Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 21

Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Hundaskóli Heimsendahunda Fræðandi og skemmtileg grunn- námskeið frá 4 mánaða aldri hefjast 30. júní. Menntaður hundaþjálfari Björn Ólafsson BIPDT. Uppl. www.hundaskóli.net, sími 897 1992. Heilsa Frelsi frá streitu og kvíða hugarfarsbreyting til betra lífs með EFT og sjálfsdáleiðslu. Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694 5494, Frelsi frá streitu og kvíða hugarfarsbreyting til betra lífs með EFT og sjálfsdáleiðslu. Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694 5494, vidar@theta.is, www.theta.is Nudd Temple Massage Whole Body Healing Massage based on Tantric principles. For men, women and couples. Tel. 698 8301. www.tantra-temple.com Húsnæði óskast Nemar óska eftir íbúð! Þrír strákar að vestan óska eftir 4 her- bergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Reyklausir, drykkja í lágmarki og reglusamir. Hafið samband í síma 862 9088. Atvinnuhúsnæði Bæjarlind 14-16 Til leigu verslunar- eða skrifstofu- húsnæði í Bæjarlind 14-16 á jarðhæð (neðstu) – norðurendi (Tekk-plássið), 400 m². Innkeyrsludyr, næg bílastæði og góð aðkoma. Hagstæð leiga. Upplýsingar í síma 895-5053. Sumarhús Sumarhúsalóðir í Kjósinni Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1 (Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í síma 561 6521 og 892 1938. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum til sölu Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Fagurt í fjallasal! Til sölu gullfallegar sumarhúsalóðir í landi Leirubakka á bökkum Ytri- Rangár. Glæsilegt útsýni. Aðeins 100 km frá Rvík. Uppl. í síma 893 5046 og á leirubakki.is og fjallaland.is Tómstundir PLASTMÓDEL Í MIKLU ÚRVALI Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is Til sölu Úrval af vönduðum handskornum trémunum frá Slóvakíu á góðu verði. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. www.verslun.is Pöntunarsími: 5351300 Stubbahús VERSLUNARTÆKNI Handslípaðar kristalsljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið úrval. Frábær gæði og gott verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Íslenskur útifáni Stór 100x150 cm. 3.950 kr. Krambúðin, Skólavörðustíg 42, Strax Laugarvatni, Strax Mývatni, Strax Seyðisfirði, Strax Flúðum, Úrval Selfossi, Úrval Egils- stöðum, Hyrnan Borgarnesi, Strax Búðardal. Matador heilsársdekk tilboð 165R13 kr. 3.900 155/70R13 kr. 5.500 165/65R14 kr. 7.900 185/65R14 kr. 8.900 195/65R15 kr. 9.900 215/55R16 kr. 16.900 Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Bókhald Framtöl - Bókhald Bókhaldsþjónusta, ársreikningar, framtöl, stofnun ehf., VSK uppgjör, erfðafjárskýrslur, fjármálaráðgjöf. Hagstætt verð. s. 517-3977, netfang: framtal@visir.is Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Ýmislegt Glow & blikkvörur fyrir útisamkomur í sumar, farðu inn á www.hafnarsport.is og skoðaðu úrvalið. Eigum nýjar hvítar 80 x 200 innihurðir með karmi og gerektum á aðeins 24.000 með vsk. Húsgagnasprautun Gjótuhrauni 6, Hafnarfirði, sími 555-3759. James Burn International Allt efni og vélbúnaður til járngormainnbindingar. Allt efni og vélbúnaður frá Fujifilm til plasthúðunar. Klöckner pentaplast Kápuplastefnið vinsæla - rispfrítt og engin fingraför. Vönduð vara frá viðurkenndum framleiðendum á mjög góðu verði. Skútuvogi 1,G. Sími 533-3535 IMG_1212 IMG_1221 IMG_1222 IMG_1722 Léttir og þægilegir bandaskór úr leðri, skinnfóðraðir. Verð: 8.975.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vélar & tæki Til leigu með/án manns Gerum einnig tilboð í hellulagnir og drenlagnir. Upplýsingar í síma 696 6580. Jeppar Ford F450 Ford F450 4x4 árg. ´03, 6,0 dísel, beinskiptur, ekinn 30,000 á vél. Nýr pallur 2,4 x 3,5 m. Nýir rafgeymar og spindilkúlur. V: 2 mill. + vsk. Ýmis skipti möguleg. Sími 893-7203. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Húsviðhald Skipti um rennur og bárujárn á þökum, einnig smávægilegar múrviðgerðir og ýmislegt fl. Þjónum landsbyggðinni einnig. Upplýsingar í síma 659-3598. Einkamál Chat.is Við spjöllum saman og kynnumst nýju fólki á Chat.is. Það kostar ekk- ert, og vefurinn er í boði á fjölda tungumála. GARNBUDIN.IS Skemmtilegt garn á góðu verði. Denise prjónasettin fást hjá okkur. Sendum um allt land. Sími: 868-2750. Vefverslun: http://garnbudin.is Hannyrðir ✝ Lýdia BergmannÞórhallsdóttir fæddist í Reykjavík 23. júlí 1921. Hún lést á Landakotsspítala 18. júní 2009. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhanna Bergmann Magnúsdóttir frá Fuglavík á Miðnesi, f. 1. mars 1892, d. 23. sept. 1964 og Þórhall- ur Valdemar Ein- arsson rennismiður, ættaður úr Eyjafirði, f. 16. nóv. 1885, d. 12. nóv. 1946 Systkini Lýdíu voru: Est- her Jóhanna Bergmann, f. 1915, d. 1983 Nói Bergmann, f. 1916, látinn, Reynir Valdemar Bergmann, f. 1918, d. 1996, Sóley Magnea Berg- mann, f. 1919, d. 1999, Jónína Mar- grét Bergmann, f. 1924, d. 1994 og Hilmar Bergmann, f. 1928, d. 2009 Sonur Lýdíu og Ás- geirs Magnússonar, f. 1914, d. 1987, er Magnús Bergmann Ásgeirsson, f. 14. maí 1945. Sonur hans og Elísabetar M. Haralds- dóttur er Ásgeir Berg- mann, f. 22. janúar 1977. Hann á tvö börn með Birnu Guðjóns- dóttur, þau Guðjón Mána, f. 4. febrúar 1997 og Karín Dúfu, f. 27. júní 1998. Lýdía lærði ung kjólasaum en vann síðan í 13 ár á ljósmynda- stofu Lofts Guðmundssonar og frá 1960 sem gjaldkeri í Hampiðjunni í 38 ár eða til 77 ára aldurs, síðustu árin í hálfu starfi. Útför Lýdíu fer fram frá Nes- kirkju í dag, 29. júní og hefst athöfn- in kl. 11. Það er í raun með ólíkindum hvað ein manneskja getur við and- lát skilið eftir sig stórt skarð í lífi margra þó hún hafi hvorki verið hávær né fyrirferðarmikil. Lýdía móðursystir mín var stór hluti af lífi mínu alla tíð. Fyrsta minningin er þriggja ára táta sem læðist fyrir allar aldir niður stig- ann með ískaldar tær og mikla tog- streitu í brjósti. Ludda, fallega, góða frænkan mín svaf niðri í stofu og ég hafði loforð um að ég mætti skríða uppí hjá henni þegar ég vaknaði en skilyrði var að skilja snudduskömmina eftir og það var erfið ákvörðun, en að sjálfsögðu vó þyngra að fá að lúra hjá frænku. Minningarnar eru margar því öll sumur var Lýdía hér í sveitinni í 1–2 vikur, stundum lengur, hún og mamma voru ekki bara systur heldur líka góðar vinkonur og mik- ið var oft gaman að hlusta á þær rifja upp sögur af skrítnum kerl- ingum og skondnum körlum frá fyrri tíð. Hana frænku mína munaði aldr- ei um að aðstoða aðra eða taka aukasnúning. Eftir að hún hætti að vinna gekk hún flesta daga frá Ás- vallagötu og niður á Ægisíðuna, þessar göngur stundaði hún vel fram yfir áttrætt eða þar til sjónin og bakið gáfu sig. Þegar sjónin var orðin mjög slæm spurði ég hana einu sinni hvort hún væri ekki orð- in rög við að ganga svona ein en svarið var: Ég passa bara að horfa niður fyrir tærnar á mér, stími svo áfram og er ekkert að glápa á fólk- ið í kring um mig. Þetta er góð per- sónulýsing á Lýdíu, aldrei að gefa eftir meðan möguleiki var á að halda sínu striki. Hún lét ekki mik- ið eftir sjálfri sér en henni var mik- il gleði í að finna góðar og nyt- samar gjafir handa sínum nánustu. Oft man ég að hún sendi mömmu efnisstranga til að sauma úr á sig og okkur systurnar. Lýdía lærði kjólasaum þegar hún var ung og var henni nokkur ástríða í að kaupa; lekker efni á hagstæðu verði; eins og hún orðaði það sjálf. Bestu ár Lýdíu voru án efa þau ár sem ömmuhlutverkið tók allan hennar frítíma. Sonarsonurinn Ás- geir og hálfsystkini hans, Ásdís og Eggert Bjarni, voru það sem líf hennar snérist um og var hún óþreytandi að sinna þeim, fara í sumarbústaði og hlúa að þeim á all- an hátt. Þessa umhyggju hefur Ás- dís endurgoldið ríkulega með ástúð og umhyggju eftir að heilsu Lýdíu fór að hraka, og á Ásdís sérstakar þakkir skildar fyrir það. Líf Lýdíu var ekki alltaf dans á rósum, en það var alltaf stutt í hennar sérstæða húmor, jafnvel síðustu dagana á Landakoti gat hún kætt okkur sem hjá henni vor- um með skondnum setningum og jákvæðni sinni. Hafðu þökk fyrir allt, elsku frænka, þó þú hverfir verða minn- ingarnar ekki frá okkur teknar, þær skjóta margar upp kollinum þessa dagana og valda til skiptis brosi eða tárum. Elsku Maggi, Geiri, Ásdís og fjölskilda missirinn er alltaf jafn sár jafnvel þó lífsganga ástvinar sé orðin löng. Allar mínar bestu óskir til ykkar. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Úr Spámanninum.) Jóhanna B. Þorvaldsdóttir. Lýdía Bergmann Þórhallsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.