Morgunblaðið - 26.07.2009, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.07.2009, Qupperneq 10
10 ViðhorfINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 Indriði H. Þorláksson, aðstoð-armaður Steingríms J. Sigfús- sonar fjármálaráðherra, gerir lítið úr gagnrýnendum Icesave- samningsins í viðtali í Morg- unblaðinu í gær: „Ég get ekki neit- að því að ég er undrandi á því hvernig umræðan bæði í þinginu og í fjölmiðlum hefur að mestu farið frá aðalatriðum og leiðst út í lítils- verðan sparðatíning, upphrópanir og órökstuddar fullyrðingar.“     Er það sparða-tíningur þeg- ar því er haldið fram að í stað þess að fara eftir lögum um for- gang kröfuhafa sé hún með þeim hætti að Íslend- ingar kunni að þurfa að borga 300 milljarða króna að óþörfu?     Er það sparðatíningur þegar þvíer haldið fram að gengið hafi verið lengra í að afsala þjóðarétti en dæmi séu um í lánasamningum Íslands við önnur ríki?     Í viðtalinu segir Indriði: „Það eryfirleitt ekki svo að þeir sem sitja við samningaborðið séu óvinir sem reyna að klekkja hvorir á öðrum heldur eru þeir í sameiginlegum leiðangri að leita að lausn sem er viðunandi fyrir báða aðila.“     Leiðarahöfundur dagblaðsins Fin-ancial Times sér framkomu Breta ekki sömu augum: „Bretar, sérstaklega, sýndu að þeir eru bara vinir þegar vel viðrar þegar þeir í síðustu viku neyddu Íslendinga til að samþykkja óréttlátan samning þar sem íslenskir skattborgarar munu bera byrðina af að end- urgreiða auðtrúa breskum spari- fjáreigendum 3,8 milljarða punda. Hagkvæmni stærðarinnar hefur aldrei virst jafn skýr.“ Leiðarahöf- undurinn kallar samkomulagið ekki þorskastríð heldur þorskafrið í fyrirsögn. Indriði H. Þorláksson Sparðatíningur? Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis).Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Drepur fótsveppinn - þarf aðeins að bera á einu sinni ½½ Notaðu alla Lamisil Once® túpuna á báða fæturna til að forðast að sýkingin taki sig upp á ný Berðu Lamisil Once® á: á milli tánna, bæði undir þær og ofan á bæði á iljar og jarka 24h Til að ná sem bestum árangri skal ekki þvo fæturna í sólarhring 1 32 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 4 léttskýjað Lúxemborg 13 léttskýjað Algarve 21 heiðskírt Bolungarvík 4 alskýjað Brussel 14 léttskýjað Madríd 17 heiðskírt Akureyri 5 skýjað Dublin 10 léttskýjað Barcelona 24 léttskýjað Egilsstaðir 4 heiðskírt Glasgow 11 léttskýjað Mallorca 24 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 6 léttskýjað London 14 léttskýjað Róm 23 heiðskírt Nuuk 4 alskýjað París 13 léttskýjað Aþena 30 heiðskírt Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 16 léttskýjað Winnipeg 15 léttskýjað Ósló 14 skýjað Hamborg 14 skýjað Montreal 17 skýjað Kaupmannahöfn 16 léttskýjað Berlín 14 skúrir New York 22 heiðskírt Stokkhólmur 16 léttskýjað Vín 16 skúrir Chicago 21 þrumuveður Helsinki 18 skýjað Moskva 18 alskýjað Orlando 25 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR 26. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3.15 0,2 9.25 3,9 15.30 0,3 21.44 4,0 4:17 22:53 ÍSAFJÖRÐUR 5.22 0,2 11.22 2,2 17.36 0,3 23.36 2,3 3:56 23:24 SIGLUFJÖRÐUR 1.33 1,5 7.44 0,0 14.07 1,3 19.49 0,2 3:37 23:08 DJÚPIVOGUR 0.20 0,4 6.23 2,2 12.39 0,2 18.50 2,2 3:40 22:28 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á mánudag Norðaustan 8-13 m/s og væta á N- og A-landi en annars skýj- að að mestu. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast SV-til. Á þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag Norðlægar áttir og fremur vætusamt, en skúrir SV-til. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast SV-lands. Tunglfylling: 24,68% fylling, vaxandi (= ca. plús 25%) VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-10 metrar á sekúndu, skýjað með köflum norðan- og vestanlands en rigning suð- austantil. grein fyrir því að Icesave-samningurinn hvíldi þungt á þingmönnum. Það væri hins vegar ekki kostur í stöðunni fyrir Alþingi að fella samninginn enda hefði verið skrifað undir hann með fyrirvara um samþykki Alþingis. Þegar forsætisráðherrann lét þessi orð falla hélt ég að Jóhanna blessunin væri bara gengin af göflunum. Hvernig má það vera að forsætisráð- herra leyfi sér að tala af slíku virðingarleysi til hins háa Alþingis? Hún var beinlínis að segja, að Alþingi yrði að samþykkja ríkisábyrgðina, hvort sem þingheimi líkaði betur eða verr. Hún var að segja að Alþingi væri bara stimpilsamkunda, sem ætti að stimpla gerðan samning og lögleiða þar með. Hún var að segja að framkvæmdavaldið segði löggjafanum fyrir verkum. Hún var beinlín- is að lýsa frati á þingræðið á Íslandi. Er hægt að tala svona við 62 þingmenn Alþing- is? Hvað finnst forseta Alþingis, Ástu R. Jóhann- esdóttur, flokkssystur Jóhönnu, um ummæli for- sætisráðherra? Hvað finnst Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri grænna, um það virðingarleysi sem forsætisráðherra sýndi Al- þingi? Hvað finnst þingheimi öllum? Gerir forsætisráðherra sér enga grein fyrir því að við búum við þrískipt vald á Íslandi; fram- kvæmdavald (ríkisstjórnin), löggjafarvald og dómsvald? Mér finnst það grafalvarlegt mál að forsætis- ráðherra skuli tala með þeim hætti sem Jóhanna gerir til Alþingis. Vitanlega var samningurinn gerður með fyr- irvara um samþykki Alþingis, en það er Alþingis að samþykkja eða fella frumvarp fjármálaráð- herra um ríkisábyrgð. Það er ekki í verkahring forsætisráðherra að skipa Alþingi fyrir verkum. Ég hef verið að velta því fyrir mér að undanförnu, hvers konar gríðarlegan vanda við Íslendingar eigum við að stríða, þar sem Icesave-samning- urinn við Breta og Hollendinga er annars vegar, og þá sérstaklega frumvarpið um hina umdeildu ríkisábyrgð, sem nú er til umfjöllunar og með- ferðar hjá fjárlaganefnd Alþingis. Það er alveg ótrúlega erfitt að leggja mat á þann samning sem gerður hefur verið fyrir hönd íslenskra skattborgara í nútíð og framtíð, en eitt er víst, að hagsmunir skattgreiðenda, sem, nota bene, stofnuðu ekki til Icesave, réðu ekki för við þá samningagerð og ekki heldur réttlætið. Svo margir sérfræðingar, hagfræðingar, lög- fræðingar, lektorar, prófessorar, heimspekingar, rithöfundar og ég veit ekki hvað hafa stigið fram, lagt orð í belg og allt vitað, ýmist um kosti eða lesti Icesave-samningsins, að það er nóg til að æra óstöðugan að reyna að henda reiður á spekinnni allri, hvað þá að skilja og geta ályktað. Ýmist hafa hinir fróðu úthúðað samningunum sem afarkost- um sem við eigum að hafna, eða sagt að við séum borgunarmenn þessara samninga og þótt það sé súrt í broti, þá verðum við að borga. Enn er ég sannfærð um að ekki hafi verið sýnt fram á, að okkur beri að lögum að borga, en satt best að segja, þá veit ég ekki með hvaða hætti okkur er kleift að taka samninginn upp, því „okk- ar menn“ virðast hafa málað okkur út í horn. Jóhanna Sig- urðardóttir for- sætisráðherra sagði á Alþingi á fimmtudag að hún gerði sér Svo einfalt er það. Annars finnst mér sem Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, hafi komið fram af festu undanfarið og sýnt að hann er ekki einhver strengjabrúða sem forsætisráðherra getur kippt í spottana á að vild. Hann hefur af yfirvegun og skynsemi sagt að það væru margar hliðar á Ice- save-málinu sem þyrftu frekari skoðunar við og nefndin myndi ekki afgreiða málið frá sér til Al- þingis fyrr en þeirri skoðun væri lokið. Eins bíður fjárlaganefnd eftir áliti hagfræðistofnunar Há- skóla Íslands á efnahagslegum áhrifum af samn- ingnum um Icesave. Loksins var skynsamleg ákvörðun tekin á Al- þingi á fimmtudag, þegar samkomulag allra flokka náðist um að fresta þingfundum fram yfir verslunarmannahelgi, eða til þriðjudagsins 4. ágúst. Þetta var niðurstaða af fundi formanna allra flokka á þingi og af fundi allra þingflokks- formanna. Vikan sem framundan er verður notuð til nefndastarfa, enda er tilgangur þess að gera hlé á þingfundum sá að þingnefndir fái þann tíma sem þær þurfa til þess að ná utan um Icesave-málið. Þetta eru skynsamleg vinnubrögð og sjálfsagt er þörfin á þverpólitískri samstöðu ekki brýnni í nokkru máli en einmitt í Icesave-málinu. Vinnu- brögð af þessu tagi vekja í það minnsta veikar vonir um að frumvarpið geti tekið slíkum breyt- ingum í þverpólitísku samstarfi í fjár- laganefnd, að nið- urstaðan verði ekki jafn skelfileg og allt hefur hingað til bent til að hún yrði. agnes@mbl.is Agnes segir … Loksins rétt ákvörðun! Virðingarleysi Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra. gefur lítið fyrir þingræðið. Staðfastur Guðbjartur Hann- esson, formaður fjárlaganefnd- ar, er engin strengjabrúða. Steingrímur J. Sigfússon Ásta R. Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.