Morgunblaðið - 05.10.2009, Side 16

Morgunblaðið - 05.10.2009, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 5. október. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað um tísku og förðun föstudaginn 9. október 2009. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna haustið 2009 í hári, förðun, snyrtingu og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. Meðal efnis verður : Nýjustu förðunarvörurnar. Húðumhirða. Haustförðun. Ilmvötn. Snyrtivörur. Neglur og naglalökk. Hár og hárumhirða. Tískan í vetur. Flottir fylgihlutir. Góð stílráð. Íslenskir fatahönnuðir. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Tíska og förðun Á FORSÍÐU Morg- unblaðsins á laugardag- inn var lítil frétt með fyrirsögninni: „Ráð- herra ókunnugt um skatta á þungaiðnað“. Þar viðurkennir iðn- aðarráðherrann að hún hafi ekkert vitað um fyrirætlanir þeirrar rík- isstjórnar sem hún á sæti í, um að leggja 16 milljarða króna nýjar álögur á orku- frekan iðnað í landinu. Enn fremur er tekið fram að litið sé svo á að um „klúður í stjórnkerfinu sé að ræða“ og að ráðherranum finnist þetta allt saman mjög óheppilegt en því miður sé þetta nú bara búið og gert. Þetta er auðvitað með ólíkindum. Staðreyndin er sú að verði þessi skattlagning að veruleika er verið að kollvarpa áætlunum fyrirtækja í orkufrekum iðnaði hér á landi, áætl- unum um tugmilljarða króna fjárfest- ingar sem fyrirtækin töldu sig geta lagt í á grundvelli fjárfestingasamn- inga sem gerðir hafa verið við íslensk stjórnvöld. Nú á að breyta reglum eftir á og kynna til sögunnar nýja skatta sem gera ekkert annað en að grafa undan samkeppnishæfi okkar. En þarf þetta að koma svo á óvart? Ég vil til fróðleiks rifja upp minn- isblað til fjármálaráð- herra sem þáverandi ráðuneytisstjóri fjár- málaráðuneytisins, nú- verandi pólitískur að- stoðarmaður fjármálaráðherra, lagði fyrir efnahags- og skattanefnd sl. vetur þegar fjárfesting- arsamningur við Norð- urál í Helguvík var til umfjöllunar í nefndinni. Í minnisblaðinu var lagt til að fjárfesting- arsamningurinn og frumvarpið vegna Helguvíkur yrði endurskoðað svo að unnt væri að hækka skatta á verk- efnið. Enn fremur lagði ráðuneyt- isstjórinn til að núgildandi samningur og lög vegna Reyðaráls yrðu einnig tekin til endurskoðunar með það fyrir augum að hækka einnig skattana á það verkefni. Ráðuneytisstjórinn gerði sér þó auðvitað grein fyrir því að þetta yrði ekki til vinsælda fallið og lauk minnisblaðinu á þeim hugleið- ingum að hugsanlegar bætur til aðila vegna þessa yrðu líklega minni en beina „tjónið“ sem hann kallar það að láta samningana standa óbreytta. Þessir samningar sem hann vildi skattleggja eftir á gerðu menn til fjölda ára og auðvitað í þeirri góðu trú að þeir yrðu haldnir. Skyldu nýju orkuskattarnir vera lagðir fram með sömu hugmyndafræði – fyrirtækin geta kvartað og mótmælt – en skatt- tekjurnar verða alltaf meiri en beina tjónið af hugsanlegum bótum til þeirra. Sú makalausa nýja skattlagning á orkugeirann sem boðuð er í fjárlaga- frumvarpinu og iðnaðarráðherrann kannast ekki við kemur á sama tíma og umhverfisráðherrann gengur á svig við góða stjórnsýslu og stöð- ugleikasáttmála og bregður vísvit- andi fæti fyrir framkvæmdir við ál- verið í Helguvík og fleiri orkufrekar framkvæmdir á Suðurnesjunum. Er þetta tilviljun, klúður í stjórnkerfinu eða er þetta kannski bara pólitísk stefnumótun fyrstu hreinu vinstri stjórnarinnar? Það skyldi þó ekki vera. Svo er það auðvitað sérstakt rann- sóknarefni að ákvörðun af þessu tagi, stórskaðleg ákvörðun fyrir atvinnu- lífið í landinu, geti komið inn í fjár- lagafrumvarp „á síðustu stundu, án kynningar“. Hvers konar verkstjórn er það? Klúður í stjórnkerfinu eða pólitísk stefnumótun? Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur »… verði þessi skatt- lagning að veruleika er verið að kollvarpa áætlunum fyrirtækja í orkufrekum iðnaði hér á landi … Ragnheiður Elín Árnadóttir Höfundur er alþingismaður. Í MORGUNBLAÐINU í gær, sunnudaginn 4. október, ritaði Bjarni Harðarson bóksali og fyrrverandi alþing- ismaður grein um leiðrétt- ingarleið Íslandsbanka. Í grein sinni kallar hann leiðréttingarleið Íslands- banka gylliboð, en hið sanna er að um er að ræða úrræði sem snýr að því að leið- rétta höfuðstól erlendra og verð- tryggðra húsnæðislána. Bjarni full- yrðir að bankinn sé með þessu úrræði fyrst og fremst að veðja á styrkingu krónunnar. Þetta er rang- lega ályktað hjá Bjarna því hvorki er um að ræða gylliboð né heldur er bankinn með þessu að veðja á styrk- ingu krónunnar. Íslandsbanki er hins vegar að reyna að koma til móts við viðskiptavini sína við afar erfiðar og áður óþekktar aðstæður. Leiðréttingarleiðin í stuttu máli Með leiðréttingarleiðinni hyggst Íslandsbanki bjóða þeim við- skiptavinum sem þess óska ákveðin skiptikjör á erlendum og verð- tryggðum húsnæðislánum. Þessi leið mun gera þeim kleift að lækka höf- uðstól erlendra húsnæðislána sinna um 25% að meðaltali, gegn því að þeir skipti yfir í óverðtryggð lán í ís- lenskum krónum. Með þessu mun höfuðstóll lánanna standa í svipaðri krónutölu og hann gerði í september 2008, þ.e.a.s. fyrir hrun. Viðskiptavinir sem velja að fara þessa leið geta valið á milli breytilegra og fastra vaxta. Breytilegu vext- irnir á óverðtryggðu lánunum taka mið af markaðskjörum sem eru í dag um 9,5%, en fyrstu þrjú árin verða veitt stiglækkandi ívilnandi vaxta- kjör og verða breytilegu vextirnir skv. núverandi vaxtastigi því 7,5%. Einnig verður boðið upp á lán með föstum vöxtum sem eru núna 9,0%. Að þremur árum liðnum gefst við- skiptavinunum kostur á að velja hvort þeir haldi áfram með lánið á gildandi markaðskjörum eða hvort þeir endurfjármagni lánið hjá Ís- landsbanka eða annarri lánastofnun. Leiðréttingarleiðin er valkvæð, þ.e. viðskiptavinum er í sjálfsvald sett hvort þeir kjósi að nýta þetta úrræði eða ekki. Íslandsbanki mun leggja mikla áherslu á að veita við- skiptavinum sínum upplýsingar og aðstoð sem snerta ákvarðanir varð- andi þessi úrræði. Bankinn hefur hleypt af stokkunum fræðslustarfi fyrir ráðgjafa bankans með þetta að markmiði. Það skal áréttað að Ís- landsbanki hefur hvergi dregið dul á að leiðréttingarleiðin hefur bæði kosti og galla og nýtist líklegast best þeim sem hafa hugsað sér að selja fasteign sína á komandi misserum og vilja því minnka skuldsetningu hennar og þeim viðskiptavinum sem vilja hverfa frá gengistengdri áhættu. Það hefur einnig komið skýrt fram af hálfu bankans að með þessu er viðskiptavinurinn að færa sig yfir í annað vaxtaumhverfi. Mikilvægasta verkefnið Eitt mikilvægasta verkefni bank- ans á liðnu ári hefur verið að koma fram með raunhæfar lausnir fyrir heimilin og atvinnulífið sem auðveldi samfélaginu að vinna sig úr þeim vanda sem það stendur frammi fyrir. Starfsfólk Íslandsbanka hefur lagt mikla vinnu í þau úrræði sem nú er verið að kynna af hálfu bankans. Þau eiga ekkert skylt við gylliboð heldur er um að ræða raunverulegar lausn- ir sem viðskiptavinum bankans er boðið upp á. Framundan er ærin vinna við að upplýsa um eðli þessara lausna, svara fjölmörgum spurn- ingum þeim tengdum og vinna með viðskiptavinum okkar að lausnum sem henta hverjum og einum. Úrræði – ekki gylliboð Eftir Má Másson » Þessi leið mun gera þeim kleift að lækka höfuðstól erlendra hús- næðislána sinna um 25% að meðaltali … Már Másson Höfundur er forstöðumaður samskiptasviðs Íslandsbanka. EFNAHAGSSTARFSEMI okkar Íslendinga hefur dregist mjög harkalega saman og þessa dagana er verið að taka ákvarð- anir sem munu valda miklu um hversu djúp og langvinn kreppan verður. Ríkisstjórnin hefur nú sýnt á spilin, tillögur hennar hafa nú litið dagsins ljós. Hvað leggur ríkisstjórnin upp með? Ráðherrar ríkisstjórn- arinnar hafa með ákvörðunum sínum valdið drætti og jafnvel komið í veg fyrir fjárfestingar í orkufrekum iðnaði. Þúsundir Ís- lendinga eru atvinnulausar og bíða þess að geta fengið vinnu til að sjá sér og sínum farborða. Of- an á þetta ætlar ríkisstjórnin að hækka skatta, einkum á orku. Slík skattahækkun mun leggjast þungt á atvinnulífið, einkum stóriðju. Þar með dregur mjög úr möguleikum okkar til að laða að til landsins nýjar fjárfestingar. Vitanlega verður ekki vikist undan því að skera niður ríkisút- gjöld, enda hafa þau vaxið um 30% að raungildi á síðustu tíu ár- um, og kalla sumir það frjáls- hyggju. En sá niðurskurður mun valda samdrætti í hagkerfinu og því nauðsynlegt að örva hag- kerfið á móti eins og frekast er kostur. Skattahækkanir og stjórnsýslutafir, sem ætlað er að koma í veg fyrir erlenda fjárfest- ingu, ganga þvert á þessa stefnu. Stefna ríkisstjórnarinnar eykur enn á samdráttinn og mun gera heimilunum erfiðara fyrir að ná endum saman. Jafnframt mun vandi ríkissjóðs aukast enn frá því sem nú er vegna þessarar stefnu og er sá vandi mikill nú þegar. Illugi Gunnarsson Ríkisstjórnin dýpkar kreppuna Höfundur er þingmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.