Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 38
38 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
6
9 1
1 3 8 7
8 9 5
3 8 5 7
4 6 1
2 7
9 3 4 6
1 4
8
5 8 7 3 1
7 5
6 2
3 6 9 2
2 6 9 8 4 1
5 2
1 4
2
3 8
5 7 4 8
1 3
6 5 1
9 7
8 6 4
3 2 4 8 1
7 2
3 7 9 1 5 4 6 8 2
6 2 5 7 8 9 1 4 3
4 1 8 6 3 2 5 7 9
7 5 3 4 1 8 9 2 6
8 6 4 9 2 5 7 3 1
2 9 1 3 7 6 8 5 4
1 3 2 8 9 7 4 6 5
9 4 7 5 6 3 2 1 8
5 8 6 2 4 1 3 9 7
4 6 8 1 5 7 9 3 2
1 7 3 2 8 9 4 6 5
9 2 5 6 4 3 8 1 7
6 5 7 4 1 2 3 9 8
8 1 9 5 3 6 7 2 4
3 4 2 7 9 8 6 5 1
5 3 1 9 7 4 2 8 6
7 9 6 8 2 5 1 4 3
2 8 4 3 6 1 5 7 9
4 9 3 8 2 1 7 5 6
7 5 6 9 4 3 8 1 2
1 2 8 7 6 5 3 9 4
9 6 5 1 8 2 4 3 7
8 4 1 3 5 7 2 6 9
2 3 7 6 9 4 1 8 5
5 1 2 4 3 9 6 7 8
6 7 9 2 1 8 5 4 3
3 8 4 5 7 6 9 2 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 26. júlí, 207. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð-
ur, því að þér trúið ekki þeim, sem
hann sendi. (Jóh. 5, 38.)
Ásólríkum sumardegi er við hæfiað heimsækja veitingahús og
sitja utan dyra. Þetta hefur Víkverji
iðkað óspart síðustu vikur. Þar sem
Víkverji er matmaður fær hann sér
hádegismat á þessum stöðum. Vík-
verji hefur uppgötvað tvo nýja staði
sem honum falla vel í geð. Annar er
Portið sem er á annarri hæð í Kringl-
unni og skartar góðu útivistarsvæði.
Þar smakkaði Víkverji gratinerað
skinkubrauð og féll það svo vel að
hann mætti aftur nokkrum dögum
seinna til að geta pantað sama rétt.
Síðan hefur Víkverji smakkað beik-
onristina sem er ansi góð og brauð
með avókadó sem kom á óvart. En
ekkert á matseðlinum slær enn út
skinkubrauðið.
x x x
Annar góður veitingastaður erPósthúsið í Pósthússtræti. Þar
sá Víkverji á dögunum eina þingkonu
Sjálfstæðisflokksins háma í sig grat-
ineraðan humar í flaguettebrauði.
Sælusvipurinn á þingkonunni var
slíkur að Víkverji vissi að þennan rétt
yrði hann að prófa. Hann mætti því
næsta dag. Og þvílík dásemd! Svo er
verðið viðráðanlegt, sem er nátt-
úrlega það besta.
x x x
Áneðstu hæð Iðuhússins í Lækj-argötu er staður þar sem hægt
er að borða fyrir þúsundkall. Þar eru
kjöt- og fiskréttir, súpur og eftirréttir
og salatbar. Stundum vill maður bara
fá góðan og tilgerðarlausan heim-
ilismat og hann fær maður þarna. Svo
er Jómfrúin í næsta húsi ef maður vill
gera verulega vel við sig.
x x x
Sólríkir sumardagar geta haft sín-ar skuggahliðar. Víkverji hitti
um daginn kunningja sinn sem er
með sjálfstæðan atvinnurekstur.
Hann bar sig illa: „Það hefur verið
svo gott veður að ég mæti í vinnu
klukkan hálfníu, er farinn út í sólina
klukkan tíu og mæti aftur í vinnu
hálffjögur og fer klukkan fimm. Þetta
góða veður dregur úr öllum afköstum
mínum. Ef veðrið fer ekki að versna
fer ég á hausinn.“
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þungbúna, 8
kvenfugls, 9 krús, 10
eyða, 11 ís, 13 ráfa, 15
dansleiks, 18 farmur, 21
þrældómur, 22 reigja, 23
kvendýrið, 24 skammar.
Lóðrétt | 2 fen, 3 lítill
poki, 4 sárs, 5 sáta, 6
hristi, 7 vísa, 12 græn-
meti, 14 bókstafur, 15
glæpamaður, 16 smá, 17
kímni, 18 öðluðust, 19
hindra, 20 áll.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fljót, 4 Skuld, 7 rella, 8 eimur, 9 nær, 11 kost,
13 álma, 14 órótt, 15 dall, 17 toga, 20 eta, 22 magur, 23
lítil, 24 rorra, 25 akrar.
Lóðrétt: 1 fersk, 2 júlís, 3 tían, 4 sver, 5 urmul, 6 dorma,
10 æðótt, 12 tól, 13 átt, 15 dámur, 16 logar, 18 ortir, 19
aflar, 20 erta, 21 alfa.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Dd7 5.
a3 Bxc3+ 6. bxc3 b6 7. Dg4 f5 8. Dg3
Rc6 9. a4 Bb7 10. Bb5 a6 11. Bxc6 Bxc6
12. a5 Bb5 13. Rh3 0–0–0 14. Rf4 Rh6
15. axb6 cxb6 16. Ba3 Hhg8 17. h4 Kb7
18. Kd2 Hc8 19. Hhb1 Rf7 20. h5 g5 21.
hxg6 hxg6 22. Hh1 g5 23. Rd3 Dc7 24.
Bb2 Hg7 25. Hh5 Hcg8 26. Hah1 a5 27.
Dh2 Dc4 28. Dg1 g4 29. Rf4 Bd7 30.
De1 Rg5 31. Hxg5 Hxg5 32. Da1 g3 33.
f3 Dc8 34. Ba3 Hh8 35. Hb1 Ka6
Staðan kom upp á opna skoska
meistaramótinu sem lauk fyrir
skömmu í Edinborg. Enski alþjóðlegi
meistarinn Andrew Greet (2.443) hafði
hvítt gegn Skotanum Neil Farrell
(2.191). 36. Bc5! bxc5 37. Rd3! cxd4 38.
Rb4+ Kb5 39. Rc6+! Kxc6 40. Da4+
Kc7 41. Dxa5+ Kc6 42. Db6 mát.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Áhrifamaður.
Norður
♠KG5
♥DG
♦ÁK6532
♣94
Vestur Austur
♠9842 ♠D103
♥85 ♥10942
♦G8 ♦D1097
♣D10862 ♣G7
Suður
♠Á76
♥ÁK763
♦4
♣ÁK53
Suður spilar 6♥.
Alfred Sheinwold (1912-1997) var
mikill áhrifamaður í bandarísku bridslífi
á síðustu öld. Hann ritstýrði The Bridge
World um skeið, sá um dagblaðsdálka í
þrjá áratugi og var vinsæll bókasmiður.
Kennslubók hans „Five Weeks to Winn-
ing Bridge“ seldist í yfir milljón eintök-
um. Þá var Sheinwold landsliðsfyrirliði
á tímabili, kerfissmiður (Kaplan-
Sheinwold), stjórnarmaður í bandaríska
bridssambandinu og ýmislegt fleira. Og
já – bridsspilari. Það sést af handtökum
hans í hjartaslemmunni að ofan. Út-
spilið var tromp.
Sheinwold fann ráð til að verjast 4-2
legu í báðum rauðu litunum: hann spil-
aði litlum tígli úr borði í öðrum slag.
Notaði svo innkomuna á ♥D til að
trompa tígul smátt, aftrompaði vörnina
með ♥ÁK, fór inn í borð á ♠K og tók á
frítíglana.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vandræðaleg augnablik, sem þú
óskar þess að geta þurrkað út, skipta ekki
neinu einasta máli þegar upp er staðið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú færð tækifæri til að aðstoða ein-
hvern í fjölskyldu þinni. Vertu því opin/n
gagnvart öðrum og gefðu þér tíma til þess
að þroska sjálfa/n þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú færð góðar hugmyndir um
hvernig þú getur aflað meiri tekna. Ein-
hver vill fela þér aukna ábyrgð, þú munt
standa undir væntingum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að láta vinnuna ganga
fyrir öllu öðru svo þér takist að ljúka við
þau verkefni sem fyrir liggja. Góðu frétt-
irnar eru þær að þú veist það sem þú
veist, svo nýttu þér það í dag.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Taktu umhverfi þitt til gagngerrar
endurskoðunar og drífðu í þeim breyt-
ingum sem þér finnast nauðsynlegar. Eft-
ir það er betra að taka upp léttara hjal.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Dagurinn hentar vel til að ræða við
yfirmann þinn. Bréf sem skrifað er af öllu
hjarta er alltaf frábær gjöf.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú vilt forðast að hitta náinn vin þinn,
en þú getur ekki endalaust skotið fundi
ykkar á frest. Einbeittu þér að málum
heimilisins, bæði innan veggja sem utan.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur tækifæri til að bæta
fjárhaginn. Vertu óhræddur við að henda
gömlum hlutum og því sem skiptir þig
ekki lengur máli. Talaðu við náungann og
systkini þín, ef það á við.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú er komið að því að þú fram-
kvæmir það sem þú hefur lengi látið þig
dreyma um. Gakktu úr skugga um að þú
misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbind-
ur þig til einhvers.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Með hjálp góðra vina tekst þér
að sigla þínum málum í höfn. En þú þarft
samt að leysa þau áður en þú getur haldið
áfram.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Heimspekingurinn Albert Ca-
mus sagði að um hávetur hefði hann loks-
ins lært að innra með honum byggi ósigr-
andi sumar. Samskipti við vinnufélaga
eru mjög ánægjuleg.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Að vinna með fólki sem þú dáist að
jafngildir innspýtingu af krafti sem þú
þarft á að halda til þess að ljúka því sem
fyrir liggur. Leyfðu huga þínum að reika.
Stjörnuspá
26. júlí 1925
Skátamót var haldið í Þrasta-
skógi. Þar komu saman skátar
úr þremur félögum. Baden Po-
well, stofnanda skátahreyfing-
arinnar, var sent „símskeyti í
minningu um fyrsta skátamót
Íslands,“ eins og það var orðað
í Morgunblaðinu.
26. júlí 1930
Jón Sveinsson, Nonni, 72 ára
rithöfundur og prestur, var
kjörinn heiðursborgari Akur-
eyrarbæjar þegar hann kom
til Eyjafjarðar í fyrsta sinn
síðan hann hélt til útlanda,
sextíu árum áður.
26. júlí 1957
Mynd var send þráðlaust til út-
landa í fyrsta sinn. Um var að
ræða mynd af forseta Íslands,
sem send var til sænska blaðs-
ins Dagens Nyheter.
26. júlí 1959
Til mikilla átaka kom á dans-
leik á Siglufirði þar sem á ann-
að hundrað skip voru í höfn
vegna brælu á síldarmiðunum.
Tólf menn slösuðust.
26. júlí 1963
Kona á sjötugsaldri, Jóna Sig-
ríður Jónsdóttir, fannst heil á
húfi á Arnarvatnsheiði eftir
víðtæka leit. Hún hafði verið á
ferð á hesti sínum, Ljóma, en
misst hann frá sér og legið úti
í krapi og snjó í fimm nætur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Árni StHer-
mannsson verður
áttræður 28. júlí.
Hann tekur á
móti ættingjum
og vinum á af-
mælisdaginn kl.
16-20 í Gullsmára
9, 14. hæð.
80 ára
Arnar Freyr Einarsson ætlar að vera við veiðar í
Þingvallavatni á afmælisdaginn. „Vonandi reyti
ég upp eina eða tvær bleikjur. Ég get þá gefið fjöl-
skyldunni silung í kvöldmat.“ Arnar segir annarra
að dæma um hversu góður kokkur hann sé en
venjulega heilgrilli hann silunginn, það sé einfalt
og gott. Hann segist gera sér vonir um að móðir
hans baki kannski handa honum köku, hún sé
einkar laginn bakari. Hann minnist þess að hún
hafi meira að segja bakað handa honum köku á
prímus í Ásbyrgi þegar hann var lítill. „Afmælin í
Ásbyrgi eru líklega minnisstæðustu afmæli mín til
þessa,“ segir hann enda ekki amaleg umgjörð í kringum veislu. „Ég
fékk líka að borða mysing beint upp úr dollunni.“ Á mánudag tekur
við daglegt amstur og vinna en Arnar vinnur í sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu. Hann segist sýsla þar í ýmsu, t.d. fylgist hann
með inn- og útflutningi, sem sé sáralítill eins og alþjóð viti. Að því
sögðu hlær hann dátt. Ráðuneytið fær ekki að njóta starfskrafta hans
nema í sumar því í haust yfirgefur Arnar land og þjóð og heldur til
Árósa þar sem hann hyggst leggja stund á meistaranám í hagfræði.
svanbjorg@mbl.is
Arnar Freyr Einarsson er 25 ára í dag
Kakan bökuð á prímus
Nýirborgarar
Reykjavík Tóbías Erik
fæddist 28. apríl á kl.
23.08. Hann vó 4.545 g og
var 54 cm langur. For-
eldrar hans eru Eiríkur
Ólafsson og Soffía Dag-
björt Jónsdóttir.
Reykjavík Eva Karolína og Ágústa Guðrún fæddust 7.
desember. Eva Karolína fæddist kl. 11.26 var 3.120 g
og 48 cm löng. Ágústa Guðrún fæddist kl. 11.28 og var
2.930 g og 47cm löng. Foreldrar þeirra eru Jónína
Kristín Ágústsdóttir og Lárus Páll Pálsson. Með þeim á
myndinni er bróðir þeirra, Almar Páll.