Morgunblaðið - 26.07.2009, Page 43

Morgunblaðið - 26.07.2009, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 HHH „Þessi spræka og fjölskylduvæna bandaríska teikni- mynd er sú þriðja í röðinni og sú besta þeirra“ - Ó.H.T. , Rás 2 „Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR“ abigai l bresl in cameron diaz FRÁ LEIKSTJÓRA „THE NOTEBOOK“ Byggð á metsölubók Jodi Picault sem farið hefur sigurför um heiminn HHH „þessi fallega og átakanlega kvikmynd hlýjar manni bæði um hjartaræturnar og rífur í þær” - Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com HHHH „POTTER HEFUR ALDREI VERIÐ FYNDNARI, MANNLEGRI, ÁHRIFARÍKARI EÐA SKEMMTILEGRI. KLÁRLEGA BESTA MYND SEM ÉG HEF SÉÐ ALLT SUMARIÐ.” T.V. - KVIKMYNDIR.IS „DAZZLINGLY WELL MADE...“ VARIETY - 90/100 HHHH „ÞESSI KYNNGIMAGNAÐA RÆMA ER SÚ BESTA Í RÖÐINNI.“ „YFIRBURÐAFÍNT SJÓNARSPIL MEÐ SNILLDARLEGRI TÓNLIST OG HLJÓÐMYND.“ Ó.H.T. – RÁS 2 „HÚN VAR FRÁBÆR!“ NEW YORK MAGAZINE – 90/100 STÆRSTA BÍÓOPNUN Í ÁR! YFIR 30.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU! MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL Áhrifarík og átakanleg mynd sem skilur engan eftir ósnortinn. HHH „Í FIGHTING ER ALVÖRU HARKA OG FRÁBÆRIR LEIKARAR.“ - BOSTON GLOBE HHH „GIVES AUDIENCES A WELL-CRAFTED, TOUCHING EXPERIENCE.“ - ROGER EBERT „Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR“ abigai l bresl in cameron diaz Byggð á metsölubók Jodi Picault sem farið hefur sigurför um heiminn HHH „þessi fallega og átakanlega kvikmynd hlýjar manni bæði um hjartaræturnar og rífur í þær” - Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com „Þetta er góð skemmtun með góð skilaboð og hentar ungum sem öldnum” - Ó.H. T., Rás 2 -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUMSÝND Í HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á TILBOÐSVERÐ 550 KR Á SÝNINGAR MERKTAR RA UÐU *850 KR Í ÞRÍVÍDD Sýnd kl. 4:50, 8 og 10:10 Sýnd með íslensku tali kl. 2, 4 og 6 Sýnd kl. 2 Karlar sem hata konur kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.16 ára Ísöld 3 3D (ísl. tal) kl. 1(kr.850) - 3:30 - 5:45 LEYFÐ Karlar sem hata konur kl. 2 - 5 - 8 - 11 Lúxus Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 1 - 3:30 - 5:45 LEYFÐ Balls Out kl. 8 - 10:10 B.i.12 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 1 - 3:30 - 5:45 LEYFÐ The Hurt Locker kl. 8 - 10:45 B.i.16 ára Transformers kl. 8 - 11 B.i.10 ára 550 kr í bíó GILDIR Á ALLARSÝNINGAR MERKTARMEÐ RAUÐU Sýnd kl. 2, 4, 7 og 10(Powersýning) Sýnd kl. 8 og 10:10 Björgvin Halldórsson erlöngu orðin landsþekktstærð í íslenskri dægur-tónlist og fáar stíl- fjörurnar sem hann hefur ekki ein- hvern tímann sopið á sínum áratuga- langa ferli. Flest lætur honum vel að flytja og landinn kann vel að meta kappann svo sem vinsældir hans í gegnum tíðina bera glöggt vitni. Nýjasta útspil Bó er skífan Sígrænir söngvar og hér spreytir hann sig á sveitatónlist með fulltingi flinkra manna við spilamennskuna sem kalla sig Hjartagosana, ásamt því að góðir gestir taka með honum lagið. Kántrímúsík hefur alltaf verið ná- tengd blúsnum og þvottekta kántrí er eftir því jafnan tregafullt, í það minnsta angurvært, og því ekki galin hugmynd að snara út músík af þessu tagi nú þegar þjóðin situr mitt í kreppusúpunni og ber lóminn upp til hópa. Platan hefst á rammíslensku viðhorfi þegar á móti blæs, og Björg- vin syngur lagið „Þetta reddast allt“ á notalegum nótum. Í framhaldinu taka við nokkrir fagmannlega af- greiddir dúettar. Má þar nefna með- al annars samsöng með Krumma, syni Björgvins, í hinu ágæta lagi „Ég elska þig svo heitt“; sætir nokkurri furðu hversu sleipur strákurinn er í þýðum sveitasöng, hann sem mest- anpart hefur alið manninn í öskrandi harðkjarnarokki. Þá tekur Bjöggi lagið með þeim fóstbræðrum Magn- úsi Eiríks og KK í „Máninn lokkar“ sem væri týpískt Magga Eiríks lag ef það væri ekki týpískt Randy Newman-lag. Það má vart á milli heyra hvort það minnir meira á „Einu sinni á ágústkvöldi“ eða þá „You Got A Friend In Me“. Allt snyrtilega unnið, það vantar ekki, en það sem vantar tilfinnanlega er meira alvöru kántrí í flest lög fyrri hlutans, fyrst til þessarar út- gáfu er stofnað á annað borð. Heldur lifnar yfir þegar seinni helmingur tekur að rúlla með laginu „Vertu vel- kominn“ sem iðar í dillandi blágres- istakti með fagmannlega rödduðum söng. „Þó ég ætti tvær“ sækir í honkýtonkið að hætti Webb Pierce hvar stálgítarinn „slædar“ með til- þrifum. „Hótel Sorg“ er þá banjó- skotinn kántríblús, beygður af trega sem er vel þegar hæglát sveitamúsík er annars vegar. Annars fer mis- mikið fyrir hinum hefðbundnu ein- kennum sveitatónlistar og sem fyrr sagði, sé til útgáfu af þessu tagi stofnað er eina vitið að taka slaginn alla leið. Hönnun plötuumslagsins ber flest þekkt stílbrögð sem notuð eru til að minna á villta vestrið og í því felst óhjákvæmilega vísbending um það sem hlustandinn á í vændum. Samt er Sígrænir söngvar varla nema hálfgildings kántríplata því flest lög- in eru í besta falli popp með kántrí- kryddi. Hitt er annað mál að Bó & félagar lofa hvergi einu eða og neinu og krafan því kannski ósanngjörn. Eins er næsta víst að afgreiðsla á borð við þessa selst betur en hrein- ræktuð sveitatónlist og það er sjón- armið sem verður að taka alvarlega þegar illa árar. En það hefði verið ólíkt skemmtilegra að fá metn- aðarfulla sveitatónlist plötuna út í gegn, hvar Björgvin hefði sungið með herslumuninum sem fær mann til að trúa á þrengingarnar sem kveðið er um; Merle Haggard kemur upp í hugann, svo dæmi sé tekið. Hér hefði þurft minni værð og meiri ang- urværð. En – síðasta lag plötunnar, „Pledging My Love“, er þess virði að leggja á minnið og ríflega það. Þar syngur Krummi einn síns liðs, eina lag plötunnar sem er á ensku og það besta, þegar upp er staðið. Með annan fótinn í sveitinni Björgvin Halldórsson & Hjartagos- arnir – Sígrænir söngvar bbmnn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST Morgunblaðið/Ómar Björgvin Með hinn fótinn í borginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.