Morgunblaðið - 31.12.2009, Page 10

Morgunblaðið - 31.12.2009, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 J ó l a s ö f n u n Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Oft var þörf en nú er nauðsyn Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b. Icesave-málið verður sífellt verra.Það hefur verið hjúpað óheil- indum, lifað á pukri og blekkingum og útkoman því sú að einstök atriði málsins þola ekki dagsins ljós. Þetta varð öllum mönnum ljóst við umræðuna í þinginu í gær.     Stjórnin hefurstungið und- an skjölum í stórum stíl og ekki aðeins til að blekkja almenn- ing heldur einnig innvígða, allt upp í ráðherra. Og þótt þetta sé af- leitt og ófært er þó einn þátturinn skiljanlegur.     Það kom fram í gær að formaðursamninganefndar um þennan glæsisamning, Svavar Gestsson, hefði sagt við ráðgefandi lög- fræðistofu í London að tiltekin at- riði væru svo pólitískt viðkvæm að alls ekki mætti sýna íslenska utanríkisráðherranum þau. Breska stofan varð sem steini lostin. Sendi- herra lagði vafningalaust til að alls ekki mætti trúa yfirmanni sínum, utanríkisráðherranum, fyrir við- kvæmum trúnaðarupplýsingum. Hvað sem segja má um aðrar gerðir Svavars í þessu máli munu landar hans hafa góðan skilning á þessari eðlilegu varfærni. Og alls ekki álasa honum fyrir hana.     Ef fulltrúar bresku lögfræðistof-unnar hefðu verið í sal Alþingis í gær hefðu þeir orðið jafn þrumu lostnir. Þá kom sami utanríkis- ráðherra kotroskinn í ræðustól og sagði margt skondið en enginn brosti né hló. En svo sagði ráð- herrann í lokin alvarlegur í bragði: „Ég hef alltaf sagt satt í þessu máli.“ Og eins og hendi væri veifað veltist þingheimur um í stjórnlaus- um hlátri og var enginn sjáanlegur munur á stjórnarliðum og andstæð- ingum. „What was so funny?“ hefðu Bretarnir vísast spurt og uppskorið ennþá meiri hlátur. Össur Skarphéðinsson What was so funny? Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík -8 heiðskírt Lúxemborg 8 skýjað Algarve 16 skúrir Bolungarvík -3 skýjað Brussel 4 skýjað Madríd 9 skýjað Akureyri -12 heiðskírt Dublin 3 skúrir Barcelona 17 léttskýjað Egilsstaðir -10 léttskýjað Glasgow 3 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -5 léttskýjað London 5 skúrir Róm 17 léttskýjað Nuuk 2 skýjað París 10 skýjað Aþena 13 léttskýjað Þórshöfn 1 léttskýjað Amsterdam 0 alskýjað Winnipeg -13 snjókoma Ósló -14 léttskýjað Hamborg -1 snjókoma Montreal -15 skýjað Kaupmannahöfn -2 léttskýjað Berlín -1 skýjað New York -3 heiðskírt Stokkhólmur -9 snjókoma Vín 3 þoka Chicago -2 snjókoma Helsinki -11 snjókoma Moskva -11 snjókoma Orlando 18 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 31. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5.47 4,1 12.09 0,6 18.11 3,8 11:21 15:42 ÍSAFJÖRÐUR 1.41 0,2 7.48 2,2 14.20 0,2 20.14 2,0 12:04 15:09 SIGLUFJÖRÐUR 3.44 0,2 9.59 1,3 16.26 0,0 22.51 1,2 11:49 14:50 DJÚPIVOGUR 3.01 2,0 9.19 0,3 15.15 1,7 21.21 0,1 10:59 15:03 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á föstudag (nýársdagur), laugardag og sunnudag Hægviðri og yfirleitt léttskýjað, en stöku él á annesjum A-til. Frost 2 til 15 stig, kaldast í inn- sveitum NA-lands. Á mánudag og þriðjudag Norðanátt með éljum N- og A- lands, en annars bjart og kalt veður. Á miðvikudag Líklega hægviðri, léttskýjað og talsvert frost. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg eða breytileg átt, yfirleitt léttskýjað, en él á an- nesjum fyrir norðan. Víða bjart- viðri, en smáél úti við V- og A- ströndina. Frost víða 0 til 10 stig, mest í innsveitum á N- landi. UM hver áramót leita á milli 10 og 20 manns til bráðamóttökunnar á Landspítalanum í Fossvogi vegna brunasára og annarra áverka sem hlotist hafa af fikti eða slysum með flugelda. Þetta segir Ófeigur Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa- og bráðadeild Landspítalans, sem varar eindregið við afleiðingum þess að fikta með flugelda. Máli sínu til stuðnings bendir Ófeigur á að um hver áramót missi einn til tveir að meðaltali sjón á öðru auga, skaði sem oft verði ekki bætt- ur. Því sé einstaklega mikilvægt að notast við hlífðargleraugu þegar flugeldum er skotið á loft og blysum brugðið á loft við hátíðirnar. Jafn- framt geti leður- og ullarhanskar lágmarkað brunasár og áverka vegna sprenginga og slysa. Inntur eftir meiðslum meirihluta þeirra sem leita sér aðhlynningar segir Ófeigur þar um að ræða misjafnlega alvarleg brunasár og áverka á útlimum og höfði, sem gjarnan skilji eftir sig ör. Þá geti flugeldar valdið þrýstingsskaða á höfði með þeim afleiðingum að hluti heyrnar á öðru eða báðum eyrum tapast varanlega. Spurður hvort ætla megi að um 30 manns slasist á landinu öllu yfir áramótin vegna slysa eða ógætilegrar meðferðar á flugeldum segir Ófeigur að gróft á litið megi áætla það. Stórhættulegt að fikta með flugelda Hættulegt Samansaumuð hendi eftir sprengingu. MIKILLAR gæslu hefur reynst þörf við sölustaði flugeldamarkaða björg- unarsveita að nóttu fyrir þessi áramótin þar sem þess hefur orðið vart að óprúttnir aðilar hafi hugsað sér að ná í flugelda án þess að greiða fyrir þá, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Þannig hefur gæslufólk orðið vart við bíla sem ekið var á milli sölustaða til að kanna þar aðstæður. Í einhverjum tilvikum fóru farþegar út úr bílum við sölustaði og könnuðu dyr og glugga en lögðu á flótta er þeir urðu varir við björgunarsveitarfólk á staðnum. Til að koma í veg fyrir innbrot hafa björgunarsveitir komið upp þjófa- varnarkerfum, myndavélum með hreyfiskynjurum og mannað staðina eftir lokun. Verður sá háttur hafður á þar til flugeldasölu lýkur þetta árið, sam- kvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu. Mikið eftirlit við flugeldasölur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.