Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 27

Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 *Nýtt í auglýsingu 14554 Sjúkrabifreiðar fyrir Rauða kross Íslands. Ríkiskaup, fyrir hönd Rauða kross Íslands, óska eftir tilboðum í fjórar nýjar sjúkrabifreiðar 4x4. Bifreiðarnar skulu búnar innréttingum og rafmagns- búnaði, skráðar í ökutækjaskrá og tilbúnar til notkunar. Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikis- kaup.is. Opnun tilboða er 15. september 2009 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum. Tilboð/Útboð Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. Kl. 13 Alþjóðakirkjan í kaffi- salnum. Kl. 16:30 Almenn samkoma Ræðumaður er Mikael Jarle- strand. Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð Samkoma kl. 17.00 ,,Ávöxtur andans er trúmenn- ska”. Ræðumaður sr. Ragnar Gunnarsson. Kristniboðarnir Helga Vilboðg Sigurjónsdóttir og Kristján Þór Sverrisson segja frá starfi í Eþíópíu. Allir velkomnir. Íslenska Kristskirkjan, Fossaleyni 14. Sunnudagur kl. 20. Samkoma. Örn Leó Guðmunds- son predikar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ sýndur á Ómega kl. 13.00. www.kristskirkjan.is Samverustundin í dag verður að Geirlandi við Suðurlandsveg kl. 16:30. Grillaðar pylsur, hoppukastali og léttir leikir. Nánari upplýsingar hjá Björgu í síma 862-8180. Allir velkomnir! Fríkirkjan Kefas Fagraþingi 2a v/Vatnsendaveg www.kefas.is Samkoma í dag kl. 20 Umsjón: Harold Reinholdtsen. Ólafur Jóhannsson með Guðs orð og góðar fréttir frá Ísrael. Sumarkirkja opin alla daga kl. 09-11 og 19-22, nema sunnu- daga. Morgunstund kl. 10.30 og ,,Hour of power” (máttartími) á kvöldin kl. 21. Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7 og fatabúð í Garðastræti 6, opin alla virka daga kl. 13-18, lokað á laugardögum í sumar. Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31 s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Anna Carla Ingvadóttir, Símon Bacon Ragnhildur Filippusdóttir, og Guðríður Hannesdóttir kris- talsheilari auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starfsemi þess, rann- sóknir og útgáfur, einkatíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR Samkoma í dag kl. 16.30. Gunnar Þorsteinsson predikar. Þriðjud. Samkoma kl. 20.00. Miðvikud. Bænastund kl. 20.00. Fimmtud. Ungmenni kl. 20.00. Laugard. Samkoma kl. 20.30. www.krossinn.is Útboð Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í malbikun gatnanna Norður- og Efrahóp ásamt yfirlögn á hluta Hafnargötu. Helstu magntölur eru Malbik nýlögn 11700 m2 Jöfnunarlag 12350 m2 Framkvæmdum skal vera lokið fyrir 30.09.2009. Útboðgögn verða seld á kr. 3.000.- frá og með mánudeginum 27.07.2009 á skrifstofu Grinda- víkurbæjar að Víkurbraut 62. Tilboðum skal skila á skrifstofu Grindavíkur- bæjar, Víkurbraut 62, í lokuðu umslagi merktu viðkomandi verki fyrir kl: 11:00 föstudaginn 31. júlí 2009, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra er þess óska. foreldrarnir gefa náinn gaum að öllu. Eft- ir smástund er svo lagt af stað og öll fjöl- skyldan syndir með hægð suður á tjörn. Ég undrast alltaf hvað álftirnar eru fljótar að flytja sig fram á tjörnina eftir að eggjaskurnin rofnar. Þetta er nokkur spölur – sennilega tvö hundruð metra leið – langferð fyrir litla unga, en tjörnin virð- ist veita það öryggi sem fjölskyldan telur sig þurfa. Líka getur hugsast að álftirnar telji óráðlegt að hafa tjörnina óvarða fram á sumar því að vatnsnæðislaus álftapör eru víða á flakki. Það sést eftir stórúrfelli þeg- ar grunnar tjarnir myndast á söndunum. Þá flykkjast álftir og endur að og busla þar meðan vatnið endist. Það er auðvelt að fylgjast með þessum stórvöxnu og rólyndu fuglum. Þeir fljúga ekki upp eins og endur og gæsir en halda tryggð við dyngju sína og tjörn og smám saman venjast þeir komumanni sem er að sýsla við skógrækt í mýrinni og austur á sandi. Þegar ég horfi á álftirnar hugsa ég ofttil þess hversu auðug við erum aðeiga tjáningarmiðil okkar, tungu- málið. Álftirnar verða að leysa samskipti sín á ófullkomnari hátt, með augnaráði, höfuðhneigingum, annarri líkamstjáningu og kvaki. Við eigum ástkæra, ylhýra málið! Hugsum okkur hve samskipti okkar væru fátækleg án þess. Við getum túlkað svo margt með orðavali og raddblæ, auk allr- ar þeirrar líkamstjáningar sem við beitum daglega án þess að hafa hugmynd um. Ungarnir eru strax á kreiki, nýskriðnir úr eggjum, og synda um frammi á tjörn, þessir litlu hnoðrar. Foreldrarnir eru nærstaddir og fylgjast vel með öllu. Fjöl- skyldan er ótrúlega fljót að hverfa inn í sefið ef óboðinn gestur nálgast. Skyndilega sýnist tjörnin vera auð en ef vel er að gáð sjást tveir hvítir kollar teygja sig upp úr sefinu og skyggnast um á löngum hálsi. Ég dáist að því hve fugl- arnir eru fljótir að gera sig ósýnilega en svo synda þeir með hægð út úr sefinu þeg- ar hætta virðist liðin hjá. Ef ég geri mér ferð að tjörninni til að gefa fjölskyldunni gaum, raða fuglarnir sér upp og synda um og þá er föst skipan á öllu, annað foreldrið á undan, vænt- anlega steggurinn, hitt foreldrið á eftir og ungarnir í röð á milli þeirra. Þessi uppstilling skilar einkar fallegum fjölskyldumyndum! En það er raunar sama hvernig svona hópur sýnir sig. Hann er svo glæsilegur álitum að ekki verður á betra kosið. Þessir hvítu, tignarlegu fugl- ar hrífa hugann hvort sem þeir synda settlega á tjörn eða svífa í lofti hægum, þróttmiklum vængjatökum. Þegar við horfum á álftir á flugi er stærð þeirra áberandi og ósjálfrátt hugs- ar maður að þetta hljóti að vera allþungir fuglar. Sú er þó ekki raunin. Einhvern tíma ók ég austur á sand að morgni dags til að sýsla við gróður og bar ekkert til tíð- inda á þeirri leið. En þegar ég ók heim til bæjar um há- degisbil sá ég hins vegar eitthvert nývirki út undan mér og leit þangað. Þarna lá hvítt flikki. Ég lagði lykkju á leið mína til að skoða þetta og það var þá dauð álft. Hún hafði flogið á raflínu og var særð á bringunni. Ég tók fuglinn í fangið, hann var volgur enn. Ég varð að koma honum fyrir til þess að vargur tætti hann ekki í sundur. Mér er það minnisstætt hve fisléttur hann var í fanginu á mér, enda lagaður af náttúrunni með léttum beinum og hannaður til lang- flugs. Því fór betur að þetta var ekki heimaálft. Það er ekki síður gaman að fylgjastmeð þessari stórvöxnu fjölskylduþegar líður á sumarið. Þá taka for- eldrarnir ungana á námskeið, kenna þeim að blaka vængjum til að þroska flugvöðv- ana áður en farið er á loft. Þá er oft mikið kvak og tilburðir á tjörninni. Svo rennur upp dagurinn þegar flug- æfing fer fram. Ég varð áhorfandi að einni slíkri fyrir fáum árum. Þá var ég staddur góðan spöl í burtu en sá að eitthvað stóð til hjá álftafjölskyldunni. Ég settist inn í bíl og beið spenntur átekta. Eftir mikið kvak og höfuðhneigingar hóf annað foreldrið sig á loft og flaug á að giska hundrað metra norðaustur í mýri. Hitt foreldrið var eftir á tjörninni hjá ung- unum og stjórnaði atburðarásinni. Og þar var fyllsta skipulag á öllu! Ungarnir voru í hóp en foreldrið álengdar. Það varð dálítið hlé en svo kvað við snöggt kvak. Fyrsti ungi hóf sig á loft fumlaus og öruggur og sóttist flugið vel. Hann komst áfallalaust austur til foreldr- isins í mýrinni og tyllti sér þar niður. Aft- ur varð smáhlé. Svo kvað við kvak. Næsti ungi hóf sig á loft og var talsvert þyngri á fluginu en sá fyrsti. Hann átti á að giska tuttugu til þrjátíu metra ófarna til álftanna tveggja í mýrinni þegar þróttur virtust þrotinn og hann þurfti að tylla sér niður. Enn varð smáhlé. Aftur kvað við stutt kvak. Þriðji ungi hóf sig á loft og var slakari til flugs en fyrri ungarnir tveir. Hann flaug á að giska þrjátíu metrum styttra en unginn á und- an. Nú voru tveir ungar eftir hjá álftinni á tjörninni. Aftur varð smáhlé. Enn kvað við snöggt kvak. Fjórði ungi blakaði vængjum og var greinilega illa fleygur. Hann lyfti sér með erfiðismunum upp af vatninu og hlammaðist þyngslalega niður austur á bakkanum. Nú var aðeins einn ungi eftir á tjörninni hjá foreldrinu. Aftur kvað við kvak. En fimmti unginn hreyfði sig ekki. Hann var bara ófleygur enn! Æfingunni var lokið. Ég staldraði að- eins lengur við og horfði á álftirnar í mýr- inni sem vöppuðu í hægðum sínum vestur að tjörninni. Það er gaman að sjá álftir ganga ímýri! Þær eru svo hægar og sett-legar í hreyfingum, minna ein- hvern veginn á fólk á leið til kirkju í gamla daga. Það er ótrúlega róandi sjón að horfa á þessa stórvöxnu fugla í hvítri halarófu. Nú er búið að fylla mýrina af ösp, klón- unum Keisara, Sæland, Sölku og Hauki, auk annarra klóna sem minna er af. Fugl- arnir hafa vappað um svæðið fram og aft- ur en engin planta hefur beðið tjón af ná- vist þeirra. Þetta eru skógræktarvænir fuglar! Kjói verpir á þessum slóðum og er áhyggjuefni flestra annarra fugla. Hrafn flýgur stundum um og svipast eftir eggj- um og ungum. Ég hugsa stundum til þess hvílík blessun það er að álftirnar leita fæðu í jurtaríkinu. Svona stórir fuglar taka mikið til sín! Það er skemmtileg skipan náttúrunnar að lífverur sem sækja fæðu í jurtaríkið ná sumar mestum vexti og verða tiltölulega öruggar um sinn hag sakir stærðar. Rán- verurnar þurfa oft að hafa meira fyrir til- veru sinni og eiga erfitt þegar þær eldast. Álftirnar eru einu fuglarnir á þessum slóðum sem geta verið tiltölulega öruggir um sinn hag. Stærðin tryggir það. Svo eru þær einbeittar og geysiharðar af sér þeg- ar á þarf að halda. Ránfuglar láta þær al- gerlega í friði. Mér líður alltaf vel að sjá fjölskyld-una úti á tjörn þegar ég er aðvinna austur frá. En nú eru reyndar orðin kynslóðaskipti á tjörninni. Það er saga að segja frá því. Mér finnst merkilegt að hafa orðið sjónarvottur að slíku. Álftirnar sem voru á Langakíl þegar tjörnin varð til hafa sennilega verið farnar að eldast. Fyrir fjórum árum varð annar fuglinn bráðdauður við tjörnina, virtist bara hafa hnigið þar niður. Makinn flaug á brott skömmu síðar. Það varð tómlegt í mýrinni. Álftapar helgar sér óðal, eignar sér tjörn og ver hana með þeirri hörku sem til þarf. Það ber aldrei við að aðkomuálftir tylli sér á tjörnina þótt fjölskyldan bregði sér í æfingaflug á haustdegi. Einhver bannhelgi virðist liggja á svæðinu. Það er kostulegt að standa álengdar á björtum og hlýjum degi og horfa á álfta- fjölskylduna úti á tjörn. Svo ber að fram- andi álftir á flakki og þeim líst vel á stað- inn, kannski væri ráð að stansa þarna stundarkorn og taka lífinu með ró. En það ríkir engin gestrisni á þessari tjörn! Um leið og aðkomuálftir lækka flugið bregðast tjarnarálftirnar við, blaka vængjum ákaflega og garga hátt. Róm- urinn verður svo dimmur og ógnandi að ég velti því fyrir mér hvaða fúkyrði fljúgi þarna á loft. Aðkomuálftir hækka flugið í skyndi og láta sig hverfa. Dagurinn er bjartur og hlýr, tjörnin spegilslétt. Steggurinn er einráður í litla ríkinu sínu. Mér detta í hug fleyg orð norðan úr landi: „Voru þá marg- ir smákóngar í Vatnsdal.“ Stærð tjarnar ræður því ef til vill hver örlög hennar verða. Sé hún ekki stærri en svo að tveir fuglar geti varið hana, er lík- legt að álftapar helgi sér hana og banni öðrum álftum aðgang með mikilli hörku. Ef tjörnin er of stór verður hún viðkomu- staður fugla en óvíst er um varp. Eftir fráfall álftarinnar og brottför makans voru engir svanir á tjörninni fyrstu vikurnar. Svo fór eitt og eitt par að tylla sér niður. Það var gaman að fylgjast með aðkomufuglunum sem könnuðu allar aðstæður. Þeir minntu mig á fólk að skoða íbúð! Mörg pör virtust vera búin að skoða tjörnina en loks kom eitt sem virtist ætla að helga sér óðal á þessum stað. Ég gladd- ist yfir því. Málið var samt ekki frágengið. Af hreinni tilviljun var ég nærstaddur þegar barist var um tjörnina og óvænt úr- slit urðu. Það var kyrrlætisveður, skýjað ogkomið fram yfir hádegi. Nýja pariðvar á tjörninni og mikil friðsæld yf- ir öllu. Skyndilega kom álftapar fljúgandi og gerði sig líklegt til að lenda. Heima- fuglar brugðu hart við, blökuðu vængjum og görguðu hátt. Aðkomuálftir sinntu því ekki en dembdu sér niður á tjörnina 15-20 metra frá heimafuglunum. Aldrei fyrr hafði ég séð aðkomuálftir gera sig svo heimakomn- ar að heimafuglum nærstöddum. Þær virtust komnar til að berjast til landa. Nú hófst ægilegur bardagi með miklum vængjaslætti og orgi. Ég horfði á atgang- inn steinhissa, hafði aldrei orðið sjón- arvottur að slíkum látum fyrr. Svo fór að lokum að annað parið lagði á flótta og brölti upp úr tjörninni. Hjúin tvö röltu austur mýrina niðurlút og buguð, kjöguðu þyngslalega með bog- inn háls og höfuð niðri við jörð. Ég hef ekki séð álftir svo niðurlútar á vappi öðru sinni, ósigurinn blasti við í öllum hreyf- ingum þeirra. Hitt parið var eftir á tjörninni, blakaði vængjum hressilega og kvakaði hróðugt. Hver álftin er annarri lík, en mig grunar fastlega að aðkomufuglarnir hafi sigrað þennan dag. Þeir voru ótrúlega sig- urvissir og ákveðnir þegar þeir dembdu sér niður á tjörnina. Því má bæta við að þetta nýja par hefur komið upp fimm ungum á sumri tvö síð- ustu árin. Það hefur því helgað sér tjörn- ina á sinn hátt. Hins vegar er það enn heldur fálátara við mig en gamla parið var eftir margra ára kynni, enda hef ég ekki haft tilefni til að vinna nálægt því. Álftafjölskyldan er nátengd og held-ur hópinn algerlega uns húnhverfur á brott að hausti. Hins vegar ber það ekki við að neitt af afkvæm- unum komi aftur á tjörnina næsta vor til að auka kyn sitt þar. Gömlu hjúin eru ráð- rík og leyfa engum að þrengja að sér, ekki einu sinni nánustu ættingjum! Mér sýnist það býsna algengt að einn unginn í hópnum sé ófleygur fram á haust. Fyrir nokkru var ég að skýla litlum greni- plöntum fyrir veturinn austur á sandi og heyrði þá kvak og fyrirgang á tjörninni og síðan smelli á vatni. Ég leit upp. Þarna voru þeir komnir á loft í æfingaflug, þessir glæsilegu fuglar. En þeir voru bara sex! Ég gekk vestur að tjörninni til að sjá hverju þetta sætti og þá var einn unginn þar eftir, stór og stæði- legur fugl, og kvakaði lágt og mæðulega. Fjölskyldan kom aftur á tjörnina eftir tvo eða þrjá tíma og svo voru æfingaflug næstu daga með stuttum hléum á milli. Enn komst unginn ekki á loft en hann blakaði vængjum og virtist vera að æfa sig. Svo fór að lokum að hann lyfti sér frá vatni og flaug á brott með fjölskyldunni. Þannig hefur þetta verið oftar, síðast haustið 2008, en allar álftir fljúga að lok- um brott af tjörninni fyrir vetur. ‘‘NÚ ER EINN KÍLL Í MÝR-INNI, LANGIKÍLL, LÖNG OG GRUNN LÆNA EINS OG NAFNIÐ BENDIR TIL. Í HONUM ER HREIÐUR- DYNGJA OG ÞAR VERPIR ÁLFTAPAR Á VORIN. Í MÝRINNI ER LÍKA TJÖRN, SKÓGARTJÖRN, ÞAR HEFUR ÁLFTAFJÖLSKYLD- AN AÐSETUR Á SUMRIN, OG FJÖLDI ANNARRA FUGLA LEGGUR ÞANGAÐ LEIÐ SÍNA. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri og hefur stundað skógrækt frá 1975. Hann fékk riddarakross fálkaorðunnar 17. júní síðastliðinn, fyrir framlag til uppeldismála, menningar og skógræktar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.