Nýtt kvennablað - 01.12.1947, Side 7
Bldstjarnan
Þrjáfíu ára mínnítig
Kvennfélðgsins Freyja í Víðidal
Þann 19. sunnudag í sumri sumarið 1917 voru
nokkrar konur samankomnar á Lækjamóti í
Víðidal. Þær ræddu um félagsmál kvenna og
einkum stefnu þá í félagsmálum, sem hið ný-
stofnaða Norðlenzka Samband, með forustu frk.
Halldóru Bjarnadóttur, vildi vinna fyrir. Þar
var efst á blaði samvinna kvenna og kynning.
Þá heimilisiðnaður, garðyrkja og öll heimilis-
prýði. Markmið félagsins var að æfa starfskrafta
sína á héimilunum og utan heimilis með sam-
vinnu og féla.gsskap, ennfremur leita sér fræðslu
um uppeldismál.
Með þessari stefnuskrá var félagið stofnað. A
þessum fyrsta lundi var mætt biskupsfrú, Herdís
Pétursdóttir,kona Hálfdáns Guðjónssonarvígslu-
biskups. Var hún á ferð, og stödd á Lækjamóti
þennan dag. Sat hún fundinn og óskaði félaginu
allra heilla og blessunar. Auk hennar voru þarna
mættar tvær aldraðar konur úr sveitinni, sem
mega teljast hafa borið uppi heimilismenningu
sveitarinnar um langt skeið. Það var Margrét
Eiríksdóttir á Lækjamóti og Ingibjörg F.ysteins-
dóttir, Auðunnarstöðum.
LFnr vorið 1917 hafði Jónína, húsmæðra-
kennslukona, dóttir Lækjamótshjónanna, Sig-
urðar Jónssonar og Margrétar Eiríksdóttur flutt
með manni sínum, Jakob Líndal, að Lækjamóti
og byrjað búskap. Jónína var kosin formaður
og er það til þessa dags. Á fundinum var einnig
Aðalheiður Jónsdóttir, fyrrverandi kennslukona
og Guðrún Jóhannesdóttir húsmæðrakennari.
Allar þessar konur gengu í felagið, nema biskups-
frúin, senr var heiðurs gestur okkar. Eitthvað
var þarna fleira af konum, en það sést ekki á
fundargerðinni.
Við komum okkur saman um það að liafa
fundina til skiptis á lieimilum félagskvenna,
næsti fundur var ákveðinn að Hrísum, og þar
skyldu lögin samþykkt.
Verkefnin voru mörg, senr lágu fyrir þessu
litla kvenfélagi. í sveitinni var ekki starfandi
barnakennari, nema suma vetur.Við réðum strax
konu til þess að kenna unglingsstúlkum tvo
mánuði urn veturinn. Ekki var neins styrks að
vænta til þessarar starfsemi í þá daga, og urðum
við að bera allan kostnað, sem af Jrví leiddi.
Það voru nú ekki margar konur í sveitinni,
sem þorðu að vera með í Jiessum félagsskap.
NÝTT KVENNABLAÐ
Kg vaki ein um vctrarnótt
í vestri Ijóminn skín.
Aj bláum himni horjir rótt
f)ú hei'ða stjarnan mín.
Þú berö mér kveðju úr betri heim,
ég blessa, stjarna, þig.
og líöa vildi í Ijóssins geim
jrá lágum jaröarstig.
Mig vantar þetta vœngjaflug.
Ó, væna stjarnan mín
og gct því aöeins hajiö hug
í hœöir upp til þín.
Ásta.
Þar hafði aldrei getað þrifist félag, og þó það
væri stofnað hafði Jrað lognast út af við lítinn
orðstír. Eldri konurnar, senr voru með í stofnun
félagsins dóu, og við urðum aðeins 7 konur, sem
héldu félaginu uppi nokkur ár. En brátt vav
sigurinn unninn, og menn fóru að sjá að hér
var þrautseigja og líf, sem átti rétt til Jiess að
lifa.
Strax á fyrstu árunum hófumst við handa við
jrað að selja kaffi í réttunum á haustin. Þá var
margt fé í sveitinni, engin mæðiveiki og sauðféð
í blóma. Réttadagurinn var liátíðisdagur fyrir
eldri og yngri. Allir karlmenn fóru til að draga
féð. Stórbændurnir til að stjórna vinnumönnun-
um — en húsfreyjurnar fóru eftir málaverkin
með dætur sínar og vngri drengi — eða þær sendu
vinnukonurnar með börnin og voru sjálfar
heima til þess að taka á móti gestum, sem að
garði báru •— margir áttu leið um veginn Jiann
dag.
Veitingar höfðu engar verið í okkar rétt til
Jiessa tíma. Húsfreyjurnar í sveitinni höfðu orð-
ið að senda piltum sínum lieitt kaffi á flöskum
heimanað frá sér, og riðu Jiá oft greitt svo kaffið
kólnaði ekki. Ég minnist einkum Helgu Þórar-
insdóttur á Refsteinsstöðum, sem fór lvart á brún-
um gæðing, sem hún átti, hvern réttadag, fram
í Víðidalstungurétt með kaffi handa bónda sín-
um. Leiðin mun vera um 18 km.
Við félagskonurnar undirbjuggum kaffisöluna
í réttunum, skiptum með okkur verkum og feng-
um lánað tjald lijá ungum bónda í sveitinni.
Bráðum fénaðizt okkur svo mikið á kaffisölunni,
að við gátum keypt okkur livítan striga og
saumað stórt tjald. Ennfremur keyptum við borð
og bekki, prímusa og önnur áhöld til veiting-
anna. Hreppurinn lánaði okkur lítið tjald til
5