Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 16

Skólablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 16
11 fflffillR SPYR EICKÍ UH tttHNlM&RR'Wöfl i Þegar við ritnefndarmenn vorum fyrir skemmstu að lesa þau blöð, sem komið hafa ut í vetur, tokum við eftir því, að ekki hafði verið haft við - tal við neinn nemanda í sjötta bekk. Við ákváðum að bæta úr því snarlega, og var ég þegar í stað sendur á fund hins fræga orðháks SIGURÐAR STEINÞÓRSSONAR, eða igga bræt, eins og alþýða manna kallar hann. Hitti ég Sigurð, þar sem hann var að vinna í bókasafninu, og skýrði honum frá erindinu. "Þegar ég sé í þér tennurnar dettur mér í hug : You will wonder where the yellow went when you brush your teeth with Pepsodent, " sagði hann og brosti Ijúf- mannlega. Ég hof nú viðtalið og innti hann frétta frá bókasafninu. "Bokasafnið er alls ekki nægilega mikið notað, " sagði Sigurð- ur, "og mun það stafa af ýmsum ástæð- um. Nú á dögum hafa menn meiri auraráð en áður var og kaupa því frekar bækur en fá þær lánaðar. Einnig getur ver- ið, að við fylgjumst ekki nægilega með tímanum, enda höfum viö að ýmsu leyti erfiðar aðstæður. Bókasafnið varð fyrir óbæt- anlegu tjóni, þegar menn- ingar-þríhross skólans stóð fyrir því, að það var flutt. Að lok- um býst ég við því, að menn lesi yfir- leitt minna nú en áður. NÚ hafa menn um meira að velja, þeir geta farið á böll eða í bíó o. s.frv. , eða þá sluxað í bænum og á Skalla. "En segðu mér nú, hvað þér finnst um félagslífið í skólanum. " "Þegar maður er kominn í sjötta bekk, er maður orðinn heldur leiður á því, einkanlega ef maður hefur verið mikið í því áður. Ég fyrir mitt leyti fékk alveg nog af því í fyrra. Félagslífið er ágætt, ef það er hóflega mikið. Það er auðvitað ákaf- lega misjafnt, hvað menn telja hóflegt í þessu tilfelli, en mér líkar alls ekki við

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.