Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 22

Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 Elsku Diddi frændi. Mér fannst gaman að koma í heimsókn til þín á Barðastaði. Afi kom þá með kókó- mjólk handa okkur. Þú sagðir oft svo fyndið. Mér fannst gaman þegar þú söngst lagið Ást – ást og þegar þú sagðir „stjórnandi þáttarins er Hemmi Gunn“. Sumir voru að gráta af því að þú ert dáinn en ég ætla líka að vera glaður því við gerðum svo margt skemmtilegt sam- an. Guð, viltu passa hann Didda okk- ar. Þinn frændi, Daníel Örn. Það var árla laugardagsmorguns að okkur barst sú harmafregn að Diddi frændi væri látinn, langt um aldur fram, aðeins 24 ára. Þrátt fyrir ómælda sorg og söknuð minnumst við Didda með brosi á vör. Diddi var með eindæmum skemmtilegur og gefandi persónu- leiki, hann skilur eftir sig ljúfar minningar frá sinni stuttu ævi. Hann var miðpunktur stórfjölskyldunnar í öllum boðum og uppákomum. Ávallt kátur og líflegur, hló smitandi hlátri og minnisstæðar eru þulur og upp- talning á öllum fjölskyldumeðlimum, sem hann flutti með leikrænum til- burðum. Áhugamál „Barðastaðabóndans“ eins og pabbi hans kallaði hann stundum, var fyrst og fremst tónlist. Hann kunni ógrynni af lögum og söng með af hjartans lyst og innlifun. Auk þess voru teiknimyndir og ýmsir skemmtiþættir ofarlega á vinsælda- listanum. Diddi naut þess að eiga einstak- lega góða foreldra, systkini og stuðn- ingsforeldra, sem gerðu honum kleift að stunda menningarlífið, sem hann hafði svo mikinn áhuga á. Dugnaður og elja aðstandenda var til mikillar fyrirmyndar. Diddi var höfðingi heim að sækja og tók vel á móti gestum. Það er gaman að segja frá því að í eitt skipti er við heimsóttum hann rúllaði hann sér á hjólastólnum og náði í inniskó og færði okkur og hló sig svo mátt- lausan á eftir. Að vísu stríddi hann móðurafa sínum í einum af hans mörgu heimsóknum, en þá þurfti sá gamli að skreppa á salernið og notaði Diddi tækifærið og læsti afa sinn inni. Diddi var hreinn og beinn og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Hann átti til að taka kúst- inn og gera sig líklegan til þess að sópa fólki út úr íbúðinni þegar hann taldi að heimsóknartíma væri lokið! Þetta eru dæmi um skemmtilegar sögur af Didda og svona mætti halda lengi áfram. Hann var blíður knúsari og vildi helst vera í faðmlögun og ekki síst við Kristinn Örn Friðgeirsson ✝ Kristinn ÖrnFriðgeirsson fæddist í Reykjavík 7. maí 1985. Hann lést á heimili sínu 17. októ- ber sl. og var jarð- sunginn frá Graf- arvogskirkju 26. október. fallegt kvenfólk og var það auðsótt fyrir þenn- an kvennaljóma og sjarmatröll. Það verður erfitt að sætta sig við að Diddi sé horfinn yfir móðuna miklu, en fyrir mestu er að þessi mikli gleði- gjafi skilur eftir sig góðar endurminning- ar. Elsku Friðgeir, Guðbjörg, Magga, Mummi, Hildur Björk, Daníel Örn og Kári Steinn, megi Guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Guð blessi yndislegan dreng. Ingibjörg Ólöf (Inga Lóa), Kristín og Andrés Már. „Þar sem jökulinn ber við loft, hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir, og þess vegna er gleðin ekki nauðsyn- leg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“ (Úr Fegurð himinsins eftir Halldór Laxness.) Hann hét fullu nafni Kristinn Örn, en var ævinlega kallaður Diddi. Fal- legt barn og brosþýður, stór og stæðilegur fullvaxta, brosþýður. Hann var ævinlega barn í hjarta. Brosið fylgdi honum alla tíð. Við brostum með honum, brostum við honum, brostum þegar við hugsuðum til hans og brostum þegar hann bar á góma. Hann var gleðigjafi og samein- ingarafl í mörgum fjölskyldum og ættum. Hann var vinamargur og vel- gjörðarmenn hans voru fleirri en tölu verði á komið. Þeir birtust einsog vitringarnir og færðu honum gull sitt, reykelsi og myrru í formi ótal gjafa. Ef engin væru skýin kynni maður ekki að meta sólskinið. Jú, þar var margt skýið, en sterkara var sólskin- ið sem fylgdi Didda. Það var gleði barnsins og gleði hinnar hrekklausu sálar. Það var líka áminning til okkar allra að meta gjafir lífisns, virða þær og rækta. Lífsganga Didda og kynni af honum löðuðu fram vináttu, kær- leika og sannleika. Hann var einlæg- ur og saklaus. Ævi Didda var sólskinsgjöf. Hún kenndi okkur að ævin er of stutt til að troða illsakir við nokkurn mann. Þær eru hjóm og sandkorn á eilífðar- ströndu þegar við hugsum til hans, sem gladdist yfir því sem honum var gefið og var í raun hið litskrúðuga og ilmþrungna lífsins blóm. Heilbrigður maður ber kórónu á höfði sér, sem sá einn sér sem sjúkur er, segir í kín- verskum málshætti. Sama má segja um gáfur og greind, lærdóm og menntun. Diddi nýtti sitt vegarnesti betur en margur sá sem meira er gef- ið. Náðargjöf Didda var tónlistin. Það er mikill sannleikur í því fólgin að þar sem tungumálinu sleppir hefst tón- listin. Tónlistin var tungumál hans. Margir tónlistarmenn glöddu Didda á merkisdögum á ævi hans. Á tvítugsafmælinu var haldin mikil veizla á Hótelinu Óðinsvéum. Þar mætti Egill Ólafsson með félögum sínum Jakobi Magnússyni og Þórði Árnasyni að gleðja afmæisbarnið. Gleði listamannanna var sönn og gjöf þeirra einlæg. Þeir sungu og spiluðu fyrir hann. Egill söng til Didda, söng lögin hans, Diddi horfði á Egil, Egill á Didda og Diddi ljómaði. Hafi tón- listarmenn nokkurn tíma náð full- komnu sambandi við áheyranda var það á þeirri stund. Þeim sé þökk og heiður fyrir þessa stund í lífi Didda. „Börnin njóta augnabliksins, vegna þess að þau hafa hvorki fortíð né framtíð,“ er haft eftir Jean de La Bruyére. Þó Diddi hrærðist í augna- blikinu þekkti hann fjölskyldu og vini með nafni og nefndi hvern og einn. Hann naut sín í margmenni, var hrókur alls fagnaðar og jafnan fjör- ugast í kringum hann. Þá sem jafnan taldi hann upp vini sína og söng – og við sungum með honum. Á þeim stundum urðu sálirnar eitt og gleðin ein og sönn. Blessuð og björt er minning hans. Haraldur G. Blöndal og María Aldís Kristinsdóttir (Mæja og Halli). Fallinn er frá uppáhaldsfrændi minn og vinur, Kristinn Örn Frið- geirsson (Diddi), aðeins 24 ára að aldri. Diddi frændi var yngstur þriggja barna Guðbjargar systur minnar og Friðgeirs Kristinssonar. Fljótlega eftir fæðingu Didda var ljóst að hann gekk ekki heill til skóg- ar og þurfti á aðstoð og umönnun að halda allt sitt líf. Foreldrar hans og systkini reyndust honum ómetanleg stoð og stytta og á síðari árum naut Diddi heimilis og umsjónar á Barða- stöðum. Engu að síður var Diddi full- gildur fjölskyldumeðlimur og tók þátt í samverustundum og uppákom- um sem efnt var til og naut þeirra til hins ýtrasta. Ógleymanleg var ferðin til Flórída um árið ásamt samveru- stundunum í „sumó“ þar sem Diddi var ætíð hrókur alls fagnaðar. Diddi var sjálfsagður gestur minn, hvort heldur var á afmælum, áramótum eða dagsdaglega. Þau verða ekki eins gamlárskvöldin án hans í Fannafold- inni. Mér þótti vænt um þennan frænda minn og fann gagnkvæma virðingu og vináttu af hans hálfu. Diddi hafði yndi af gleðskap og söng og kunni raunar marga texta, hvort sem það var Bubbi eða Stuð- menn tók hann undir og hreifst með. Diddi-Öddi-Diddi-Öddi sagði hann og benti á mig og svo voru sungnar „Guttavísur“ eða „Fönn, fönn, fönn“. Líf þessa unga frænda míns var erfitt en það hafði ekki áhrif á lífs- gleði og brosmildi unga mannsins með björtu sálina sem fékk mann oft til að gleyma stað og stund. Í þessum líkama var yndisleg manneskja sem eflaust skildi og vildi meira en við varð ráðið. Enginn ræður sínum ör- lögum. Ég vil nú, þegar þessi vinur minn er horfinn á braut, þakka hon- um fyrir samleiðina og vináttuna sem við áttum og nutum og blessa minn- ingu hans. Elsku Guðbjörg, Friðgeir, Magga, Mummi og fjölskylda, inni- legustu samúðarkveðjur. Örn Andresson (Öddi frændi). {Elsku} Diddi okkar. Þegar ég hitti þig aftur þá sé ég fyrir mér að ég komi inn í rjóður inni í stórum skógi. Í rjóðrinu er kofi og situr þú við gluggann eins og jóla- sveinninn sem við sungum saman um. Brosir svo fallega eins og þú allt- af gerðir, stendur upp þegar ég banka á dyr, hnarreistur, hávaxinn, fallegur strákur, laus við allar höml- ur hins jarðneska lífs. Opnar svo dyrnar og horfir brosandi í augun á mér. Tekur í hönd mína og saman bendum við á brjóst þitt og segjum: „Diddi“ – og síðan á mitt og segjum: „Jói“. Við þurfum ekkert meir, lífið er ekki flóknara en þetta, við sjáum inn í sál hvor annars. Guð veri með þér Diddi minn alla tíð. Við Ragný, Jón Magnús, Árný og Margrét hugsum ávallt til þín með hlýju og væntumþykju í hjartanu. Jóhannes frændi. Elsku Diddi okkar. Fréttirnar frá Jónu þennan örlaga morgun voru ekki þær sem við áttum von á. Þetta var eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég söng fyrir þig í símann fyrir stuttu, Ást ást og brosið þitt og gleði skein í gegnum símtólið. Þú varst bara krakki þegar við hittumst fyrst og minningarnar ná svo langt aftur. Ég man þegar þú komst fyrst í Vesturbergið til okkar með Jónu og Kristni, þá 8 ára gamall, margt höfum við brallað síðan þá. Þú komst til mín á sumarnámskeið í Bú- staði eitt sumar, sumarbústaðaferðir vítt og breitt um landið, kajak á Þing- vallavatni, ferðalag undir Eyjafjöll, bíóferðir og út að borða, allt þetta eru ómetanlegar samverustundir. Einnig hlotnaðist okkur sá heiður að fá að samgleðjast þér og fjölskyldu þinni á fermingardaginn þinn og í útskrift- inni þinni. Þegar Jóna, Kristinn og fjölskylda fóru til Ástralíu fékk ég tækifæri til að eyða fleiri stundum með þér, við fórum í bíó, á rúntinn og út að borða, einhver nákominn varð að gefa Jónu og Kristni nákvæmar upplýsingar um líðan þína og það var ég. Elsku Diddi minn, alltaf fékkstu mann til að brosa. Brosið þitt svo blítt, svo saklaust og hreint. Við átt- um okkar leyniorð sem var „cutie pie“ og þá fyrst byrjaði ballið, við sungum og sungum og ef stemningin dvínaði þá var það bara eitt „cutie pie“ og ballið byrjaði á ný. Um síðustu páska vorum við uppi í sumarbústað og þá fengum við okkur nýtt leyniorð, „Ást ást“, og þá söng ég fyrir þig og að sjálfsögðu léstu þig ekki vanta í sönginn. Trausti spilaði á gítarinn og mamma kenndi okkur textann. Og eftir það hefur Jóna hringt í mig þær helgar sem þú gistir hjá þeim og þá heyrðist í símanum „Ást ást“. Já, það sem þú gafst okkur var nefnilega skilyrðislaus ást. Elsku Diddi okkar, takk fyrir allar samverustundirnar sem við áttum saman, það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast þér, þín verður sárt saknað. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Elsku Guðbjörg, Friðgeir, Magga, Mummi og fjölskylda, við færum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Elsku Jóna systir, Kristinn, Birkir Blær og Aðalsteinn Einir, megi Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Regína, Pétur, Birta, Hlynur og Hafdís. Elsku Kristinn Örn eða öðru nafni Diddi er farinn yfir móðuna miklu. Hann flutti á Barðastaði 17. ágúst ár- ið 2002. Hann var sá fyrsti sem flutti inn á íbúðasambýlið á Barðastöðum. Foreldrar Didda voru með frá upp- hafi í að móta og gera heimilið hans sem aðgengilegast og fallegast fyrir hann. Diddi var alltaf kátur og lífs- glaður ungur maður, það þurfti ekki mikið til að gleðja hann. Diddi var mikil félagsvera og fannst fátt skemmtilegra en að vera í góðra vina hópi. Helst vildi hann þá vera í sviðs- ljósinu og átti það til að reyta af sér brandara og hlæja mikið. Ef músík var til staðar þá spillti það nú síst fyr- ir. Diddi kunni nefnilega heilan hell- ing af lögum og textum. Hér má sem dæmi nefna: Guttavísur, Maðurinn með hattinn, svo ekki sé nú talað um meistarann mikla, Ómar Ragnars- son, en Ómar var í sérstöku uppá- haldi hjá Didda. Aðrar hljómsveitir/ söngvarar sem Diddi elskaði voru t.d. Björgvin Halldórsson, Ríó Tríó, Stuðmenn, Páll Óskar og Shadows. Diddi var alltaf hrókur alls fagn- aðar, var fljótur að bræða hjörtu okk- ar. Það var alltaf hægt að stóla á að Diddi tæki vel á móti manni þegar maður kom til vinnu, enda með stórt og hlýtt hjarta. Nú kveðjum við hann með söknuð í hjarta en við erum stað- ráðin í því að halda merki hans á lofti. Það sem Diddi kenndi okkur var lífs- gleði, jákvæðni og heiðarleiki. Við sendum fjölskyldu hans og vinum innilegar samúðarkveðjur. Megi Guð og góðar vættir vera með þeim á þessum erfiðu tímum. Fyrir hönd starfsfólks og íbúa Barðastaða, Líney Óladóttir. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. (Jóhann Jónsson) Kæru foreldrar, systkini og aðrir aðstandendur, við vottum okkar inni- legustu samúð. Við munum geyma minninguna um káta og brosmilda drenginn ykkar sem sjaldan var lognmolla í kringum. Blessuð sé minning Didda. Guð geymi hann. En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. (Snorri Hjartarson) Fyrir hönd starfsfólks skamm- tímavistunar Álfalandi 6, Markrún Óskarsdóttir. Nú er góður vinur minn farinn frá okkur en þó lifir hann enn og mun alltaf gera. Þetta ógleymanlega bros, ótrúlega smitandi hlátur og góða skapið. Við hittumst fyrst í Reykjadal fyr- ir rúmum fimm árum. Vinátta okkar var ekki lengi að myndast. Vorum strax byrjaðir að fíflast og glápa sam- an á „stóru magana“ á öllum skvís- unum í dalnum. Video-tækið alltaf bilað og sátum við sveittir yfir því með skrúfjárnið og oftar en ekki redduðum við þessu. Sundferðirnar okkar voru þó bestar. Hvern einasta morgun skelltum við okkur stressað- ir í átt að lauginni en þegar á hólminn var komið var það heldur betur þess virði. Létum öllum illum látum með alls kyns dólgslæti á milli þess að við sleiktum sólina og slöppuðum af. Síðar meir sagði mamma mín mér frá því að það vantaði starfsfólk á Barðastaði. Ég vissi nú hvaða topp- náungar bjuggu þar og var ég ekki lengi að slá til. Maður mætti á Barðastaði með alls konar óþarfa áhyggjur og í mis- góðu skapi. En um leið og Diddi kom brosandi á móti manni gleymdist allt. Endalausar minningar og nýir gull- molar á hverjum degi. Seint mun ég gleyma öllum þeim stundum sem við eyddum í sófanum, horfðum á Hemma Gunn og Hómer gera sig að fífli til skiptis meðan við skiptumst á að gilla bakið hvor á öðrum. Bara Elsku Diddi. Þú varst minn besti vinur og einstakur gleðigjafi. Það var alltaf svo gaman að koma til þín og hlæja með þér og brosa. Nú taka englarnir á móti þér og hugsa vel um um þig Diddi minn. Þú verður alltaf hjá mér, litli engillinn minn. Þóra Kristín Bárðardóttir. HINSTA KVEÐJA LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, JÖRGEN FAURHOLT ÓLASON, Yrsufelli 32, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 21. október, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 13.00. Sólveig B. Halldórsdóttir, Stefanía Jörgensdóttir, Einar Einarsson, Halldór J. Jörgensson, Katrín Guðmundsdóttir, Anna Karen Jörgensdóttir, Björn Jónsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.