Morgunblaðið - 16.11.2009, Page 1
þeim túlkar Seðlabankinn flutning króna á af-
landsmarkaði til innlendra bankastofnana sem
fjármagnsflutning. Flutningur fjármagns til lands-
ins er háður ströngum skilyrðum. Tilmælin þýða í
raun að krónur á aflandsmarkaði eru aðeins not-
hæfar til að kaupa fjármálagerninga, íslensk rík-
isskuldabréf, þó aðeins séu þau í vörslu erlendra
aðila. Verðmæti innistæðna og skammtímabréfa í
íslenskum krónum á aflandsmarkaði nemur í dag
200-300 milljörðum króna.
Fyrir skömmu rýmkaði Seðlabankinn fyrir nýrri
erlendri fjárfestingu með breytingu á reglum um
gjaldeyrishöft. Tilmælin sem gefin voru út í síðustu
viku takmarka hins vegar að erlendir aðilar sem
eiga krónur geti fjárfest á Íslandi með þeim. Nú
verða þeir að skipta þeim í erlendan gjaldmiðil á
aflandsmarkaði og flytja síðan til Íslands.
Ársæli Valfells, lektor í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands, lýst illa á þessar breytingar. Með
þessu nýjasta útspili Seðlabankans sé í raun verið
að gera krónuna verðminni og ónothæfa á aflands-
markaði. „Með þessu erum við að bora okkur
lengra ofan í haftakerfi með tilheyrandi auknum
viðskiptakostnaði,“ segir hann.
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
SAMKVÆMT tilmælum Seðlabanka Íslands er nú
óheimilt að flytja krónur af erlendum bankareikn-
ingum á bankareikninga íslenskra bankastofnana.
Tilmælin eru liður í að skera á þann hring sem
hafði myndast í aflandsviðskiptum með krónuna og
er talinn hafa átt þátt í veiku gengi hennar. „Þetta
er gert til að stjórna krónuflæðinu betur, til að
hægt sé að sjá hverjir eru að misnota gjaldeyr-
ishöftin,“ segir Ingibjörg Guðbjartsdóttir, for-
stöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabankans.
Snarlega dró úr veltu á svokölluðum aflandsmark-
aði með krónur í kjölfarið og er hinn snöggi sam-
dráttur talinn til marks um umfang ólöglegra
gjaldeyrisviðskipta, skv. upplýsingum blaðsins
innan úr stjórnkerfinu.
Tilmælin voru gefin út fyrir viku en samkvæmt
Aflandskrónur ónothæfar
Millifærslur í íslenskum krónum frá útlöndum til Íslands miklum takmörkunum
háðar Velta á aflandsmarkaði afar lítil Nú er erfitt að braska með krónuna
Hvar lokar Seðlabankinn á braskið?
Leiðbeinandi tilmæli frá Seðlabanka Íslands 9. nóvember gera milli-
færslur á íslenskum krónum frá erlendum banka til Íslands óheimilar.
Málamyndagerningi
framvísað í Seðlabanka
Íslands og gjaldeyrir keyptur
á verði samkvæmt gengis-
skráningu Seðlabankans.
Gjaldeyrir fluttur
til erlends banka og
skipt út fyrir aflands-
krónur, sem eru skráðar
á lægra gengi.
Erlendur banki
sem skiptir gjald-
eyri frá Seðlabanka
millifærir krónur
aftur til Íslands.
1
23
M Á N U D A G U R 1 6. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
308. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
«ÍSLENSKIBÆRINN
VILL BLÁSA NÝJU LÍFI
Í TORFBÆINN
«NÝJARBARNABÆKUR
Skrímsli í heimsókn
fær fimm stjörnur
96
ára
Frönsku ríkisborgararnir tveir
sem var vísað úr landi fyrir helgi
voru með búnað sem þeir eru taldir
hafa ætlað að nota til að stunda
þekkt svikabragð sem felst m.a. í
því að peningar koma í ljós á hvít-
um pappír eftir að hann er settur í
frysti. Svipað vélabragð sem bygg-
ist á svörtum pappír komst upp hér
á landi fyrir nokkru. Þá náðust
hrapparnir á hlaupum. »6
Reyna að blekkja með því
að þvo eða frysta peninga
Lögreglubílum er ekið 20%
minna en árið 2007, samkvæmt
upplýsingum frá ríkislögreglu-
stjóra. Á sama tímabili fækkaði
skráðum umferðarlagabrotum um
10%. Lögregluembætti víða um
land neyðast nú til að hagræða með
því að draga úr akstri, meðal ann-
ars með minni viðveru á vegum og
notkun aksturskvóta. »8
Lögreglubílum er ekið
20% minna en árið 2007
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
MAÐUR með lambhúshettu, vopnaður haglabyssu, bankaði upp á í
húsi í Seljahverfi í Breiðholti á fjórða tímanum aðfaranótt sunnu-
dags og hóf skothríð þegar íbúi kom til dyra. Eftir því sem lögreglan
kemst næst lokaði húsráðandi
dyrunum um leið og hann sá
byssumanninn en sá skaut fjór-
um til fimm haglaskotum í úti-
hurðina og í glugga við hlið
hennar.
Tildrög árásarinnar á huldu
Húsráðandi slapp ómeiddur
og tókst að hringja strax á lög-
reglu. Býr hann einn í íbúðinni
en annar maður býr á neðri hæð
hússins. Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu kallaði til sérsveit
ríkislögreglustjóra en þegar lag-
anna verðir komu á vettvang var
árásarmaðurinn á bak og burt.
Ekki er vitað hver byssumað-
urinn er eða hvað honum gekk
til en maðurinn sem atlögunni var beint að mun ekki vita hver til-
drög árásarinnar voru.
Byssumaðurinn gengur laus
Íbúar í nágrenninu munu hafa rumskað við skothvellina en að
sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hafa engin vitni enn
gefið sig fram. Mannsins er leitað og segir Friðrik rannsókn málsins
í fullum gangi. Hann segir þó á litlu að byggja að svo stöddu þar
sem tilefni atlögunnar liggur ekki fyrir og ekki er vitað hver byssu-
maðurinn er eða hvernig hann lítur út.
„Þetta virðist vera einangrað tilvik og beinist ekki gegn almenn-
ingi,“ segir Friðrik og kveðst ekki telja að fólki stafi mikil hætta af
manninum.
Þegar Morgunblaðið hafði samband við manninn sem fyrir atlög-
unni varð kaus hann að tjá sig ekki um málið.
Barði að dyrum og hóf
skothríð að húsráðanda
Byssumaðurinn hleypti af 4-5 skotum
Var með haglabyssu og lambhúshettu
Húsráðandi slapp ómeiddur
Morgunblaðið/Júlíus
BYSSUMAÐURINN gerði ekki tilraun til að komast inn í húsið þegar húsráðandi
hafði lokað á hann dyrunum. Höglin sprengdu rúðu við hliðina á dyrunum þannig
að byrgja þurfti gluggann.
Rúðan sprakk í atlögunni
Í HNOTSKURN
» Lögregla telur að al-menningi stafi ekki
mikil hætta af byssu-
manninum.
» Hann er ófundinn oger eftir litlu að fara
við leitina að honum og
rannsókn málsins.
» Hafi einhver upplýs-ingar um málið er sá
hinn sami beðinn að hafa
samband við lögreglu.
Valsmenn eru komnir á toppinn í
úrvalsdeild karla í handbolta. Þeir
skildu Framara eftir í botnsætinu
með frekar auðveldum sigri á Hlíð-
arenda í gær.
ÍÞRÓTTIR
Valur á toppi
en Fram á botni
Íslandsmótið í skylmingum með
höggsverði fór fram um helgina.
Ragnar Axelsson mætti með
myndavélina að vopni og fangaði
stemninguna í Baldurshaga.
Fín tilþrif hjá
skylmingafólki