Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 36

Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 300. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 121,92 198,87 115,62 24,606 22,005 17,986 121,08 1,328 194,48 183,18 Gengisskráning 26. október 2009 122,21 199,35 115,96 24,678 22,07 18,039 121,42 1,3319 195,06 183,69 234,9504 MiðKaup Sala 122,5 199,83 116,3 24,75 22,135 18,092 121,76 1,3358 195,64 184,2 Heitast 8°C | Kaldast 0°C Austan og norð- austan 5-13 m/s, en 13-20 og rigning síð- degis syðra, svalast fyrir norðan. » 10 Íslenska gaman- myndin Jóhannes er tekjuhæst og vin- sælust. Land upp- vakninganna kemur næst. »33 KVIKMYNDIR» Jóhannes á toppnum FÓLK» Dóttirin er falleg eins og pabbi hennar. »29 „Sú var tíðin að hægt var að greina tónlist frá hverju landi fyrir sig en sá tími er löngu liðinn,“ segir Shapiro. »27 TÓNLIST» Tíður gestur hér á landi DÓMUR» Lífleg og ljómandi skemmtileg plata. »32 MYNDLIST» Eins og að stíga inn í barnaævintýri. »32 Menning VEÐUR» 1. McDonald’s hættir 2. Hættir í vinnu eftir lottóvinning 3. Ódýr í framleiðslu en malar gull 4. Frétt af McDonald’s vakti athygli Íslenska krónan veiktist um 0,4% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Íslenski lands- liðsmaðurinn Emil Hallfreðsson á skemmtilegt verk- efni fyrir höndum í kvöld. Lið hans í ensku knattspyrn- unni, Barnsley, tekur á móti sjálfum Englands- meisturum Manchester United í deildabikarnum. „Ég skora alltaf á móti toppmarkmönnum. Ég setti eitt á móti Buffon og eitt á móti Cas- illas og er þá ekki röðin komin að því að skora eitt á móti Van der Sar, sem mér finnst vera sá besti í brans- anum,“ sagði Emil og hló. FÓTBOLTI Skorar Emil Hallfreðsson hjá Manchester United?  JÓHANNA Sig- urðardóttir for- sætisráðherra og Steingrímur J. Sig- fússon fjár- málaráðherra eru bæði stödd í Stokk- hólmi í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra, gegnir í dag starfi forsætisráðherra í fjarveru Jó- hönnu. Steingrímur er væntanlegur til landsins í kvöld og tekur hann þá við skyldum forsætisráðherra af Kristjáni þar til Jóhanna snýr aftur á fimmtudaginn. RÍKISSTJÓRNIN Kristján í starfi forsætis- ráðherra í fjarveru Jóhönnu  Dómnefnd í handritakeppni stuttmyndahátíðar unga fólksins, Ljósvakaljóða, verður skipuð þeim Friðriki Þór Frið- rikssyni kvik- myndaleikstjóra, Bergi Ebba Benediktssyni tónlistarmanni og glæpasagnahöfundinum Yrsu Sig- urðardóttur. Ungu fólki á aldrinum 15-25 ára býðst að skila inn handriti að stuttmynd og má það ekki vera lengra en 10 bls. Frekari upplýs- ingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á www.ljosvakaljod.is. KVIKMYNDIR Friðrik, Bergur og Yrsa meta handrit ungs fólks Eftir Andra Karl andri@mbl.is UM MIÐJAN föstudag 16. október sl. ók eigin- maður Petrínu Kristínar Steindórsdóttur frá heimili sínu við Nönnugötu í Reykjavík að Egils- götu til að sækja beiðni í Domus Medica og lyfin í apótekið í sama húsi. Eftir einn og hálfan tíma fór Petrína að ókyrrast og hringdi í Domus. Þar var henni tjáð að hann hefði þegar sótt beiðnina. Í apó- tekinu kannaðist enginn við lýsingu hennar. Þá fyrst varð hún áhyggjufull. Petrína hafði þá þegar samband við dóttur sína sem rauk af stað, með dóttur sína, úr Grafarholti. Á meðan hringdi Petrína í lögreglu og á slysadeild Landspítala, án árangurs. Dóttir Petrínu stöðvaði bifreið sína á rauðu ljósi á gatnamótum Snorra- brautar og Egilsgötu. Þaðan sá hún bíl föður síns, dyrnar opnar og fót lafandi út. Þrátt fyrir litla meðvitund hafði hann þrek til að biðja dóttur sína um að kalla á sjúkrabifreið. Maðurinn, sem er 87 ára, liggur enn á Landspít- ala og bíður þess að verða fluttur annað til end- urhæfingar. Hann fékk heilablóðfall og missti í kjölfarið málið. Það hefur hann ekki fengið aftur. Í bílnum lágu lyfin sem maðurinn fór til að sækja. Á kvittunum má einnig sjá að hann fór tvisvar inn í apótekið, í seinna skiptið því hann gleymdi að sækja verkjalyf. Það var rétt fyrir klukkan þrjú. Hitastig mannsins var komið niður í 34 gráður þegar dóttir hans og dótturdóttir komu að honum skömmu fyrir klukkan fimm. Þá hafði hann legið hálfur út úr bílnum í um tvær klukkustundir. Petr- ína segir það hafa verið erfiða stund fyrir mæðg- urnar að koma að föður sínum og afa í annarlegri stellingu, nær meðvitundarlausum, á bílastæðinu. Hún segir það ennfremur furðulegt að starfs- stúlkurnar í apótekinu skyldu ekki kannast við lýsingu hennar en áfellist þær þó ekki. Hún vill hins vegar vekja fólk til umhugsunar. „Þetta er á föstudegi. Það eru læknastofur í húsinu og lyfja- verslun. Augljóslega er fullt af fólki sem hefur gengið og ekið hjá. Hugsanlega erum við farin að flýta okkur um of og greinum ekki lengur neyð náungans. Rétt hjá okkur gætum við jafnvel bjargað mannslífi.“ Þrátt fyrir að reynslan hafi verið erfið lítur hún á málið frá öllum hliðum. Verr hefði getað farið, s.s. ef maður hennar hefði fengið áfallið undir stýri. Þá lægi hann hugsanlega ekki einn á sjúkra- húsi vegna áfallsins. Lá hjálparlaus í tvo tíma  Karlmaður á níræðisaldri fékk heilablóðfall á fjölförnu bílastæði við Egilsgötu  Þrátt fyrir að liggja hálfur út úr bíl sínum hugaði ekki nokkur maður að honum Morgunblaðið/Golli MYNDLISTARBRÆÐURNIR Ásmundur og Snorri Ásmunds- synir halda námskeið fyrir nem- endur Mennta- skólans í Reykjavík. Af- rakstur þess verður svo sýndur á sjón- listahátíðinni Sequences sem hefst á föstu- daginn. Snorri segir þá bræður fara með nemendur í svolítið ferðalag vítt og breitt og yfir ákveðin mörk sem þeim hafi verið sett, m.a. í náminu. MR- ingar koma til með að sjá heiminn í nýju ljósi. „Þetta tengist Sequen- ces en þetta hefur nú alltaf verið svolítill draumur hjá okkur, að kenna í þessum skóla, því langafi okkar, Ólafur Dan Daníelsson, stofnaði stærðfræðideildina í Menntaskólanum. Við erum af svo mikilli stærðfræðingafjölskyldu og notum stærðfræðina svolítið meira sjónrænt og okkur langaði svolítið að miðla þessu til nemendanna,“ segir Snorri um tengsl þeirra við Menntaskólann í Reykjavík. | 28 Kenna í MR og sýna á Sequences Langafi þeirra kenndi við skólann Snorri Ásmundsson „ÞETTA var alveg stórkostlegt og þótt ég vildi gjarnan geta sagt að ég hefði fórnað einhverju fyrir Leikfélag Reykjavíkur þá er það ekki inni í dæminu,“ segir Guð- rún Ásmundsdóttir leikkona, sem í gærkvöldi var gerð að heiðursfélaga Leikfélags Reykjavíkur. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður LR, veitti Guðrúnu viðurkenn- inguna ásamt leikhússtjóra Borgarleikhússins, Magn- úsi Geir Þórðarsyni. Guðrún starfaði við leikhúsið um áratugaskeið auk þess sem hún skrifaði og leikstýrði fyrir LR. Þá var Guðrún einn helsti baráttumaðurinn fyrir byggingu Borgarleikhússins. „Leikfélag Reykja- víkur hefur gefið mér öll þessi tækifæri á sviðinu auk möguleika á að geta haft list mína að lífsstarfi. Það er svo mikil sátt og vinátta í huga mér til félagsins. Að þau skuli nú veita mér þennan heiður er of gott til að vera satt,“ segir Guðrún. jmv@mbl.is Morgunblaðið/Golli „SÁTT OG VINÁTTA Í HUGA“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.