Nýtt kvennablað - 01.01.1946, Blaðsíða 14

Nýtt kvennablað - 01.01.1946, Blaðsíða 14
12 NÝTT KVENNABLAÐ Fallegur jafapúði Stökuz Ljóðastemning Ijúf er veitt leiftra sálar-glæður. Andinn spyr þá ekki neitt um ytri kringumstæður. Lilja Björnsdóttir frá Þingeyri. Methaíinn Fúllur, og i geði glaður „greifinn“ vanur krónuslætti, þykist vei'a mikill maður, — methafinn í ræfilshætti. Magnús Gíslason. kasta í vinnu. Því þreyttur maður afkastar aldrei eins mikilli vinnu og ólúinn, hann verður ekki nema hálfur maður og vinnan verður hon- um kvöl í stað ánægju. Hann er ekki lengur herra hennar, heldur þrælf hennar, og vinnur af vana, en hefur enga starfsþrá. Gömul kona. Bzéí send Nýju kvennablaði Frú Jónína Eyjólfsdóttir, Flatey í Breiðafirði skrifar: „Ég sendi yður, — til gamans — tvö erindi, Sumar- nótt og Vetrarnótt, sem ég veit ekki betur en séu eftir Ólinu Andrésdóttur skáldkonu. Ég hef hvergi séð þau eða heyrt nema til hennar. Hún söng þessar vísur oft undir lagi, sem ég svo lærði, en hef hvergi rekið mig á. Gæti ég bezt trúað, að hún hefði sjálf samið þetta lag, enda fer það vel við textann. Ólína heilin var vetrar- tíma hjá mömmu minni að spinna; ég var þá innan við fermingaraldur. Mér er minnisstætt, hvað hún var skemmtileg og hafði ég gaman af að hlusta, þegar hún söng og þeytti rokkinn. Svo sagði hún okkur sögur, og líkast var þá sem hún læsi úr bók, svo vel sagði hún frá, og fylgdist með söguhetjunum af lífi og sál." ifíí • - ' • ■ önnur kona skrifar: „Nú er ég loks orðin sæmilega vinnufær — hlutgeng við þessi algengu sveitastörf kvenfólksins, bæði utan og innan bæjar, en þau eru heldur alls ekki svo auðveld eða létt. Oft eru karlmennirnir fjarri heimilunum dögum eða jafnvel vikum saman, einkum haust og vor. Eru þá í vegavinnu, slátursvinnu o. s. frv. eða að sinna opin- berum störfum fyrir sveitarfélagið, — og þá verður kvenfólkið eitt að sinna heimilisstörfunum jafnt után bæjar sem innan — og það þarf oftar að vinna á sveita- bæjunum en um hásláttinn. — Hamingjan hjálpi sveita- búskapnum, ef starfsgeta kvenþjóðarinnar næði aðeins til grautarpottsins og þvottabalans. Ég er iíka í engum efa um, að hið ódýra vinnuafl kvenþjóðarinnar er ein sterkasta stoðin, sem nú ber uppi Jandbúnaðinn, víða á Jandinu, — og sveitalífið yfir leitt. I>að er ennþá 1 flest- um tilfellum margfalt ódýrara en vinnuafl karlmann- anna, svo mikið ódýrara, að ég efast um að landbúnað- urinn — eins og nú er ástatt með nann — risi undir fullkomnu jafnrétti." Tízkan: — Kjólinn til hœgri má hafa heiian a6 framan, en litla klauf aftaná.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.