Morgunblaðið - 26.07.2009, Page 17

Morgunblaðið - 26.07.2009, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 Þótt mýmörg dæmi séu um höf-undarrétt á bulli, klóra íbúarBæjaralands í Þýskalandi sér í kollinum yfir málaferlum, sem eru nýhafin í München. Þau snúast um höfundarrétt á stefinu Holla-rä-di-ri, di-ri, di-ri í einu vinsælasta og fræg- asta jóðli Alpa-héraðanna í Mið- Evrópu, Kufstein-söngnum eftir tón- skáldið Karl Ganzer. Stefið sem og önnur í svipuðum dúr í jóðli eru nefni- lega bull í þeim skilningi að þau eru á engu máli og þar af leiðandi óþýð- anleg. Frá ómunatíð hafa kátir sveinar í Ölpunum jóðlað til að fanga hjörtu mjaltastúlkna og síðustu tvær ald- irnar hafa góðglaðir gestir á Október- fest í München jóðlað af hjartans lyst. Á steinöld jóðluðu menn af einskæri gleði yfir fegurð og undrum náttúr- unnar. Mongólskir þjóðflokkar eru sagðir hafa jóðlað á ákveðinn hátt til að ná hverjir til annarra yfir stepp- urnar og ættflokkar í Afríku og Asíu notuðu sömuleiðis visst afbrigði af jóðli. Jóðl er ekkert grín Öllum hefur verið frjálst að jóðla, hvað sem er og hvenær sem er, sjálf- um sér og öðrum til ánægju og ynd- isauka. Opinberlega líka ef því er að skipta. Fyrir Bæjara er jóðl þó ekk- ert grín, a.m.k. ekki hjá erfingjum Ganzers, sem hafa lögsótt Egon Frauenberger, útgefanda, en sá kveðst hafa samið fyrrgreindan jóðl- kafla. Erfingjarnir halda því hins vegar fram að Ganzer eigi heiðurinn af Holla-rä-di-ri, di-ri, di-ri, sem hann hafi samið fyrir 60 árum, og vilja hindra að Frauenberger fái áfram einn tólfta höfundarlaunanna. Holla- rä-di-ri, di-ri, di-ri er sannkölluð pen- ingamaskína því söngurinn hljómar látlaust í Þýskalandi og Austurríki. Í báðum löndunum hafa vinsældir þjóðlagatónlistar aukist og er hún jafnan leikin á besta tíma á ríkissjón- varpsstöðvunum. Í hvert skipti sem hljómsveitir til flutnings,“ segir lög- fræðingurinn. Frjáls atkvæði Jóðlsérfræðingurinn Josef Ecker, sem kennt hefur þúsundum nemenda söng, kveðst ekki skilja hvernig nokk- ur geti krafist höfundarréttar á jóðli. „Jóðl er gert úr einstökum atkvæð- um, ekki orðum. Atkvæðin eru frjáls og almenningseign,“ segir Ecker, sem er Bæjari í húð og hár. Hann heldur því fram að jóðl veiti fólki and- lega fullnægju, sem æ fleiri um allan heim kunni að meta. „Jóðl er listform, sem á rætur að rekja þúsundir ára aftur í tímann, og fjallar um sam- skipti manns og náttúru,“ útskýrir hann. Jóðl hafi líka sprottið af þörf mannsins til samskipta við aðra þótt auðnir og öræfi hafi skilið þá að. Bændur í Ölpunum hafi jóðlað með mismunandi hætti eftir því hvort þeir kölluðu á hjálp, döðruðu við mjalta- stúlkur í næsta þorpi eða versluðu með nautgripi. Holla-rä-di-ri, di-ri, di-ri virðist því ekki vera neitt bull þegar öllu er á botninn hvolft. Holla-rä-di-ri, di-ri, di-ri . . . Jóðl ‘‘JÓÐL Á RÆTUR AÐREKJA ÞÚSUNDIR ÁRAAFTUR Í TÍMANN Októberfest Gamlar hefðir eru í heiðri hafðar á árlegum bjórhátíðum í München þar sem góðglaðir gestir eiga til að bresta í jóðl að þjóðlegum sið. umrætt jóðl er flutt opinberlega rúlla peningarnir til erfingja Ganzers – og tólfti hlutinn til Frauenberger. Lögfræðingur Frauenberger segir Ganzer upphaflega hafa samið Kuf- stein-sönginn, sem fjallar um dá- semdir samnefndrar austurrískrar borgar, sem nokkurs konar tangó. Hins vegar hafi skjólstæðingur sinn, vinur Ganzers, gert viðamiklar breyt- ingar sem gáfu söngnum slagkraft í anda Alpanna. Í frumútgáfunni var stefið Di-da, di-da-da-da-da öflugt „gauks-jóðl“, eins og það er útskýrt á Spiegel On- line. „Frauenberger gerði jóðlið meira spennandi fyrir gesti í tjöld- unum á Októberfest og líka fyrir Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Costa del Sol frá kr. 89.990 – 2 vikur – með eða án fæðis Aðeins örfá sæti & íbúðir á þessu kjörum! Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum til Costa del Sol þann 11. ágúst í 2 vikur. Í boði er stökktu tilboð, með eða án fæðis, þar sem þú bókar sæti (og fæðisvalkost) og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í sumarfríinu á vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga á ótrúlegum kjörum. Verð kr. 89.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð í 2 vikur. Stökktu tilboð 11. ágúst. Verð m.v. 2 saman kr. 99.990. Aukalega fyrir hálft fæði í 2 vikur kr. 44.000 fyrir fullorðna og kr. 22.000 fyrir börn. 11. ágúst Stökktu til Allra síðustu sætin! Trúlega varð Edward TheodoreGein engum harmdauði þegarhann lést úr hjartabilun á geð- sjúkrahúsi í Madison, Wisconsin, 26. júlí 1984. Hann var á sjötugasta og áttunda aldursári og hafði verið bak við lás og slá frá árinu 1957 þegar lög- reglan fann höfuð- og innyflalaust lík eiganda járnvöruverslunar, Bernice Worden, á bóndabýli hans og æsku- heimili. Rannsókn lögreglunnar leiddi í ljós enn frekari óhugnað; fjölda haus- kúpna auk ýmissa húsmuna úr lík- amshlutum og flíka, t.d. sokka og ein- hvers konar galla, sem Gein hafði búið til úr mannshúðum. Þótt lögreglan fyndi líkamsleifar tíu kvenna á víð og dreif um heimili Geins var hann að lokum aðeins dæmdur fyrir tvö morð, annars vegar á fyrr- nefndri Worden og hins vegar á konu að nafni Mary Hogan, sem hvarf 1954. Hin líkin kvaðst Gein hafa grafið upp í kirkjugörðum af nýlátnum konum, sem höfðu minnt hann á móður hans. Óhugnaðurinn sem blasti við lög- reglumönnunum á heimili hans var meiri viðbjóður en orð fá lýst. Ekki kom á óvart að Gein var úrskurðaður geðveikur og vanhæfur til að koma fyrir dóm og sendur rakleiðis á geð- sjúkrahús. Ömurleg æska Ed Gein og eldri bróðir hans, Henry, ólust upp hjá stjórnsamri móður og ofbeldisfullum og drykk- felldum föður á afskekktum bóndabæ í Plainfield í Wisconsin. Hann er sagð- ur hafa verið ákaflega hændur að móður sinni, sem innrætti honum að konur – að henni sjálfri undanskilinni – væru hórur og verkfæri djöfulsins og kynlíf væri af hinu illa. Hún las á hverjum degi fyrir syni sína úr Biblí- unni, einkum kafla úr Gamla testa- mentinu, sem fjölluðu um dauða, morð og makleg málagjöld, og ein- angraði þá sem best hún gat. Því var þó ekki þannig farið að margir vildu vingast við Ed. Hann þótti bæði kvenlegur og fráhrindandi í framkomu, hló gjarnan upp úr eins manns hljóði og var fyrir vikið álitinn skrýtinn og lagður í einelti í skóla. Öf- ugt við Henry varð Ed æ háðari móð- ur sinni og vildi þóknast henni á alla lund. Báðir bjuggu í foreldrahúsum þótt komnir væru hátt á fertugsaldur og ítök og áhrif móðurinnar á líf þeirra jukust frekar en hitt eftir dauða föður þeirra 1940. Henry hafði áhyggjur og lá ekki á þeirri skoðun sinni að hún hefði slæm áhrif á Ed, en hann mátti ekki heyra orðinu á hana hallað og brást reiður við. Vorið 1944, þegar Henry fannst látinn með áverka á höfði á vettvangi þar sem þeir bræður höfðu daginn áður reynt að slökkva eld, var Ed svo grunaður um að hafa ráðið honum bana. Hann var þó ekki sóttur til saka og kann að hafa notið góðs af því að þeir Gein- bræður voru sæmilega þokkaðir. Þeir höfðu unnið ýmis tilfallandi störf og meira að segja hafði Ed stundum tek- ið að sér að gæta barna nágranna sinna og þótti farast starfið vel úr hendi. Undarlegur í háttum Eftir lát Henrys bjuggu þau mæðg- inin saman á býlinu þar til móðir hans lést 1945. Upp frá því bjó Gein einn í kotinu og varð sífellt undarlegri í hátt- um. Hann læsti og byrgði fyrir glugga í öllum herbergjum og hafðist við í lít- illi skonsu við eldhúsið. Þar sökkti hann sér niður í bækur um læknis- og líffærafræði, hryllingsskáldsögur og klámtímarit og tók til við að grafa upp lík í kirkjugörðum. Á árunum 1947 til 1954 er talið að hann hafi farið fjörutíu sinnum að næturlagi í þeim erinda- gjörðum. Þegar Bernice Worden hvarf í nóv- ember 1957 beindist grunur lögregl- unnar fljótlega að Gein. Við húsleit fannst lík hennar illa útleikið í skúr á landareign hans og inni í húsinu blasti fyrrnefndur viðbjóður við laganna vörðum. Worden hafði verið skotin með 22 kalíbera riffli áður en Gein svívirti líkið á flestan mögulegan máta. Þótt hann játaði bæði morðin á Worden og Hogan, líkránin og við- urstyggilega meðferð líkanna þvertók hann fyrir að vera náriðill. „Þau [lík- in] lyktuðu svo illa,“ útskýrði hann. Þótt Ed Gein sé steindauður í kirkjugarðinum í Plainfield, hefur hann gengið aftur í kvikmyndum, tón- list og bókmenntum. Hann og voða- verk hans urðu rithöfundinum Robert Bloch til að mynda innblástur að sögupersónunni Norman Bates í skáldsögunni Psycho, sem kom út 1959. Ári síðar gerði kvikmyndaleik- stjórinn Alfred Hitchcock persónu Bates ódauðlega í samnefndri bíó- mynd með Anthony Perkins sem brjálæðinginn. Keðjusagarmorðing- inn frá Texas (The Texas Chainsaw Massacre) frá 1974 með hinum hálf ís- lenska Gunnari Hansen dregur um margt dám af Ed Gein og sömuleiðis mannætan djöfullega, Hannibal Lechter, sem Anthony Hopkins túlk- að eftirminnilega í Silence of the Lambs og fleiri myndum um illfyglið ógurlega. Á þessum degi... 26. JÚLÍ 1984 LÉST BANDARÍSKI MORÐ- INGINN OG LÍKRÆNINGINN ED GEIN Illmenni Ed Gein játaði á sig tvö morð og nokkur líkrán. Húsið á hæðinni Hús Normans Bates þar sem skelfilegir atburðir gerast í kvikmyndinni Psycho eftir Alfred Hitchcock. Brjálæðingur Anthony Perkins sem Norman Bates í Psycho. Hannibal Anthony Hopkins lék óbermið Hannibal Lechter sem eins og Gein saumaði stakka úr mannshúðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.