Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 40
Sloth-fígúran
Goonies lifir vel í
minni kvik-
myndaáhuga-
manna. Enn er
hægt er að
kaupa plast-
fígúru af
Sloth í
völdum
búðum.
hafði, ólíkt hinum, hjartað á réttum stað.
Bræðurna (en fratelli þýðir einnig bræður á
ítölsku) léku þeir Robert Davi og Joe Pantoliano
og mamman var engin önnur en Anne Ramsey.
John Matuszak satt svo klukkutímum saman í
umsjá förðunarfræðinga til að ná útliti
Sloths. Margir eiga eflaust til í minninga-
bankanum upplifun sína á því þegar
Sloth sást fyrst á hvíta tjaldinu og
ekki er ólíklegt að gæsahúð og
kalt vatn milli skinns og hör-
unds hafi komið
þar við
sögu.
Glósubók: The Goonies
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009
Andy var leikin af hinni rauð-
hærðu Kerry Green.
Líkt og hjá Cohen hefur leikfer-
illinn ekki lengst mikið í annan
endann eftir Goonies. Hún hefur
þó tekið að sér einstaka hlutverk í
sjónvarpsþáttum á borð við ER og
Law and Order.
Martha Plimp-
ton – Stef
Plimpton sást
bregða fyrir í
ýmsum myndum
á níunda ára-
tugnum, bæði
fyrir og eftir
Goonies.
Síðustu ár hef-
ur hún að mestu
snúið sér að
sviðsleik á Broadway með farsæl-
um árangri.
Corey Feldman
– Mouth
Feldman var
trúlega þekkt-
astur krakkanna
og var talsverð
stjarna á níunda
áratugnum. Í
kjölfar Goonies
Josh Brolin – Brand
Goonies var frumraun Brolins á
hvíta tjaldinu þar sem hann fór
með hlutverk
stórabróðurins
Brands. Hann
var þá 17 ára og
elstur grall-
aranna. Ferill
Brolins hefur
svo ekki
blómstrað að
ráði fyrr en nú
síðustu ár, og
oft er hlutverk
hans í No Country for Old Men
þeirra Cohen-bræðra nefnt sem
hlutverkið sem kom honum aftur á
kortið. Brolin var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir hlutverk
sitt í Milk og fer með stórt hlut-
verk í næstu mynd Woodys Allens.
Sean Astin –
Mikey
Eftir Goonies
lék Sean Astin í
þónokkrum
unglingamynd-
um og átti
nokkur talsvert
annasöm ár í
kvikmyndageiranum sem ungling-
ur. Síðustu ár er hann trúlega
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
hinn tryggi Sámur í Hringadrótt-
inssögu Peters Jacksons.
Jeff Cohen – Chunk
Jeff Cohen þurfti lengi vel eftir
frumsýningu
Goonies að sýna
magahristi-
dansinn sem
hann gerði eft-
irminnilega í
myndinni. Hann
var meira að
segja fenginn til
að stíga á svið í
hléi á hafna-
boltaleikjum og hrista á sér hlið-
arspikið.
Cohen svipar í dag lítið til hins
búlduleita Chunks. Hann hefur
lagt leiklist-
arhæfileikana í
salt og starfar
sem lögfræð-
ingur í Banda-
ríkjunum.
Kerry Green
– Andy
Klappstýran
lék hann meðal annars í Stand By
Me og The Lost Boys.
Fregnir af kókaínneyslu og öðru
villtu líferni hafa svo skyggt á
fremur dapran leikferil Feldmans
og hefur honum síðustu ár brugðið
fyrir í raunveruleikaþáttum fyrir
fræga fólkið. The Lost Boys 3 mun
þó vera í bígerð og skarta Feld-
man í aðalhlutverki.
Ke Huy Quan – Data
Tæknitröllið Data var leikið af
Ke Huy Quan,
sem áður hafði
leikið í Indiana
Jones: Temple of
Doom. Leiklistin
fékk þó fljótt að
víkja fyrir bar-
daga- og dans-
höfundarhæfi-
leikum hans sem
hann nýtir enn
óspart við gerð
bardagamynda í Hollywood.
Hvar eru þau nú?
Sean Astin
Grallarar Leikhópurinn úr Goonies á 16 ára afmæli myndarinnar árið
2001. Jonathan Ke Quan (Data), Sean Astin (Mikey), Martha Plimpton
(Stef), Corey Feldman (Mouth), Kerri Green (Andy), leikstjórinn Rich-
ard Donner, Jeff Cohen (Chunk) og Josh Brolin (Brand).
Josh Brolin
Corey Feldman
Jeff Cohen
Ke Huy Quan
Kerri Green
Martha
Plimpton
tónlistin sem heyrist undir
atriðinu þegar krakkarnir
uppgötva leynigöng Fratelli-
fjölskyldunnar með því að
hella vatni þangað niður er sú
sama og er leikin undir þegar
Þjóðverjarnir finna fyrsta
felustað fanganna með því að
hella niður kaffi í The Great
Escape frá árinu 1963.
það tók um fimm klukku-
tíma að láta John Matuszak
líta út eins og Sloth. Augað
sem lá út á kinn laut stjórn
fjarstýringar sem hreyfði það
í takt við hið raunverulega
auga Matuszaks.
þegar Sloth rífur sig úr
skyrtunni og berar súper-
mann-bolinn sem hann klæðist
innanundir heyrist þemalag
Superman undir. Leikstjóri
Goonies, Richard Donner,
leikstýrði einnig Sup-
erman frá árinu 1978.
Eineygði-Villi heit-
ir fullu nafni William
B. Pordobell.
Vissir þú að …
Á hjóli Öllu var tjaldað til að gera myndina sem ævintýralegasta, enda var fyrirfram ákveðið að hún
myndi slá í gegn.
Ævintýri í 25 orðum
létu út úr sér við þetta tilefni, svo mikið varð þeim
um hina mikilfenglegu sjón.
Nánar er fjallað um krakkaskarann hér annars
staðar á síðunni en hinn hópurinn í myndinni sam-
anstóð af miður fríðum einstaklingum.
Það voru Fratelli-bræðurnir, skassið hún
mamma þeirra og yngsti liðsmaðurinn
sem ekki hafði útlitið með sér en
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
EINHVER eftirminnilegasta ævintýramynd ní-
unda áratugarins hlýtur að teljast The Goonies
frá árinu 1985.
Myndin er afrakstur þess tíma í Hollywood
þegar stórsmellir („blockbusters“ upp á ensku)
voru þungamiðja í framleiðslu stærstu fyrirtækj-
anna.
Í viðtali árið 1981 sagði Steven Spielberg að
hugmynd að kvikmynd væri góð ef hægt væri að
lýsa söguþræði hennar í 25 orðum eða minna.
Markaðssetningin var stór þáttur í kynningu
myndanna og kvikmyndafyrirtækin hugðust ekki
bara græða á miðasölu heldur einnig á sölu á alls
kyns varningi tengdum myndunum sjálfum.
Og engir aukvisar voru kallaðir til þegar koma
átti Goonies á koppinn. Framleiðandinn var Chris
Columbus (Home Alone og Harry Potter) og leik-
stjórinn Richard Donner (Lethal Weapon). Stev-
en Spielberg er svo höfundur sögunnar og hefur
væntanlega getað orðað hana í undir 25 orðum.
Kannski eitthvað á þessa leið: Sjö krakkar leggja
upp í ævintýraferð eftir að hafa fundið fjársjóðs-
kort uppi á háalofti. Þau lenda svo í samkeppni við
illgjarna bræður og móður þeirra = 25 orð!
Sjóræningjaskipinu blótað
Allt var gert til að gera myndina sem ævintýra-
legasta fyrir augað og var sjóræningjaskipið í
myndinni til að mynda byggt í heild sinni.
Leikhópurinn hafði ekki fengið að sjá gripinn
fyrirfram og því eru viðbrögð þeirra þegar þau sjá
skipið í fyrsta sinn afar einlæg. Svo einlæg að
klippa þurfti út nokkur blótsyrði sem krakkarnir
Goonies Krakkarnir finna fjársjóðs-
kort uppi á háalofti og fara að leita
að fjársjóði Eineygða-Villa.