Morgunblaðið - 22.12.2009, Page 28

Morgunblaðið - 22.12.2009, Page 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Skoðið ávallt leiðbeiningar um rétta og örugga notkun er fylgja kertum Munið að slökkva á kertunum Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins LÖGGILDING leið- sögumanna ferða- manna eða lögverndun starfsheitis hið minnsta er löngu tíma- bær til aðgreiningar á fagmenntuðum leið- sögumönnum ferða- manna og annarra sem hvorki hafa hlotið til þess menntun né starfsþjálfun. Þór Magnússon, fyrrverandi þjóð- minjavörður, skrifaði grein í Morg- unblaðið í byrjun mánaðarins undir fyrirsögninni „Ljót saga“ sem fjallar um leiðsögn sögumanns í drauga- göngu um Reykjavík. Í greininni spyr höfundur hvaða siðareglur gildi í Félagi leiðsögumanna og hvort leið- sögn eins og höfundur gagnrýnir í greininni sé til þess fallin að styrkja og auka traust á ferðaþjónustu á Ís- landi. Án þess að leggja dóm á um- rætt atvik er mikilvægt að draga fram þá staðreynd að til eru a.m.k. þrír flokkar leiðsagnar í borgum. Í fyrsta lagi er hefðbundin leiðsögn með fagmenntuðum leiðsögumanni. Í öðru lagi er leiðsögn sérfræðings, t.d. arkítekts. Og í þriðja lagi er leið- sögn innt af hendi af ófagmennt- uðum einstaklingi í óhefðbundnum ferðum eins og Þór fjallar um. Eðli málsins samkvæmt er viðkomandi ekki félagsmaður í Félagi leiðsögu- manna. Ótækt ástand ríkir í málefnum nær 1.300 fagmenntaðra leiðsögu- manna, ekki síst í ljósi þess að stjórnmálamenn hafa frá hruni ís- lensku bankanna lagt mikla áherslu á mikilvægi ferðaþjónustu í end- urreisnarstarfinu. Brýnt er að ráð- herra ferðamála löggildi starf leið- sögumanna eða starfsheiti í það minnsta og að Ferðamálastofa haldi utan um leyfisveitingu. Lagasetning yrði fagstéttinni hvatning og neyt- endum sem sjaldan gera greinarmun á ólíkum flokkum leið- sagnar til mikilla hags- bóta. Samtök ferða- þjónustunnar, samtök atvinnurekenda í ferða- þjónustu og viðsemj- andi leiðsögumanna í kjarasamningum hafa til þessa lagst gegn slíku framfaraskrefi fyrir neytendur á röng- um forsendum. Evrópustaðall um lágmarksmenntun leið- sögumanna tók gildi samtímis í 27 löndum að Íslandi meðtöldu árið 2008. Brýnt er að ráðherra ferða- mála veiti þessum staðli braut- argengi hér á landi með lagasetn- ingu sem tryggir neytendum lágmarksgæði leiðsagnar og auð- veldar frjálst flæði leiðsögumanna í Evrópu. Samþykkt Staðlaráðs Ís- lands ein og sér dugir ekki til að virkja staðalinn hér á landi heldur verður hann að fá stoð í lögum eða reglugerð. Í vor bætast nær 160 nýir leiðsögumenn í hóp fagmenntaðra leiðsögumanna á Íslandi frá þremur skólum sem bjóða upp á ósamræmt námsframboð. Það er synd ef Ísland staðfestir staðalinn síðast allra landa en þangað til getur hver sem er stofnað leiðsöguskóla og kennt þar það sem honum sýnist. Engin þjóð sem tekur ferðaþjónustu alvarlega getur látið slíkt viðgangast. „Leiðsögumenn“ í draugaferðum Eftir Stefán Helga Valsson Stefán Helgi Valsson » Brýnt er að ráðherra ferðamála löggildi starf leiðsögumanna eða starfsheiti í það minnsta og að Ferða- málastofa haldi utan um leyfisveitingu. Höfundur er ritstjóri vefsíðu og fréttabréfs Félags leiðsögumanna og kennari leiðsögunema í áratug. Sjálfstæðismenn, sem eru í meirihluta sveitarstjórnar á Álftanesi, hafa ákveðið að hækka útsvar um 10% og fasteignagjöld um 43% fyrir árið 2010. Þetta gengur þvert á yfirlýsta stefnu flokksins um leiðina út úr þrenging- unum en hún er að hækka alls ekki skatta, slíkt leiði til þess að tekjustofnarnir hrynji og kreppan dragist á langinn. Hvernig telja sjálfstæðismenn að annað gildi á Álftanesi þar sem álögur þeirra bætast ofan á þær sem ríkisstjórnin er að leggja á? Á sjálfstæðismönnum er það helst að skilja að hroðaleg skuldastaða sveitarfélagsins sé vinstri mönnum að kenna sem höfðu meirihluta frá 2006 til 2009. Það eru þó einkum tvö mál sem skýra skuldastöðu sveitar- félagsins. Annað þeirra er íbúa- þróunin, árið 1990 bjuggu skv. Hag- stofunni 1082 íbúar á Álftanesi, árið 2006 voru þeir 2205. Íbúafjöldinn hafði því meira en tvöfaldast á þess- um 16 árum. Bærinn átti hins vegar ekki löndin sem byggðin var reist á og fékk því engar tekjur af lóðasölu. Allan þennan tíma voru sjálfstæðis- menn í meirihluta og það voru sjálf- stæðismenn sem stóðu fyrir þessari gríðarlegu og vanhugsuðu uppbygg- ingu, sem m.a. lýsir sér í því að engin atvinnustarfsemi er í bænum og því eru allar tekjur af útsvari og fasteignagjöldum. Vegna þessa hefur sveitarfélagið þurft að leggja í mikinn kostnað við að byggja upp inn- viði samfélagsins, m.a. skólastarf, en sú stað- reynd að gott er að ala upp börn á Álftanesi varð til þess að barna- fólk sótti þangað í rík- um mæli. Hin ástæðan er íþrótta- mannvirki sem bærinn réðist í að byggja, vissulega fjarstæðukennd bygging í ekki stærra sveitarfélagi þótt hún bæti lífsgæði íbúanna mjög. Þessi framkvæmd var hins vegar samþykkt sjö-núll í sveitarstjórn og því einhugur að baki fram- kvæmdanna. Sjálfstæðismenn tala því tungum tveim og sitt með hvorri, allt eftir því hvernig vindar blása. Sjálfstæðismenn hækka skatta Eftir Tuma Kolbeinsson Tumi Kolbeinsson » Allan þennan tíma voru sjálfstæðis- menn í meirihluta og það voru sjálfstæðis- menn sem stóðu fyrir þessari gríðarlegu og vanhugsuðu uppbyggingu ... Höfundur er kennari. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn FYRIR 12 árum voru lög um húsa- leigubætur samþykkt á alþingi með 58 at- kvæðum. Frumvarp til þessara lagasetn- ingar var sett fram, vonandi í þeirri trú að þessi lög myndu jafna aðgengi fjölskyldna að hentugu húsnæði. En markmið laganna samkvæmt 1. gr. „er að lækka húsnæðiskostnað tekju- lágra leigjenda og draga úr að- stöðumun á húsnæðismarkaði“. Til- gangur þessara laga var því nokkuð göfugur, en mögulega eitt- hvað vanhugsaður. Ef litið er til þróunar húsaleigu á almennum markaði frá gildistöku laganna verður það skýrt hverjum sem það vill sjá að þessar bætur renna ekki til tekjulágra fjöl- skyldna. Þess í stað færist hluti af skatttekjum hins opinbera í vasa þeirra efnameiri. Leiguverð á al- mennum markaði hefur hækkað hlutfallslega meira á umræddum tíma en þær vísitölur sem helst er hægt að miða við. Á þessum tíma hefur byggingar- vísitala hækkað um 121%, vísitala neysluverðs til verð- tryggingar hefur hækkað um 96% og fasteignaverð í Reykjavík hefur hækk- að um 207%. Við gild- istöku lagana var með- alleiga á þriggja herbergja íbúð í Reykjavík um 33.000 og ef hún myndi fylgja ofangreindum vísitöl- um ætti sambærileg leiga í dag að vera á bilinu 65-100.000 kr. Samkvæmt lauslegri könnun telst meðalleiga á þriggja herbergja íbúð í dag vera um 120.000 kr. sem er 20-55.000 (20-85%) krónum um- fram rökstudda hækkun. En af hverju hefur húsaleiga hækkað svona umfram það sem eðlilegt get- ur talist? Einn þáttur sem undirritaður telur að eigi þátt í þessari þróun er sú staðreynd að á sama tíma hefur „innkoma“ leigutaka hækkað sem nemur húsaleigubótum. Húsaleigubæturnar fara með öðr- um orðum beina leið til leigusal- ans. Þannig er í raun ekki verið að aðstoða leigutakana og enn síður verið að jafna aðstöðumun. Í raun var búið til kerfi sem eykur greiðslugetu eftirspurnarhluta leigumarkaðarins til hagsbóta fyr- ir framboðshlutann. Þannig hefur lagafrumvarp sem var sett fram í þeim tilgangi að jafna hlut tekju- lágra hækkað leigu á almennum markaði. Eftir sitja þeir sem eru á leigumarkaði og fá ekki fullar húsaleigubætur og þurfa því í raun að greiða hærri leigu en eðlilegt getur talist. Ég ætla ekki að fara djúpt í það hvað eðlilegt leiguverð ætti að vera því ég tel best að framboð og eft- irspurn ráði þar mestu óafskipt af hinu opinbera. Til viðmiðunar er ágætt að hugsa sér hver eðlileg ávöxtunarkrafa á fjárfestingu í fasteign sé. Ef litið er til langs tíma (20-30 ár) hækkar fasteign að jafnaði um 1-2% umfram verðlag. Ef miðað er við 5% ávöxtunarkröfu á 20 milljóna fjárfestingu í þriggja herberja íbúð í Reykjavík væri húsaleigan 80-100 þúsund að með- töldum u.þ.b. 14.000 kr. í fjár- magnstekjuskatt, sem er efni í aðra grein. Það lætur nærri að segja að meðalleiga á almennum markaði sé í dag þessi upphæð að viðbættum húsaleigubótunum. Sama hefur gerst þar sem hið opinbera er að blanda sér með styrkjum í það sem ætti að vera unnið á markaðslögmálum og ber þar helst að nefna vaxtabætur sem ganga beint inn í greiðslumat og leiða þar með til hærra fast- eignaverðs. Eftir Kristin Þór Sigurjónsson » Þannig hefur laga- frumvarp sem var sett fram í þeim tilgangi að jafna hlut tekjulágra hækkað leigu á almenn- um markaði. Kristinn Þór Sigurjónsson Höfundur er véltæknifræðingur og leigutaki. Fyrir hverja eru húsaleigubætur?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.