Organistablaðið - 01.05.1974, Page 9
kynna þar nokkur af sálmalögum sínum og orgelverkum. Tryggði
hann sér aðstoð dr. Páls Isólfssonar og Ingvars sonar síns, fiðlu-
ieikara, og auk þess fékk hann um 50 manns úr kirkjukórunum í
Reykjavík tí 1 liðs við sig. Tónleikarnir fóru fram í Dómkirkjnni í
Heykjavík og 'þóttu takast vel þrátt fyrir stuttan undirbúningstiíma.
Hann sá um söng á fjöhnörguim skemmtisamkomum bæjarbúa og á
útisamkomum þeirra, vaidi oftast lögin og raddsetti þau stundum
eða breytti raddsetningu. Síðast en ékki siíst stóð hann fyrir því að
ráða ágætan mann, Iiagnar H. Ragnar, eftirmann sinn í tónlistar-
málum ísfirðinga og skólastjóra tónlistarekólans á Isafirði.
Önnur áhugamál.
Jónas sat um tíma í bæjarstjórn Isafjarðar fyrir Alþýðuflokkinn
og vann þá í nefndum þar. Var m. a. í skattanefnd og sáttasemjari
um margra ára skeið. Hann var alia sína tíð máttarstólpi Góðtempl-
arareglunnar á Isafirði og sat á mörgum Stórstúkulþingum. Þegar
Prentsmiðja Vesturlands varð að hætta störfum vegna fjárskorts
árið 1933 og til stóð að selja eignir hennar úr bænum, keypti Jónas
prentsmiðjurnar á Isafirði og sameinaði þær undir nafninu „Prent-
stofan Isrún“. Síðar var fyrirtækið gert að hlutafélagi í því skyni
að auka starfsemi þess og afla því nýrra tækja samkvæmt kröfum
tímans.
LagasmíS.
Þrátt fyrir öll þessi etörf — og mörg fleiri — tókst Jónasi að
semja fjölda margs konar tónverka. í mörgum tilvikum hefur hann
þar 'fært góð ijóð í fallegan búning. Ymist er þar léttur, hlýr, hug-
ijúfur biær, — raunalegur, þunglyndislegur niður — eða stormur,
þar sem strengleikar sky.ldu rjúfa „himins há hvolfþökin blá“.
Jónas lauk við að búa Iög sín undir prentun áður en hann
kvaddi. Þau kornu út á árunum 1951—1962 í 4 heftum: Strengja-
stef I. og II. 1951 og 1956, samtals 72 lög. Helgistef — 20
sálmalög og 15 orgelverk — 1958 og slíðast Strengleikar, 21 lag við
Ijóðaflokk Guðm. Guðmundssonar, 1962. Þá komu út tvö hefti 1959
og 1961: Stefjalhreimar I. og II., með 22 lögum, er Jónas hafði valið,
raddsett mörg þeirra og samið tvö. Til gamans má geta þess, að
fremst í Stefjahreimum II. er lag eftir Petfínu Halldórsdóttur, er
nefnist: „Syng mig heim“. Er Iþað við 'ljóð elftir Maríu G. Árnason,
en raddsett af Jónasi. Hafði hann heyrt ú skotspónum að kona þessi
ORGANISTABLAÐIÐ 9