Morgunblaðið - 05.10.2009, Page 29
arlausn Kínverja á offjölgunar-
vandamálinu. Allt gerir þetta söguna
að dálítilli langloku.
Kannski er það vegna mikillar
samkeppni glæpasagnahöfunda á
milli að norrænar glæpasögur verða
stöðugt blóðugri. Líkin hrannast upp.
Nú sjáum við fjöldamorð á síðum
þeirra, jafnvel á friðsömum stað í
Norður-Svíþjóð, og heimspólitíkin
kemur inn í sögur með öllum sínum
sérkennilegu gildisviðmiðum þar sem
heimsvaldastefna Kínverja er gerð
verri en samsvarandi stefna Evr-
ópuþjóða og Bandaríkjanna að
ógleymdu baksviðsmakkinu og hætt-
unni að austan. Sennilega er óvíða
jafnmikill hætta á blóma í fordómaf-
lórunni og í glæpasögum, jafnvel
þeim sem þykjast veifa fána fé-
lagshyggjunnar.
Þrátt fyrir svo toginleitan sögu-
þráð og víðförlan er töluverðri
spennu haldið uppi í þessari bók. Höf-
undur hefur betra vald á glæpasögu-
forminu en flestir aðrir höfundar. En
mér finnst eins og hann hafi í þetta
skiptið hreinlega færst of mikið í
fang. Þýðing verksins er látlaus, án
hnökra og stelur engri athygli.
Frá Hesjövallen
til Simbabve
Skáldsaga
Kínverjinn
eftir Henning Mankell, Mál og menning,
2009 – 508 bls.
SKAFTI Þ.
HALLDÓRSSON
BÆKUR
Hvaða samnefnara á fjölda-morð í Svíþjóð meðmeintri nýlendustefnuKínverja í Simbabve?
Glæpasagnahöfundar reyna stundum
býsna mikið á þanþol skynseminnar.
Það gerir Henning Mankell í bókinni
Kínverjanum.
Mankell er þekkt-
astur fyrir bækur
sínar um lög-
reglumanninn
Wallander og er
með viðurkennd-
ustu glæpasagna-
höfundum
Norðurlanda
enda eru margar
sagna hans
spennuþrungnar og vel gerðar. Kín-
verjinn er á sama hátt að mörgu leyti
vel skrifað verk og lofar góðu fram í
miðja bók. Verkið fjallar um fjölda-
morð sem framið er í sænsku smá-
þorpi. Íbúar þorpsins eru teknir af lífi
með sveðju. En af einhverjum ástæð-
um verður síðan einhvern veginn allt í
bókinni ákaflega langsótt og í mínum
huga jafnvel ótrúverðugt. Sögumiðja
verksins tengist dómara, konu á
miðjum aldri, sem er lauslega tengd
nokkrum fórnarlömbunum fjöl-
skylduböndum og fær áhuga á rann-
sókn málsins. Hún kemst yfir dag-
bókarbrot sem tengja fórnarlömbin
lauslega atburðum á 19. öld í Banda-
ríkjunum og Kínverja sem er í hefnd-
arhug vegna atburða sem áttu sér
stað þar á þeim tíma. Segja má að sú
langrækni sé úr hófi fram.
Þessi langsótta atburðarás leiðir
okkur með höfundi og aðalpersónu
hans inn í Kína nútímans þar sem
uppreisnir alþýðu eru á hverju strái,
mannréttindi eru fótum troðin og
Kínverjar byrjaðir að framkvæma
nýstárlega heimsvaldastefnu sem
byggist á því að flytja uppreisnar-
bændurna til Afríku. Við kynnumst
innviðum kommúnistaflokksins í
Kína enda er höfuðpersónan líkt og
höfundurinn gamall maóisti. Er sag-
an á köflum einhvers konar endurlit
og jafnvel uppgjör á þeirri fortíð hans
og einhvern veginn týnist sjálft
glæpamálið á köflum í stórvelda-
pólitík. Lesendur verða jafnvel að
leggja það á sig að lesa alllanga end-
ursögn á fimm tíma ræðu um framtíð-
Kínverjinn
Venjulegt verð – 1050 kr.
Í REYKJAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
HHHHH
„A GENUINELY ORIGINAL
SCIENCE FICTION FILM
THAT GRABS YOU IMMEDIATELY,
NOT LETTING
GO UNTIL THE FINAL SHOT.“
THE HOLLYWOOD REPORTER
HHHHH
SAN FRANCISCO CHRONICLE
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND KRINGLUNNI OG SELFOSSI
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
PETER JACKSON
KEMUR EIN BESTA MYND
ÞESSA ÁRS!
“ÁHORFENDUR SKEMMTU SÉR VEL,
ENDA MYNDIN Í SENN HJARTNÆM
OG EINLÆG OG OFT VAR HLEGIÐ Í SAL-
NUM OG EINS FELLDU MARGIR TÁR,
KARLAR JAFNT OG KONUR.
Í ÞAÐ HEILA ER MYNDIN GÓÐ AFÞREY-
ING FYRIR ALLA, EKKI BARA HESTA-
MENN OG HREINLEGA SKEMMTILEG
FJÖLSKYLDUMYND OG SANNARLEGA
HÆGT AÐ MÆLA MEÐ ÞVÍ AÐ FÓLK
FARI OG SJÁI HANA.”
FRÁ LEIKSTJÓRA
40 YEAR OLD
VIRGIN
OG KNOCKED
UP. STÓRKOST-
LEG GRÍN-
MYND MEÐ
ÞEIM ADAM
SANDLER, SETH
ROGEN
OG ERIC BANA.
A REACH FOR EXCELLENCE THAT TAKES BIG
RISKS.“
100/100 – SAN FRANCISCO CHRONICLE
„IT’S THE WORK OF A MAJOR TALENT.“
88/100 - ROLLING STONES.
„CAREFULLY WRITTEN DIALOGUE AND CARE-
FULLY PLACED SUPPORTING PERFORMANCES
--
AND IT’S ABOUT SOMETHING.“
88/100 – CHICAGO SUN-TIMES
HHHH
- S.V. MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
BYGGÐ Á
SANNSÖGU-
LEGUM
ATBURÐUM
ÓHUGNALEG
MYND ÞAR SEM
ÓÚTSKÝRÐIR HLUTIR
ÁTTU SÉR STAÐ Í
GÖMLU ÚTFARAR-
HEIMILI.
SUMA HLUTI ER EKKI
HÆGT AÐ ÚTSKÝRA.
ATH. ALLS EKKI
FYRIR VIÐKVÆMA.
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í KRINGLUNNI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
ALGJÖR SVEPPI OG ... kl. 6 L
SURROGATES kl. 8 - 10:20 12
UPP m. ísl. tali kl. 6 L
FUNNY PEOPLE kl. 8 12
HAUNTINGINCONNECTICUT kl. 10:40 16
SURROGATES kl. 8 - 10:20 12
BANDSLAM kl. 8 L
BEYOND A REASONABLE.. kl. 10 16
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 8 L
DISTRICT 9 kl. 10:20 16
BANDSLAM kl. 8 L
FINAL DESTINATION 4 kl. 10:20 16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ gekk rosalega vel og eins og
alltaf skemmtum við okkur kon-
unglega við að spila, þarna var fullt
af vinum okkar hérna í LA og síð-
an einnig lið frá ýmsum plötufyr-
irtækjum. Svo kemur bara í ljós
hvort eitthvað kemur út úr þessu,“
segir Einar Egilsson um tónleika
sem Steed Lord hélt á mánudaginn
síðasta á hinum sögufræga klúbbi
The Roxy í Hollywood fyrir plötu-
fyrirtæki og annað bransafólk.
Einar skipar hljómsveitina
ásamt unnustu sinni Svölu Björg-
vinsdóttur og bræðrum sínum Ella
og Edda. Þau fluttu til Los Angel-
es í sumar og leiðin hefur bara leg-
ið upp á við síðan. „Við erum klára
Ameríkutúrinn hérna á vest-
urströndinni og spiluðum fyrir
helgi í San Francisco og á Avalon í
LA. Síðan spilum við á Cinespace í
LA á þriðjudagskvöldið, sem er
lokakvöldið á Ameríkutúrnum og
útgáfupartí í leiðinni á remix-
plötunni okkar The Truth Serum
Remix Project,“ segir Einar.
Nítján listamenn mixa
Steed Lord hefur í allt sumar
unnið að remix-plötu sem ber heit-
ið The Truth Serum Remix Proj-
ect. Á plötunni eru 22 endur-
hljóðblöndur af lögunum sem voru
á fyrstu plötu þeirra, Truth Serum.
„Við fengum nítján listamenn frá
mismunandi löndum til að remixa
okkur og síðan endurhljóðblöndum
við sjálf þrjú af lögunum okkar á
plötunni. Þarna eru mjög stór nöfn
í danstónlistargeiranum eins og til
dæmis Don Rimini, Jack Beats,
Tommy Sunshine, Crookers, Russ
Chimes, Dj Mehdi og Mercury,“
segir Einar og bætir við að þau
hafi líka verið að vinna fyrir aðra
tónlistarmenn. „Í viðbót við að gefa
út okkar eigin plötu vorum við að
klára að endurhljóðblanda lag fyrir
indie-band héðan frá Kaliforníu
sem heitir The Willowz og mun það
koma út hjá Dim Mak Records í
október. Svala var einnig fengin til
að vera gestur í lagi hjá Mustard
Pimp sem eru tónlistarmenn sem
líka gefa út hjá Dim Mak Records
hérna í LA.“
Sex laga EP-plata á leiðinni
Steed Lord á sér ekki aðeins
aðdáendur í Ameríku því bandið er
líka að leggja undir sig Evrópu.
„Eftir Ameríkutúrinn höldum við
til Ítalíu og spilum í Mílanó á
föstudag og í Bologna á laugardag
í næstu viku. Við höfum aldrei spil-
að á Ítalíu áður en það er búið að
biðja okkur um að koma þangað og
spila í langan tíma. Við höfum allt-
af fengið mjög jákvæða strauma
frá Ítalíu enda höfum við unnið
mikið með Crookers vinum okkar
sem eru þaðan, en þeir eru eitt
stærsta danstónlistarband í heim-
inum í dag. Við erum einmitt með
lag á fyrstu plötunni þeirra sem
kemur út í janúar 2010 og nefnist
A Ton Of Friends þar sem þeir
fengu fullt af listamönnum og vin-
um sínum til að semja með þeim
lög á plötunni, allt frá Kelis til
Kanye West. Við erum stolt af að
fá að taka þátt í því stóra verk-
efni.“
Eftir Ítalíudvöl heldur Steed
Lord áfram um Evrópu og spilar í
Englandi, Frakklandi, Ungverja-
landi og Þýskalandi. „Síðan erum
við að fara að vinna að sex laga
EP-plötu sem kemur út í byrjun
2010. Þegar sú plata kemur út túr-
um við ennþá meira til að kynna
hana áður en við tökum upp okkar
næstu breiðskífu. Þetta er enda-
laus vinna en algjörlega þess
virði,“ segir Einar og hlær. Íslend-
ingar verða þó að bíða þess eitt-
hvað að sjá Steed Lord, þau spila
ekkert á klakanum það sem eftir
lifir þessa árs en Einar segir að
það sé aldrei að vita nema þau sjá-
ist hér á því næsta.
Stigvaxandi Steed Lord
Eru að klára Ameríkutúrinn og halda svo til Evrópu
Senda frá sér tuttugu og tveggja laga remix-plötu
Eiga lag á næstu plötu Crookers ásamt Kanye West og fleirum
Steed Lord Á The Roxy klúbbnum í Hollywood á mánudaginn.