Skólablaðið - 01.03.1960, Page 20
- 108 -
y
ASalgallinn við flest það efni, sem
birzt heíur í Skolablaðinu í árs er, eins
og ævinlega áður, íhaldssemi höfundanna0
Undirstaða allrar raunhæfrar listsköpunar
er að skilja kall tímans, og tiltölulega
£áir virðast hafa gert ser grein fyrir
þeirri staðreynd0
Nu er ekki hægt að ætlast til þess, að
óharðnaðir unglingar skili af ser full-
komnum skáldverkum, en það væri a.m.k,
gleðilegt að sjá nokkra viðleiini0
Of margir hafa. enn JÓn Trausta sem læri-
föður og æðstaprest. Það hefur mikið
vatn runnið til sjávar síðan Jon var og
hét, og ekki hafa duttlungar skáldgyðjunn-
ar verið síður breytingum undirorpnir.
Þá er að víkja að einstökum atriðum.
í i.tbl0 verður fyrst fyrir ávarp og
"01110 novi? ", hvort tveggja eftir rit-
stjóra„ Þráinn skrifar afbragðs skemmti-
lega og lætur jafnvel enn betur að rita
bálfkæring en "alvarlegar" ferðalýsingar0
Er mjög vafasamt, að annar skemmtilegri
stílisti finnist í skólanum nú á þessum
síðustu og verstu tímum.
Þá er "Frumbýlingar" Guðjóns Al-
bertssonar. Ekki er ósennilegt, að í Guð-
jóni búi nokkuð efni. Að vísu hafa verk-
efnin ekki verið ýkja háfleyg, en viðleitn-
in virðist mikil, og formið stendur til
bóta. Saga Guðjóns í 2„ tbl. , "Ævintýri
af árgerð ~'59n, er einna skemmtilegust
aflestrar, en þar er formið áberandi lak-
ast0 Guðjón ætti að breyta til í vali
verkefna, og þá er áreiðanlega nokkurs
að vænta af honum.
Blekslettur Einars Más eru vel s'krif-
aðar, þótt ekki se ádeilan ný af nálinni.
Þá er komið að skáldskap Gísla Sígur-
karlssonar0 Gísli er nu einn um að yrkja
rímað opinberlega í skólanum, og er það
allilla farið. Ekki virðist hann eiga erfitt
með rímið og stuðlana, en efnisvalið er
allt of einhæft. Það er ótrúlegt, að jafn
ungur maður eigi ekki annað en steingrá-
an Weltschmertz í pokahorninu.
Dandi menn hlutu útför í þessu tbl.
f staðinn hafa vefið tekin upp viðtöl við
ýmsar merkispersónur skólans. Þetta er
hin ágætasta tilbreyting o| ritnefnd til
sóma. Her er farið inn a nýja braut, en
það hefur því miður verið of sjaldgæft í
undanförnum árgöngum0
Grein um skáldið Cummings og nauta-
at í Barcelona reka lestina I l.tbl.
Cummings er mjög forvitnilegur, hvar
sem á hann er litið, enda er bann mjög
lítt kunnur hér á landi, eins og flest önn-
ur nútíma skáld enska heimsins.
2. tbl.-Blekslettur Sigurðar Steinþórs-
sonar eru bráðskemmtilegar, en sama
Frh0 á bls. 110.