Morgunblaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 10
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð eftirlitsstofnun sem starfar á vegum Alþingis. Meginhlutverk hennar er
að endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármála-
stjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Megingildi hennar eru óhæði, hlutlægni, hæfni og trúverðugleiki.
FLOKKAR OG FRAMBJÓÐENDUR
FÁ LENGRI SKILAFREST
Frestur sem stjórnmálasamtök og frambjóðendur hafa til að skila
Ríkisendurskoðun upplýsingum um fjárframlög fyrri ára hefur verið
framlengdur til 10. desember nk.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 162/2006 skal Ríkisendur-
skoðun taka við og birta upplýsingar um fjárframlög til stjórnmálasam-
taka og frambjóðenda nokkur ár aftur í tímann.
Hlutaðeigandi aðilum var upphaflega gefinn frestur til 15. nóvember sl.
til að skila af sér en ákveðið hefur verið að framlengja þann frest til 10.
desember nk.
Um er að ræða framlög til
Stjórnmálasamtaka á tímabilinu 2002–2006
Frambjóðenda í prófkjöri/forvali vegna kosninga 2006 og 2007
Frambjóðenda í formanns- eða varaformannskjöri 2005–2009
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ríkisendurskoðunar
www.rikisend.is.
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009
Enn sannast það að ógæfu Íslandsverður allt að vopni. Í stað þess
að Jóhanna, Steingrímur J. og Indr-
iði hafi gert skapandi listir að vett-
vangi hugarflugsins hafa þau kosið
ríkisfjármálin sem hinn skapandi
vettvang. Ekki þó ríkisfjármálin í
heild sinni, aðeins tekjuöflunarhlið-
ina.
Aldrei fyrr hafa jafnfáir lagt tiljafnmiklar skattahækkanir á
jafnstuttum tíma á jafnmarga sam-
ferðarmenn sína.
Hin heilaga skattheimtuþrenninghyggst hækka alla þá skatta
sem í boði eru og leggja að auki á al-
veg nýja.
Hún hyggst hækka tekjuskatta umtugi milljarða og ná þannig úr
vinstri vasa almennings þeim krón-
um sem frestað var að taka úr þeim
hægri með greiðslujöfnuninni.
Hún áformar að hækka óbeinaskatta á matvörur, bensín og
annan lúxus.
Hún vill leggja nýja skatta á ferða-menn, sjávarútveg, verksmiðjur
og allt annað sem hugsanlega gæti
orðið til að efla atvinnulíf í landinu.
Hin heilaga þrenning ann sérengrar hvíldar við að hugsa upp
nýjar leiðir til að auka álögur á
landsmenn og þá sem hugsanlega
gætu átt leið til landsins.
Brátt verður andardrátturinn einneftir óskattlagður. Hvenær setja
þau gjaldmæli á þann ónýtta skatt-
stofn?
Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J.
Sigfússon og Indriði H. Þorláksson
Einn ónýttur skattstofn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 2 heiðskírt Lúxemborg 11 heiðskírt Algarve 22 léttskýjað
Bolungarvík 1 snjókoma Brussel 12 léttskýjað Madríd 16 heiðskírt
Akureyri 2 rigning Dublin 12 skýjað Barcelona 19 léttskýjað
Egilsstaðir 2 slydda Glasgow 12 skýjað Mallorca 21 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 5 skýjað London 14 léttskýjað Róm 19 léttskýjað
Nuuk -1 snjókoma París 14 skýjað Aþena 18 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað Amsterdam 12 léttskýjað Winnipeg -6 léttskýjað
Ósló 8 skúrir Hamborg 12 skýjað Montreal 8 þoka
Kaupmannahöfn 11 skýjað Berlín 13 léttskýjað New York 14 alskýjað
Stokkhólmur 8 þoka Vín 15 skýjað Chicago 7 skýjað
Helsinki 5 skýjað Moskva 3 þoka Orlando 16 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
16. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.45 4,1 12.00 0,5 18.01 3,8 10:01 16:25
ÍSAFJÖRÐUR 1.34 0,2 7.46 2,2 14.08 0,2 19.54 2,0 10:26 16:10
SIGLUFJÖRÐUR 3.39 0,2 9.46 1,2 15.58 0,0 22.25 1,1 10:10 15:52
DJÚPIVOGUR 2.55 2,3 9.13 0,3 15.08 1,9 21.10 0,3 9:35 15:50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
Á þriðjudag
Minnkandi norðaustanátt, víða
3-8 m/s síðdegis. Skýjað með
köflum og dálítil él norðanlands
og við suðurströndina. Yfirleitt
vægt frost.
Á miðvikudag
Vaxandi austanátt, með dá-
litlum éljum austantil og frosti
á bilinu 0 til 7 stig. Slydda eða
rigning suðaustantil um kvöldið
og hlánar þar.
Á fimmtudag
Austan- og norðaustanátt og
rigning eða slydda, en úrkomu-
lítið suðvestantil. Hiti 0 til 8
stig, mildast sunnanlands.
Á föstudag
Útlit fyrir norðaustanátt með
rigningu eða slyddu og jafnvel
snjókomu á norðvestanverðu
landinu. Yfirleitt þurrt sunn-
anlands. Hiti 0 til 6 stig.
Á laugardag
Líkur á austlægri átt með úr-
komu í flestum landshlutum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Þurrt sunnan- og suðvest-
anlands, annars víða snjókoma
eða slydda, en rigning austast.
Fer smám saman að draga úr
vindi og úrkomu síðdegis. Hiti 0
til 5 stig, en frystir inn til lands-
ins.
HJÖRLEIFUR B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, sendi frá sér tilkynningu vegna
fréttar Morgunblaðsins á laugardag þar sem m.a.
var haft eftir Hjörleifi að frekara gengisfall ís-
lensku krónunnar gæti orðið fyrirtækinu erfitt.
„Vill Orkuveita Reykjavíkur árétta að fyr-
irtækið er fullkomlega fært um að standa við
skuldbindingar sínar gagnvart erlendum og inn-
lendum lánveitendum. Stöðugar tekjur þess í ís-
lenskri mynt og stöðugt vaxandi tekjur í erlendum
gjaldeyri gera því fyllilega kleift að greiða afborg-
anir og vexti af lánum fyrirtækisins, hvort sem þau
eru í erlendum gjaldmiðlum eða íslenskum krón-
um.
Mikilvægt er að horfa til greiðsluflæðis OR þeg-
ar lagt er mat á greiðslugetu fyrirtækisins og
þeirrar staðreyndar að 20% af tekjum Orkuveitu
Reykjavíkur eru í erlendri mynt. Erlendar tekjur
OR eru frá langtíma raforkusölusamningum og því
er áhætta vegna þeirra óveruleg. Þrátt fyrir að
gengi íslensku krónunnar félli um tugi prósenta
standa hinar erlendu tekjur undir skuldbindingum
fyrirtækisins í erlendum gjaldmiðlum. Slíkt myndi
þó vissulega hafa neikvæð áhrif á eiginfjárstöðu
OR og afl fyrirtækisins til framkvæmda.
Við hrun íslenska efnahagskerfisins síðasta
haust ákvað stjórn fyrirtækisins að ljúka fram-
kvæmdum við 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar þar
sem samningar um sölu raforkunnar voru frá-
gengnir og tekjur af fjárfestingunni tryggðar. Gert
er ráð fyrir að þessi áfangi verði gangsettur í árs-
lok 2011 og kemur hann til með að skila OR um
þriggja milljarða króna tekjum á ári í erlendri
mynt.
Jafnframt hefur fyrirtækið unnið áfram að frá-
veituframkvæmdum á Vesturlandi sem eru mikil
umhverfisbót fyrir þann landshluta. Fram-
kvæmdir OR á yfirstandandi ári hafa numið um 19
milljörðum króna og áætlaðar lántökur vegna
þeirra eru um 17 milljarðar. Unnið er að frágangi á
láni frá Evrópska fjárfestingabankanum vegna
þessara framkvæmda og skuldabréfaútboði á inn-
lendum markaði. Fjárfestingar næsta árs eru
áætlaðar um 18 milljarðar króna vegna þessara
mannaflsfreku uppbyggingarverkefna.“
OR fær um að standa við skuldbindingar
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn