Morgunblaðið - 05.10.2009, Síða 32
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Heitast 0°C | Kaldast -7°C
Austlæg eða breyti-
leg átt, 3-8 m/s. Dálítil
él norðan og aust-
anlands. Annars skýj-
að með köflum og slydda. »10
Hljómsveitin Steed
Lord spilar víða í
Bandaríkjunum og
heldur síðan til Ítal-
íu. Á lag á næstu
plötu Crookers. »29
TÓNLIST»
Að klára
Ameríkutúr
TÓNLIST»
Kæti í Höllinni hjá Gylfa,
Pöpum og Bubba. »28
Gagnrýnandinn seg-
ir að Stúlkan sem
lék sér að eldinum sé
þrælgóð skemmtun,
æsispennandi, harð-
vítug og grimm. »27
KVIKMYNDIR»
Rapace stát-
in og flott
FLUGAN»
Flugan kom í tölvuheima
og hitti Íra. »24
FÓLK»
Gamanleikari getur ekki
án banjós verið. »25
Menning
VEÐUR»
1. Vanræksla banaði 228 manns
2. Orðlaus við fegurstu byggingu …
3. Maður stunginn með hnífi …
4. Stórlaxarnir munu ekki … sleppa
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Hættulegt að skera flatt
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri
Landspítalans, telur hættulegt að
skera flatt niður hjá Landspít-
alanum líkt og stefnt er að. Aðeins
sé einn slíkur spítali á Íslandi, hann
sé öryggisnet fyrir landið og því
beri fyrst að leita allra leiða til að ná
heildarhagræðingu. »Forsíða
Ekki samið um Rússalán
Ekki hefur tekist að ná sam-
komulagi um mögulegt lán Rússa til
Íslendinga. Hins vegar staðfestu
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra og Jan Vincent Rostowski,
fjármálaráðherra Póllands, í gær
samning um lán frá Póllandi til Ís-
lands. »2
Ósáttir við niðurskurð
Sjúkraflutningar verða skornir
niður um 53,5 milljónir á næsta ári.
Slökkviliðsmenn eru ósáttir og telja
erfitt að skera niður án þess að það
bitni á þjónustu. »4
Telja dómstóla hlutdræga
Hollenskir innistæðueigendur
sem hyggjast fara í skaðabótamál
gegn Seðlabanka Íslands og Fjár-
málaeftirlitinu, telja framkvæmdina
geta orðið erfiða. Erfitt geti reynst
að finna bæði hlutlausa lögmenn og
dómara. »6
Sósíalistar sigruðu
Leiðtogi Pasok-flokks grískra
sósíalista, George Papandreou, lýsti
í gærkvöld yfir sigri í þingkosning-
unum. Flokkur hans hlaut yfir 43%
atkvæða og virtist mundu fá hrein-
an meirihluta á þingi. Búið var að
telja um tvo þriðju hluta atkvæða.
»12
SKOÐANIR»
Staksteinar: Mælt með
minnihlutastjórn
Forystugreinar: Gallað fjárlaga-
frumvarp | Enn kusu Írar aftur
Pistill: Blóðugt tannhjól sögunnar
Ljósvaki: Vondu dagarnir
UMRÆÐAN»
Klúður í stjórnkerfinu eða
pólitísk stefnumótun
Úrræði – ekki gylliboð
Ríkisstjórnin dýpkar kreppuna
BÖRNIN höfðu mikinn áhuga á beinagrindunum
í Þjóðminjasafninu. Í gær var barnaleiðsögn um
safnið og m.a. var skoðaður 800 ára gamall skór,
dularfullur álfapottur, hringabrynja og álfa-
myndir.
Ferðalag barnanna um safnið hófst á slóðum
landnámsmanna á 9. öld. Þaðan lá leiðin um sýn-
inguna og 1200 ára sögu íslensku þjóðarinnar til
nútímans.
Morgunblaðið/Golli
KRÖKKUNUM ÞÓTTI BEINAGRINDIN MERKILEG
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„LEIKIR helgarinnar voru fjörugir
og gaman að lýsa þeim,“ segir Bjarni
Felixson íþróttafréttamaður. Sem
endranær var Bjarni á vaktinni um
helgina og lýsti bikarúrslitaleikjum
karla og kvenna í knattspyrnu fyrir
hlustendum Ríkisútvarpsins.
Á laugardag kepptu Fram og
Breiðablik sín á milli um bikarinn
þar sem síðarnefnda liðið sigraði eft-
ir vítaspyrnukeppni. „Úrslitin í leik
karlanna hefðu getað lent hvorum
megin hryggjar sem var. Sama má
segja um kvennaleikinn, enda þótt
Valsstúlkur sigruðu Breiðablik í
framlengingu,“ segir Bjarni Felix-
son.
Fyrsti bikarleikur karla í knatt-
spyrnu hér á landi var háður 1960
þegar KR atti kappi við Fram. Þá
var Bjarni í sigursælu Vesturbæjar-
liðinu sem vann bikarinn sjö sinnum
á fyrstu átta árunum. „Fótboltinn
hefur breyst talsvert á þessum tíma.
Hraðinn er meiri og fólk tekur þetta
fullalvarlega. Leikmenn fá sömuleið-
is ekki að leika sér með boltann í
sama mæli og áður var,“ segir Bjarni
sem hóf störf hjá Sjónvarpinu fyrir
rúmum 40 árum, þá sem umsjón-
armaður enska boltans. Fyrsta bik-
arleik karla í knattspyrnu lýsti hann
fyrir 34 árum og kvennaleik fáum ár-
um seinna. Og enn er Bjarni að.
„Ég er eftirlaunamaður og sestur
í helgan stein. Hins vegar kallar Rík-
isútvarpið stundum í mig og ég held
áfram að lýsa leikjum meðan ég fæ
tækifæri til þess.“
Gaman að lýsa fjörugum leikjum
Morgunblaðið/Golli
Í stúkunni Bjarni Felixson lýsti bikarleikjum helgarinnar, eins og hann hef-
ur gert í áratugi. Kristrún Lilja Daðadóttir aðstoðaði hann í gær.
Bjarni Felixson lék fyrsta bikarleikinn í knattspyrnu fyrir KR 1960 Enn á
vaktinni fyrir Ríkisútvarpið Hraðinn í boltanum meiri og keppnin er harðari