Morgunblaðið - 05.10.2009, Side 21
Dagbók 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
Sudoku
Frumstig
2 6 4
8 2 1
5
9 5 6 1
1 9 8
3
4
5 3 2 6
3 7 9 5 2
4
8 6 9
7 8 1 5 2
5 2
6 3 1
4 7 8
7
2 5 7 8 9
6 5
4 7 3
1 9
6 2
6
5 4 7
2 5 9
3 5
8 5 1 4
1 6 9 7 8
1 8 4 7 9 5 2 3 6
3 6 9 2 4 1 7 8 5
5 2 7 6 8 3 4 1 9
6 5 8 1 2 7 3 9 4
2 4 3 8 6 9 5 7 1
7 9 1 5 3 4 8 6 2
9 7 2 3 5 6 1 4 8
8 1 6 4 7 2 9 5 3
4 3 5 9 1 8 6 2 7
9 1 2 6 7 5 4 3 8
4 5 3 2 9 8 1 7 6
7 8 6 4 3 1 9 2 5
2 3 8 1 5 7 6 9 4
6 7 5 3 4 9 8 1 2
1 9 4 8 6 2 7 5 3
3 4 9 5 1 6 2 8 7
8 6 1 7 2 3 5 4 9
5 2 7 9 8 4 3 6 1
3 9 7 4 2 8 1 6 5
5 4 6 1 7 9 8 3 2
8 1 2 6 5 3 7 9 4
4 3 9 8 1 2 6 5 7
2 5 8 7 6 4 9 1 3
7 6 1 9 3 5 2 4 8
1 2 4 3 8 6 5 7 9
6 8 3 5 9 7 4 2 1
9 7 5 2 4 1 3 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 5. október,
278. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. ( Jóh. 13, 34.)
Val á orðum og fjöldi þeirra skiptirmiklu ef fólk vill láta taka mark
á sér, á sama hátt og léleg og lítil
froða gerir bjór óspennandi en falleg
froða bætir hann. Víkverji er loksins
búinn að átta sig þessu.
x x x
Auðvitað getur hann haldið sínustriki, verið lummulegur og sagt
til dæmis: „Ég ætla að taka strætó í
dag“. En mun áhrifameira er að
segja: „Ég hef að vandlega yfirlögðu
ráði tekið þá ákvörðun að beita fram-
sækinni hugmyndafræði við val á að-
ferðum við að láta flytja sjálfan mig
milli tveggja staða og kynna mér af
eigin raun ástandið í almennings-
samgöngum borgarinnar með því að
ferðast með leið 3 og 12 í dag.“
x x x
Í alvöru, þessi óþolandi orðafroða,staglstíll og belgingur hjá mörg-
um stjórnmálamönnum og embætt-
ismönnum virðist hafa það eina hlut-
verk að fela andlega nekt þeirra,
sýnist Víkverja.
En nú man hann allt í einu að stór
hluti liðsmanna Alþingis er einmitt
fyrrverandi fjölmiðlamenn. Ekki
gengur að gagnrýna kollega, þó að
þeir séu hættir. Við verðum að sýna
samstöðu. Við megum allt, bara við.
x x x
En Víkverji er líka jákvæður. Út-svar á áreiðanlega eftir að kom-
ast á spjöld sögunnar sem eitthvert
besta sjónvarpsefni sem Ríkissjón-
varpið hefur framleitt gegnum tíðina.
Skemmtilegri þjóðarspegil er erfitt
að ímynda sér og margir af þátttak-
endunum eru orðnir eins og heim-
ilisvinir hjá áhorfendum.
x x x
Umgjörð þáttanna er afslöppuð ogtilgerðarlaus og tvennt tryggir
síðan góða útkomu: þrautreyndur
spurningahöfundur, Ólafur B. Guðna-
son, með frábæra hugmyndaauðgi og
húmor og stjórnendur sem kunna sitt
fag. Ekki skaðar að bæði hafa gaman
af því sem þau eru að gera, það leynir
sér ekki. Húrra fyrir þessu ágæta
fólki!
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 orsaka, 4
streyma, 7 ásynja, 8 ljós-
gjafinn, 9 blóm, 11 brún,
13 konur, 14 afkvæmi,
15 vitlaus, 17 íþyngd, 20
liðamót, 22 mergð, 23
áma, 24 kasta, 25 trjá-
gróðurs.
Lóðrétt | 1 braut, 2 um
garð gengin, 3 flanar, 4
vatnsfall, 5 lætur af
hendi, 6 fugls, 10 upp-
námið, 12 atorku, 13 burt,
15 þjalar, 16 nógu mik-
inn, 18 mjúkan, 19 jarða,
20 ósoðna, 21 snæðir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 glysgjarn, 8 útveg, 9 lofar, 10 ill, 11 tosar, 13
Arnar, 15 hlass, 18 fauti, 21 Týr, 22 lokki, 23 öndin, 24
grannkona.
Lóðrétt: 2 lævís, 3 segir, 4 julla, 5 rófan, 6 búnt, 7 hrár,
12 ats, 14 róa, 15 hóll, 16 askur, 17 stinn, 18 frökk, 19
undin, 20 inna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5.
bxa6 g6 6. Rc3 Bxa6 7. g3 d6 8. Bg2
Bg7 9. Rf3 Rbd7 10. Hb1 Rb6 11. b3
Bc8 12. Rd2 Bf5 13. e4 Bc8 14. a4 h5 15.
0-0 h4 16. Rc4 hxg3 17. hxg3 Bg4 18. f3
Bd7 19. Dd3 Rxc4 20. Dxc4 Hb8 21. b4
cxb4 22. Hxb4 Hc8 23. Db3 Da5 24.
Re2 0-0 25. Bb2 Ha8 26. Ha1 e6 27.
dxe6 Bxe6 28. Da3 Hfc8 29. Rf4 Bc4 30.
Hd1 Dg5 31. Kh2 Rh5 32. Rxh5 Dxh5+
33. Kg1 Be2 34. Hd2 Dc5+ 35. Bd4
Bxd4+ 36. Hdxd4 Hab8 37. f4
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Reykjavík og
sem Taflfélag Bolungarvíkur hélt en
Útgáfufélagið Sögur styrkti. Al-
þjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunn-
arsson (2.462) hafði svart gegn Birni
Þorfinnssyni (2.395). 37. … Bc4! og
hvítur gafst upp enda liðstap óumflýj-
anlegt.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hvolpar.
Norður
♠D10982
♥ÁK2
♦K43
♣76
Vestur Austur
♠754 ♠ÁKG
♥G1098 ♥654
♦D965 ♦10
♣D2 ♣G109853
Suður
♠63
♥D73
♦ÁG872
♣ÁK4
Suður spilar 3G.
Flestir spilarar sýna tíum og níun
tilhlýðilega virðingu, en gleyma sér
gjarnan þegar komið er niður í áttu og
smærri spil. Þá rennur allt saman í
eina hundahjörð. Hér er útspilið ♥G og
verkefni sagnhafa er fljótgreint: hann
þarf að fá fjóra slagi á tígul. En það
mun seint ganga eftir nema hann skilji
mikilvægi þess að eiga ♦87 í lang-
litnum. Þeir „hvolpar“ koma að góðum
notum.
Tæknin er einföld þegar búið er að
kveikja á perunni: að leggja fyrst niður
♦Á og kanna hvað gerist. Ef ásinn lað-
ar ekki fram millispil, er tekið á kóng-
inn næst og þá má austur eiga drottn-
ingu þriðju eða fjórðu, hann fær bara
einn slag. Ávinningurinn kemur fram
þegar austur er með staka tíu eða níu.
Þá er áttunni spilað næst og hún látin
svífa yfir ef vestur dúkkar.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samskipti við foreldra eða yf-
irboðara eru full ákefðar um þessar
mundir. Forðastu samt sem áður setja
ástvini þína á stall og mundu að þeir eru
mannlegir rétt eins og þú.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ef þú heldur rétt á spilunum mun
þér ganga allt í haginn jafnt á vinnustað
sem heima fyrir. Víkkaðu sjóndeild-
arhringinn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú færð ekki neitt með því að
sitja með hendur í skauti. Fólk reiðir sig
á að þú sért með ferskar og raunsæjar
hugmyndir sem geta leyst ýmis vanda-
mál.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert vinsæll og þegar klappað
er fyrir þér, þá áttu það skilið. Þú situr
sem fastast í kollinum þótt allt annað í
kringum þig sé að breytast.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er sama hvað þú leggur á þig til
þess að þjálfa staðgengil fyrir þig, hann á
aldrei eftir að koma alveg í staðinn. Sak-
laus skemmtun er allra meina bót.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Reyndu að taka því vel þótt þú
verðir fyrir einhverjum skakkaföllum því
þau munu ekki koma í veg fyrir að þú ná-
ir takmarki þínu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hæfileikar sem þú álítur sérstaka
verða dýrmætir fyrir einhvern annan.
Stundum leysir það vandamál að spyrja
„hvað ef?“, en stundum skapar það þau.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einkalíf þitt verðskuldar jafn
mikla athygli og lífið í vinnunni. Taktu
þetta með í reikninginn og reyndu að líta
sem best út.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það sem þú getur og það sem
þú vilt gera eru eitt og hið sama ef þú
missir ekki sjónar á draumalandinu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hafðu hugfast að aldrei er
hægt að gera svo að öllum líki. Margt er
þér í hag þessa dagana og sjálfsagt að
notfæra sér meðbyrinn meðan hann var-
ir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Opnaðu glugga hjarta þíns upp
á gátt og hafðu skilning á sambandinu.
Sumir eru sárari en aðrir.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er aldrei að vita hvenær lukk-
an ber að dyrum svo þú skalt jafnan vera
við öllu búinn hvort heldur þú ert á
heimaslóð eða að heiman. Gefðu þér tíma
til að leggja góðum málefnum lið.
Stjörnuspá
5. október 1897
Æskan, „barnablað með
myndum, gefið út af Stórstúku
Íslands,“ kom út í fyrsta sinn.
Blaðið var gefið út í rúma öld.
5. október 1949
Dregið var í fyrsta sinn í Vöru-
happdrætti Sambands ís-
lenskra berklasjúklinga
(SÍBS). Hæsti vinningur, hús-
gögn í tvær stofur, kom á miða
númer 18064.
5. október 2000
Víkingaskipið Íslendingur
kom til hafnar í New York, en
lagt hafði verið af stað frá Ís-
landi í júní. „Takmarkinu er
náð,“ sagði Gunnar Marel
Eggertsson skipstjóri. Ferðin
var farin til að minnast landa-
fundanna árið 1000.
5. október 2003
Hljómar héldu tónleika í Aust-
urbæ, nákvæmlega 40 árum
eftir að þeir léku í fyrsta sinn
opinberlega, í Krossinum í
Njarðvík.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Naúmí Alda Ingólfsdóttir, Eva
María Thorarensen og Alda Líf
Guðmundardóttir stóðu fyrir tom-
bólu á Kirkjubæjarklaustri til
styrktar Rauða krossinum. Þær
söfnuðu 5.974 krónum. Á myndinni
eru Naúmí Alda og Eva María.
Hlutavelta
RÓBERT H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við
Háskóla Íslands, á fimmtugsafmæli í dag. Hann
fagnaði áfanganum um helgina í faðmi fjölskyld-
unnar en segist ekki ætla að halda upp á afmælið
að öðru leyti. Farið var í sumarbústað á Flúðum
og gengið upp á Bláfell og Kjöl en eiginkona hans,
Kolbrún Pálsdóttir, skipulagði óvissuferð upp á
síðarnefnda fjallið og um Suðurlandið. „Þetta er
svo ótrúlega fallegt land, maður uppgötvar það á
hverjum degi,“ segir Róbert. „Svo fór ég í golf í
fyrsta sinn á ævinni,“ segir hann og bætir við að
það hafi verið erfiðara en hann bjóst við. Spurður
hvort hann ætli að spila meira segir hann það afar freistandi.
Róbert segir eftirminnilegustu afmælisdagana hafa verið þrítugs-
afmælið í Bandaríkjunum, þar sem amerískir og íslenskir vinir hans
héldu honum óvænta afmælisveislu, og fertugsafmælið, sem hann
fagnaði á góðum veitingastað í Kaupmannahöfn.
Helstu áhugamál Róberts eru hjólreiðar og hvers kyns útivist en
hann hjólar alltaf í HÍ, þar sem hann hefur starfað síðustu 18 árin, úr
Garðabænum. Það gerir rúmlega 22 km á dag. „Það er ágæt leið til að
halda sér í formi,“ segir hann. ylfa@mbl.is
Róbert H. Haraldsson heimspekingur 50 ára
Ferðaðist um Suðurlandið
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is