Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 7

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 7
- 95 - lauk því upp munninum og mælti á engil- saxnesku: "Hvað get ég gert fyrir yður, maður minn? Eigið þér við erfiðleika að etja ( á frummálinu: "Do you have some troubles?" ) ?" Hinn dularfulli ávarpari svaraði á illri ensku, að hann væri hér kominn til að hjálpa okkur og aðstoða. Og með því, að ég skynjaði, að faðir minn hefði engan áhuga á velgjörðar- manni okkar, varð ég fyrir svörum og þakkaði honum goðviljann, en tok það skýrt fram, að við værum engrar hjálpar þurfi. "Er það öruggt, að þið þarfnist einsk- is?" spurði öðlingurinn. "O ekki aldeilis maður minn, " svaraði ég,"en segja mætti mér, að yður vantaði eitthvað" bætti ég við og benti inni í hausinn á mér. Mannskrattinn tók hétfyndni minni géðlát- lega, sagðist sjá skemmtanafýsnina skína ut ur ásjonum okkar og héf að freista okkar með flestum heimsins lystisemd- um. Nefndi hann fyrst kvikmyndahus dóna- legra mynda, því næst leynileg vershus, þar sem siðleysi væri með ágætum. Ekki kvað umræddur karakter vandkvæði á því að koma okkur í samband við glað- ar konur ýmiss þjóðernis og eiturlyf væru á næsta leiti, ef við vildum. For þá að hýrna yfir mér. Þessi postuli sællífisins varð feikn dapur, er við þágum ekki boð hans, og hékk mannkertið í klæðum okkar allt til gisti- hússins. Notaði ég tækifærið og spurði hann í þaula um skuggalega fortíð og framtíðar- horfur, sem ég hirði ekki um að skýra frá hér. Skildumst við í anddyri Frönsku villu, þar sem móðir mín beið okkar óþreyju- full. Þegar ég gekk til náða skömmu síðar, hugsaði ég mikið um freistingar þær, er bíða sakleysingja á götum borgarinnar, og það £ór hrollur um líkama minn, þegar ég hugleiddi örlög þeirra einfeldninga, sem hefðu ekki mína sterku siðferðis- kennd og þekktu ekki vélar og bellibrögð andskotans. Sem mörgum er kunnugt, er skemmt- analíf með fádæmum magnað í ýmsum stórborgum Vesturálfu, en einn liður þess er næturlífið eða rökkurgamanið, hvers er að leita í næturklubbum. Rökkurgamanið getur verið nokkuð breytilegt eftir löndum, þar sem þjóðir eru misjafnlega ruddalegar. Vér sjáum konu afklæðast á palli í París og þykir grasiöst og indælt; vér sjáum Entkleidungsschau í St. Pauli - og þykir klúrt. Hér kemur skapgerð þjóða berlega í Ijós, og er þetta merkilegt rannsóknar- efni fyrir salfræðing, jafnvel efni í doktor sritgerð. Parísarborg mun vera mesta gleði- borg álfunnar, og hætt er við.að tilfinn- ingar manna komist í uppnám, er þeir líti dansflokka Lídós og Rauðu myllunn- ar augum í fyrsta sinni. Ýmsar háborgir fylgja á hæla Parísar, og varð ég forviða, er ég komst að raun um, að í borginni Kaupinhöfn á eyjunni Sjálandi væri næturlíf blómlegra en víð- ast hvar annars staðar. Það er mikill skaði, að sú borg er nú gengin okkur úr greipum. En sá er galli á gjöf Njarðar, að hinir rándýru og glæstu skemmtistaðir heimsborganna eru ákaflega keimHkir, og verða öllum hinum reyndari ferða- mönnum hvimleiðir. Sá lýður, er skemmtir fólki á þessum siöðum, ferðast land úr landí, og eiga ferðalangar jafnan á hættu að sjá sama loddarann margsinnis. Ég minnist þess að hafa séð sama karlskrattann í London, París og Höfn og hafði þá fengið nægju mína. Ef ég man rétt, hét karl- inn Chaz Chase, og hann át utan af sér klæðin, hámaði í sig hatt, hálsknýti og skyrtu við almennan fögnuð áhorfenda. Því er það, að allir gáfaðir ferða- menn sækja fremur öldurhús innfæddra og fylgjast með teiti þeirra. Þar er íburður minni, en hægara að komast í snertingu við landsins börn og allt það. Næturklúbbar Spánar eru undantekn- ing frá því, sem að framan greinir. Þar er borin á borð þjóðleg dans, - hljóm- og sönglist af alvarlega þenkjandi fólki, sem biðst gjarna fyrir áður en það kemur fram, og eru þetta hlýlegir og hugljúfir staðir ( að öllum jafnaði ). Opinberir skemmtistaðir Tangersborg-

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.