Nýtt kvennablað - 01.05.1953, Blaðsíða 7
1 augnablikinu er Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir, leikkona, yngsta Ástan okkar, en
þær eru or'ðnar margar ungfrúrnar, sem
farið hafa í föt heimasætunnar í Dal. —
Ekkert leikrit, annað en „Ævintýri á
gönguför“, hefur verið leikið oftar en
Skuggasveinn, og hefur leikrit Matthías-
ar líklega vinninginn úti um sveitir lands-
ins. f Reykjavík hefur Skuggasveinn ver-
ið sýndur 189 sinnum, nú 9Íðast af Þjóð-
leikhúsinu 40 sinnum. Alltaf er Ásta
perlan, sem augað þráir, og var gaman,
að Guðbjörg skyldi fá hlutverkið.
Frá því Guðbjörg Þorbjarnardóttir lék
Snæfríði íslandssól og hlutverk sitt í
„Brúin til mánans“ hefur hún verið í röð
okkar fremstu leikara og unnið leiksigur
jafn oft og hún hefur komið fram á
leiksviðið.
Er hún í lok leiksýningar á Söngbjöll-
unni eftir Dickens í hlutverki blindu
stúlkunnar stóð fyrir miðju með ung-
barnið í fanginu, aðrir leikendur útfrá
til beggja handa, urðu þeir allir aðeins
sem geislabaugur, áhorfandinn hafði það
á tilfinningunni, meðan hún ein var eftir
fyrir sjónum hans.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, leikkona,
hefur oft hrifið mannfjöldann með leik
sínum. Vakið innvortis fögnuð og
geðbrigði. Slík afbragðs meðferð er
hún sýndi nú síðast í útvarpsleikritinu
„Hreysikötturinn“ er mikils virði fyrir
heildina og vekur að vonum aðdáun og
hlýhug til hinnar gáfuðu leikkonu, sem
tileinkar sér lyndiseinkunn gáskafullrar
æsku jafnt sem fæddra krossbera. Mál-
blærinn er ágætur og viðbrögð og fram-
koma ákjósanleg. Konan, í hvaða stöðu
sem er getur vel við unað, að vita sjálfa
sig, sinn innri mann, í hennar höndum
á leiksviðinu. Guðbjörg er vestfirðingur
að ætt. Bjuggu foreldrar hennar í Bol-
ungavík og á ísafirði, Rósa Aradóttir og
Þorbjörn Eggertsson, sjómaður.
Leikkonan lengi lifi!
NÝTT KVENNABLAÐ
Rúrik IlaraUlsson (HaraUlur). Guðbjörg: I»orbjarnardóttir (Ásta)