Morgunblaðið - 26.07.2009, Qupperneq 20
20 Kvikmyndir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
K
vikmyndaáhugamenn
bíða jafnan spenntir eftir
nýju verki frá Mann; þó
honum séu mislagðar
hendur vita þeir að frá
þeim bæ er miklar líkur á stórvirki á
hverri frumsýningu. Hann er einn af
mörgum kvikmyndagerðarmönnum
sem haldnir eru ólæknandi fullkomn-
unaráráttu, en Mann stígur skrefi
lengra. Hann frumsýnir ekki verk sín
annars staðar en í einum sögufræg-
asta sýningarsal í Hollywood, Zanuck
Theatre, sem var, eins og nafnið
bendir, til einkasalur hins litríka
stjórnanda kvikmyndaversins 20th
Century Fox og innan hartnær ald-
argamalla múra þess. Ekki nóg með
það, Mann verður að sitja í sínu uppá-
haldssæti í röð nr. 7, annars er allt í
voða.
UM mánaðamótin júní/júlí kom
hann sér þar þægilega fyrir ásamt
sínu fólki og rúllaði í gegn Public
Enemies.
Á sjötugsaldri og síbrattur
Mann er orðinn 66 ára en jafn gal-
vaskur og úthaldsgóður sem fyrr.
Hann telst til fámenns hóps leik-
stjórablóma Hollywood, ásamt Mart-
in Scorsese, Clint Eastwood, Ridley
Scott, David Fincher auk e.t.v. ör-
fárra annarra sem eru bæði hátt
skrifaðir hjá gagnrýnendum og laða
að sér bestu kraftana á öllum sviðum
kvikmyndagerðar. Sú staða veitir
þeim frelsi til að leita fanga á erfiðum
og ekkert frekar gróðavænlegum
slóðum sem þeir kjósa, víðs fjarri
framhalds- og teiknimyndahetjumoð-
inu. Mann hefur aldrei gert of-
ursmell, af myndunum hans 9 hefur
engin náð að brjóta 100 milljóna dala
múrinn í N-Ameríku. Public Ene-
mies virtist á góðri leið að ná því
marki – þangað til Harry Potter kom
með galdraryksuguna. Síðasta mynd
hans, Miami Vice, kom og fór án þess
að marka spor. Engu að síður hefur
hann áunnið sér rétt til að gera það
sem honum býr í brjósti, með styrkri
hjálp stjarnanna sem sogast að verk-
um hans frá freistingum aðsókn-
arlega öruggari meðalmynda: Will
Smith, Tom Cruise, Robert De Niro,
Daniel Day Lewis, Al Pacino, Jamie
Foxx og nú síðast Johnny Depp. Þeir
telja gæði og hugsanleg metorð
veigameiri en peninga. Mann fær þá
sem hann vill í sínar raðir, m.a. starf-
aði alræmdur sakamaður og banka-
ræningi sem ráðgjafi við gerð Public
Enemies
Hefur aðdráttarafl
Það er auðvelt að sjá hvað það er
sem laðar stjörnurnar að handrita-
höfundinum og leikstjóranum Mann.
Hann hefur næmt eyra fyrir sam-
tölum, frábært auga fyrir átökum og
á einkar gott með að umgangast lit-
róf mannkynsins, löggur, bófa,
stjörnur, skúringarkonur og allt þar
á milli: Maðurinn er sjarmör.
Hvað gerist þegar kvikmynda-
mógúlarnir reyna að hafa stjórn á
kvikmyndagerðarmanni sem er ill-
viðráðanlegur? Einhver sagði að það
væri ekki fyrir hjartveika að reyna
slíkt. Eftir að hafa marga hildi háð
við Mann hefur fjöldi framleiðanda
svarið af sér frekari samvinnu við
vandræðagripinn. Einkum hefur tak-
markalaus fjáraustur með óhjá-
kvæmilegum fylgikvilla tapreksturs
fælt kvikmyndaverin frá honum. Pu-
blic Enemies kostaði röskar 100
milljónir dala en var tilbúin innan
tímamarka, sem má einkum þakka
yfirvofandi verkfalli leikarasamtak-
anna (SAG), í fyrra.
Tíminn læknar öll sár
Andrúmsloftið breytist með ár-
unum, gæði kvikmyndanna standa
jafnan fyrir sínu á meðan snjóar yfir
baslið kringum Mann. Bardagi hans
við Amy Pacal, stjórnarformann
Sony Pictures (Columbia), framleið-
anda Ali (’01), er einkar minnis-
stæður. Hún hélt varla
sönsum yfir gall-
hörðum ákvörðunum
höfundarins/
leikstjórans, að halda
grófum atriðum í
myndinni, sem
þýddi að hún
var bönnuð inn-
an 17 ára og fékk
fyrir bragðið slappari
aðsókn. En það er gleymt
í dag.
Mann og Dillinger
Það er auðvelt
að sjá vissa
samlíkingu
með þeim
Mann og Dillinger, sem Depp túlkar
af alkunnri snilld í Public Enemies,
eins og verstu glæpamenn Banda-
ríkjanna voru kallaðir á tímum áfeng-
isbanns og kreppu. Mann er gler-
harður nagli og sjálfstæður í anda
gömlu Hollywood leikstjóranna og
Dillinger, sem kynntur er til sög-
unnar sem e.k. tímaskekkja: einrænn
úlfur sem er ýtt út úr bankaránum af
nýjum, skipulögðum glæpahringjum.
Ein af lykilhugmyndum mynd-
arinnar, sem Mann skrifaði í félagi
við Ronan Bennett og Ann Biderm-
an, er að það var ekki aðeins Hoover
og FBI sem reyndu að ná Dillinger í
skotfæri, heldur engu síður nýstofn-
uð og öflug samtök glæpamanna sem
litu á Dillinger og hans líka sem ógn
við Mafíuna.
Mann telur Dillinger ákaflega
gamaldags en svo eldkláran í því sem
hann tók sér fyrir hendur að honum
tókst að komast af þrátt fyrir hrika-
legar, óteljandi leitir og tilræði. Hann
undirstrikar það í myndinni með því
að sýna að svo að segja allir sam-
starfsmenn hans voru skotnir í spað
áður en hann sjálfur mætti örlög-
unum utan við Biograph-kvikmynda-
húsið í Chicago. Það voru tvo reginöfl
á eftir honum, auk Hoovers og FBI
með alla sína upplýsingaöflun og
Erkifjandinn og
Michael Mann
Reuters
Leikstjórinn með fullkomnunaráráttuna Michael Mann ásamt aðalleikurunum í Public Enemies, Johnny Depp og Marion Cotillard, í UGC Normandie kvik-
myndahúsinu í París þar sem myndin var frumsýnd fyrr í mánuðinum. Mann hafði Depp einan í huga til að fara með hlutverk Dillingers.
NÝJASTA VERK MICHAELS MANN ER ÓVENJULEG „SUMARMYND “, HARÐSOÐIN, METNAÐARFULL
GLÆPAMYND UM ÓFRIÐINN SEM GEISAÐI Á MILLI FBI OG DILLINGERS Á KREPPUÁRUNUM
Johnny Depp þykir notalegur á tökustað, er annt um fjöl-
skylduna, en hann á tvö börn, 7 ára gamlan son og 11 ára
dóttir með sambýliskonu sinni til fjölda ára, hinni undurfögru,
frönsku leikkonu, Vanessu Paradis. Þau eiga hús í Suður-
Frakklandi og Bandaríkjunum og flakka mikið á milli. Pa-
radis leikur eingöngu í frönskumælandi myndum en
Depp er þekktur fyrir að túlka hin ólíkustu
hlutverk í þeim tæplega 50 myndum
sem hann hefur leikið í. Framan af ferl-
inum, á What’s Eating Gilbert Grape-
árunum, minnti yfirbragð hans á bó-
hema fyrri hluta 20. aldarinnar og
virtist hann mjög á varðbergi að ger-
ast ekki einn af ofurstjörnunum, sem
hefði legið hæglega fyrir honum, með
þessa litríku hæfileika og heillandi út-
geislun sem skilar sér svo vel á tjaldið.
Upp á síðkastið hefur hann slakað á
klónni og er hvergi banginn við að leika
í fyrirsjáanlegum kassastykkjum eins
og fyrrgreindum sjóræningjamyndum. Á
næstu árum munum við fá að berja
þennan stórkostlega leikara augum í
Lísu í Undralandi, undir leikstjórn Tims
Burton; The Man Who Killed Don Quix-
ote, eftir Terry Gilliam; Dali, og svo
blundar fjórða myndin um sjóræningja
Karíbahafsins rétt handan við hornið.
Þjóðaróvinur nr. 1
Johnny Depp sem
einræni úlfurinn
John Dillinger
‘‘MANN ER ORÐ-INN 66 ÁRA ENJAFN GAL-VASKUR OG ÚT-
HALDSGÓÐUR
SEM FYRR.
FBI Christian Bale leikur Pur-
vis, hægri hönd Hoovers.
Bankarán Dillinger réðst gegn stofnunum sem gerðu
líf fólks óbærilegt á kreppuárunum í Bandaríkjunum.
Johnny Depp