Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 ✝ Þorbjörg Egg-ertsdóttir fædd- ist í Dældarkoti í Helgafellssveit 26. maí 1919. Hún lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli 15. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Eggert Thorberg Grímsson sjómaður, Elliðaey í Stykk- ishólmshreppi, Snæ- fellsnesi, síðar verkamaður í Reykjavík og kona hans Lilja Elínborg Jónsdóttir frá Haukagili í Vatnsdal, A-Hún. Systkinin voru 6, Þorbjörg elst, þá Hansína Elínborg, Kristín Jón- ína, María, Guðmundur Óskar og Lárus. Þau María og Guðmundur lifa nú systur sína. Þorbjörg giftist 9. des. 1939 Ingólfi Ingvarssyni, bónda í á Breiðafirði. Hún lauk hefðbund- inni barnaskólagöngu þess tíma. Hún starfaði meðal annars á Saumastofunni Gullfossi og var í vist á heimilum í Reykjavík. 1940 hófu þau Þorbjörg og Ingólfur búskap í Neðri-Dal og bjuggu þar til 1973 er þau fluttu að Hvols- vegi 9 á Hvolsvelli. Þar starfaði hún við saumastofuna Sunnu. Þegar Ingólfur lést árið 1995 fór hún fljótlega að hugsa sér til hreyfings og flutti að dvalarheim- ilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli og naut sín vel í návist samferða- manna og góðs starfsfólks. Útför Þorbjargar fór fram frá Stóra-Dalskirkju, V-Eyjafjöllum, í gær, laugardaginn 25. júlí. Þau mistök urðu við vinnslu blaðsins í gær að greinar um Þor- björgu misfórust. Eru ættingjar og vinir sem og lesendur beðnir atsökunar. Neðra-Dal, V- Eyja- fjöllum, f. 12. sept. 1904 í Selshjáleigu, d. 16. mars 1995. Börn þeirra eru; 1) Eggert Ingvar, kvæntur Helgu Fjólu Guðnadóttur, 2) Guðbjörg Lilja, gift Viggó Pálssyni, 3) Svala, d. 11. jan. 1992, gift Þórhalli Guðjónssyni, 4) and- vana fædd dóttir, 5) Tryggvi, kvæntur Elísabetu Andr- ésdóttur. Einnig ólu þau upp syst- urdóttur Ingólfs, Ástu Grétu Björnsdóttur, í sambúð með Kjell Arne Alvestad. Barnabörnin eru 20 og barnabarnabörnin 35. Þorbjörg ólst upp hjá for- eldrum sínum í Reykjavík utan áranna frá 3 til 10 ára er hún dvaldi hjá ættmennum í Rúfeyjum Þegar ég hugsa til tengdamóður minnar, Þorbjargar Eggertsdóttur, kemur fyrst upp í huga minn orðið hetja, því það var hún svo sannar- lega og tókst á við lífið af jákvæði og æðruleysi alla tíð. Örlögin höguðu því þannig að Þorbjörg dvaldi hjá ættfólki sínu í Rúfeyjum á Breiða- firði á sínum bernskuárum og minntist þess tíma ævinlega með hlýhug. Tíu ára að aldri flutti hún aftur til foreldra sinna og systkina sem bjuggu í Reykjavík og ólst þar upp í kærleiksríkum faðmi fjölskyld- unnar og þroskaðist til vits og ára. Hún gekk í Miðbæjarskólann og starfaði síðan hjá saumastofunni Gullfossi og talaði oft um það hvað sá tími hafi verið henni lærdóms- ríkur. Hún var einnig í vist á heim- ilum í Reykjavík og þar á meðal hjá Óskari Ingvarssyni og þar kynntist hún manni sínum Ingólfi. Þau hófu búskap í Neðri-Dal árið 1940, fyrst með foreldrum Ingólfs en tóku alveg við búinu árið 1945, en tengdafaðir hennar dvaldist hjá þeim til dauða- dags. Um leið og Þorbjörg flutti undir Fjöllin tók hún ástfóstri við sveitina og þar var tekist á við önn og yndi daganna og áranna sem í hönd fóru. Störfin voru ótalmörg, börnin fæddust eitt af öðru, ásamt því að sinna búi og uppbyggingu þess. Það mæddi mikið á Þorbjörgu á þessum árum enda fór bóndinn til vers líkt og tíðkaðist á þessum tíma og þá hvíldi öll ábyrgð bús og barna á húsmóðurinni. Þegar tengdamóðir mín leit til baka yfir farinn veg þá skynjaði maður fyrst og helst vænt- umþykju hennar til þessara dýr- mætu ára sem hún átti í nágrenni góðra sveitunga og hún var í hjarta sínu mikill Eyfellingur. Árið 1973 hættu þau hjónin bú- skap og fluttu að Hvolsvelli, en með sér fluttu þau heimilisbraginn frá Neðri-Dal þar sem gestrisni og hlýja tók á móti hverjum þeim sem að garði bar. Ekki settist þó Þor- björg í helgan stein heldur hóf störf við saumastofuna Sunnu og starfaði þar meðan heilsan leyfði. Hún var alla tíð mikil kvenfélagskona og var heiðursfélagi kvenfélagsins Eyglóar sem var félagið hennar í sveitinni, en gekk einnig í kvenfélagið Einingu þegar hún flutti á Hvolsvöll. Þorbjörg var mikil hannyrðakona og hafði mikla ánægju af að sinna því áhugamáli, og ófáar eru þær flík- urnar sem hún prjónaði á afkomend- urna alla og hafa yljað þeim í gegn- um árin. Þorbjörg var sterk kona og glæsi- leg og fjölskyldan var henni allt og hana umvafði hún og styrkti í gegn- um gleði og sorgir lífsins. Minning um mæta og gegnheila konu mun ævinlega lifa í hjörtum ástvina hennar. Helga Fjóla Guðnadóttir, Skarði. Fyrstu minningarnar um hana ömmu tengjast Neðri-Dal. Það var á búskaparárum ömmu og afa í sveit- inni. Þær minningar eru sveipaðar ævintýraljóma þar sem við barna- börnin lékum okkur og stunduðum búskap á okkar hátt, þótt ekki vær- um við há í loftinu. Það var alltaf gaman að heimsækja ömmu og afa á Hvolsveginn eftir að þau fluttu þangað. Það var vel tekið á móti okkur og amma lumaði alltaf á ein- verju góðu í búrinu. Í minningunni var alltaf sunnudagsmatur í matinn hjá ömmu og ís og ávextir í eftirrétt. Amma bjó yfir miklum dugnaði og seiglu. Hún var aðeins tvítug þegar hún giftist afa sem var 15 árum eldri og fluttist frá Reykjavík austur und- ir Eyjafjöll. Það var fyrir síðasta ættarmót sem haldið var á Goða- landi fyrir tveimur árum sem við fengum ömmu til þess að rifja upp söguna þegar amma og afi kynntust. Það var skemmtilegt að heyra ömmu segja söguna af því þegar hún var í vist hjá bróður afa í Reykjavík og afi kom í heimsókn til bróður síns og um leið náði greinilega að töfra ömmu til þess að flytja með sér í sveitina. Minningin ljóslifandi næst- um 70 árum síðar. Amma fæddist við Breiðafjörðinn og bjó þar sín fyrstu ár. Eitt af mörgum skemmti- legum ættarmótum var haldið í Stykkishólmi fyrir fáum árum þar sem við fylgdum fótsporum ömmu. Amma hafði gaman af handavinnu og föndri og bjó til mörg listaverk. Hún var alltaf að vinna eitthvað í höndunum, prjónaði, heklaði, saum- aði, bjó til listaverk úr skeljum og kuðungum og alltaf að prófa eitt- hvað nýtt. Hún heklaði falleg föt á dúkkurnar okkar og saumaði sæng- urver í dúkkuvagnana. Amma var mjög félagslynd og hafði gaman af að ferðast. Eftir að hún flutti á Kirkjuhvol tók hún virkan þátt í því starfi sem bauðst. Amma hafði gott minni og fylgdist vel með afkomendunum fram undir það síðasta. Það er ómetanlegt að amma skyldi geta fagnað níræðisaf- mælinu sínu með okkur öllum í vor. Hún bar aldurinn með mikilli reisn þrátt fyrir veikindi. Þannig var amma, sterk kona sem tók áföllum sínum í lífinu af stillingu. Við minnumst afa og Svölu og vit- um að þau hafa tekið vel á móti þér. Guð geymi þig, elsku amma. Jóhanna og Fjóla Viggósdætur. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minningarnar streyma um hug- ann og söknuðurinn er mikill og með þessum fátæklegu orðum viljum við kveðja ömmu Þorbjörgu í hinsta sinn. Amma var hlý og yndisleg kona sem breiddi sig út yfir fjölskylduna. Þrátt fyrir mikinn fjölda afkomenda kom það aldrei fyrir að amma gleymdi afmælum eða öðrum merk- isatburðum í lífi þeirra, öll áttum við sérstakan stað í hennar stóra hjarta. Amma var einstaklega gestrisin og góð heim að sækja. Fátt þótti henni skemmtilegra en að taka á móti gestum og veita þeim vel í mat og drykk, að ógleymdu konfektinu sem amma átti ævinlega til á vísum stað. Fyrir yngstu kynslóðina lum- aði amma Þorbjörg á forláta dóta- kassa sem gat fangað athygli barna svo tímunum skipti. Það var ávallt glatt á hjalla í þessum heimsóknum. Jákvæðni var ömmu í blóð borin. Hún átti auðvelt með að sjá hinar bjartari hliðar lífsins og kvartaði sjaldan þótt hún hefði upplifað ýmsa erfiðleika og áföll á langri ævi. Hún var ákveðin og hreinskilin en jafn- framt hjálpsöm og hjartahlý. Elsku amma, margar ljúfar minn- ingar eru tengdar þér, jafnt úr barn- æsku sem á síðari árum. Skemmst er þó að minnast þegar öll fjölskyld- an kom saman nú í vor og við héld- um upp á 90 ára afmælið þitt þér til heiðurs, sem lukkaðist svo vel og þú varst hrókur alls fagnaðar. En nú er komið að kveðjustund. Viljum við þakka þér samfylgdina og biðjum góðan Guð að geyma þig og varðveita. Við fjölskyldan kveðj- um þig með fallega ljóðinu frá Eyj- um, „Góða nótt“. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýja sundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá, loforð um endurfundi. Góða nótt, góða nótt, gamanið líður fljótt, brosin þín bíða mín, er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólskin og sumarfrið, syngjandi fugla og lækjarnið. Allt er hljótt, allt er hljótt ástin mín, góða nótt. (Ási í Bæ) Hvíldu í friði og takk fyrir allt sem þú gafst okkur með nærveru þinni. Minning þín verður ætíð ljós í lífi okkar. Svandís, Fjölnir, Birkir, Aron og Sindri. Elskuleg amma mín, hún Þor- björg, er látin. Það eru ótalmargar minningar sem leita á hugann þegar ég lít til baka og hugsa um stundir mínar með ömmu. Ég var svo hepp- in að alast upp með ömmu og afa í nánast næsta húsi á Hvolsvelli. Það var því ósjaldan kíkt í heimsókn til ömmu og afa, þar sem mér fannst alltaf gott að koma. Hjá þeim tók ég í spil við afa, fékk að greiða ömmu og svo var alltaf eitthvað gott að borða. Mér finnst það forréttindi að hafa fengið að alast upp í svo mikilli nálægð við ömmu og afa. Amma var mikil kjarnakona sem hafði mikla reynslu í farteskinu og núna í seinni tíð spjölluðum við oft og mikið um hennar reynslu. Hún sagði mér frá því eftir að pabbi slas- aðist að hún hefði fengið lömunar- veikina á sínum tíma, hún hafði því kannski betri innsýn á stöðu sonar síns en ella. Amma var sterk kona og var ekki mikið fyrir að sýna sorg sínar, eftir að hafa misst bæði eig- inmann og dóttur. En amma sýndi gleði sína og hún var svo ákaflega stolt af afkomend- um sínum og þegar ég kom í heim- sókn til hennar á Kirkjuhvol hafði hún alltaf einhverjar skemmtilegar fréttir að segja af ættingjunum sem fékk stoltið hennar til að skína. Hún hafði einstaklega gaman af öllu ung- viðinu sem er að vaxa úr grasi og var ákaflega stolt af því. Þegar ég heyrði í henni á 90 ára afmælisdaginn hennar var hún mjög ánægð með daginn, en hún hlakkaði miklu meira til að hitta allt fólkið sitt helgina eftir, þegar við komum öll saman í litla salnum í Hvoli og héldum upp á afmælið hennar. Það var stórkostlegur dagur og brosið fór ekki af ömmu þar sem hún var umvafin fjölskyldu sinni, slíkar stundir voru í uppáhaldi hjá henni. Daginn eftir afmælið fór ég til ömmu og kíkti á gjafirnar og gesta- bókina. En amma og afi höfðu alla tíð verið dugleg að fá fólk til að skrifa í gestabók. Þegar ég fletti í gegnum gestabókina þá sá ég að fyrsti atburður bókarinnar var 90 ára afmæli afa, sem var fyrir um 15 árum, og gestabókin endaði á 90 ára afmæli ömmu. Ömmu og afa kallaði ég ömmu og afa í Neðró á mínum yngri árum í daglegu tali, núna í seinni tíð hefur hún verið kölluð „amma lang“ vegna tilkomu langömmubarnanna og bar hún langömmutitilinn með mikilli reisn. Elsku amma, takk fyrir allan stuðninginn í gegnum árin, takk fyr- ir alla vettlingana og fallega föndrið sem þú hefur gefið mér og syni mín- um, takk fyrir allt góða spjallið sem við höfum átt og gaf mér svo mikið. Takk fyrir allar skemmtilegu stund- irnar í bíltúrunum, útilegunum, sunnudagsmáltíðunum og okkar mörgu sólarkaffistundum. Ég sakna þín mjög mikið en finnst gott til þess að vita að þú hefur nú sameinast afa og Svölu dóttur þinni sem dó svo langt fyrir aldur fram. Minning þín lifir í afkomendum þínum og ekki síst í nöfnum þínum. Hjartans þakki fyrir allt og allt. Berglind Elva Tryggvadóttir. Þorbjörg Eggertsdóttir Hafðu hjartans þökk mér horfin stund er kær. Í minni mínu, klökk er minning hrein og skær. Þú gengur um gleðilönd, Þér glampar sólin heið og við herrans hönd þú heldur fram á leið. (Páll Janus Þórðarson.) Hvíldu í friði, elsku amma. Gísli Fannar og Hrafnhildur Kristín. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, MAGNÚS V. FRIÐRIKSSON, Kjarnalundi dvalarheimili, Akureyri, áður til heimilis að Hólum 15, Patreksfirði, lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 22. júlí. Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 14.00. Friðrik Magnússon, Birna Svanbjörg Ingólfsdóttir, Helgi Magnússon, Þóra Björg Guðjónsdóttir, Ingveldur Hera Magnúsdóttir, Agnar Ásbjörn Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabarn, systkini og mágkona. ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILBORG HALLDÓRSDÓTTIR, Kópavogsbraut 69, Kópavogi, sem lést miðvikudaginn 15. júlí, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju – félag til styrktar langveikum börnum. Nanna Baldursdóttir, Ólafur G. Sveinsson, Halldór Baldursson, Margrét Snorradóttir, Ingibjörg Baldursdóttir, Guðmundur Baldursson, Antonía Erlendsdóttir, Bragi Baldursson, Guðrún Lísa Erlendsdóttir, Sigríður Baldursdóttir, Þorgrímur Baldursson, Jenný G. Sigurbjörnsdóttir, Kristín Baldursdóttir, Friðrik Baldursson, Erla Guðmundsdóttir, Ólafur Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför móður okkar og tengdamóður, VALGERÐAR ÞÓRARINSDÓTTUR, fæddri á Bjarnastöðum, Selvogi, Hrafnistu, Hafnarfirði, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 27. júlí kl. 15.00. Margrét Brynjólfsdóttir, Gísli Jónsson, Guðni Már Brynjólfsson, Dagur Brynjólfsson, Ína K. Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.