Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 6
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Frjáls
miðlun ehf., sem hefur meðal ann-
ars unnið mörg verkefni fyrir
Kópavogsbæ og eigendur þess,
hefur ákveðið að höfða mál og
krefjast bóta fyrir það tjón sem
það telur að bæjarfulltrúarnir í
Kópavogi, þau Guðríður Arn-
ardóttir Samfylkingunni, Ólafur
Þór Gunnarsson VG og Hafsteinn
Karlsson Samfylkingunni, hafi
valdið með ummælum sínum um
fyrirtækið og aðstandendur þess.
Miskabótakrafan nemur samtals
11,4 milljónum króna auk vaxta og
dráttarvaxta. Þess er líka krafist
að stefndu verði dæmd til að
greiða málskostnað og greiða eina
milljón kr. til að kosta birtingu
dóms í dagblöðum. Ennfremur er
farið fram á að ákveðin ummæli í
fjölmiðlum verði dæmd dauð og
ómerk.
Meiðyrði
Frjáls miðlun er í eigu hjónanna
Guðjóns Gísla Guðmundssonar og
Brynhildar Gunnarsdóttur, dóttur
Gunnars Birgissonar, fyrrverandi
bæjarstjóra í Kópavogi. Þórarinn
V. Þórarinsson, lögmaður fyr-
irtækisins, segir að fyrr á árinu
hafi það og aðstandendur þess
mátt sitja undir stanslausu regni
af dylgjum og meiðyrðum nokk-
urra fulltrúa í bæjarstjórn Kópa-
vogs. Bæði hafi verið veist að fyr-
irtækinu og aðstandendum þess á
faglegum grundvelli og eins með
hreinum svigurmælum um það að
viðkomandi hafi með einhverjum
hætti gerst brotlegir við lög. Bæj-
arfulltrúarnir hafi ekki fylgt ásök-
unum sínum eftir enda ekkert í
málinu sem styðji þær.
Að sögn Þórarins er nú einfald-
lega komið að því að fá því hrund-
ið sem þetta fólk hafi látið hafa
eftir sér og er hvað skaðlegast fyr-
ir félagið og krefjast bóta fyrir það
tjón sem það hafi valdið.
Auk þess að krefjast þess að
ákveðin ummæli í fjölmiðlum verði
dæmd dauð og ómerk er þess jafn-
framt krafist að stefndu verði
hverju fyrir sig gert að greiða 500
þúsund krónur til að kosta birt-
ingu dóms í fjórum dagblöðum.
Ennfremur er þess krafist að Guð-
ríði verði gert að greiða stefn-
endum hverju fyrir sig tvær millj-
ónir króna í miskabætur auk vaxta
og dráttarvaxta en Hafsteini og
Ólafi sínar 900 þúsund krónurnar
hvor auk vaxta og dráttarvaxta.
Þá er þess krafist að stefndu verði
dæmd til þess að greiða máls-
kostnað.
Ærumeiðingar
„Þetta er dapurlegt mál,“ segir
Þórarinn og bætir við að ásakanir
þremenninganna hafi greinilega
verið hluti af pólitískum átökum í
bæjarfélaginu. Þegar reynt hafi
verið að koma höggi á pólitískan
andstæðing hafi þremenningarnir
ekki látið sig neinu varða að fólk
sem hafi framfærslu sína af heið-
arlegri vinnu, m.a. við að þjónusta
sveitarfélagið, yrði fyrir stórkost-
legum ærumeiðingum og tjóni.
„Undir því er ekki hægt að sitja,“
segir hann.
Málið verður þingfest á morgun.
Morgunblaðið/Ómar
Vöxtur Miklar framkvæmdir hafa verið í Kópavogi á nýliðnum árum og þeim hefur fylgt mikill vöxtur á ýmsum sviðum í bæjarfélaginu.
Bæjarfulltrúum stefnt
Útgáfufyrirtækið Frjáls miðlun og eigendur þess krefjast 11,4 milljóna króna
í miskabætur auk vaxta og dráttarvaxta Stefndu greiði allan kostnað
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009
FYRSTA endurskoðun á efnahags-
áætlun Íslands verður á dagskrá
framkvæmdastjórnar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins á
morgun, mið-
vikudag, líkt og
íslensk stjórn-
völd tilkynntu í
síðustu viku.
Fram kemur
á vef Alþjóða-
gjaldeyrissjóðs-
ins, þar sem
dagskrá fram-
kvæmdastjórn-
arinnar verður
birt, að 28. október fari fram fyrsta
endurskoðunin samkvæmt sam-
komulagi og ósk um framlengingu
áætlunarinnar.
Íslensk stjórnvöld sögðust í síð-
ustu viku telja víst að fram-
kvæmastjórn sjóðsins mundi sam-
þykkja endurskoðun áætlunarinnar
á fundi sínum.
Í kjölfarið mundi Ísland fá aðgang
að öðrum hluta af lánafyrirgreiðslu
AGS upp á 105 miljónir SDR eða 168
milljónir bandaríkjadala, 20,6 millj-
arða króna. Þá opnaðist einnig að-
gangur að fyrsta fjórðungi 2,7 millj-
arða dala lánafyrirgreiðslu
Norðurlandanna og Póllands, eða að
675 milljónum dala.
Ísland á
dagskrá
AGS
Fyrsta endurskoðun
áætlunar Íslands
Höfuðstöðvar AGS í
Washington.
VERÐ á elds-
neyti hefur
hækkað stöðugt
undanfarna daga.
Þannig hækkaði
Olís í gær verðið
á bensínlítranum
um þrjár krónur
eða í 191,80 krón-
ur og á dísilolíu-
lítra í 188,60 krónur. Er þá miðað við
sjálfsafgreiðslu.
N1 hækkaði verðið í kjölfarið en
önnur olíufélög höfðu ekki hækkað
verðið í gærkvöldi.
Verð á bensíni hefur nú hækkað
um 10 krónur lítrinn hjá Olís frá 19.
október en þá fór heimsmarkaðs-
verð á olíu að hækka fyrir alvöru.
Verð á dísilolíu hefur hækkað minna
eða um átta krónur lítrinn.
Bensínlítrinn
er kominn í
192 krónur
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„HÆGT er að segja, að þeir fjárfestar sem huga að fjár-
festingu hér á landi séu aldrei viðkvæmari en einmitt nú
fyrir breytingum á rekstrarumhverfinu, þ.e. akkúrat
þegar þeir eru að skoða. Þannig að breytingar á mikil-
vægum þáttum í viðskiptaumhverfinu einar og sér geta
fælt fjárfesta frá.“
Þetta segir Þórður Hilmarsson, framkvæmdastjóri
Fjárfestingastofu Íslands. Hann segir þó ekki hægt að
segja til um það á þessari stundu hver áhrif af orkuskött-
um verði á fjárfestingar hér á landi vegna þess að ekki er
vitað hvort þeir verða lagðir á eða hversu háir þeir verða.
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að erlend fyr-
irtæki hefðu sett áform sín um starfsemi og fjárfestingar
í biðstöðu þegar þau fréttu að í fjárlögum væri gert ráð
fyrir því að taka hér upp nýjan orkuskatt. Þórður segir
um að ræða verkefni sem komin voru fremur langt á leið,
s.s. í hönnunarferli. Fjárfestingastofan komi mun fyrr að
verkefnum, og sjái um að kynna landið og samkeppnis-
hæfni þess. Hann segir mikinn áhuga á Íslandi enda sé
landið mjög samkeppnishæft kostnaðarlega í augnablik-
inu og mörg verkefni í pípunum til lengri tíma litið.
Breytingar á viðskipta-
umhverfinu geta fælt frá
Fjárfestar sýna landinu áhuga og mörg verkefni í pípunum
Gagnaver Verkefnum sem frestað var byggðust á orku-
nýtingu, m.a. vegna gagnavera og í tengslum við áliðju.
Gerð er krafa um að eftirfarandi ummæli bæjarfulltrúanna Guðríðar
Arnardóttur, Ólafs Þórs Gunnarssonar og Hafsteins Karlssonar í grein
sinni Hvar á að draga mörkin?, sem birtist í Morgunblaðinu 12. júní sl.,
verði dæmd dauð og ómerk:
„Fyrirtækið Frjáls miðlun hefur fengið greitt fyrir óunnin og/eða
hálfkláruð verk og skýrar vísbendingar um að fyrirtækið hafi fengið
greitt oftar en einu sinni fyrir sama verk.“
„Hvort sem hér er um að ræða lögbrot eða ekki er þetta klárlega
spilling í opinberri stjórnsýslu. Slíkt á ekki að umbera og gildir þá einu
hvort lög eru brotin eða ekki.“
„Skýrsla Deloitte og umfjöllun fjölmiðla um málið undanfarnar vik-
ur hefur sýnt svo enginn vafi leikur á að fyrirtækið Frjáls miðlun hefur
notið óeðlilegrar fyrirgreiðslu hjá Kópavogsbæ og notið þannig
tengsla sinna við bæjarstjóra Kópavogs.“
Ennfremur er gerð sambærileg krafa vegna eftirfarandi ummæla
Guðríðar: „Fyrir ýmis verk sem ekki virðast mjög veigamikil.“ (Frétt í
DV 15. maí sl.) „Þetta eru háar upphæðir fyrir verk sem í fljótu bragði
virðast frekar lítil og einföld.“ (Kvöldfréttir Sjónvarps 14. maí sl.) „Það
sem við getum gert í Samfylkingunni er að við getum vísað málinu í
opinbera rannsókn og við getum vísað ákveðnum þáttum til ríkis-
saksóknara og óskað eftir því að hann gefi út ákæru í málinu.“ (Frétt í
Fréttablaðinu 17. júní sl.)
Ummæli verði dæmd dauð og ómerk