Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009
Tempur – 15 ár á Íslandi
Frábær afmælistilboð í júlí
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI í eigu
ríkisins munu eftir sem áður þurfa
að birta fjárhagsupplýsingar sínar
opinberlega í lok hvers ársfjórð-
ungs, samkvæmt drögum að eig-
endastefnu ríkisins í fjármálafyrir-
tækjum, sem unnin hafa verið í
fjármálaráðuneytinu.
Þetta eru sömu reglur og gilda
um fyrirtæki sem skráð eru á mark-
aði. Segir í drögunum að með þessu
verði best tryggt að opinber
fjármálafyrirtæki verði eins gagnsæ
og fyrirtæki sem skráð eru á al-
mennum verðbréfamarkaði.
Í drögunum er jafnframt lagt
bann við svonefndum starfandi
stjórnarformönnum, í samræmi við
frumvarp til breytingar á hluta-
félagalögum, sem nú er til meðferð-
ar á Alþingi. Gert er ráð fyrir að hin
nýja ríkisstofnun, Bankasýsla rík-
isins, kjósi stjórnirnar á hluthafa-
fundum.
„Ákveðin hætta er á því að ríkið
verði óvirkur eigandi sem leitt getur
til þess að stjórnendur fyrirtækj-
anna fari að stýra þeim eftir öðrum
markmiðum en eigandans,“ segir í
drögunum.
Skilið á milli
eiganda og eignar
Rík áhersla er einnig lögð á að
skilja pólitísk afskipti frá daglegri
starfsemi bankanna. Þannig skuli
stjórn og starfsfólk Bankasýslu rík-
isins hvorki taka þátt í daglegum
rekstri bankanna né hafa áhrif á
ákvarðanir þeirra. Skýrt skipulag
skuli vera á samskiptum bankasýsl-
unnar við bankana, svo staða henn-
ar verði trúverðug.
Bann er lagt við því að stjórnir,
bankaráð og stjórnendur fjármála-
fyrirtækja hafi beint samband við
fjármálaráðherra eða ráðuneyti
hans vegna atriða sem varða ein-
staka viðskiptavini þeirra.
Um laun stjórnenda segir að
kjararáð ákveði laun bankastjóra og
forstjóra fjármálafyrirtækja sem
ríkið á meira en helmingshlut í.
„Opinber fjármálafyrirtæki skulu
tileinka sér hófsemi þegar kemur að
launakjörum.“ Laun eigi að stand-
ast samanburð á þeim sviðum sem
fyrirtækin starfi á, en séu ekki leið-
andi. Þá skuli búa til framgangs-
kerfi fyrir starfsmenn innan fyrir-
tækjanna.
Með hemil á stjórnendum
Drög að eigendastefnu ríkisins í bönkunum miða að gagnsæi eins og í Kauphöll
Bann við starfandi stjórnarformönnum í fjármálafyrirtækjum í eigu ríkisins
» Bankasýslan fjarri daglegum rekstri banka
» Bankar hafi ekki beint samband við ráðherra
» Bankarnir tileinki sér hófsemi í launakjörum
VYGAUDAS Usackas, utanríkis-
ráðherra Litháens, er nú staddur
hér á landi. Hann er fyrsti ráðherra
ESB-ríkis til að heimsækja landið
eftir að Ísland sótti um aðild. Í
heimsókn sinni í alþingishúsið í gær
afhenti hann stuðningsyfirlýsingu
litháska þingsins við aðildina.
Á blaðamannafundi sem hann
átti áður með Össuri Skarphéðins-
syni lýsti hann yfir eindregnum
stuðningi við aðildarumsókn Ís-
lendinga að ESB. Daglega væri
hann minntur á að Ísland hefði
fyrst ríkja viðurkennt sjálfstæði
landsins. „Það er mér sönn ánægja
að vera á Íslandi. Á hverjum degi
geng ég eftir götu í Vilnius sem
heitir eftir Íslandi. Ég hef fylgst
með þróuninni á Íslandi og ákvað
að verða fyrsti utanríkisráðherr-
ann til að heimsækja landið eftir að
umsókn um aðild að Evrópusam-
bandinu var lögð fram formlega í
Svíþjóð fyrir helgi. Við viljum fá Ís-
land inn í ESB,“ sagði Usackas, sem
telur Ísland geta haft áhrif innan
sambandsins.
Þá ræddi hann fund sinn með
Össuri og kvaðst hafa greint frá því
hvernig Litháar gætu miðlað mál-
um. Umsóknin væri ekki auðvelt
ferli. Með þá reynslu sem Litháar
hefðu í farteskinu gætu þeir að-
stoðað við tæknileg atriði og ýmsa
samningskafla í aðildarviðræð-
unum.
GÆTU AÐSTOÐAÐ VIÐ ESB-UMSÓKNINA
Morgunblaðið/ Árni Sæberg
Stuðningur Vygaudas Usackas, utanríkisráðherra Litháens, afhendir Árna Þ. Sigurðssyni stuðningsyfirlýsinguna.
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
„VIÐ höfum nú séð verri ár en þetta
en við getum sagt að hann sé dapur,“
segir Eggert Guðjónsson, yfirmaður
viðskiptaborðs Landsvirkjunar, um
vatnsbúskap fyrirtækisins um þess-
ar mundir. Þurrkur og kuldi hafa að
hans sögn komið nokkuð niður á bú-
skapnum í sumar, bæði júní og júlí
hafi verið dræmir mánuðir.
Fyrir norðan og austan kveður
Eggert úrkomu ekki hafa skilað sér
og bráðnun jökla ekki hafa komist af
stað. Á Suður- og Vesturlandi sé
ástandið þó mun skárra, til dæmis sé
staða Þórisvatns framar vonum.
Eggert segir þó að í kortunum sé
heppilegra veður, hlýnandi og úr-
koma. „Þetta lítur ekkert illa út, við
erum í sjálfu sér rólegir yfir þessu
ennþá,“ segir hann og er bjartsýnn á
að jöklabráðnun það sem eftir lifir
sumars muni laga stöðuna.
Minna í Blöndu en áður
Eggert segir ástandið sérstaklega
slakt í Blöndu. Nú sé minna vatn
keyrt gegnum Blönduvirkjun en yf-
irleitt á þessum árstíma til að spara
vatn. „Það hefur verið framleitt tölu-
vert minna rafmagn þar en í venju-
legu árferði,“ segir Eggert en kveður
ofsögum sagt að framleiðslan sé í
sögulegu lágmarki.
Grannt er fylgst með þróuninni að
sögn Eggerts. Um miðjan ágúst mun
endanleg staða vatnsbúskapar
Landsvirkjunar liggja fyrir.
Þurrkur og kuldi koma
niður á vatnsbúskapnum
Morgunblaðið/Ásdís
Blöndulón Minna vatn er nú keyrt í
gegnum Blönduvirkjun en yfirleitt á
þessum árstíma.
Úrkoma hefur ekki
skilað sér fyrir
norðan og austan
„Í OKKAR aug-
um er grunnlíf-
eyririnn heilagur
og hann eiga allir
að fá,“ segir
Helgi K. Hjálms-
son, formaður
Landssambands
eldri borgara.
Sambandið
leggst alfarið
gegn tillögum
endurskoðunarnefndar almanna-
trygginga um að grunnlífeyrir verði
ýmist lagður niður eða tekjutengd-
ur. Segir í tilkynningu frá samband-
inu að markmið endurskoðunar al-
mannatrygginga eigi að vera að
bæta lífskjör lífeyrisþega, en til álita
komi að fresta endurskoðuninni,
fyrst nefndin treysti sér ekki til að
flytja tillögur um bætt lífskjör fólks.
„Það var alltaf litið á grunnlífeyr-
inn, þegar hann var settur á, sem
eðlilegan hluta af ellilaunum eldri
borgara þegar þeir hættu að vinna,
alveg án tillits til annarra tekna,“
segir Helgi. „Við erum mjög ósátt
við þessar skerðingar.“
Óskertan
grunn-
lífeyri
Helgi K.
Hjálmsson
Hægt að fresta end-
urskoðun trygginga
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
átta blaðsíðna sérblað um þjóðhátíð
í Eyjum. Þar er að finna dagskrá
þjóðhátíðar, viðtöl og hugmyndir
að útbúnaði fyrir útileguna.
Sérblað um
þjóðhátíð í Eyjum
UM miðnætti aðfaranótt laug-
ardags barst lögreglunni á Vest-
fjörðum tilkynning þess efnis að
maður gengi berserksgang á
Barðaströnd og væri hann vopn-
aður skotvopni. Lögreglan á Vest-
fjörðum óskaði eftir aðstoð sér-
sveitar ríkislögreglustjóra sem
naut aðstoðar þyrlu Landhelg-
isgæslunnar við að komast á vett-
vang. Jafnframt fóru lögreglumenn
frá Patreksfirði og Ísafirði á stað-
inn.
Vel gekk að tryggja ástandið á
vettvangi og gisti maðurinn fanga-
geymslu lögreglunnar á Vest-
fjörðum, en hann reyndist ölvaður,
að sögn lögreglunnar á Ísafirði.
Sérsveitin kölluð út