Morgunblaðið - 22.12.2009, Page 27

Morgunblaðið - 22.12.2009, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Sjaldgæf sjón Stórvirkum vinnuvélum var stillt upp við Alþingishúsið í gær þegar fjöldi verktaka efndi til mótmæla. Fjárlaganefnd var afhent áskorun um að koma hjólum atvinnulífsins í gang. Ómar New York | Nicolae Ceau- sescu kunni vel við sig á bjarnarveiðum. Hann átti til að halda á sveita- setur í Transylvaníu með föruneyti og al- væpni og hefja skothríð. Og lánið lék ávallt við hann því að aðstoð- armenn hans í veiðinni tóku enga áhættu. Þeir fundu vesælt dýr, hlekkjuðu við tré og fylltu af lyfjum svo það héldi kyrru fyrir. Síðan földu þeir sig í nágrenni við staðinn þar sem hinn mikli leið- togi mundaði vopnið. Dag einn köstuðu þeir höndunum til verksins. Ceausescu miðaði og féll síðan aftur yfir sig þegar björninn, sem ekki hafði fengið nógu stóran skammt af deyfilyfjum, reis á aft- urlappirnar. Skot hans fór í krónur trjánna um leið og þrjú skot úr byssum leyniskyttna sem áttu að tryggja að ekki bæri skugga á óbrigð- ula skotfimi leiðtogans, höfnuðu í hjarta bjarnarins. Þennan dag, sagði mér skógarvörður, sem varð vitni að atvikinu, brást Ceausescu ekki við fagnaðarlátum aðstoðarmanna sinna. Þetta gæti verið saga rúmensku byltingarinnar fyrir tuttugu árum. Björninn er ánauðug þjóðin. Hún rís úr dvala sínum. Skelkaður keisarinn hleypir af í fáti og missir marks. Skytturnar í skóginum miða og skjóta, en að þessu sinni er skotmark þeirra ekki björninn heldur Ceau- sescu sjálfur. Rétt eins og dýrð frönsku bylting- arinnar lyktaði með ógn lauk ári undranna í Austur-Evrópu með blóð- baði. Annars staðar var eins og kommúnistastjórnir nánast flýðu völd. Fólkið, sem setti þær af, fagnaði nánast sársaukalausum sigrum. Öðru gegndi um Rúmeníu. Þar fyrirskip- uðu kommúnistaforingjar landsins öryggissveitum að skjóta á fólkið. Þær hlýddu. Borgarastyrjöld braust út en stóð reyndar stutt. Bylting breyttist í laumuvaldarán. Atburðarásin hófst um miðjan des- ember í Timisoara, harðbýlum iðn- aðarbæ skammt frá landamærum Ungverjalands. Þegar Ceausescu skipaði hernum að sýna vald sitt þeim, sem dirfðust að bjóða honum birginn, tóku herforingjarnir hann bókstaflega: þeir settu á svið skrúð- göngu og létu meira að segja lúðrasveit fylgja. Farsinn breytt- ist brátt í harmleik þegar einræðisherr- ann lét bræði sína í ljósi. „Ég átti við skriðdreka, fíflið þitt,“ sagði hann nokkurn veginn við Iulian Vlad herforingja og hótaði að leiða hann fyrir af- tökusveit ef hann hlýddi ekki. Þetta kvöld dóu rúmlega hundrað rúm- enskir borgarar á götum úti og hundruð til viðbótar særðust. Einræðisherrann afhjúpaður Restin er vel þekkt. Að morgni 21. desember kom Ceausescu fram á svölum húss miðstjórnarinnar í hjarta Búkarest til að ávarpa fólkið – sveitir ríkisstarfsmanna, sem safnað hafði verið saman eins og venjan var til að fagna eftir pöntun. En eitthvað fór úrskeiðis. Aftast í stórum áheyr- endahópnum heyrðist hrópað: „Ti- mi-soara! Ti-mi-soara!“ Svo kom hin örlagaríka upphrópun, fyrst úr hálsi eins eða tveggja, en síðan tóku fleiri undir: „Niður með Ceausescu!“ Aldrei hafði Ceausescu heyrt neitt þessu líkt. Andlit hans seig. Hann var sleginn út af laginu og hætti að tala, veifaði höndunum í óttablandinni undrun, veikburða og áhrifslaust handapat loddara. Þessi stund sann- leikans stóð aðeins í nokkrar sek- úndur en það var nóg. Hann var af- hjúpaður. Allir á torginu og allir, sem fylgdust með í beinni útsendingu í sjónvarpi, sáu það greinilega. Keis- arinn var ekki í neinum fötum. Átök brutust út á milli hersins, sem tók málstað fólksins, og hópa innan leynilögreglunnar, sem voru hliðholl- ir Ceausescu. Leyniskyttur skutu af þökum og hleypt var af fallbyssum skriðdreka á torginu, sem nú er kennt við byltinguna, með þeim af- leiðingum að kviknaði í þjóð- arbókasafninu. Á jóladag, eftir þriggja daga eltingaleik, voru ein- ræðisherrann og kona hans hand- tekin, dæmd og tekin af lífi af dómstól götunnar. Tvær byltingar Sennilega er aldrei allt sem sýnist þegar gerð er bylting, en í Rúmeníu var sérlega margt óljóst. Ástæðan er sú að þegar Ceausescu flutti ræðuna varð hún að tveimur byltingum. Önn- ur átti sér stað fyrir opnum tjöldum á götum úti. Hin var djúpstæð valda- barátta bak við tjöldin á milli ráðandi stétta landsins. Ég skynjaði þetta þegar ég kom til Búkarest 26. desember. Þegar ég heimsótti sjónvarpsstöðina, sem ný bráðabirgðastjórn undir heitinu Hjálparfylking þjóðarinnar hafði lagt undir sig, fann ég fyrir undarlega blöndu af byltingarleiðtogum. Ég skildi ljóðskáldin, stúdentana, and- ófsmennina og að eigin sögn óánægða embættismenn. En Stefan Gruse, æðsti yfirmaður hersins, sem hafði stjórnað hernum í Timisoara? Ion Iliescu, sem hafði verið helsti áróð- ursmeistari Ceasusescus? Kannski stakk mest í augu að þarna var staddur Victor Stanculescu herforingi, sem var í uppáhaldi hjá Ceausescu og sagt var að hefði skipu- lagt brottflutninginn af þaki húss miðstjórnarinnar. Einnig var hermt að hann hefði í kjölfarið bæði skipu- lagt réttarhöld þeirra og aftökusveit – jafnvel áður en málflutningur hófs. „Réttarhöldin“ sjálf stóðu skemur en í klukkutíma. Tæpum sjö mínútum eftir að úrskurður hafði verið kveðinn upp höfðu böðlarnir lokið verki sínu. Aftakan var kvikmynduð og sýnd steini lostinni þjóð næsta dag, en í flýtinum var rafmagnskapall kvik- myndatökumannsins slitinn úr sam- bandi í þann mund sem hin dæmdu hjón voru dregin inn í portið og þegar hann náði þeim voru hermenn byrj- aðir að skjóta. Nicolae Ceausescu lá á bakinu í frakka og jakkafötunum, sem hann hafði flúið í, og tóm, blágrá augu hans störðu upp í himininn. Liðið hafi yfir Elenu og hún hafði verið skotin þar sem hún lá. Eftir Michael Meyer » Ceausescu og kona hans, hin illræmda Elena, flúðu af þaki húss miðstjórnarinnar í hvítri þyrlu um leið og almenningur réðst inn í bygginguna. Michael Meyer Höfundur var yfirmaður skrifstofu tímaritsins Newsweek í Þýskalandi og Austur-Evrópu árið 1989. ©Project Syndicate, 2009. www.project-syndicate.org Á bjarnarveiðum í Rúmeníu HINN 18. desem- ber birtist hér í blaðinu grein eftir Pál Gunnar Pálsson, for- stjóra Samkeppniseft- irlitsins, sem svar við grein minni frá 16. þessa mánaðar. Til umfjöllunar var nýlegt álit stofnunarinnar um sameiningu í mjólk- uriðnaði. Í upphafi skýrir greinarhöfundur þær for- sendur samkeppnislaga sem að baki álitinu liggja og skal það þakkað. Jafnframt er mér bæði rétt og skylt að biðjast forláts á því að hafa í einfeldni minni talið að umrædd lög snerust um að tryggja hérlendis heilbrigða viðskiptahætti, en ekki það eitt að innleiða í sam- félagið kreddur sem flestum mun orðið ljóst að eru verulega glopp- óttar. Greinarhöfundur segir mig hitta naglann á höfuðið þegar nefnd eru hliðstæð dæmi erlendis og hér- lendis í sameiningu mjólkuriðnaðar. Það er hárrétt og ekkert í hans máli kemur mér á óvart. Hins veg- ar slær hann sjálfur á fingur sér í framhaldinu. Víðast hvar er við- urkennt að sameining og sérhæfing vinnslustöðva sé hagkvæmasta að- ferðin í mjólkuriðnaði. Eitt skýr- asta dæmið er nýsjálenska fyr- irtækið Fonterra sem vinnur um 95% landsframleiðslunar, er það talin öruggasta leiðin til að tryggja bændum hámarkshlut í skilaverð- inu þar í landi. Forstjórinn telur síðan upp dæmi af samrunum í ná- grannalöndum, auk Nýja-Sjálands, þar sem verulegar hömlur hafi ver- ið lagðar á fyrirtækin. Hann nefnir þó ekki, nú fremur en áður, að bú- vörulög skylda Mjólkursamsöluna til að dreifa um allt land drykkjar- mjólk og öðrum grunnmjólkur- vörum fyrir sama verð. Auk þess að tryggja hverjum sem það vill mjólk til vinnslu á föstu verði. Þessu til viðbótar er fyrirtækinu skylt að greiða bændum lögbundið lágmarksverð fyrir innlagða mjólk, það eru aðstæður sem t.a.m. evr- ópskir bændur myndu tæplega fúlsa við í dag. Aug- ljóst er því að þetta eru ekki minni kvaðir en lagðar eru á sam- bærileg fyrirtæki í ná- grannalöndunum. Allt þetta gerir grein- arhöfundur að engu og sér auk þess ekki ástæðu til að gaum- gæfa nýjar rauntölur sem nefndar eru, sem sýna svo ekki verður um villst að allri hag- ræðingu í íslenskum mjólkuriðnaði síðustu ár hefur ver- ið skilað til neytenda. Hins vegar vísar hann máli sínu til stuðnings í gamla skýrslu; samda af honum sjálfum. Ef af samruna Mjólku og KS verður mun það engu breyta um heildaráhrif á íslenskan mjólkur- vörumarkað. Hver sem vilja hefur til getur hafið mjólkurvinnslu, ým- ist með kaupum á vinnslumjólk eða beinum samningum við bændur. Búvörulögin og samningar sem reistir eru á grunni þeirra eru hins vegar trygging íslenskra bænda gegn fjárhagslegum loftfimleikum fyrirtækja á þessu sviði. Í niðurlagi segir greinarhöf- undur síðan óútskýrt hvaða hags- muni forsvarsmenn Lands- sambands kúabænda eru að vernda með málflutningi sínum. Ég get hins vegar glatt Pál Gunnar með því að öll stjórn landssambandsins þarf á hverju ári að leggja verk sín í dóm umbjóðenda í leynilegri kosningu á aðalfundi. Þá skýrist væntanlega hvort kúabændur eru honum sammála. Ég vil svo að lokum óska for- stjóra Samkeppniseftirlitsins, fjöl- skyldu hans, samstarfsfólki sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Að hitta naglann á höfuðið Eftir Sigurð Loftsson » Augljóst er því að þetta eru ekki minni kvaðir en lagðar eru á sambærileg fyrirtæki í nágrannalöndunum. Sigurður Loftsson Höfundur er formaður Landssambands kúabænda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.