Magni - 22.12.1971, Page 14
14
M A G N I'
Miðvikudagur 22. desember 1971
Ásgeir R. Guðmundsson afhendir Gylfa ísakssyni
Gjafir til sjúkrahússins
Jólagaman
Spurningaleikup
SPURNIN GALEIKUR
Einn úr hópnum gengur á milli
manna og spyr þá eftirfarandi
spurninga. Sá, sem spurður er,
svarar með því að nefna ein-
hverja tölu frá 1-20. Og vísar
tala sú, er hann nefnir, á svarið
við spurningunni.
1. Hvernig ertu?
1. Ég er ágjarn.
2. Ég er matvandur.
3. Ég er hégómagjarn.
4. Ég er rólegur.
5. Ég er skapvargur.
6. Ég er drengur góður.
7. Ég er leiðinlegur.
8. Ég er kvenhollur.
9. Ég er fljótfær.
10. Ég er orðheldinn.
11. Ég er smásálarlegur.
12. Ég er höfðingi í lund.
13. Ég er sniðugur.
14. Ég er kaldlyndur.
15. Ég er til í allt.
16. Ég er latur.
17. Ég er greiðvikinn.
18. Ég er nöldurskjóða.
19. Ég er grobbinn.
20. Ég er raupsamur.
2. HVAÐ ÞYKIR ÞÉR
SKEMMTILEG AST ?
18. Tungli í fyllingu.
19. Þrumum og eldingum.
20. Rjúpu.
5. HVERNIG A KONAN ÞlN
AÐ VERA?
1. Góð húsmóðir.
2. Öll á þvervegin.
3. Gáfuð og menntuð.
4. Kennslukona.
5. Stjórnmálaskörungur.
6. Bankastjóri.
7. Uppeldisfræðingur.
8. Há og grönn.
9. Litfríð og ljóshærð.
10. Trygg og drenglynd.
11. Skapvargur.
12. Hún á að stjórna manni sín-
um.
13. Falleg og heimsk.
14. Ómáluð.
15. Hégómagjörn.
16. Mikið fyrir kaffi.
17. Eins og tungl í fyllingu.
18. Gefin fyrir fallega kjóla.
19. Bókaormur.
20. Löt og leiðinleg.
6. HVERNIG Á MAÐURINN
ÞINN AÐ VERA?
1. Alþingismaður.
2. Stuttur og digur.
3. Stórauðugur nirfill.
4. Togaraskipstjóri.
5. Langur og mjór.
6. Hlýðinn konu sinni.
7. Heimspekingur og skáld.
8. Bóndi.
9. Með grátt, langt skegg.
10. Harðstjóri.
11. Góður heimilisfaðir.
12. Alltaf í góðu skapi.
13. Heimskur.
14. Dálítið montinn.
15. Mömmudrengur.
16. Gáfaður og ljótur.
17. I sinfóníuhljómsveitinni.
18. Hið mesta kvennagull.
19. Mikill matmaður.
20. Hjólbeinóttur.
Kiwanisklúbburinn Þyrill á
Akranesi afhenti Sjúkrahúsi
Akraness þann 29. okt. sl. tvær
veglegar gjafir að verðmæti
um krónur 160.000,00. Fyrir-
burðarkassa — sem ætlaður er
börnum, er fæðast fyrir tímann.
Hann er upphitaður með raf-
magni og útbúinn ýmsum ör-
yggisútbúnaði m.a. súrefnis-
gjafa. Einnig sérstaklega útbú-
ið sjúkrarúm fyrir hjartasjúkl-
inga.
Fjár var aflað með ýmsu
aiiimiimiiiHimiimiiimiiiHiiimiiiiHiiimiimii
móti, svo sem með útgáfu síma
skrárkápu, flugeldasölu um ára-
mót, blómasölu á konudaginn
o.fl.
Mánudagskvöldið 27. des. nk.
munu Kiwanisfélagar fara um
bæinn og bjóða til sölu flug-
elda til fjáröflunar fyrir mark-
mið klúbbsins, og er ekki að efa,
að bæjarbúar munu taka þeim
vel.
Forseti Kiwanisklúbbsins Þyr
ils er Ásgeir R. Guðmundsson,
fulltrúi.
■iiiimiimiiiHiiimiiimiiiHiiimiinmiiHiiimiiiHiiiii
Nýr framkvæmdastjóri
Á sl. sumri ákvað stjórn
Sementsverksm. ríkisins í sam-
ráði við Iðnaðarráðuneytið að
við verksmiðjuna skuli starfa
tveir framkvæmdastjórar. Ann-
ar fari með stjórn tæknimála
og framleiðslu, en hinn stjórn
viðskipta- og fjármála.
I sept. var dr. Guðmundur
Guðmundsson efnaverkfræðing-
ur ráðinn tæknilegur framkvstj.
og tók hann við störfum 1. des.
sl. Umsækjendur voru 6.
I nóv. var auglýst laust til
umsóknar starf framkvæmda-
stjóra viðskipta- og fjármála
með umsóknarfresti til 1. des.
Tvær umsóknir hárust. Stjórn
verksmiðjunnar hefur ekki enn
gengið frá veitingu starfsins.
Svavar Pálsson viðskiptafræð-
ingur og löggiltur endurskoð-
andi hefur gegnt því síðan 1.
nóv. 1968.
Dr. Guðmundur Guðmunds-
son er fæddur í Reykjavík 6.
maí 1933, en alinn upp að Barði
í Fljótum, þar sem faðir hans
var prestur um langt skeið.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1954 og
tók próf í efnaverkfræði frá
Tækniskólanum í Stuttgart árið
1963. Hann varð doktor við
sama skóla 1964. Að því loknu
hélt hann til íslands og réðist
sem verkfræðingur til Atvinnu-
deildar háskólans. Árið 1965
réðist hann til Rannsóknarstofn
unar byggingariðnaðarins og
hefur starfað þar síðan við rann
sóknir byggingaefna og sem
deildarstjóri.
Dr. Guðmundur er kvæntur
þýzkri konu — Hiltrud Annelise
— og eiga þau 3 börn. Fjöl-
skyldan flutti til Akraness í
nóv. sl.
Magni býður dr. Guðmund vel
kominn til hinna umfangsmiklu
starfa á Akranesi.
Kirkjan
Hinn 11. nóvember sl. afhenti Kirkju-
nefnd Akraneskirkju kirkjunni rausn-
arlega gjöf. Haföi nefndin látiö setja
áklæöi á bekki kirkjunnar — úr vönd-
uöu íslenzku efni — og greitt aö öllu
úr sjóöi sínum. Er hér um upphæö að
ræöa, er nemur all-mikið á annað
hundraö þúsund krónum.
Kirkjunefndin, — en hana skipa 14
konur, — hefur á undanförnum mörg-
um árum lagt kirkjunni til ýmsar góöar
gjafir — þarfar og til prýðis henni.
Hefur nefndin aflaö aura í sjóö sinn
meö merkjasölu vor og haust, svo og
meö kaffisölu á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní undanfarin nokkur ár. Bæjar-
búar hafa almennt stutt nefndina í
fjáröflun hennar af skilningi og góö-
hug. — Á kirkjunefndin miklar þakkir
skyldar — alls safnaðarins fyrir hiö
myndarlega framlag til Akraneskirkju
— fyrr og síðar — og það starf, er
að baki liggur.
1. Að slæpast..
2. Að dansa.
3. Að horfa á stúlkur (pilta).
4. Að lesa góðar bækur.
5. Að borða góðan mat.
6. Að fara á skíðum.
7. Að vera eldabuska (kokkur)
8. Að vera í skólanum.
9. Að vera með nefið niðri í
öllu.
10. Að telja peningana mína.
11. Að sofa.
12. Að gera eitthvert gagn.
13. Að ferðast.
14. Að láta hrósa mér.
15. Að horfa á kvikmyndir.
16. Að standa á höfði.
17. Að ganga á fjöll.
18. Að tala.
19. Að vinna.
20. Að búa til sápukúlur.
3. HVAÐÞYKIRÞÉR
VÆNZT UM?
1. Sjálfan mig.
2. Það, sem enginn má vita.
3. Köttinn.
4. Pabba og mömmu.
5. Matinn.
6. Bækur.
7. Sumarið.
8. Þann, sem næst mér situr.
9. Sparisjóðsbókina mína.
10. Forsetann.
11. Buxurnar mínar.
12. Gamlar kerlingar (karla).
13. Peninga.
14. Sjónvarpið.
15. Spegilinn.
16. Landið mitt.
17. Heimilið mitt.
18. Sólina.
19. Hafið.
20. Yfirskeggið á nýja kennar-
anum.
4. HVERJU LÍKIST ÞÚ
MEST?
1. Gulrófu.
2. Reiðum hana.
3. Pétri postula.
4. Símastaur.
5. Hallgerði Langbrók.
6. Hallgrímskirkju.
7. Flugvél.
8. Hagamús.
9. Skriðdreka.
10. Dúkkulísu.
11. Kínverja.
12. Kanínu.
13. Hesti.
14. Jólasveini.
15. Eldfjalli.
16. Indverskum fíl.
17. Apa.
BiiiiHiiiiBiiiHiHiiiHniiiHiiMiiiiBiiiiHiiiwiimiifliiiimiBiiimimiimiíii*111
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
RÍKISINS
AUGLÝSIR
Eindaginn 1. febrúar 1972
fyrir lánsumsóknir vegna íbúða í smíðum.
Húsnæðismálastofunuin vekur athygli hlutaðeig-
andi aðila á neðangreindum atriðum:
1.
Einstaklingar, er hyggjast hefja byggingu íbúða
eða festa kaup á nýjum íbúðum (íbúðum í smíðum)
á næsta ári, 1972, og vilja koma til greina við veit-
ingu lánsloforða á því ári, skulu senda láns-
umsóknir sinar með tilgreindum veðstað og tilskild-
um gögnum og vottorðum til stofnunarinnar fyrir
1. febrúar 1972.
2.
Framkvæmdaaðilar í byggingariðnaðinum, er hyggj-
ast sækja um framhaldslán til íbúða, sem þeir
hyggjast byggja á næsta ári, 1972, skulu gera það
með sérstakri umsókn, er verður að berast stofn-
uninni fyrir 1. febrúar 1972, enda hafi þeir ekki
áður sótt um slík lán til sömu íbúða.
3.
Sveitarfélög, félagssamtök, einstaklingar og fyrir-
tæki, er hyggjast sækja um lán til byggingar leigu-
íbúða á næsta ári í kaupstöðum, kauptúnum og a
öðrum skipulagsbundnum stöðum, skulu gera það
fyrir 1. febrúar 1972.
4.
Sveitarstjórnir er hyggjast sækja um lán til ný-
smíði íbúða á næsta ári (leiguíbúða eða söluíbúða)
í stað heilsuspillandi húsnæðis, er lagt verður niður,
skulu senda stofnuninni þar að lútandi lánsumsóknir
sínar fyrir 1. febrúar 1972, ásamt tilsikldum gögn-
um sbr. reglugerð nr. 202/1970, VI. kafli.
5.
Þeir, sem nú eiga óafgreiddar lánsumsóknir hja
stofnuninni, þurfa ekki að endurnýja þær.
6.
Umsóknir um ofangreind lán, er berast eftir 31-
janúar 1972, verða ekki teknar til meðferðar við
veitingu lánsloforða á næsta ári.
Reykjavík, 29. október 1971
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
RÍKISINS
Laugavegi 77 - Sími 22453
IIIIHIIIHIIIHIIIIHIIIHIIIHlllHiiiiHilllHIIIIHIIIHIIIHIIIHIIIHIIIHIIIHIIIHIIlHIIII0