Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 29

Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 29
Umræðan 29 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 MERKILEG er umræðan um list og ekki list. Hún er hvorki tilgangslaus né lítilvæg en leiðir ekki til niðurstöðu um hvað geti talist list og hvað ekki, hver sé listamaður og hver ekki. Ástæðurnar eru margar og meðal þeirra helstu þessar: Hugtakið er ekki skil- greinanlegt á altækan hátt, ekki fremur en ást, fegurð eða frelsi, og skilningurinn er einstaklings- bundinn. Fer eftir hugmyndaheimi og uppsafnaðri lífsreynslu hvers og eins. Þegar brýn umræða um listir og listaverk á Íslandi er skoðuð „á ársgrundvelli“ vekur ýmislegt at- hygli. Umræðan er til dæmis sér- fræðileg, þ.e. miklu fleiri skóla- gengnir sérfræðingar í listgreinum taka þátt í henni en listamenn og almennir njótendur listar. Ráðstefnur, málþing, um- ræðufundir og annað af því tagi eru dæmigerður vettvangur. Sér- fræðingar, til að mynda leikhús-, bókmennta-, myndlistar- og tón- sögufræðingar, svo einhverjir séu nefndir, teljast ekki margir í land- inu og ekki laust við að fjölbreytn- ina vanti í umræðurnar. Ekki bæt- ir úr að rökstudd andsvör eru sjaldgæf eða gjarnan þrungin þjósti (hvort tveggja er íslenskur galli á allri umræðu í landinu) og orðræðan þróast því skammt á veg. Hún virðist enn fremur – og of oft – snúast um hugtök, stefn- ur, tilvísanir í annarra list og túlk- anir á lífsframlagi listamanna en einstök um listaverk og gæði þeirra eða innihald. Má biðja um betra jafnvægi? Umræðan bergmálar svo í fjöl- miðlum sem sjálfir einkennast af því að skera burt æ meira af rými undir menningu og listir og einnig af því að nýta rýmið fremur undir niðursoðna umsögn eða fræðilega útlistun en í að birta eða flytja verk. Nú er svo komið að meiri- hluti allra listviðburða í höf- uðborginni fær annaðhvort enga umfjöllun eða snöggsoðna og landsbyggðaratburðum er sjaldan sinnt. Með öðrum orðum: Meira er talað og greint en skáldað, horft og hlustað – og miðlað. Með þessum orðum er ekki verið að rýra menntun eða starf listsérfræðinga eða fjölmiðlafólks sem stendur að menningarkynningu. Ég gagnrýni áherslur og umgengni við við- föngin. Með þessum orðum er heldur ekki verið að gera lítið úr fjárhagsvanda fjölmiðla. Ég tel áherslur í efnisvali einfaldlega ekki réttar; menning er látin víkja fyrir öðru. Umræða og skrif tengd fram- laginu á tvíæringnum í Feneyjum er ágætt dæmi um stöðu list- umræðunnar og viðhorf fjöl- margra til lista. Engin opinber umræða var um framlagið á und- irbúningsstigi fram að sýningu. Skömmu fyrir opnun komu fram viðtöl og kynningar sem ein- kenndust af yfirdrifinni jákvæðni, skilgreiningargleði og merking- arhlaðinni orðræðu, jafnvel oflofi þess gallerís sem myndlistar- maðurinn nýtir sér. Eftir opn- unina hélt sama lofræðan áfram en án þess að svo mikið sem ein erlend umsögn um verk myndlist- armannsins, tekin beint upp, birt- ist í íslenskum miðli (ritað 3. júlí). Einn íslenskur myndlistarmaður setur fram umdeilanlega en skil- merkilega gagnrýni. Hún er um- svifalaust afgreidd sem „misskiln- ingur“ og í framhaldinu er ekki einu sinni unnt að fá á hreint hvað framlagið kostar í krónum og aur- um. Um framlagið sjálft í Fen- eyjum eða listamanninn er ekki fjallað hér og í raun skiptir hvor- ugt máli við mínar vangaveltur því raunin er oftast þessi; hvað þá ef íslenskur listamaður gerir eitt- hvað utanlands. Þrennt vil ég benda á. Í fyrsta lagi vantar menningarstefnu stjórnvalda í breiðum skilningi þess hugtaks: Meginhugmyndir um mikilvægi lista og heild- arstefnu í uppbyggingu listsafna, annarra safna, stuðning við ólíkar greinar eða listamenn, efnisval Ríkissútvarpsins, menntunarmálin o.s.frv. Eins og víða í íslensku þjóðfélagi, sbr. orkuvinnsluna í áratugi þar til fyrir skömmu, hafa menningarmál þróast einangrað, stjórnlítið, sértækt og eftir póli- tískum átakalínum eða áhuga og dugnaði einstaklinga. Ekkert af þessu hverfur með öllu þótt skýr, nokkurra blaðsíðna stefna sé mót- uð og endurskoðuð á nokkurra ára fresti heldur verður menningin öflugri, fjölbreyttari og blómlegri. Frumkvöðull er menntamálaráðu- neytið í samvinnu við fagaðila. Í öðru lagi væri ráð að samtök listamanna, stofnanir, fyrirtæki, áhugafólk og sérfræðingar tækju sig saman og stæðu að tvíþættu átaki í samvinnu við dagblað og sjónvarps- og útvarpsstöð um að halda úti myndarlegu hálfsmán- aðarblaði og a.m.k. 1-2 klst. löngum vikuþætti í sjónvarpi (allar listgreinar, ekki bara bókmenntir). Um leið er ekki lokað á annað menningarefni. Og Gufuna /Rás 1 höfum við en hana má bæta um margt. Í þriðja lagi verður að einblína á skólakerfið. Auðvitað felst hluti menningarstefnunnar í að koma listum fyrir í námsskrá grunn- og framhaldsskóla með miklu skýrari hætti og metnaðarfyllra fyr- irkomulagi en nú er. Listkynning og lágmarksmenntun, frá 7 til 20 ára aldurs, í sjónlistum, tónlist, bókmenntum og hönnun er jafn gott veganesti og hreyfingin sem fæst við íþóttaiðkun eða leikfimi, svo ekki sé minnst á forvarn- arþáttinn sem sífellt er rætt um við menntun barna og ungmenna. Hann felst ekki bara í líkamlegum átökum heldur líka í grunnþekk- ingu á listum, hönnun og hand- verki. Margþrungin list Eftir Ara Trausta Guðmundsson »Nú er svo komið að meirihluti allra listviðburða í höfuð- borginni fær annað- hvort enga umfjöllun eða snöggsoðna og landsbyggðaratburðum er sjaldan sinnt. Ari Trausti Guðmundsson Höfundur er jarðvísindamaður og höfundur sjö skáldverka. FJÖLSKYLDA byggði sér meðalstórt einbýlishús í litlu sjáv- arplássi í kringum 1980. Húsið hæfði fjöl- skyldustærð og átti að vera samastaður kjarnafjölskyldu um árabil. Ekki aðeins þeirra sem byggðu, heldur næstu kynslóða. 10 árum síðar höfðu aðstæður breyst. Atvinna í þorpinu hafði dregist saman. Aðgangur að auðlindum hafsins var takmarkaður og íslensk stjórnvöld höfðu ákveðið að hagræða í atvinnulífinu. Húsið sem átti að hlífa uppvaxandi æsku var nú ekki lengur heppilega stað- sett. Íbúarnir þurftu að flytja sig að Faxaflóasvæðinu þar sem tækifærin biðu. Á núvirði væri þetta hús ca 40.000.000 kr. Söluverð þess er á bilinu 5-15 milljónir ef kaupandi finnst. Ég hef gert mér það til dundurs að áætla hversu mjög verðgildi eigna landsbyggðarmanna hafa rýrnað á tveim síðustu áratugum lið- innar aldar. Tölurnar urðu fljótt undraháar. Verðgildi íbúða sýndist mér hafa fallið samtals um 500.000.000.000 (Fimm hundruð milljarða). Þá var eftir að reikna rýrnun opinberra mannvirkja og atvinnu- húsnæðis. Þær tugþús- undir sem þurftu að flytja sig milli lands- hluta fjárfestu í nýju húsnæði fjarri upp- runalegri heimaslóð. Hinir sem eftir sátu töpuðu talsverðum hluta tekna sinna. Ekki veit ég hvort yfirvöld hafa upplýsingar um heildarkostnað vegna landsbyggðarflóttans, en ég gæti trúað að hann næmi á bilinu 2.000 til 3.000 milljörðum. Framan af trúði ég að þetta gerði ekkert til. Hagsmunirnir lægju ann- ars staðar, væru miklu ríkari og kæmu okkur öllum til góða, líka þeim sem völdu að sitja um kyrrt. Svo kom október 2008. Þá kom hið merkilega í ljós sem mig hafði reyndar lengi grunað. Hagræðingin sem átti að skapa auðinn skilaði engu. Viðskiptafrelsið sem átti að undirbúa varanlega velferð á Íslandi hafði étið húseignir og tekjutap ís- lenskra dreifbýlinga upp til agna og miklu meira til. Markmið stjórn- valda að gera þjóðina auðuga á eignatekjum voru greinilega röng frá upphafi enda lítill greinarmunur gerður á skuldasöfnun og tekjuöflun við hagstjórn landsins. Ráðamenn eru ennþá villtir í þok- unni. Í stað þess að virkja fólkið til athafna, leita þeir allra ráða til að bjarga einhverju sem ekki er hægt að bjarga. Hversu lengi þær til- raunir standa skal engu um spáð, en því lengur sem við flýjum raunveru- leikann þeim mun sárari verður hann þegar ljósið rennur upp. Þá fyrst hefst tími endurreisnar með skynsamlegri nýtingu auðlinda, vinnuafls, hugvits, þekkingar og legu landsins gagnvart umheim- inum. Hrunið fræga verður þá okkur holl lexía um það hvernig ekki á að fórna eignum og tekjum heiðarlegs fólks á altari óvissra hagsmuna og annarlegrar hugmyndafræði. Byggðum blæðir – enginn græðir Eftir Sigurjón Bjarnason » Verðgildi íbúða sýndist mér hafa fallið samtals um 500.000.000.000. Sigurjón Bjarnason Höfundur er bókari. HÆGT og bítandi miðar okkur áfram við að rétta þjóðarskútuna eftir brotsjó haustsins og atburðir síðustu vikna hafa skilað ár- angri sem getur skipt sköpum fyrir end- urreisn Íslands. Sú ákvörðun meirihluta Alþingis að sækja um aðild að Evrópusam- bandinu sendir mikilvæg skilaboð um að Ísland vilji taka nánari þátt í sam- starfi Evrópuþjóða að því gefnu að grundvallarhagsmunir þjóðarinnar verði tryggðir í aðildarsamningi. Samkomulagið við skilanefndir gömlu bankanna um endur- skipulagningu bankakerfisins er önn- ur mikilvæg forsenda þess að end- urreisa megi traust Íslands á alþjóðavettvangi, sem er skilyrði fyr- ir lánveitingum, erlendum fjárfest- ingum og eðlilegum frjálsum við- skiptum við útlönd. Vissulega þurfum við að bíða haustsins eftir ákvörðun kröfuhafa um hvort þeir samþykkja að kaupa bankana tvo, Kaupþing og Íslandsbanka, en vís- bendingar úr samningaviðræðum við fulltrúa þeirra gefa a.m.k. tilefni til hóflegrar bjartsýni. Icesave Þriðja meginverkefnið við end- urreisn Íslands í alþjóðlegu sam- hengi er lausn Icesave-málsins. Ljóst er að Alþingi mun ekki samþykkja frumvarpið um ríkisábyrgð óbreytt, en á þinginu hvílir sú skylda að ganga úr skugga um að samning- urinn sé annars vegar til þess fallinn að þjóna hagsmunum Íslendinga til lengri tíma og hins vegar að tryggja að niðurstaðan sé í samræmi við það umboð sem Alþingi veitti samninga- nefndinni 5. desember síðastliðinn. Þar var skýrt kveðið á um að samn- inga við Hollendinga og Breta ætti að leiða til lykta „… á grundvelli þeirra sameiginlegu viðmiða sem aðilar hafa komið sér saman um.“ Þar er um að ræða Brussel-viðmiðin svokölluðu frá 14. nóvember þar sem Íslendingum tókst fyrir milligöngu Evrópusam- bandsins að fá viðurkenningu á því að tekið yrði tillit til hinna erfiðu að- stæðna á Íslandi í kjölfar bankahruns og ekki síður að nauðsynlegt væri að grípa til ráðstafana sem gerðu okkur mögulegt að reisa við fjármála- og efnahagskerfið í landinu. Hnykkt var á þeim sameiginlega skilningi að til- skipun ESB um innstæðutryggingar gildi á Íslandi sem hluti af löggjöf EES. Síðast en ekki síst var tekið fram að stofnanir ESB og EES myndu taka áframhaldandi þátt í samningaferlinu sem fari fram í sam- ráði við þær. Með þessu var áskilið að fulltrúar ESB myndu taka að sér hlutverk milligönguaðila ef á þyrfti að halda. Aðkoma Evrópusambandsins mikilvæg Þessi samþykkt Brussel-viðmið- anna var afar mikilvæg því með henni var Evrópusambandið kallað að borði sem ábyrgðaraðili að inn- stæðutryggingakerfinu og stigið mikilvægt skref til að gera sam- bandið samábyrgt deiluaðilum um að finna farsæla lausn málsins. Þetta skiptir verulegu máli því eins og menn þekkja hefur ríkt réttaróvissa allt frá hruni fjármálakerfisins um það hvort tilskipunin um innstæðutrygg- ingar ætti við þegar um fordæmalaust hrun heils fjármálakerfis er að ræða. Íslendingar hafa haldið fram því sjónarmiði frá upphafi að vafi léki á um ábyrgðarskyldu Íslands þegar um kerfishrun er að ræða en það sjón- armið hefur engar und- irtektir fengið meðal annarra þjóða. Það breytir því ekki að mikilvægt er að halda þeim mögu- leika opnum að á síðari stigum verði hægt að greiða úr þessari óvissu, fyr- ir dómstólum eða í tengslum við end- urskoðun á innstæðutryggingakerfi álfunnar. Margt bendir til þess að hinn rétti farvegur fyrir málsókn sé einmitt dómstóll Evrópusambands- ins, Evrópudómstóllinn, eins og M. Elvira Méndez Pineto, doktor í Evr- ópurétti, hefur haldið fram. Það er hlutverk Evrópudómstólsins að túlka Evrópuréttinn og hann sker úr um ágreiningsmál milli aðildarríkja ESB eða á milli stofnana ESB og aðild- arríkja. Þar sem Ísland er ekki aðild- arríki ESB hefur þessi leið ekki verið fær fyrir Ísland. Hún kann þó að opnast síðar, ef Íslendingar sam- þykkja að gerast aðildarríki sam- bandsins. Samningur með skýrum endurskoðunarákvæðum Ég tel öll rök hníga að því að far- sælast sé fyrir Ísland að staðfesta Icesave-lánasamningana en þó með þeim formerkjum af hálfu Alþingis að ríkisábyrgðin verði tengd skýrum endurskoðunarákvæðum, þar sem m.a. verði kveðið á um að tryggt verði að greiðslubyrði íslenska rík- isins samkvæmt samningnum verði viðráðanleg og tengd eðlilegum þol- mörkum. Jafnframt verði áréttað að íslensk stjórnvöld afsali sér ekki rétti til málsóknar á síðari stigum og samninginn megi taka til endurskoð- unar til samræmis við breytingar á evrópska innstæðutryggingakerfinu í framtíðinni. Lausn Icesave-deilunnar er mikil- væg forsenda þess að Ísland losni sem fyrst úr alþjóðlegri einangrun, en engu að síður verður að tryggja að þeir aðilar sæti ábyrgð sem komu þjóðinni á vonarvöl með glæfraspili sínu. Það særir réttlætiskennd al- mennings að vonum að íslenska þjóð- in horfi fram á þungar byrðar á kom- andi árum fyrir tilverknað fjárglæframanna. Það mál er í rétt- um farvegi hjá embætti sérstaks sak- sóknara en mikilvægt er að tryggja að stjórnvöld leiti áfram allra leiða til að lágmarka þær byrðar sem skatt- borgararnir þurfa á endanum að bera. Það verður eitt helsta verkefni stjórnmálanna á næstu árum. Endurreisn í húfi Eftir Skúla Þór Helgason » Þessi samþykkt Brussel-viðmiðanna var afar mikilvæg því með henni var Evrópu- sambandið dregið að borðinu sem ábyrgð- araðili að innstæðu- tryggingakerfinu. Skúli Þór Helgason Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. 3ja herbergja 93 fm íbúð við Laugarásveg. Stórar svalir með miklu útsýni. Stutt í alla þjónustu og Laugardalurinn innan seilingar. Laus strax. Upplýsingar í síma: 892 0160 Laugarásvegur til sölu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.