Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 22

Skólablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 22
110 - RITDÓMUR, frh. af bls. 108. verGur vart sagt um "Hjarastriplsþátt". Þar er rækilega skotið yfir markið, jafn- vel formið er upptugga. Hið eina, sem sagt veröur þætti þessum til hróss, er orðkynngi höfundar, sem er geysimikil. Þá er sagan "Ég sjálfur, komplexinn og séníið". Þetta er ágætis saga. Fyrirtak um form og stíl, að vísu dálítið ódýr undir lokin, en sem sagt, eitt það bezta í vetur. "Karlinn í tunglinu" er varla umtalsverð- ur.en í síðustu greininni í tbl. "Intelligens - inn", er gerð tilraun með nýtt form. Hafi höf. ætlað að skapa alvarlegt skáldverk í stíl við Beckett eöa Ionesco, er greininmis- heppnuð. Það er ekki að sjá, að neinn boð- skapur leynist á bak við mælgina, því síður súrrealistísk analýsa. Hins vegar úir og grúir af smá skemmtilegheitum í leikritinu, stolnum og óstolnum, og frá því sjónarmiði er verkið vel læsilegt. Aðalerfiðleikarnir við samningu verks sem þessa er skortur á tradition. íslenzkar eru snauðar af slíkum hýpermódernisma og því nauðsynlegt að kynna sér erlend verk í svipuðum stíl. Sumir hafa látið í Ijós þá skoðun, að "Intelligensinn" sé stæling á "Endaleysu" jóta kappa, sem birtist í blaðinu í fyrra. Ekki þótti mér það áberandi. 3. tbl. - Málefnalega er grein Þorsteins Gylfasonar "Villiöndin og heimsstríðið" ekki sérlega frumleg. Hins vegar er Þor- steinn mjög þroskaður stílisti og skemmti- legur aflestrar. - Atómljóðið "Metafysik" (tæpast réttnefni) er áreiðanlega með því betra, sem sést hefur af því tagi í blaðinu. Svo er það sagan "Hann stangaði mig". Þetta er mjög skemmtileg paródía. Ef ég hef skilið höf. rétt, þá er hér um að ræða skopstælingu á lífsreynslusögum þeim, sem svo mjög vaða uppi. Margir hafa misskiliö söguna í fljótfærni, en í rauninni ætti ekki að vera mikil hætta á því. - Menningar- frömuður skólans, Ólafur Grímsson, ritar langt mál í þetta tölublað. Þó að varla séí mínum verkahring að ræða greinina mál- efnalega, held ég, að Ólafur sé fullstórhuga í tillögum sínum. Þær eru þó vel umtals- verðar, og Ólafur sýnir lofsverðan áhuga á vandamálum félagslífsins. - Sagan "Mann- anna börn" er mér tjáð, að sé stolin úr blaði Kennaraskólans, og er afar illt, ef rétt reynist. - Loks er grein Hannesar Há- varðarsonar um Franz Kafka. Hannes er einn af fáum sönnum listunnendum skólans og hefur unnið ágætt starf við kynningu hinna ýmsu listgreina. Grein hans um Kafka er enda hin fróðlegasta og ágæt- lega skrifuð. _ ... 6 Critieus BLEKSLETTUR, frh. af bls. 103. lítilræði, t. d.hjarta og hönd Jóhannesar Áskelssonar. Málalok eru enn ókunn. Sú stefna virðist nú í hávegum höfð með- al kennara, að frí í tSma sé nokkuð, sem eigi ekki að þekkjast í skólan- Kennarar um nema af afspurn. Slík er öfgastefnan, að vart er gerlegt að fá að skreppa úr tíma. Þetta er nokkuð, sem ber vafasaman hagnað. Tímafrí ööru hverju lífga nemendur og glæða áhuga á námi, en auka jafnframt vinsældir kennara. Hér er ekki verið að fara fram á stöðug frí, því að það er sízt betra. En væri úr vegi að sýna örlítið meiri lipurð öðru hverju? Framan af í vetur hefur starfað í skólan- um nefnd manna að breytingum á lögum skólafélagsins. f byrjun febrúar Laga- skilaði hun áliti. Var haldinn breytingar skólafundur um breytingartil- lögurnar. Þar fór málið þannig, að allar tillögurnar voru felldar, en sett á laggirnar nefnd, er ynni markvisst að hag- kvæmari breytingum. Flestir vita, að lög skólafél. eru mjög úrelt. Undanfarin ár hafa nefndir starfað að breytingum þeirra og enn virðist ærið starf fyrir hendi. Væri ekki réttast að fara í lögfræðinga með draslið og láta þá breyta þeim eins og þörf krefur. pár. SKÓLAB LAÐIÐ Gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík Ritstjóri: Þráinn Eggertsson 5. -B Ritnefnd: Gunnlaugur Geirsson 6.-B Guðjón Albertsson 5.-B Árni Bergur Sigurbjörnss. 4.-B Einar Mar jónsson 4.-B Sverrir Holmarsson 4.-B Markús Ö. Antonsson 3.-D Auglýsingastjórar: Garöar Gíslason 4.-B Gunnar Gunnarsson 4.-B Áby r gð armaöur: Guðni Guðmundsson, kennari Myndir dró Gunnar Eyþórsson, en Garðar Gíslason sá um skreytingar.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.