Morgunblaðið - 16.11.2009, Qupperneq 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009
Félagslíf
MÍMIR 60091116 III°
HEKLA 6009111619 IV/V
GIMLI 6009111619 II°
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnagæsla
Au pair - barnagæsla
Fjölskylda á Stokkseyri óskar eftir
aðstoð á heimili sem er um 40 mín.
frá Reykjavík. Upplýsingar í síma
694 0495.
Gisting
Til leigu á Suðurnesjum
Fullbúnar íbúðir, einbýli, ein vika eða
fleiri. Upplýsingar í síma 698 7626
Hægt að skoða myndir á oldviking.is
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Sumarhús (140 fm) til leigu við
Akureyri. 4 svefnherb. + svefnloft, 2
baðherb, rúm fyrir 11 manns, verönd
og heitur pottur, glæsilegt útsýni yfir
Akureyri. www.orlofshus.is eða
Leó, sími 897 5300.
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
Sumarhús
Velour gallar
Stærðir 36 - 48
Meyjarnar, Austurveri
sími 553 3305
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Ýmislegt
Teg. 6544 - vel fylltur í BC skálum á
kr. 3.950,- boxerbuxur í stíl á
kr. 1.950.
Teg. 21255 - mjúkur og yndislegur í
CD skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950.
Teg. 62304 - rosalega fallegur í BC
skálum á kr. 3.950,- flottar buxur í stíl
á kr. 1.950.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Mjúkir og þægilegir dömuskór
úr leðri, skinnfóðraðir.
Litur: svart.
Stærðir: 37 - 41. Verð: 16.575.-
Sérlega fallegir og hlýir götuskór
úr leðri, fóðraðir með flís.
Stærðir: 37 - 41. Verð: 17.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bátar
Sennilega ódýrustu skrúfurnar
á Íslandi
Útvega koparskrúfur á allar gerðir
báta, beint frá framleiðanda.
Upplýsingar á www.somiboats.is
Óskar, 0046704051340.
Bílar
TILBOÐ ÞESSA VIKU
hjá Bóni & þvotti, Vatnagörðum 16.
Gæðaþvottur + bón + felgur sýru-
þvegnar á 2500 kr. + þrif að innan,
saman á 5500 kr. Eins minnum við á
aðra þjónustu. www.bonogtvottur.is,
sími 445-9090, gsm 615 9090.
Nýr Renault Trafic L1H1,
2,0 L, turbo disel. Skilrúm með
glugga. Plata í botni. Listaverð um
3,9 með vsk. Okkar verð 3.349 þús
með vsk. ( 2.690 þ. Án vsk. ) Þú sparar
551 þús kr.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Listmunir
Jólagjafir fyrir starfsfólk
Úrval af íslenskri list og handverks-
munum jafnt fyrir smærri og stærri
fyrirtæki. Pökkum inn og sendum.
Góð verð og kaupum íslenskt!
Uppl. í síma 695 0495.
Raðauglýsingar
✝ Helga Vigfús-dóttir fæddist í
Hrísnesi á Barða-
strönd 3. október
1923. Hún lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Selja-
hlíð 8. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Vigfús V. Er-
lendsson bóndi, f. 5.
apríl 1888, d. 18.
maí 1940 og Guð-
björg Guðmunds-
dóttir, f. 31. júlí
1892, d. 23. júní 1974. Systkini
Helgu voru: Guðmundur, f. 1915,
d. 1983, Vigfús, f. 1917, d. 1979,
Þuríður, f. 1918, Kristín, f. 1920,
d. 2000, Guðný, f. 1922, d. 1997,
Erlendur, f. 1926, d. 2005, Hann-
es, f. 1928, Halldór, f. 1929 og
Hilmar, f. 1936.
Helga giftist 5. ágúst 1944 Ólafi
insdóttur, f. 5. maí 1948. Barn
Elín Kristín, f. 7. maí 1968, maki
Owe Nilson, þau eiga þrjár dæt-
ur. Móðir Elínar Sigrún Bernó-
tusdóttir, d. 1980. Stjúpsonur
Skarphéðinn Rúnar Grétarsson,
f. 14. feb. 1966, d. 2005, lætur
eftir sig tvær dætur og Konráð
Ara. Fóstursonur Konráð Ari
Skarphéðinsson, f. 26. des. 1985.
3) Þórður Gísli, f. 8. júlí 1952
kvæntur Jónínu S. Jónasdóttur, f.
1. sept. 1957. Synir þeirra: Ólaf-
ur Kristinn, f. 1. mars 1979.
Kjartan Valur, f. 20. apríl 1982,
maki Hildur Ýr Viðarsdóttir, þau
eiga einn son. Hjalti Jón, f. 4.
mars 1992.
Fjölskyldan bjó fyrir vestan,
lengst af í Hrísnesi en einnig um
tíma á Patreksfirði, Bíldudal og
Tálknafirði. Flutti til Reykjavík-
ur 1961. Helga og Ólafur bjuggu
lengi á Háaleitisbraut 44, síðan í
Maríubakka 2 og síðustu árin í
Seljahlíð, að Hjallaseli 55.
Útför Helgu fer fram frá Fella-
og Hólakirkju í dag, 16. nóv-
ember, og hefst athöfnin kl. 13.
Kristni Þórðarsyni
kennara frá Innri-
Múla, Barðaströnd, f.
21. ágúst 1918. Þau
eignuðust þrjú börn,
þau eru: 1) Kolbrún,
f. 25. okt. 1944, gift
Herði Eiðssyni, f. 8.
maí 1944. Börn Kol-
brúnar: Kári Breið-
fjörð Ágústsson, f. 24.
júní 1965, d. 2006,
eftirlifandi þrjár dæt-
ur. Berglind Brynj-
ólfsdóttir, f. 12. feb.
1967, maki Guð-
mundur Jónsson, þau eiga tvö
börn. Sölvi Breiðfjörð Harðarson,
f. 14. feb. 1970, maki Anna Sigríð-
ur Grímsdóttir, þau eiga tvö börn.
Ólafur Helgi Harðarson, f. 15. nóv
1980. Stjúpdóttir Steinunn Harð-
ardóttir, f. 18. desember 1974. 2)
Skarphéðinn, f. 10. okt. 1946,
kvæntur Sigríði M. Skarphéð-
Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna
og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð.
Þú vaktir yfir velferð barna þinna,
þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varstu gædd þeim góða
anda,
sem gefur þjóðum ást til sinna landa,
og eykur þeirra afl og trú.
En það er eðli mjúkra móðurhanda
að miðla gjöfum eins og þú.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Elsku mamma mín.
Nú ert þú farin og ég sakna þín svo
mikið. En ég hugga mig við að nú líð-
ur þér betur.
Það er tómlegt að koma í Seljahlíð-
ina til pabba og engin mamma þar.
Mig langar að þakka þér allt sem
þú gerðir fyrir mig í gegnum tíðina.
Þú varst mikil handavinnukona,
saumaðir föt, prjónaðir og saumaðir
út.
Þú bjóst til dúkkur handa mér þeg-
ar ég var lítil, þær fengu jólakjóla
eins og ég. Þú saumaðir og prjónaðir
á okkur systkinin þegar við vorum
krakkar.
Líka á barnabörnin þín. Þú saum-
aðir marga kjóla á mig í gegnum tíð-
ina, stutta og síða, alger meistara-
verk. Þig langaði á húsmæðraskóla í
gamla daga og varst búin að sækja
um á Ísafirði en gast svo ekki farið.
En þú varst bara með þetta allt í þér,
sama að hverju þú gekkst. Þú kennd-
ir mér að prjóna, sauma út og á
saumavél. Þú varst mikil móðir og
sóttumst við systkinin mikið eftir
samvist þinni og var og er fjölskyldan
mjög samhent. Þú varst alltaf tilbúin
að hjálpa ef einhver var lasinn eða
þurfti hjálpar við. Þú varst alltaf svo
fín og vildir líka vera það. Þú hafðir
gaman af að dansa og fóruð þið pabbi
oft á gömlu dansana. Þú hafðir líka
gaman af að syngja og varst mörg ár
í kór aldraðra í Gerðubergi.
Þú varst mikið náttúrubarn að eðl-
isfari, enda fædd og uppalin í sveit.
Við bjuggum í sveit og líka í sjávar-
plássi áður en við fluttum til Reykja-
víkur. Þið pabbi fóruð vestur í Hrís-
nes mörg sumur og dvölduð þar í
sveitasælunni. Marga bíltúrana fór-
um ég og börnin mín með ykkur út úr
bænum, út á Álftanes, upp á Kjal-
arnes og á marga aðra staði með
nesti með okkur. Garðurinn þinn í
Maríubakkanum bar eiganda sínum
gott vitni, þú ræktaðir hann frá
grunni og var hann mjög fallegur.
Þú varst dugleg að vinna, vannst á
saumatofum, við ræstingar í skóla og
húshjálp eftir að þið fluttuð suður.
Svo fluttuð þið í Seljahlíðina vorið
2007 og hefur verið vel að ykkur hlúð
þar og við systkinin, makar, barna-
börn og langömmubörn höfum átt
með ykkur góðar stundir þar. Elsku
mamma mín, það er af svo mörgu að
taka, það væri efni í heila bók.
Takk fyrir samfylgdina öll þessi
ár, takk fyrir allt.
Þín dóttir
Kolbrún.
Elsku mamma mín, nú er þessari
jarðvist lokið og nýtt ferli farið í
gang. Vegna aðstæðna gat ég ekki
verið hjá þér síðustu stundirnar en
ég veit að þú fyrirgefur mér það. Á
mínum 63 ára lífsferli hefur þú verið
mér góð móðir og bý ég vel að því. Ég
vona að þú hafir ekki átt slæman son.
Það er margs að minnast en árin í
Hrísnesi 1954-1960 eru mín bestu ár
með ykkur foreldrum mínum þó að
veikindi væru hjá þér tímabundið
sem þú fékkst bót á með uppskurði.
Eftir að þið fluttuð til Reykjavíkur
fóruð þið pabbi mörg sumur í Hrís-
nes, æskuheimilið þitt, og var það
mikil tilhlökkun hjá ykkur og yfirleitt
yndisleg vera í sveitasælunni. Ég fór
í skóla í Reykjanes í janúar 1962 þá
15 ára gamall og ég man að þú merkt-
ir öll fötin mín með upphafsstöfum
mínum S.Ó., það var þónokkurt verk
en kom sér vel. Alltaf varst þú boðin
og búin að hjálpa börnum þínum,
barnabörnum og barnabarnabörn-
um. Allur saumaskapur árum saman
var snilld, hann lék í höndunum á þér
þar til síðustu árin þá voru hendurn-
ar búnar til þeirra hluta.
Elsku mamma, þakka þér uppeldið
og samfylgdina, hún var æðisleg,
megir þú hvíla í friði.
Í lautinni fögru við lindina blá,
ég lít mínar glöðustu stundir,
í blómfögru kjarri með blaktandi strá,
þú brosir í huganum undir.
Oft fer hugur um átthaga reit
ástar þar nutum við sælu.
Við blómanna angan í broshýrri sveit
og bárunið suðaustan kælu.
(Ó.K.Þ.)
Pabba og aðstandendum votta ég
samúð
Þinn sonur og tengdadóttir,
Skarphéðinn og Sigríður (Sigga).
Helga Vigfúsdóttir