Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 345. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «BÓKDISKUR HRUNADANS EFTIR MATTHÍAS GEFINN ÚT «MENNINGUPPGJÖR Það besta í listum á árinu 2009 6 Ljósmynd/Haraldur Þór Stefánsson Gleðilegt nýtt ár Hópur kröfuhafa Kaupþings fundaði með forráðamönnum Þjóð- arhags á dögunum. Þeir vildu vita hvort enn væri áhugi fyrir hendi á kaupum á Högum. VIÐSKIPTI Kröfuhafar hitta Þjóðarhag Stjórnvöld hafa ekki rætt við lífeyr- issjóði um að þeir selji erlendar eignir og fjármagni kaup ríkisins á veðum Seðlabanka Evrópu. Ekkert rætt við lífeyrissjóði Eftir Andra Karl andri@mbl.is MEIRIHLUTI þingmanna sam- þykkti á tólfta tímanum í gærkvöldi frumvarp til laga um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna með 33 atkvæðum gegn 30 undir gný frá bílflautum og flugeldum. Tveir þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson, en Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður, kaus með því. Áður en komið var að því að greiða atkvæði um Icesave-frumvarpið í heild var borin upp frávísunartillaga minnihluta fjárlaganefndar. Hún var felld með 35 atkvæðum, en 28 vildu samþykkja hana. Í kjölfarið var bor- in upp tillaga Péturs H. Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokks, um að bera ætti málið undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Tillagan var felld með jafnnaumum meirihluta en þrjátíu þingmenn vildu samþykkja hana, þar á meðal Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, þingmenn Vinstri-grænna. Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson greiddu hins vegar at- kvæði gegn þeirri tillögu. Yfir 42 þúsund einstaklingar hafa skrifað undir áskorun Niðurstaðan hefur þau áhrif að Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra ber lagafrumvarpið undir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á ríkisráðsfundi fyrir há- degið í dag. Gera má ráð fyrir að Ólafur Ragnar taki í dag ákvörðun um það hvort hann staðfestir lögin eða synjar þeim staðfestingar. Taki hann síðari kostinn verður Icesave- frumvarpið borið undir dóm þjóð- arinnar. Klukkan hálf eitt í nótt höfðu yfir 42 þúsund manns skrifað undir áskorun til forsetans um að hann synjaði lögunum staðfestingar. Undirskriftasöfnunin fór fram á vef- svæði InDefence-hópsins og ætla fulltrúar hans að afhenda undir- skriftirnar á Bessastöðum í dag. Flugeldar sprengdir Til stóð að greiða atkvæði um frumvarpið fyrir hádegi í gær, en þingfundi var frestað ítrekað fram á miðjan dag. Var mælendaskrá þá kláruð og kl. 20 í gærkvöldi héldu formenn flokkanna stuttar ræður. Í kjölfarið hófst atkvæðagreiðslan sem lauk ekki fyrr en um 23.30. Nokkur fjöldi fólks var saman- kominn á Austurvelli meðan at- kvæðagreiðslan fór fram. Reglulega voru sprengdir flugeldar og heyrð- ust sprengingarnar vel inn í þingsal. Þá voru bílflautur þandar næstum stanslaust á sama tíma. Icesave-málið samþykkt með naumum meirihluta Forseti Íslands fær frumvarpið afhent fyrir hádegi í dag  Hörð átök frá morgni | 6  Þá skellihló þingheimur | 8 Tveir stjórnarþingmenn, Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir, greiddu atkvæði gegn frumvarp- inu. 33 Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður, studdi frumvarpið. 30 Tillaga um að bera málið undir þjóðina var felld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.