Morgunblaðið - 05.10.2009, Page 13

Morgunblaðið - 05.10.2009, Page 13
Daglegt líf 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 TÍSKUVIKUNNAR í París er ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu. Undanfarna daga hafa hönnuðir víða að úr heiminum sýnt þar í borg vor- og sumartískuna fyrir árið 2010. Meðal þeirra sem sýndu hönnun sína var tískuhúsið Emanuel Ung- aro en þar var bryddað upp á þeirri nýbreytni að fá enga aðra en Holly- woodstjörnuna Lindsay Lohan til ráðgjafar um það sem koma skal í tískunni. Einn af hönnuðum Ungaro- tískuhússins, Estrella Arch, sýndi meðal annars skó og stutta kjóla og í lok sýningarinnar kom hún fram á sýningarpallinn ásamt ráðgjaf- anum Lindsay. Vakti uppátækið, að fá stjörnuna til liðs við tískuhúsið, mikla athygli. Stúlkan hefur ekki átt sjö dagana sæla upp á síðkastið en það er mál manna að ráðgjafahlutverk hennar í tískuheiminum sé hennar besta í langan tíma. Stjörnum prýdd tískuvika í París Reuters PENNINN selur nú nýja húsgagna- línu frá FANSA en hönnuður henn- ar er Valdimar Harðarson. Valdi- mar hefur hannað húsgögn fyrir Pennann í um 25 ár. FANSA er íslenskt hugvit að öllu leyti, bæði hönnuð og framleidd hér á landi en það er GKS sem sér um framleiðsluna. Nýju húsgögnin voru kynnt með pomp og prakt í síðustu viku. Framleiðsla á FANSA línunni hófst fyrir tveimur árum en um skrifstofuhúsgögn er að ræða. Í til- kynningu frá Pennanum segir að með FANSA línunni sé hægt að bjóða upp á góða íslenska hönnun og framleiðslu. Hvort tveggja eigi upptök í íslensku þjóðfélagi þar sem boðleiðir eru stuttar. „Þannig getum við miðlað hönnuðum og framleiðanda upplýsingum sem koma frá neytandanum. Komi við- skiptavinur með ábendingar er ekkert einfaldara en að koma þeim áleiðis til hönnuðarins sem getur haft þær í huga við hönnun og þró- un húsgagnanna í framtíðinni.“ Ný íslensk húsgagna- lína Penninn kynnir nýja línu frá FANSA Íslenkt hugvit Fansa-húsgögnin eru seld í Pennanum. VART verður þverfótað fyrir lyfjaauglýsingum í bandarískum fjöl- og vef- miðlum. Lyfja- fyrirtækin eyddu árið 2005 þrisvar sinnum meiri fjármunum til auglýsinga en árið 1997. Skyldi eng- an undra því rannsóknir sýna að það sé vel þess virði að auglýsa lyf – ávís- anir á lyfin og þar með sala þeirra taki ávallt kipp í kjölfarið. Aðeins tvö vestræn ríki leyfa lyfjaauglýsingar án takmarkana, Bandaríkin og Nýja-Sjáland. Hefur bandaríska Lyfja- og matvælaeftirlitið áhyggjur af þróuninni. Í flestum tilvikum er aðeins lítillega sagt frá aukaverk- unum lyfja í auglýsingum og heil- brigðisstarfsfólk verður fyrir aukn- um þrýstingi frá sjúklingum sínum um að ávísa ákveðnum lyfjum. Áhyggjur vegna lyfja- auglýsinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.