Morgunblaðið - 05.10.2009, Page 12
AÐSTOÐARPRESTUR í kaþólskri kirkju í borginni
Schiedam, skammt frá Rotterdam í Hollandi, blessar
naggrís lítillar stúlku í gær. Dýrið virðist mjög hugsi
yfir athyglinni. Fjórða október ár hvert er sérstök at-
höfn í kaþólskum kirkjum um allan heim til heiðurs
dýrunum en heilagur Franz frá Assisi, vernd-
ardýrlingur dýranna, lést 3. október árið 1226. Hann er
m.a. sagður hafa flutt villtum dýrum Guðs orð.
Reuters
NAGGRÍS Á RÉTTRI BRAUT
12 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÁTTA bandarískir hermenn og tveir
afganskir hermenn féllu í gær í árás
talíbana á varðstöðvar í Nuristan-
héraði í austanverðu Afganistan og
er um að ræða mannskæðustu árás á
erlenda herliðið í meira en ár. Hug-
veita í Bretlandi, sem m.a. fylgist
með þróun mála í Afganistan, álítur
nú að talíbanar séu að staðaldri með
vígasveitir í um 80% landsins.
ur? Munu þeir láta Afganistan
nægja? Augljóst er að Pakistan er
freistandi markmið, ekki síst vegna
þess að ríkið ræður yfir kjarnorku-
vopnum. Ef þeir næðu í bara fáein af
þessum vopnum myndu þeir nota
þau, það get ég fullvissað ykkur um,“
sagði Richards.
Það sem af er árinu hefur erlenda
herliðið alls misst 394 fallna í Afagn-
istan, þar af 236 Bandaríkjamenn.
Mannfallið hefur ekki verið meira
síðan innrásin var gerð 2001.
Í HNOTSKURN
»Stanley McChrystal, yf-irmaður erlenda herafl-
ans, vill fjölga hermönnum.
»David Richards segir aðverði fjölgað í breska her-
liðinu geti það dregið úr
mannfalli; auðveldara verði að
tryggja öryggi í landinu.
Mesta mannfall frá 2001
Nýr yfirmaður breska hersins segir að sigri herskáir íslamistar í Afganistan og
komist í kjölfarið yfir kjarnorkuvopn í Pakistan muni þeir tvímælalaust nota þau
Nýr yfirmaður
breska hersins,
David Richards,
segir í viðtali við
Daily Telegraph
að gefist banda-
menn upp og yf-
irgefi Afganistan
verði það eins og
„vítamínsprauta
fyrir herskáa íslamista“ í heiminum.
„Hvað gerist næst ef al-Qaeda og ta-
líbanar álíta að þeir hafi sigrað okk-
David Richards
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÍRAR samþykktu Lissabon-
sáttmála Evrópusambandsins með
tveim þriðju atkvæða á föstudag.
Stjórnmálaskýrendur segja að
áhyggjur kjósenda af efnahags-
óvissu ef sáttmálinn yrði felldur
hafi riðið baggamuninn. En sátt-
málinn er ekki í höfn. Þing Tékka
hefur samþykkt sáttmálann en for-
setinn, Vaclav Klaus, þarf að stað-
festa hann með undirritun sinni og
Klaus er eindregið á móti sáttmál-
anum.
Nokkrir þingmenn í Prag hafa
krafist þess að stjórnlagadómstóll
taki fyrir kvartanir þeirra vegna
vissra ákvæða Lissabon-sáttmál-
ans. Sennilega mun það ferli aðeins
taka fáeina mánuði en Klaus gæti
reynt að nota það til að tefja fyrir
endanlegri staðfestingu sáttmálans.
En hvers vegna? Hann gerir sér
vonir um að íhaldsmenn sigri í þing-
kosningum, sem verða í Bretlandi
næsta vor, og þá taki David Camer-
on við af Gordon Brown. Mikill
meirihluti kjósenda Íhaldsflokksins
hefur vægast sagt efasemdir um
ESB og líst illa á sáttmálann.
Cameron hefur heitið því að verði
ekki búið að fullgilda sáttmálann
alls staðar muni hann efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um hann. Líkur
eru á að Bretar felli þá Lissabon-
sáttmálann.
Cameron vill ekki að aðaláherslan
á nýhöfnu flokksþingi verði á Evr-
ópumálin heldur tillögur flokksins
gegn atvinnuleysi og annað sem
hrjáir fólk meira en ESB.
En íhaldsmaðurinn Daniel Hann-
an, sem er eitilharður andstæðingur
ESB-samstarfsins, segir að Camer-
on hafi þegar ritað Klaus persónu-
legt bréf þar sem hann tjái skoðun
sína á sáttmálanum. Hannan túlkar
þetta svo að Cameron sé þegar far-
inn að undirbúa þjóðaratkvæða-
greiðslu og reyni að fá Klaus til að
tefja staðfestinguna í Prag.
Andstæðingar Lissa-
bon-sáttmála eygja von
Verði töf á því að forseti Tékklands staðfesti sáttmálann
gæti hann enn fallið í þjóðaratkvæði í Bretlandi næsta ár
Írar hafa nú rutt brautina fyrir
Lissabon-sáttmálann, sem þarf
að hljóta staðfestingu í öllum
27 ESB-ríkjunum. En Bretar
gætu fellt hann ef íhaldsmenn
efna til þjóðaratkvæðis nái þeir
völdum.
SÚMATRABÚI með barn á leið fram hjá hrundu sjúkrahúsi í borginni Pad-
ang. Ólíklegt er að enn finnist fólk á lífi í rústunum eftir jarðskjálftann á
miðvikudag en þúsundir manna grófust undir braki. Vitað er að minnst
1100 fórust, að sögn talsmanna Sameinuðu þjóðanna en talan gæti hækkað
í allt að 3000, að sögn Siti Fadilah Supari, heilbrigðismálaráðherra
Indónesíu. Margar þjóðir hafa veitt Indónesum aðstoð vegna hamfaranna.
Vonir dvína í Padang
Reuters
Hverju breytir sáttmálinn?
Meira vald til stofnana ESB, nýtt
embætti forseta sambandsins, emb-
ætti utanríkismálastjóra verður eflt.
Andstæðingar sáttmálans segja of
mikið vald færast til Brussel.
Hvað með stækkunaráform?
Auðveldara verður að taka ný ríki inn
í sambandið. Frakkar og fleiri hafa
sagt að án sáttmálans sé varla hægt
að samþykkja frekari stækkun.
Hverjir eiga eftir að staðfesta?
Forsetar Póllands og Tékklands, báð-
ir andstæðingar aukins samruna
ESB-ríkja, hafa neitað að undirrita.
Þing beggja hafa þegar sagt já.
Hvað hyggjast forsetarnir gera?
Forseti Póllands, Lech Kaczynski,
hefur áður sagt að samþykki Írar
sáttmálann í þjóðaratkvæði muni
hann skrifa undir hann. Enn er óvíst
hvað Vaclav Klaus í Tékklandi gerir.
S&S
SVO gæti farið
að lög sem sett
voru á Ítalíu í
fyrra og gera
það að verkum
að ekki er hægt
að lögsækja Silv-
io Berlusconi
forsætisráðherra
fyrir ýmis gömul
og alvarleg af-
brot yrðu felld úr gildi. Hæstirétt-
ur landsins hóf á þriðjudag að
rannsaka hvort umrædd lög um
friðhelgi forsætisráðherra, sem
sett voru þegar skömmu eftir að
Berlusconi komst á ný til valda í
fyrra, stangist á við stjórn-
arskrána.
Berlusconi er einn auðugasti
maður landsins og ræður meðal
annars að mestu yfir einkareknum
sjónvarpsstöðvum Ítalíu og nokkr-
um dagblöðum. Hann var á sínum
tíma sakaður um að hafa mútað
breskum lögfræðingi sínum, David
Mills, með 600 þúsund evrum, um
110 milljónum króna, til að fá
hann til að bera ljúgvitni í tvenn-
um réttarhöldum á tíunda ára-
tugnum.
Ráðherrann hefur verið mjög
milli tannanna á fjölmiðlum á und-
anförnum vikum og mánuðum
vegna litskrúðugra kvennamála
sinna. Eiginkona hans hefur farið
fram á skilnað og ber m.a. því við
að Berlusconi, sem er 73 ára, hafi
átt í ástarsambandi við 18 ára
gamla fyrirsætu. kjon@mbl.is
Friðhelgi Berluscon-
is gæti verið í hættu
Silvio Berlusconi
FLUGMENN og flugfreyjur í Air-
bus-vél Air India eru sögð hafa
slegist á laugardag í augsýn um 100
furðu lostinna farþega sem voru á
leið frá Sameinuðu furstadæm-
unum til Nýju-Delí. The Times of
India segir að átökin hafi byrjað
eftir að flugfreyja sakaði flugmann
um kynferðislega áreitni.
Fullyrt er, að stjórnklefinn hafi
verið mannlaus um hríð. Flug-
félagið segir málið í rannsókn.
Hörkuslagsmál
í háloftunum
MIKIÐ er fjallað um geysilegan
hagvöxt í Kína síðustu áratugi en nú
spá sumir hagfræðingar því að hann
verði enn meiri í Indlandi á næsta
ári, að sögn BBC. Indland er næst-
fjölmennasta ríki heims, íbúar rúm-
ar 1150 milljónir en um 1350 í Kína.
Framleiðsla á hvert nef er mun
meiri í Kína og er það nefnt sem ein
ástæða þess að vöxturinn gæti senn
orðið meiri í Indlandi. Auðveldara
getur verið að bæta við þegar grunn-
urinn er lágur fyrir.
Fyrstu áratugina eftir sjálfstæðið
1947 var lögð áhersla á ríkisafskipti í
Indlandi. Enn er þar mikil miðstýr-
ing og hömlur á erlendri fjárfestingu
en snemma á tíunda áratugnum fóru
stjórnvöld að slaka á klónni í iðnaði,
verslun og þjónustugreinum og sam-
keppni varð virkari. Hagvöxtur fór í
9% á ári nokkrum árum síðar en
hnignaði nokkuð um hríð. Nú er hins
vegar spáð 8% vexti á næsta ári en
7,7% í Kína. kjon@mbl.is
Meiri vöxt-
ur í Indlandi
en Kína?
Mikil gróska í efnahag
beggja ríkjanna