Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 4
92 - Efni leiksins er ekki veigamikið, gömul aðalsætt hefur frá aldaöðli ráðið yfir þingsæti síns héraðs. Frumburður ættarinnar, Pym greifi, sem er stefnu- laust nþjóðfélagsfyrirbæriM, býður sig fyrst. fram í þingkosningunum 1945, þegar Yerkamannaflokkurinn vann stórfelldan sigur. Og sá sigur kemur því miður einnig niður á vini vorum Pym, þar sem mótframbjóðandi hans, Cleghorn, hreppir þingsætið með töluverðum meirihluta at- kvæða. Hann er síðan aðlaður og fluttur upp í lávarðadeildina, og Pym sér sér leik á borði, skiptir um flokk og býður sig fram fyrir Verkamannaflokkinn í aukakosningunum, þar sem hann býst ekki við að fá neinn mótframbjóðanda. En andstaðan kemur ur óvæntri átt. Unnusta hans, sem er amerísk og eftir því íhaldssöm og fastheldin á fornar venjur, ákveður að gefa honum ráðningu og kemur því til leiðar, að heimilisþjónn- inn býður sig fram fyrir íhaldsflokkinn - og vinnur þingsætið með 30 atkvæða meirihluta. Afleiðingarnar eru margvís- legar og skemmtilegar, en loks fellur allt í Ijufa löð aftur. Þjónninn fórnar þingsætinu á altari heimilishamingjunnar ( stofustúlkan ) og Pym býr sig til þess enn á ný að bjóða sig fram í næstu auka- kosningum, að þessu sinni með fulltingi þeirrar amerísku. Þegar lagður er dómur á sýningu eins og þessa, gleymist flestum það gíf- urlega verk, sem leiknefnd og leikarar hafa unnið til þess að gera hana sem bezt úr garði í hjáverkum, með erfiðu námi og við erfið skilyrði. Útvegun leik- rits, þyðing, linnulausar æfingar, smíði leiktjalda og sviðsútbúnað o.fl. o.fl. , allt er þetta unnið af áhugamönnum, mönnum, sem ekki telja eftir sér að leggja nótt við dag til þess að hrinda á- hugamalum sínum í framkvæmd, '’kyssa tær Thalíu" eins og ágætur skólabróðir vor komst svo smekklega að orði hér í blaðinu. Og enginn þessarra manna sér eftir þessu starfi sínu, félagsandinn inn- an Herranætur á yfirleitt hvergi sinn líka í skólalífinu. Sá, sem á annað borð er kominn í leiknefnd, iðrast þess ekki, og er því því furðulegt tímanna tákn hve erfitt er að fá fólk í leiknefnd að vori. Þá er komið að leikendunum. Hinir helztu þeirra leikara, sem hafa borið uppi undanfarandi skólaleiki, eru nú á förum úr skólanum , þau Þorsteinn Gunnarsson, Edda Óskarsdóttir, Ömar Ragnarsson og Ragnheiður Eggertsdóttir, og verður það skarð vandfyllt, sem þau skilja eftir. Minnisstæðastur hlýtur öllum að vera leikur Þorsteins Gunnarssonar í hlutverki þjónsins Beecham eða þing- mannsins Benjamin Charles, þessa dæmi- gerða fulltrúa enskra þjóna af gamla skólanum. Þorsteinn hefur hafið leik- sýningar nemenda í æðra veldi undan- farin 2 ár, og enginn varð heldur fyrir vonbrigðum með leik hans að þessu sinni þrátt fyrir sívaxandi kröfur, sem til hans eru gerðar. Hann er vafalítið efnilegasti leikari, sem leikið hefur í Herranótt á síðustu árum. Ómar Ragnarsson er í Qssinu sínu í hlutverki hins óviðjafnanlega jarls af Lister og á auðvelt með að lifa sig inn í hlutverkið, sem honum er greinilega að skapi. Heyrzt hafa einstaka raddir um, að túlkun Ómars á Lister sé víðs fjarri tilgangi höfundar, en ekki er ég eins sannfærður um það. Þó fer ekki hjá því, að kýmni hans mætti vera hlýrri og hljóðlátari og hreyfingar minna ýktar. Ragnheiður Eggertsdóttir sómdi sér prýðisvel í hlutverki lafði Lister. TÚlkun hennar á hinni ^runnhyggnu en viðfeldnu aðalsfrú og húsmóður er án efa bezti leikur hennar til þessa. Hinn makalausa Pym greifa leikrur Stefán Benediktsson, sem gefur góð fyr- irheit um næstu Herranætur. Leikur hans er mjög geðfelldur og skemmtilegur og svipbrigði og framsögn góð. June Farrel, hina "typisku" amerísku unnustu hans, leikur Guðrún Drífa Krist- insdóttir. Sviðsöryggi hennar hlýtur að vekja athygli, þarsem hún er alger ný- liði, og hún skilur hlutverk sitt bersýni- lega til hlítar, en leikur hennar er í heild kaldari en hlutverkið krefst og framsögn er nokkuð ábótavant. Edda Óskarsdóttir, sem vakti á sér athygli í síðustu Herranótt með næmri og yndislegri túlkun á hlutverki sínu, hefur hér hlotið hlutverk Lady Caroline Smith. Það er fremur lítið hlutverk og ekki á allan hátt við Eddu hæfi, en hún leysir það þó mjög sómasamlega af hendi. Förðun hennar og gerfi eru fjarri því að vera góð. Caroline er hér of ungleg og lagleg til þess aí5 ummæli Frh. á bls,. 105.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.