Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 24

Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 24
24 Tónlist MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 urinn í öskrandi ljónagryfju. Stúlka fyrir aftan mig hljóðar eftir fyrsta lagið: „Trúið þið þessum krafti?!“ og maður hennar hrópar: „Þetta eru bestu tónleikar í sögu Halifax!“ Nú fara tónleikarnir í loftið. Paul leikur og syngur til skiptis gömul og þekkt Bítlalög, lög frá ferli Wings svo og minna þekkt lög frá eigin ferli, einkum af hinum síðari diskum. Öll tónlistin er þó hrein klassík. Sígild tónlist. Hafi Paul ekki hrifið með sér fólkið í fyrstu lögunum leggur hann Kanadamenn í grasið þegar hann heilsar: „We’re gonna have a fantastic evening Yeah. Good evening Halifax. Good evening Nova Scotia. Good evening Canada. We’re gonna have a fantastic enening, gonna have some fuuuuun tonight!“ Ný ösk- ur. Paul spilar hvað eftir annað á aldagömul tengsl og vináttu Bret- lands og Kanada og sögu Skot- lands í Nova Scotia (Nýja Skotland á latínu). Eftir rokklagið Mama only knows fer Paul úr jakkanum og stend- ur eftir í hvítri skyrtu og með rauð axlabönd. Svo beint yf- ir í Let Me Eftir Ingólf Margeirsson ingomar@simnet.is É g elska hann svo!“ segir hún og hallar höfði sínu á öxl vinkonu sinnar. „Ég líka,“ bætir hin við. „Hann er líf mitt.“ Svo faðmast þær og snökta í kór. Við erum stödd á hljómleikum Pauls McCartneys í Commons-almenningsgarð- inum í Halifax 18. júlí. Það húmar hægt að kvöldi og hinstu sólargeislar hins heita dags fjara út í vestri og gylla himinhvelfinguna. Stúlkurnar fyrir framan mig eru á sextugsaldri; önnur með ljósan makka sem sennilega er grár í rótina en hin með rautt, slétt hár, nokkuð hæru- skotið. Brenda og Marla. Þær hafa ekið frá Dorts- mouth, bænum handan fjarðarins við Halifax, til að sjá æskugoð sitt, Paul McCartney. „Þú verður að fyrirgefa ef ég sprauta tárum,“ sagði Brenda kankvíslega við mig og bætir við: „Ég er samt með vatnsheldan augnháralit!“ „Hvaða lag mun græta þig mest?“ spyr ég. „Hey Jude,“ svarar hún að bragði. Síðar um kvöldið flytur Paul þetta lag og Brenda veinar og grenjar eins og tugþúsundir annarra í garðinum. Hún skálar við kókið mitt í einhverri áfengisblöndu í lítilli plastflösku. „Þú skilur,“ segir hún, „þeir selja bara bjór hér og ég er alltaf pissandi af bjór og það þýðir að ég missi af hálfum tónleikunum.“ Ég kinka skilningsríkur kolli. Brenda og Marla eru báðar starfsmenn í banka en á kvöldin liggja þær yfir gömlum Bítla- plötum og nýlegum diskum með Paul eins og þeg- ar þær voru í unglingaskóla. Hún spyr hvaðan við séum. „Íslandi!“ hrópar hún. „Alla þessa leið!“ Ég útskýri að margir Íslendingar elski Paul og Bítl- ana. Hún verður mjúk í framan: „Paul er elsk- aður um allan heim.“ Hópur Íslendinga í pílagrímsför til Pauls Við erum 32 Íslendingar komnir til Halifax á tónleika með Paul McCartney. Það hafði komið flestum okkar á óvart að Flugleiðir buðu upp á takmarkaðan fjölda miða á þessa tónleika. Við sem brugðumst snöggt við og hrepptum miða ásamt flugferð og hóteli teljum okkur heppin og ánægjan átti eftir að aukast. Tónleikarnir voru miklu betri en við þorðum að vona. Auk þess er borgin Halifax mun skemmtilegri og hlýrri en ég hélt. Á sumrin er menningarlífið mikið í borginni og til að mynda var alþjóðleg djasshátíð í gangi þá vikuna sem við dvöldum þar. Mikið er um frábæra veitingastaði og knæpur og því nóg að gera. Ferðin var því góð einnig fyrir þá sem hafa engan áhuga á Bítlunum en bera þann kross að vera í sambúð með Bítlaidjótum. Eins og elsku konan mín. Hún sýnir mér þá elsku og kær- leik að dröslast með mér til N-Kanada til að hlusta á Paul McCartney, tónlistargoð mitt og andlegan uppeldisföður. Við Brenda og Marla verðum ástfangin þegar við förum að tala um Bítlana og Paul. Okkur finnst við öll vera systkini fjórmenninganna frá Liverpool, öll með æskuminningar sem tengjast þeim. Innan tónleikagirðinganna í garðinum eru um 70 þúsund manns. Við ólumst öll upp saman; Bítlarnir og við. Daginn eftir les ég í dagblöðunum að tónleika- haldarar hafi gefið upp að 50 þúsund manns hafi sótt tónleikana. Það er hins vegar þeim í hag að gefa upp sem lægsta tölu. Þegar ég læt augun renna yfir skarann þar sem ég stend efst í stúk- unni er ég viss um að mannhafið sé ekki undir 60 til 70 þúsund manns. Ég tek líka eftir því að fólk stendur uppi á bílþökum, húsasvölum og jafnvel húsþökum til að njóta ókeypis tónleika. Þegar við komum að garðinum sáum við mikla hópa liggja á teppum í grasinu fyrir utan garðinn. Blöðin sögðu að um tíu þúsund manns hefðu hlustað á tón- leikana ókeypis. Þá er heildarfjöldinn ef til vill um 80 þúsund. Við sitjum ofarlega í ótraustri álstúku sem gengur í óhugnanlegum bylgjum þegar áhorf- endur stappa í takt við tónlistina. Allt í kringum mig er miðaldra fólk, flestir um sextugt og eldri en einnig börn þeirra og barna- börn. Einn unglingurinn hrópar yfir hópinn: „Þetta er söguleg stund!“ Flestir geta tekið undir þau orð. Margir unglingar af Ipod-kynslóðinni voru búnir að fletta upp staðreyndum um Paul á Google og fræða foreldra sína um lög og útgáfuár. Goðsögnin heldur áfram að lifa. Boðhlaupi Bítlanna er alls ekki lokið. Þegar Paul æðir af stað með I saw her standing there fyllast börnin skelfingu þegar foreldrar þeirra rokka um gras- ið og taka samhljóða undir texta lagsins. Hin miðaldra kynslóð kann sér þó meiri takmörk en áður. Kona á sjötugsaldri í námunda við okkur segir: „Það er spennandi að vera hér, en ég mun þó hvorki rífa af mér hárið eða henda nærbuxunum mínum upp á svið eins og í gamla daga.“ Öll erum við komin til að horfa og hlusta á Paul McCartney. Töframann- inn sem hefur bundið saman kynslóðir, lönd og heimsálfur. „Paul hefur tengt heiminn betur saman en páfinn, Banda- ríkjaforseti eða framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna sem enginn man hvað heitir,“ segir digur maður í gömlum Bítlabol frá yngri dögum en þrengist nú um maga hans. Hann er með gráar krullur en í stuði þótt Paul sé enn ekki kominn á svið. Tvö vond upphitunarbönd eru búin að ljúka sér af og það er kominn eftirvænting- arglampi í miðaldra augu áheyrenda sem bíða eft- ir almennilegri músík. Þegar við göngum í gegnum bæinn og upp á Citadelhæðina, þar sem almenningsgarðurinn liggur, má heyra fólk á götunum syngja og humma lög eftir Paul. Daginn eftir segir ung af- greiðslustúlka í bókabúð við mig: „Það lokaðist allt í gær. Paul stal bænum okkar.“ Og bætir við: „Mamma fór í heimsókn til vin- konu sinnar sem býr í einni af stóru blokkunum við garðinn til að standa á svölunum og hlusta.“ Við sáum fjölda fólks á svölum háhýs- anna við garðinn. Þeir hugrökk- ustu voru komnir upp á þökin. Franskættaður maður frá Quebec segir við sessunaut sinn og bendir í leiðinni á tvítuga dóttur sína: „Dóttir mín lærði ensku með því að læra Bítlatexta.“ Og svo framvegis. Maður skal aldrei vanmeta afl og aðdrátt- arafl Bítils. Brenda og Marla knúsast á ný og skála. Það er bannað að taka með sér áfengi, hljóðritunartæki, ljósmyndavélar og víd- eóvélar en flestir hafa þetta allt með sér í töskum og bakpokum. Hinir fyr- irhyggjusamari hafa tekið með sér tjaldstóla og skellt niður á grasið. Nokkrir af ferðafélögum okkar hafa keypt slíka stóla fyrr um daginn. Bítlaæðið ekki búið Nú gengur öskuralda yfir garðinn. Inn hafa komið tveir gítarleikarar Pauls, þeir Rusty Anderson og Brian Ray. Þá birtist hálfsköllóttur hljómborðs- leikarinn Paul (Wix) Wickens og mikill fögnuður brýst út þegar hinn digri, þel- dökki og hárlausi trommari Abe Labroiel jr. sest við trommusettið efstur á fjögurra hæða sviðinu. Og loks gengur goðsögnin inn á sviðið, klæddur dökkbláum bítlaleg- um jakkafötum með hinn sögufræga Höfn- er-bassa sinn í annarri hendinni sem hann hefur upp í loftið eins og veldissprota nokkrum sinnum í röð undir yfirgnæfandi öskrum. „Bítlaæðið er ekki búið,“ hugsa ég. Golan rótar lítillega í brúnlituðu hári Pauls. Hann er grannur og snöggur í hreyfingum og gefur fyrirheit um úthald en ég hafði óttast að ég væri tuttugu ár- um eða svo of seinn að sjá hjá Paul á sviði. Tveimur tímum og 38 mínútum síð- ar eftir rafmagnaða sýningu kemst ég að því að kvíði minn var algerlega óþarfur. Paul og félagar keyra strax af stað með Drive my car, góðum og gömlum Bítlasmelli. Eftir lagið breytist garð- Roll It. Rusty tekur gamla riffið hans Dannys Lai- nes og Paul sýnir góða fingrafimi á sýruskreyttan gítar sinn og sýnir Jimi Hendrix virðingu með því að skjóta nokkrum gripum úr Foxy Lady eftir Hendrix inn í lagið. Heather Mills Í heildina spilar Paul ekki bara tónlist sína, heldur segir hann sögur og brandara, spjallar við áhorfendur og virðist elska hverja sekúndu. Hann gefur aðdáendum óendanlega af sér. Engir stæl- ar, engir yfirburðataktar. Bara slétt og beint. Al- þýðulegt viðmót. Vinalegt, hlýtt, heiðarlegt og hjartnæmt. Það er eins og hann hafi þekkt hvert og eitt okkar árum saman. Allt að því eins og við hann. Og tónlistin yfirþyrmandi góð. Í lok Long and Winding Road, þar sem Paul sest við flygilinn meðan svart- hvítar myndir af þreytu- legu landslagi renna yf- ir sjónvarpsskjá að baki listamönn- unum, snýr Brenda sér að mér og segir: „Paul hefur bara gert góða hluti í lífi sínu.“ Til að stríða henni svara ég ill- kvittnislega: „Líka þegar hann giftist Heather Mills?“ Nú tala þær Brenda og Marla hvor í kapp við aðra: Heather var eitthvert versta Allt sem þú þarft er ást Goðsögn Paul McCartney spilar ekki bara tónlist heldur segir líka sögur og brand- ara og spjallar við áhorfendur.  BÍTLAÆÐIÐ ER EKKI BÚIÐ  „HVER GETUR HATAST ÚT Í NOKKURN MANN EFTIR SLÍKA UPPÁKOMU?“ SPURÐI GESTUR Á RAFMÖGNUÐUM TÓNLEIKUM PAULS MCCARTNEYS Í HALIFAX, NOVA SCOTIA Í KANADA  32 ÍSLENDINGAR FÓRU Í PÍLAGRÍMSFÖR TIL AÐ HLÝÐA Á GALDRAMANNINN SÍUNGA, SEM SÖNG OG SPILAÐI LÁTLAUST Í ÞRJÁ KLUKKUTÍMA  ENGINN SKYLDI VANMETA GAMLAN BÍTIL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.