Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 28
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
Það var kátara en nokkru sinnifyrr í Höllinni í Vest-mannaeyjum á fimmudags-kvöldið þegar hljómsveitin
Papar kom þar fram og kynnti sína nýj-
ustu plötu. Ég verð að dansa heitir plat-
an sem hefur að geyma fjórtán lög eftir
Gylfa Ægisson. Paparnir eru nú á tón-
leikaferð um landið þar sem þeir kynna
plötuna og voru Eyjarnar einn af fyrstu
viðkomustöðunum sem verða fimmtán
alls.
Í sumaryl
„Við Papar erum nú að koma saman
aftur eftir nokkurt hlé og vildum gefa út
plötu jafnhliða því. Þeirri hugmynd að
gefa út plötu með lögum Gylfa Ægisson-
ar var skotið að okkur fyrir nokkrum ár-
um. Þá vorum við hins vegar í öðrum
pælingum og plata með lögum Jónasar
Árnason var í undirbúningi. Núna lá
hins vegar beint við að fara í plötu með
lögum Gylfa, þetta er rétti tíminn,“ seg-
ir Páll Eyjólfsson hljómborðs- og harm-
onikuleikari Papanna.
Lög Gylfa Ægissonar á plötu Papa eru
alls fimmtán. Þar má nefna Ég hvísla yfir
hafið, Út á hafið, Jibbý jei, Minning um
mann og Í sól og sumaryl. Það síðast-
nefnda er ef til vill þekktasta lag Gylfa og
var gert nánast ódauðlegt af Hljómsveit
Ingimars Eydal fyrir rífum þrjátíu árum.
Þá er lagið Minning um mann ekki síður
velþekkt. Það samdi Gylfi um Eyjamann-
inn Árna Valdason, Gölla sem svo var
nefndur og Árni Johnsen gerði víð-
frægan þegar hann söng Göllavísur.
Einstakur maður
„Nei, Gylfi Ægisson er ekki hallær-
islegur. Það er ómögulegt að halda slíku
fram um mann sem hefur samið ótalmörg
lög sem slegið hafa í gegn meðal þjóð-
arinnar,“ segir Páll Eyjólfsson.
„Gylfi er í mínum huga alveg einstakur
maður sem gerir hlutina á sinn sérstaka
hátt. Kemur til dyranna eins og hann er
klæddur og í tónlistinni semur hann lögin
sjálfur, syngur, tekur þau upp og selur
plöturnar sjálfur. Þetta myndu fáir leika
eftir. Gylfi er hjartastór maður og hefur
mikla frásagnagáfu eins og heyrist best í
textunum hans.“
Gjöfull tími
Siglfirðingurinn Gylfi Ægisson kom
fyrst til Vestmannaeyja fimmtán ára
gamall, árið 1961. Hann flutti til Eyja í
kringum 1970 og bjó þar í nokkur ár eftir
það. Sigraði tvö ár í röð í samkeppni um
Þjóðhátíðarlag Eyjamanna; í fyrra sinnið
árið 1974 með laginu Eyjan mín bjarta.
Í tímans rás hefur Gylfa Ægisson ann-
ars verið best þekktur fyrir sjómannalög
sín. Í óskalagaþætti sjómanna í Rík-
isútvarpinu, Á frívaktinni, sem jafnan var
á dagskrá á fimmtudögum átti hann oft
tvö til þrjú lög í hverjum þætti.
„Sigrún Sigurðardóttir sem var um-
sjónarmaður þáttarins sagði að ég stæði
uppúr. Enginn ætti fleiri lög í þættinum
en ég. Um Eyjarnar get ég svo sagt að
þann tíma sem ég bjó hér kynntist ég
mörgum góðum strákum og þetta var
mér líka afskaplega gjöfull tími í tónlist-
inni. Hér samdi ég mörg af mínum lög-
um,“ segir lagasmiðurinn Gylfi Ægisson.
Plata með Gylfa gömul hugmynd
Söngvarinn Matthías kyrjaði slagarana góðu. Gleði Hún naut sín vel í fangi unnustans. Kóngurinn Bubbi syngur um lífið við sjóinn. Kátur Palli papi söng og þandi nikkuna.
Gylfi Ægis Lögin hans eiga sinn sess í þjóðarsálinni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vinkonur Lög Gylfa höfða til allra aldurshópa, þar á meðal Eyjadísanna Heiðu, Mörtu og Fanndísar sem skemmtu sér vel.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á
FACEBOOK
- Æðisleg!
- Algjört meistarverk!!
- Myndin er geeðveik! :D
- sá myndina þína í dag þú er
idolið mitt sveppi
- Þetta er geðveik mynd!!!! Allir
að fara á hana
- Langbesta myndin líka - Sveppi
á erindi til okkar allra
- hún er geeeðveik
- Snillddddddd
- Besta fjölskyldumyndin síðan
MEÐ ALLT Á HREINU
- Hún er jafn fyndin fyrir ful-
lorðna!
- Strákurinn minn er enn með
stjörnur í augunum
- Krakkarnir tala ekki um annað!
YFIR 17.000 GESTIR FYRSTU VIKUNA
HHHH
- K.U. - TIME OUT NEW YORK
"ENTERTAINING AND INGENIOUS!
- ROGER EBERT
BRUCE WILLIS ER
MÆTTUR Í HÖRKU-
SPENNANDI MYND
SEM ENGINN MÁ
MISSA AF
PENINGAR - SVIK - MORÐ
MANNLEG FULLKOMNUN
– HVAÐ GETUR FARIÐ ÚRSKEIÐIS?
SURROGATES
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
/ ÁLFABAKKA
SURROGATES kl. 6 - 8D - 10:10D 12 DIGITAL DISTRICT 9 kl. 8 - 10:20 16
SURROGATES kl. 5 - 8 - 10:10 16 LÚXUS VIP BANDSLAM kl. 5:30 L
ALGJÖR SVEPPI OG LEIT... kl. 6D L DIGITAL UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L
FUNNY PEOPLE kl. 5 - 8 - 10:50 12 HARRY POTTER kl. 8 10
HAUNTING IN CONNECTICUT kl. 8 - 10:20 16
REYKJAVÍK WHALE WAT... kl. 10:50 16
/ KRINGLUNNI
SURROGATES kl. 6 - 8:20D - 10:30D 16 DIGITAL
ALGJÖR SVEPPI... kl. 6D L DIGITAL
KRAFTUR Síðasti.. kl. 8:10D - 9:20D L DIGITAL
DISTRICT 9 kl. 8:10 - 10:30 16
FINAL DESTINATION kl. 10:303D 16 DIGITAL 3D
UPP (UP) m. ensku tali kl. 63D L DIGITAL 3D
Papar og Gylfi Ægisson
koma víða við næstu
daga í tónleikahaldi sínu.
Jafnframt er með þeim í
för Bubbi Morthens. Það
er vel við hæfi enda hafa
sjórinn og lífið í verbúð-
um landsins oft verið
yrkisefni Bubba, rétt eins
og Gylfa. Tónleikarnir
verða eftirtalda daga í
október.
6. Valhöll Eskifirði
7. Félagsheimilið
Fáskrúðsfirði
8. Hótel Framtíð
Djúpavogi
9. Herðubreið
Seyðisfirði
10. Valaskjálf
Egilsstöðum*
13. Menningarhúsið
Dalvík
14. Græni Hatturinn
Akureyri
15. Allinn Siglufirði
16. Miðgarður Skagafirði
17. Miðgarður Skagafirði*
20. Félagsheimilið
Ólafsvík
21. Saltfiskssetrið
Grindavík
22. Austurbær Reykjavík
23. Bíóið Akranesi
24. Dalabúð Búðardal*
* Skemmtanir í Valaskjálf,
Miðgarði og Dalabúð eru
dansleikir.
Hringferð og 15 viðkomustaðir