Organistablaðið - 01.07.1977, Page 7

Organistablaðið - 01.07.1977, Page 7
BJARNI BJARNASON ORGANLEIKARI ÁTTRÆÐUR Ég hef veriS beðinn aS minnast meS fáum orðum Bjarna Bjarna- sonar organista í Brekkubæ í Nesjahreppi vegna áttugasta afmælis- dags hans. Mér er vissulega ljúft að geta hans í tilefni afmælisins en til þess, að greinarstúfurinn verði honum á allan hátt samboðinn, skortir mig tilfinnanlega gleggri vitund um hann, þennan ágæta íslending. — Ég komst í töluverð kynni við Bjarna löngu áður en við ræddumst við persónulega. Það atvikaðist með þeim hætti, að hann var í áratugi formaður kirkjukórasambandsins í A.-Skaftafells- prófastsdæmi og með frábærri alúð gegndi hann formannsstarfinu svo sem best mátti vera varðandi öll samskipti við Kirkjukórasam- band íslands, en þar var ég í forustustarfi samfleytt í 15 ár. Lengst af var okkar samstarf í sendibréfsformi og í annan tíma hef ég ekki fengið tilkomumeiri sendibréf til aflestrar, þar gaf að líta frábæra rithönd og hnitmiðað íslenskt Ritaldar mál. Bjarni Bjarnason organisti tilhevrir í víðum skilningi aldamóta- leiðtogunum, sem tileinkuðu sér hugsjónir nítjándualdar mannanna er ljóðuðu í sífellu með kyngikrafti áskorun til kynslóðanna um að: Koma grænum skógi að skrýða, skriður berar, sendna strönd — ORGANISTABLAÐIÐ 7

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.