Morgunblaðið - 16.11.2009, Síða 29

Morgunblaðið - 16.11.2009, Síða 29
x Tíu vísur Helga Egilson myndskreytti Uppheimar bbbmn Eins og nafnið gefur til kynna hefur bókin að geyma tíu vísur og kvæði sem fylgt hafa íslenskum börnum kynslóð fram af kynslóð. Vísurnar eru vel valdar, t.d „Dansi, dansi dúkkan mín“, „Krummi krunkar úti“ og „Bí, bí og blaka“. Einnig eru nokkrar minna þekkt- ar. Vísurnar eru skreyttar með myndum Helgu og fær hver mynd að njóta sín á heilli blaðsíðu á móti vísunni. Fyrir vikið verður bókin björt og opin. Bókin er mjög falleg, myndir Helgu eru algjört augnakonfekt fyrir yngstu kynslóðina, litríkar, glaðlegar og einfaldar og eiga vel við hverja vísu. Skrímsli í heimsókn Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. Mál og menning bbbbb Skrímslin eru mætt aftur og ynd- isleg sem áður. Skrímsli í heimsókn er fimmta bókin um stóra og litla skrímslið og hittir í mark eins og fyrri bækur. Nú kemur upp ósætti á milli stóra og litla skrímslis þegar loðna skrímslið kemur í heimsókn og stóra skrímslið verður útundan. Litla skrímslið leyfir honum þó að leika með að lokum en þá fer allt í háaloft. Sem betur fer eru samt allir vinir að lokum. Það er eitthvað við þessi skrímsli sem er svo heillandi að fullorðnir hafa jafngaman af sögunum um þau og börn, ég hló a.m.k. upphátt við lestur þessarar bókar. Það verður enginn ósnortinn af því að lesa Skrímsli í heimsókn, einfaldar en fallegar myndirnar fanga sög- una svo vel að lesandinn getur ekki annað en fundið til með stóra skrímslinu sem er skilið útundan. Á meðan er ekki hægt að verða illur út í litla skrímslið því það er svo mikið krútt. Áslaug, Kalle og Rakel eru eitt besta barnabókahöf- undalið sem orðið hefur til. Skrímsli í heimsókn, líkt og fyrri skrímslabækur, er frábær fyrir alla krakka, mömmur og pabba. Konan sem kyssti of mikið Hallgrímur Helgason JPV útgáfa bbnnn Í þessari fyrstu barnabók höfundar segir frá manni sem á tvö börn en enga konu en svo hittir hann nýja konu sem er svo hress og ham- ingjusöm að allt sem hún kyssir fer á flug. Um er að ræða myndasögu fyrir börn um ástina. Hallgrímur sækir í ævintýrahefð- ina þar sem margt undarlegt og ævintýralegt gerist í kringum ástina og allir enda saman hamingjusamir til æviloka. Maðurinn og börnin tvo eru sorgleg og yfir þeim er ekkert líf á meðan konan er svo klikkuð af kátínu að manni þykir nóg um. Myndir Hallgríms eru litríkar, skýrar og aðlaðandi sem slíkar en fólkið sem hann teiknar er einstaklega óaðlaðandi. Þetta er teiknimyndasaga sem hefði betur átt heima í tímariti en í heilli bók. Súperamma og sjóræningjarnir Björk Bjarkadóttir Mál og menning bbbmn Björk þarf vart að kynna fyrir for- eldrum lítilla bókaorma enda einn ötulasti barnabókahöfundur Íslands. Nú eru Óli og súperamma hans mætt í fjórða sinn og lenda í miklum hasar sem fyrr. Amma á orðið vin í lögreglunni sem hún puntar sig fyrir og Óli verður öf- undsjúkur. Allt í einu þarf löggan aðstoð súperömmu við að stoppa sjóræningjaskip sem er að koma í höfn og þá verður gaman. Sagan höfðar líklega ekki til eins ungra krakka og sumar fyrri bækur Bjarkar, t.d Elsku besti pabbi og Allra fyrsta orðabókin mín, en er fín fyrir þau börn sem eru orðin aðeins eldri, skilja lífið betur og vilja hafa smá hasar í sögunum sínum. Bókin er, sem aðrar bækur Bjarkar, frábærlega skemmtilega myndskreytt og full af húmor. Jólasveinarnir 13 Brian Pilkington Mál og menning bbbbm Jóhannes úr Kötlum bjó til fyrsta „fræðsluheftið“ um jóla- sveinanna 1932 þegar ljóðabókin Jólin koma var útgefin. Þá bók þekkja flest börn en nú hefur Brian Pilkington bætt um betur með bók sinni Jólasveinarnir 13 þar sem hann fræðir börn um jólasveinana á nútímalegan hátt. Bókin er mjög skemmtileg og fræðandi fyrir jólabörn og hjálpar þeim að telja niður til jóla. Hver jólasveinn fær sína opnu, mynd Brians prýðir aðra síðuna en hin- um megin er fróðleikur. Á síðunni um Stekkjastaur kemur til dæmis fram að hann kemur fyrstur til byggða 12. desember þegar 13 dagar eru til jóla, hann er þrjóskur mömmustrákur sem finnst mjólk og pip- arkökur góðar. Annarskonar fróðleik má líka finna í bókinni, t.d hvernig á að óska fólki gleðilegra jóla á ýmsum tungumálum og á táknmáli. Teikningar Brians þarf ekki að kynna og bregst honum ekki bogalistin nú frekar en fyrr. Jólasveinarnir eru líf- legir og áhugaverðir í meðförum hans. Ýmislegt annað er líka skemmtilega gert hjá Brian, til dæmis má nefna að þegar bókarkápunni er flett í sundur koma í ljós ís- lensku sveinarnir að kasta pílum í mynd af hinum bandaríska Santa Claus. Þetta er skemmtileg jólasveinabók sem ætti að fræða forvitna krakka. Skrímslalið Rakel Helmsdal, Áslaug Jónsdóttir og Kalle Güttler eru höfundar bókar um skrímslin. Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar barnabækur. Barnabækur Ingveldur Geirsdóttir | ingveldur@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009 „KLASSÍK Í AMERÍSKRI ÍÞRÓTTASÖGU.“ 100/100 - VARIETY „THIS IS ONE HELLUVA GOOD MOVIE...“ 90/100 - HOLLYWOOD REPORTER „A KNOCKOUT OF A SPORTS DOCUMENTARY.“ 80/100 – LOS ANGELES TIMES FRÁBÆR MYND UM UPPVAXTARÁR EINS ÁST- SÆLASTA KÖRFUBOLTAMANN SAMTÍMANS, LEBRON JAMES. ÞÚ SPILAR TIL AÐ LIFA SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI Matt Damon er stórkostlegur sem Uppljóstrarinn! HHHH „AS SODERBERGH LOVINGLY PEELS AWAY VEIL AFTER VEIL OF DECEPTION, THE FILM DEVELOPS INTO AN UNEXPECTED HUMAN COMEDY.“ CHICAGO SUN-TIMES ROGER EBERT HHHH "HILARIOUS,GRIPPING AND RIDICULOUSLY ENTER- TAINING.ONE OF THE YEAR’S BEST FILMS.” STEPHEN REBELLO, PLAYBOY “MATT DAMON IS A JOY TO WATCH.” TOM CARSON, GQ “CLEVER,ORIGINAL AND VERY FUNNY.” LEONARD MALTIN, ENTERTAINMENT TONIGHT HHH „THERE IS DEVILISH FUN IN THIS LOOK INTO 1990S WHITE-COLLAR CRIME. BUT THE JOKES ARE THE KIND YOU CHOKE ON.“ ROLLING STONES HHHH „ÁHUGAVERÐ OG FYNDIN MYND MEÐ GÓÐUM LEIKURUM.“ - FBL HVERNIG STÖÐVARÐU MORÐINGJA SEM ER NÚ ÞEGAR Í FANGELSI? GERRARD BUTLER OG JAMIE FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU HASARMYND Á ÞESSU ÁRI! FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB FRÁ LEIKSTJÓRA CRANK HÖRKU HASARMYND SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK „VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG“ SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND ÍÁLFABAKKAOGAKUREYRI / SELFOSSI COUPLES RETREAT kl. 8 12 ORPHAN kl. 10:10 16 DESEMBER m. ísl. tali kl. 8 L ZOMBIELAND kl. 10:10 16 / KEFLAVÍK GAMER kl. 8 - 10 16 THIS IS IT kl. 8 L ZOMBIELAND kl. 10:20 16 / AKUREYRI HORSEMEN kl. 8 - 10:20 16 THE INFORMANT kl. 8 L LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:20 16 • Þekkt iðnfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til almennings. Ársvelta 350 mkr. • Lítið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með álprófíla og plexigler. Ársvelta 50 mkr. • Heildverslun með neytendavörur. Góð örugg umboð. Ársvelta 80 mkr. • Rótgróið framleiðslufyrirtæki tengt byggingariðnaði og viðhaldi. Ársvelta 260 mkr. Litlar skuldir. • Lítið framleiðslufyrirtæki með örugga viðskiptavini. Tvö stöðugildi. Ársvelta 55 mkr. EBITDA 15 mkr. • Þekkt heimilisvöruverslun. Ársvelta 120 mkr. • Mjög arðbær heildverslun á landsbyggðinni. Tilfalið fyrir markaðsfólk sem vill breyta til. Ársvelta 140 mkr. • Rógróið iðnfyrirtæki með öruggan markað. Ársvelta 220 mkr. • Heildverslun með stórmarkaðsvörur (ekki matvæli). Ársvelta 120 mkr. • Rótgróið framleiðslu og innflutningsfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til neytenda. Ársvelta 160 mkr. • Lítil en rótgróin bílaleiga. Auðveld kaup. • Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup. • Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr. Hentar vel til sameiningar. • Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.