eins gaman að grilla pylsur eða
baka snúbrauð í garðinum.
Minningin um góðan vin mun lifa
í hugum okkar um ókomin ár.
Fjölskyldu Birkis sendum við
samúðarkveðjur frá hjartanu.
Fjölskyldan Einholti 11,
Valdimar, Alice, Jónas, Lísa,
Símon, Tinna og Hilma.