Organistablaðið - 01.05.1974, Blaðsíða 20
DR. RÓBERT ABRAHAM OTTÓSSON
söngmálastjóri
Dr. Róbert A. Ottósson var
fæddur í Berlín 17. maí árið
1912. Foreldrar bans voru Otto
Abralham læknir og tónfræðingur
þar og kona hans Lise A'braliam,
fædd Golm.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Fa-lck-Realgymnasium í Berlin
1931, stundaði nám við Friedrich
Wilhelm-Universitat í Berlin 1931
—1932 og nam tónlistarsögu,
tónfræði og hljómsveitarstjórn
við Staatl. Akadem. Hocbschule
fiir Musik, i Berlín 1932—1934.
Árið 1934 var hann við fram-
haldsnám i París.
Haustið 1935 fluttist hann til íslands, 'bjó fyrst á Akureyri, en
fluttist síðan til Reykjavíkur.
Kennslu stundaði hanna alla tíð, m. a. við Tónlistarskólann, Barna-
músikskólann, þar sem hann var skólastjóri á árunum 1957—1961,
og við guðfræðideild Háskóla Islands. Hann var skipaður dósent
árið 1966. Hann varði doktorsritgerð um Þorlákstiðir við Háskóla
íslands 1959.
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar varð dr. Ró’bert árið 1961 og vann
mi'kið starf til eflingar kirkjutónlistar í landinu. Skömmu síðar
stofnaði hann Tónskóla iþjóðkirkjunnar, sem brautskráir kantora og
menntar kirkjuorganista.
Tónlistarstöhf dr. Róberts A. Ottóssonar á Islandi voru fjölbreytt
og umfangsmikil aillt 'frá því að hann fluttist til landsins 23ja ára
að aldri. Hann stundaði jöfnum höndum píanóleik, kennslu í ýms-
20 ORGANISTABI.AÐIÐ