Organistablaðið - 01.05.1974, Page 6
að greiða organista dýrtíðaruppbót eins og opin'berum starfsmönn-
um og launauppbót fyrir árin 1918 og 1919 kr. 200 fyrir hvort ár.“
21. janúar 1921 er bókað hjá sóknarnefnd:
„1 a. Jónas Tómasson afhendir sóknarnefndinni kr. 500 sem gjöf
frá söngsveit kir'kjunnar og er þetta fé ágóði af samsöngvum þeim,
sem haldnir voru í kirkjunni síðast liðið ár. Gjöf þessi var gefin til
orgelkaupa fyrir kirkijuna.
b. Samþykkt var að leggja þessar kr. 500 í sérstaka sparisjóðsbók
í Lb., er heiti „Orgelsjóður Isafjarðarkirkju“. —
Þremur árum síðar, 18/6 1924 — þá hafði Jónas verið í hjóna-
bandi í 2y2 ár og fyrsta barnið var fætt. Framfærslukostnaður hafði
vaxið og au'k þess þurfti að greiða sikuldir vegna fyrirtækisins, —-
en þá er bókað hjá sóknarnefnd:
„3. 1 fundarlok kom fram erindi frá söngstjóra Jónasi Tómassyni á
hækkun á sönglaunum hans upp í 1000 kr. M'álaleitun þessari sá
nefndin sér ekki fært að sinna að svo stöddu“.
Og við þetta sat í allmörg ár, en 10 árum síðar: „Jónas Tómasson
bauðst til að gcgna starifi organleikara áfram með 500 króna árs-
launum frá 1. júlí s.l. að telja".
í janúar 1956 er upplýst að organisti ísafjarðarkirkju hafi í árs-
laun kr. 9010,00 að meðt. visilölu. Einnig að árslaun organleikara í
Reykjavík væru nú kr. 18000,00.
Jónas Tómasson „talldi að á það bæri að líta að fólksfjöldi sókn-
anna í Reykjavík væri langtum meiri og gjáldþol sókrianna því meira.“
„Var þá samþ. að greiða launauppbót kr. 1800 þannig að árslaun
urðu þá samt. kr. 10.810,00“.
23/5 1961: „Segir Jónas Tómasson upp starfi organleikara frá
1/10 1961 að telja“. Hafði hann þá gegnt starfinu í 51 ár. — „. .. .en
J. T. hefur gengist inn 'á að annast organleik við jarðarfarir fyrst
um sinn“.
20/10 1964.; „Var samþykkt að leggja til að greiða Jónasi Tómas-
syni kr. 1000 á mánuði frá 1. janúar 1964, heiðurslaun fyrir störf
fyrr og síðar“.
Önnur sönglœgS.
Skömmu eftir 1930 líður vofa yfir löndin — heimskreppan. Verð-
fall afurða, atvinnuleysi, suiltarkjör til sjávar og sveita. Hugurinn
snérist um fæði og klæði. Fólk hætti að sækja fundi og messur.
Jafnvel söngfólkið á Isafirði gaf sér ekki tíma til að koma í kirkju.
Ekkert á því að græða. Jónas hefur þá eflaust átt andvökunætur og
6 organistablaðið