Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 47

Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 47
Menning 47 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 BRESKA ungstirnið Robert Patt- inson heldur því fram að frægðin hafi ekki breytt honum. Pattinson kom fyrst fram í kvik- myndinni Harry Potter and the Go- blet of Fire en varð heimfrægur sem vampíran Edward Cullen í Twilight. Hann segir líf sitt vera eins og áð- ur þrátt fyrir að hann sé umkringd- ur kvenkyns aðdáendum og ljós- myndurum. „Ég vil halda því fram að ég hafi ekki breyst svo mikið. Inni í mér hef ég ekki breyst en þeg- ar ég geng úti á götu horfi ég meira niður. Ég lifi nánast eins lífi og áður fyrir utan það að fleiri þekkja mig og það er ekki beint það versta í heimi.“ Þótt hann sé með fæturna á jörð- inni segir Pattinson að frægðin hafi eyðilagt ástarlífið. „Ég hef miklar áhyggjur af því að eyðileggja líf þeirra sem ég er með, sérstaklega fólks sem er ekki frægt,“ segir Patt- inson sem hefur verið orðaður við mótleikkonu sína úr Twilight, Krist- en Stewart. Pattinson er aðeins 23 ára og þyk- ir ruglandi að vera orðinn kyntákn því hann var ekki vinsæll meðal kvenna fyrir frægð. „Þetta er fynd- ið, fyrir um ári hafði engin stelpa áhuga þegar ég talaði við hana. En þegar það var tilkynnt að ég yrði í Twilight skiptu allar um skoðun. At- hyglin sem ég fæ núna er rugl.“ Reuters Sætur Robert Pattinson á blaðamannafundi í San Diego á fimmtudaginn. Ruglandi að vera kyntákn ÞAÐ vantar ekki stúlkurnar sem vilja verma ból Nicks Lachey, en hann hefur helst unnið sér það til frægðar að vera í strákagrúppunni 98 Degrees og giftast og skilja við Jessicu Simpson. Á þriðjudaginn sást til hans laumast bakdyramegin út af næt- urklúbbi í Los Angeles með fimm stúlkum. Lachey nýtur þess nú að vera einhleypur en sambandi hans og fyrrverandi Miss Teen USA, Va- nessu Minnillo, lauk í síðasta mán- uði. „Með hverri reynslu lærir mað- ur eitthvað um líf sitt, maður tekur því eins og það er, heldur áfram og reynir að vera betri manneskja,“ sagði Lachey nýlega er hann var spurður út í sambandsslitin við Min- nillo. Fyrrverandi eiginkona Lachey, Jessica Simpson, er líka nýlega orð- in einhleyp eftir að íþróttamað- urinn Tony Romo sparkaði henni. Reuters Á góðri stundu Jessica Simpson og Nick Lachey þegar þau voru hjón. Skyldu þau taka saman aftur? Reynir að vera betri manneskja THOM Yorke, söngvari Radio- head, hefur samið nýtt lag sér- staklega fyrir kvikmyndina New Moon sem er framhald vamp- írumyndarinnar vinsælu Twilight. Leikstjórinn Chris Weitz hefur ekki heyrt lagið ennþá en segir nær öruggt að það muni hljóma í myndinni. „Af eigingjörnum ástæðum við ég hafa lög í myndinni með tón- listarmönnum sem ég elska,“ sagði hann í viðtali við HitFix.com. „Lagið verður með nema það sé þrjár mínútur af honum að ropa.“ Leikstjórinn segir einnig að Bon Iver hafi samið lag sérstaklega fyrir myndina en einnig er búist við því að Kings of Leon og Band of Skulls eigi lög í myndinni. Thom Yorke Gefinn fyrir tánings- vampírur og vill fá að vera með. Thom Yorke í New Moon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.