Morgunblaðið - 26.07.2009, Page 4

Morgunblaðið - 26.07.2009, Page 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 einfaldlega betri kostur Komdu og njóttu góðra veitinga Smurbrauð m/rækjum og kaffi 499,- laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is M anst’eftir City? sagði ígildi Bjarna Fel. íbyggið á svip í einu áramótaskaupinu. Það gerði náttúrlega ekki nokkur maður. Nú er öldin önnur. Eftir eitt æð- islegasta eyðsluflipp í sögu fótmenntanna verð- ur ekki hjá því komist að muna eftir City þegar spáð er í spilin fyrir komandi leiktíð í Englandi. Ásetningur Marks Hughes og lærisveina hans er einlægur – þeir ætla að blanda sér í baráttuna um efstu sætin í úrvalsdeildinni. Efnahagskreppan hefur ekki knúið dyra á Borgarleikvanginum í Manchester en eftir að eignarhaldsfélag skráð í Abu Dhabi tók þar við lyklunum fyrir tæpu ári hefur því verið haldið fram að Manchester City sé ríkasta knatt- spyrnufélag í heimi. Einhver kann að benda á Real Madrid í því sambandi en munurinn er sá að það er alveg örugglega innistæða fyrir út- gjöldunum hjá City. Þeir sjeikar vita ekki aura sinna tal. Yfirgengilegur auður eigendanna Auður sjeiks Mansour Bin Zayed Al Nahyans, sem skráður er eigandi City, er metinn á 33 milljarða sterlingspunda. Hann heyrir til valda- mestu fjölskyldunni í Abu Dhabi – hálfbróðir hans er forseti furstadæmisins – og hún mun vera metin á litla 550 milljarða punda. Ég legg það hvorki á heilabúið á mér né þær fátæklegu reiknivélar sem ég ræð yfir að snúa þeirri upp- hæð yfir í íslenskar krónur. En ljóst má vera að einhverjar 20 til 30 milljónir punda fyrir Téveza og Adebayora eru bara gárur á vatni. Leikmannahópi City hefur verið umturnað á einu ári. Hinir nýju eigendur höfðu ekki fyrr skrifað undir kaupsamninginn að metin tóku að falla. 32,5 milljónir punda reiddu þeir fram fyrir þjónustu Brasilíumannsins Robinhos sem er hæsta verð sem breskt félag hefur greitt fyrir leikmann. Nokkrum dögum áður hafði týndi sonurinn, Shaun Wright- Phillips, snú- ið heim og belgíski lands- liðsmaðurinn Vincent Komp- any verið keypt- ur frá Hamburger Sportverein. Buddan var áfram galopin í jan- úarglugganum enda þótt smærri upphæðir skiptu þá um hendur. En Shay Given, Wayne Bridge, Nigel de Jong og Craig Bellamy kunna allir sitthvað fyrir sér. Í ljósi liðstyrksins kemur kannski á óvart að City skyldi ekki ljúka keppni ofar en í tí- unda sæti úrvalsdeildarinnar á liðinni leiktíð. Það er hins vegar gömul saga og ný að það tekur yfirleitt tíma að stilla nýjan mannskap sam- an – óháð því hvað hann hef- ur kostað. Sumir hafa líka þurft að laga sig að nýrri deild, svo sem Robinho sem átti æði kaflaskipt tímabil, blessaður. Svo sem við var að búast hefur Hughes haldið uppteknum hætti í sumar. Einkum hefur hann sankað að sér framherjum. Fyrstur kom Para- gvæinn Roque Santa Cruz frá Blackburn Ro- vers, þá Argentínumaðurinn knái Carlos Tévez, sem síðast lék með nágrönnum City, Man- chester United, og loks Tógómaðurinn Emmanuel Adebayor frá Arsenal. Þremenningarnir hafa allir verið í hópi skæðustu framherja í úrvalsdeild- inni undanfarin ár og Hughes leiðist væntanlega ekki að hafa höggvið skörð í raðir United og Arsenal, sem eru félög sem City hyggst héðan í frá miða sig við, um leið og hann hefur aukið sam- keppnishæfni sinnar eigin sveitar. Enski landsliðsmiðvellingurinn Ga- reth Barry, sem kom frá Aston Villa, mun einnig styrkja hópinn en þaðan fékk City líka markvörðinn gamalreynda Stu- art Taylor, sem veita á Given aðhald í vet- ur. Athygli vekur að Hughes hefur eingöngu fest kaup á leikmönnum frá öðrum úrvals- deildarfélögum í þessari lotu. Það rennir stoðum undir þær vangaveltur að hann fái ekki langan tíma til að skila City í hæstu hæðir. Eigendurnir hafi ekki þolinmæði til að bíða eftir því að nýir leikmenn lagi sig hægt og rólega að aðstæðum í Englandi. Í ljósi útgjalda hlýtur það að vera skýlaus krafa sjeikanna að Hughes skili Manchester City í Meistaradeild Evrópu að ári. Allt annað yrði áfall. Reuters Manst’eftir City?  Kaupæði er runnið á Manchester City sem ætlar sér stóra hluti í ensku úrvalsdeildinni á komandi árum og misserum  Mark Hughes kaupir nú hvern miðherjann á fætur öðrum Galvaskir Gareth Barry, Carlos Tévez, Mark Hughes, Stephen Ireland og Roque Santa Cruz stilla sér upp á blaðamanna- fundi í Abu Dhabi á dögunum. Enda þótt eigendur Manchester City laugi sig í seðlum hafa þeir ekki fengið allar sínar óskir upp- fylltar á leikmannamarkaði. Enn sem komið er hafa stærstu bit- arnir gengið þeim úr greipum. Korteri áður en skrúfað var fyrir viðskipti með leikmenn síð- astliðið haust vildu þeir ólmir klófesta búlgarska miðherjann Dimitar Berbatov frá Tottenham Hotspur. Hann var hins vegar með tilboð frá hinu úrvalsdeild- arfélaginu í Manchester, United, upp á vasann og varð ekki hagg- að. Berbatov iðrast þess ugg- laust ekki enda stóð hann uppi sem enskur meistari um vorið. Annar stórlax sem slapp af önglinum var Brasilíumaðurinn Ricardo Izecson dos Santos Leite, sem í daglegu tali er kall- aður Kaká. Hermt er að City hafi verið reiðubúið að greiða AC Milan ríflega eitt hundrað millj- ónir punda fyrir þjónustu hans í janúar síðastliðnum. Ítalanna var freistað en leikmaðurinn sjálfur vildi ekki heyra á það minnst að flytja búferlum til Manchester. Þar með var málið úr sögunni. Sem kunnugt er gekk Kaká síðan í raðir Real Ma- drid í vor fyrir litlar 56 milljónir punda. Í sumar hefur allt snúist um John Terry fyrirliða Chelsea. City gerði tilboð í hann og síðan hafa fjölmiðlar kjamsað á mál- inu. „Okkar hugmynd var að hafa tilboðið undir ratsjá en Chelsea lét fjölmiðla vita af því og síðan hef ég ekki haft undan að svara spurningum um málið. Þetta þurfti aldrei að fara svona,“ sagði Mark Hughes í vik- unni. Fyrir fáeinum misserum hefði Chelsea, sem ekki er beinlínis á flæðiskeri statt, hlegið að til- boði í fyrirliða sinn og slegið það strax út af borðinu. Það hef- ur ekki tekist enda þótt Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri hafi lýst því ítrekað yfir að hann vilji halda Terry. Það staðfestir að Manchester City er ekki lengur boðflenna í samkvæmi risanna í spark- heimum. Svelgist enn á stærstu bitunum Reuters Eftirsóttur John Terry hinn firna- sterki varnarmaður Chelsea. Enda þótt ný-keyptar stjörnur muni setja sterkan svip á lið Man- chester City í vet- ur verður þar einnig pláss fyrir uppalninga. Önn- ur félög hafa nefnilega um ára- bil öfundað City af akademíu sinni sem elur af sér hvern fullburða kappann af öðrum. Má þar nefna Mi- cah Richards, Nedun Onuoha, Mich- ael Johnson og Stephen Ireland sem var að flestra mati besti leikmaður City á liðinni sparktíð, þrátt fyrir allt stjörnustóðið. Enn eitt ungstirnið, miðherjinn Daniel Sturridge, stökk frá borði í sumar og ætlar að freista gæfunnar í Lundúnum hjá Chelsea. Micah Richards ManchesterCity var stofnað árið 1880 undir hinu þjála nafni St. Mark’s (West Gordon). Núverandi nafn var tekið upp 1894. Félagið hefur tvívegis unnið enska meistaratit- ilinn, 1936-37 og 1967-68, enska bik- arinn fjórum sinnum, síðast 1969, Evrópukeppni bikarhafa einu sinni, 1970, og deildabikarinn í tvígang, 1970 og 1976. Þá hefur City sjö sinn- um farið með sigur af hólmi í næst- efstu deild sem er met. Félagið flutti frá Maine Road inn á Borg- arleikvanginn 2003. Hann er fjórði stærsti leikvangurinn í úrvalsdeild- inni, tekur 47,726 manns í sæti. Fremstir meðaljafningja í fyrra meistaraliði City voru marka- skorarinn mikli Peter Doherty og markvörðurinn Frank Swift, sem síðar gerðist íþrótta- fréttamaður. Hann týndi lífi í München-slysinu 1958 eftir að hafa fjallað um síðasta leik Barnunganna hans Busbys. Seinna meistaraliðið var ekki síð- ur vel mannað. Má þar nefna Mike Summerbee, Colin Bell, Tony Book og Francis Lee. Margir muna eflaust líka eftir jaxlinum Alan Oakes og markverðinum Joe Corrigan, sem tapaði eftirminnilega í vítakeppni á Akureyrarvellinum sumarið 1981 fyrir Samúel Jóhannssyni, baðverði og listmálara, en hann varði mark Þórs á þeim árum. Gekk Samúel upp frá því undir nafninu „The Corrigan Killer“ norðan heiða. Frank Swift Félag með sögu Nýliði Emmanuel Adebayor kom frá Arsenal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.