Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
Í FYRRADAG barst Hjálparsveit
skáta í Hveragerði að gjöf sjálf-
virkt hjartastuðtæki. Gjöfin barst
frá velviljuðum einstaklingi sem
ekki vill láta nafns síns getið. Hjálp-
arsveitin þakkar innilega fyrir
þessa gjöf.
Stuðtæki sem þessi eru búin að
vera á markaðnum á Íslandi um
nokkurra ára skeið og hafa bjargað
fjölda mannslífa. Tæki þessi eru
alsjálfvirk og er gjöf þessi góð við-
bót við búnað sveitarinnar sem
stóreykur öryggi á svæðinu.
Góð gjöf Ánægja er meðal hjálpar-
sveitamanna með stuðtækið.
Óvænt gjöf
LÍKAMSRÆKTARÞJÁLFARINN
Halldóra Matthíasdóttir, einnig
þekkt sem Sigga Dóra, hefur opn-
að nýja heilsumiðstöð að Stór-
höfða 17 í Reykjavík.
Heilsumiðstöð Siggu Dóru er
öðruvísi en hefðbundnar líkams-
ræktarstöðvar en mikil áhersla er
lögð á persónulega þjónustu og
aðhald. Aðstaðan er notaleg og
hentar vel fyrir þá sem vilja æfa í
rólegu og þægilegu umhverfi.
Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá
Heilsumiðstöðinni eins og Rope
Action námskeiðið, Jane Fonda
námskeiðið. lifðu lífinu lifandi og
ýmis dansnámskeið. Gufubað,
nuddarar og höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferðir eru einnig
til staðar.
Ný og óvenjuleg
líkamsræktarstöð
LÖGREGLAN lagði hald á rúmlega
200 kannabisplöntur við húsleit í
Breiðholti í fyrradag. Á sama stað
fannst einnig landi og bruggtæki
og var það sömuleiðis tekið í vörslu
lögreglunnar. Lögreglan gerði
jafnframt aðra húsleit í borginni en
í henni fundust um 30 kannabis-
plöntur. Þrír aðilar hafa verið
handteknir í tengslum við rannsókn
málanna. Þeir hafa allir játað aðild
sína og eru lausir úr haldi lögreglu.
Fundu kannabis
Flugbjörg-
unarsveitin í
Reykjavík
stendur fyrir
leitinni að
ljótasta
jólatré
landsins. Sá
sem hýsir
ljótasta tréð
mun hljóta
veglegan
flugelda-
pakka að gjöf frá Flugbjörgunar-
sveitinni.
Til að taka þátt í keppninni send-
ir fólk mynd af trénu á facebook-
síðu. Síðan getur fólk kosið ljótasta
tréð með því að skrifa „ojjj“ undir
myndina sem því finnst ljótust.
Hægt er að kjósa til kl. 12 í dag,
gamlársdag.
Verðlaun fyrir
ljótasta jólatréð
STUTT
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞEGAR þetta er ritað eru 16.245 án vinnu á Ís-
landi og eru þar af tæp 59%, eða 9.550, karlar.
Staðan er þó ekki jafn slæm og þessar tölur
gefa til kynna því um fimmtungur er í hlutastörf-
um á móti bótum, auk þess sem sumir hafa
tekjur en gefa þær ekki upp að því er talið er.
Á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að at-
vinnuleysi í nóvember hafi verið um 8% en 9,1% í
apríl, þegar það náði hámarki í kjölfar hrunsins.
Atvinnuleysið er sundurliðað en fram kemur
að um 53% þeirra sem voru án vinnu í nóvember
höfðu aðeins lokið grunnskólaprófi eða 7.885 af
15.017. Til samanburðar höfðu 2.165 eða 14% lok-
ið iðnnámi, 1.718 eða 11% stúdentsprófi og 2.223
eða 15% háskóla- eða sérnámi, eins og það er
skilgreint. Hinir, um 7% atvinnulausra, hafa lokið
ýmsu framhaldsskólanámi, vélstjóra- og stýri-
mannanámi eða tekið verslunarpróf.
Með öðrum orðum: Um 86% atvinnulausra í
nóvember höfðu ekki lokið háskóla- eða sérnámi.
Innan við fimm prósent hafa ekki vinnu
Á vef Hagstofu Íslands má fletta í ritinu
Landshagir en þar er meðal annars að finna upp-
lýsingar um menntun Íslendinga á aldrinum frá
16 og upp í 74 ára á tímabilinu 1991 fram til árs-
ins 2008.
Tölur fyrir 2009 liggja ekki fyrir en fram kem-
ur að í lok síðasta árs voru 50.200 Íslendingar
með háskólamenntun en vinnuaflinn var þá áætl-
aður 183.500 manns. Um 35% vinnuaflsins, eða
63.800 manns, höfðu þá lokið grunnmenntun, en
tæp 38%, eða 69.500, starfs- og framhalds-
menntun.
Hafa ber í huga að margir Íslendingar hafa
hafið störf erlendis eftir að fjármálakerfi landsins
hrundi í fyrrahaust og því ljóst að hluti háskóla-
menntaðra hefur flust úr landi. Erfitt er að áætla
þennan fjölda nákvæmlega því Hagstofa Íslands
hefur ekki undir höndum hlutfall háskólamennt-
aðra af brottfluttum Íslendingum síðasta ár.
Ef fjölda atvinnulausra með háskólapróf í nóv-
ember, sem voru alls 2.223, er deilt í heildar-
fjölda fólks á vinnumarkaðnum með slíka mennt-
un undir lok síðasta árs, alls 50.200 manns, er
hlutfallið 4,4%. Annar mælikvarði er að 3.588
brautskráðust úr háskóla 2007-2008 sem þýðir að
innan við einn útskriftarárgangur er nú án vinnu.
Stærðirnar langt í frá yfirþyrmandi
Inntur eftir því hvort þetta sé ekki undir
náttúrulegu atvinnuleysi tekur Gissur Pétursson,
forstjóri Vinnumálastofnunar, undir að svo sé.
„Ég held að það megi alveg fara að snúa þessu
við. Það er kominn tími til að átta sig á því að
kannski er þetta atvinnuleysi í heildarstærðum
ekkert yfirþyrmandi miðað við það sem er ann-
ars staðar. Eins er það líka að eftir því sem að
menntunin eykst þeim mun meiri líkur eru á að
viðkomandi haldi starfinu,“ segir Gissur og bætir
því við að talsverð hreyfing sé á vinnumarkaði.
„Á árinu sem nú er að líða erum við búnir að
greiða atvinnuleysisbætur inn á yfir 30.000
kennitölur, eða inn á meira en helmingi fleiri
kennitölur en í desember. Það er heilmikil hreyf-
ing inn og út af atvinnuleysisskránni. Þeim sem
er hættast við langtímaatvinnuleysi eru þeir sem
eru með minnstu menntunina og standa því veik-
astir.“
Gissur segir eftirtektarvert hversu staða ungs
fólks sem aðeins hafi lokið grunnskóla sé slæm.
„Ef farið er að greina þetta eftir aldri og
menntun kemur í ljós að 70% af atvinnulausum
ungmennum á aldrinum 16 til 24 ára hafa aðeins
lokið grunnskólaprófi. Og í sumum tilfellum er
um að ræða fólk sem hefur verið útskrifað úr
grunnskólakerfinu án þess að hafa lokið prófi og
getur því ekki farið í menntaskóla án þess að
fara í undirbúningsáfanga. Þetta er gömul saga.
Þeir sem eru veikastir fyrir eru þeir sem hafa
verið í erfiðum verkamannastörfum og eru því
gjarnan háðari atvinnuástandi en margir hópar.“
Ágæt störf að losna
Spurður hvort háskólamenntaðir séu teknir
fram yfir aðra í störf sem krefjist e.t.v. ekki
slíkrar menntunar segir Gissur allan gang á því.
„Það er auðvitað misjafnt en ég veit þó að það
er meiri hreyfing á vinnumarkaðnum en menn
halda við fyrstu sýn. Staðan er alls ekki þannig
að störf losni ekki. Það getur þurft að bíða leng-
ur eftir störfum en síðustu ár og samkeppnin er
meiri en það eru líka að losna ágæt störf þar
sem gerðar eru kröfur um menntun.“
Langskólamenntaðir
hafa langflestir vinnu
Atvinnuleysi á meðal háskólamenntaðra er undir náttúrulegum mörkum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Nemar í Háskólabíói Forðum var sagt að bókvitið yrði ekki í askana látið. Það eru mikil öfugmæli því
háskólamenntaðir standa mun betur á vinnumarkaði. Útlitið er þó ekki bjart fyrir nýútskrifaða.
Aðspurður hvað sé náttúrulegt atvinnuleysi seg-
ir Gissur það álitamál. Þó sé gjarnan rætt um
4% í þeim efnum. Bilið sé iðulega talið 3-5%.
Gissur undirstrikar að þótt atvinnuleysið sé
minna hér en víða annars staðar séu umskiptin
mikil og sársaukafull, enda hafi Ísland farið úr
því að hafa nánast ekkert atvinnuleysi í þá stöðu
að 8% vinnuaflsins séu nú án vinnu.
Þá beri að hafa í huga að mikið af fólki hafi
flust af landi brott, ásamt því sem uppsagnir í
opinbera geiranum eigi eftir að koma fram. At-
vinnuleysi þar sé enn aðeins í kringum 2%.
Mikið atvinnuleysi á meðal ungs fólks sem að-
eins hefur lokið grunnskólaprófi er talið bjóða
ýmsum félagslegum vandamálum heim síðar
meir og hyggst ríkisstjórnin svipta þau ung-
menni bótum sem ekki þiggja ýmis úrræði sér til
hjálpar. Má í þessu samhengi rifja upp þau
orð Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra
að gegnumstreymi hjá háskólamenntuðu fólki á
atvinnuleysisskrá hafi verið umtalsvert en að
sama skapi lítið hjá grunnskólamenntuðum.
Umskipti úr „óeðlilegu ástandi“
Þegar rýnt er í atvinnuleysistölur kemur ber-
lega í ljós sterk fylgni á milli menntunar og
atvinnuleysis. Ætla má að innan við tuttug-
asti hver Íslendingur með háskólapróf sé nú
atvinnulaus. Staðan kann þó að versna.
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á
hendur sex mönnum, fimm Litháum og einum Ís-
lendingi fyrir mansal á 19 ára gamalli litháískri
stúlku. Brot mannanna varða samkvæmt upplýs-
ingum frá ríkissaksóknara aðallega við 1. máls-
grein 227. gr. a. almennra hegningarlaga.
Í umræddri lagagrein segir að sá sem með
blekkingum eða gegn vilja viðkomanda útvegar,
flytur, hýsir eða tekur við einhverjum í þeim til-
gangi að „notfæra sér mann kynferðislega eða til
nauðungarvinnu eða til að nema á brott líffæri
hans“ skuli sæta allt að átta ára fangelsi
Hefur ríkissaksóknari óskað eftir framlengingu
á gæsluvarðahaldi Litháanna til 26. janúar. Aðeins
hefur einu sinni verið ákært fyrir mansal hér á
landi síðan ákvæðinu var bætt í lögin árið 2003.
Enn hefur ekki verið sakfellt á grundvelli þess fyr-
ir dómstólum.
Vætti stúlkunnar þungamiðja málsins
Stúlkan sem um ræðir nýtur sérstakrar vernd-
ar og er talin í hættu. Hún kom hingað til lands í
október og kveðst ítrekað hafa verið seld í vændi í
heimalandi sínu. „Hún er á vitnalista ákæruvalds-
ins og um leið og þetta fer í aðalmeðferð mun hún
koma fyrir dóminn,“ segir Kolbrún Sævarsdóttir,
saksóknari, og kveður stúlkuna munu að öllum lík-
indum bera vitni nema sakborningar játi þau brot
sem ákært er fyrir. Þeir hafa hingað til allir neitað
sök í málinu.
Um tuttugu manns eru á vitnalista ákæruvalds-
ins en þungamiðja málflutnings þess verður vitn-
isburður stúlkunnar. Segir Kolbrún að ekki liggi
mikið fyrir af öðrum sönnunargögnum þar sem
málið kom til kasta lögreglunnar á Suðurnesjum
strax við komu stúlkunnar til landsins í október
síðastliðnum. Starfsemin hafi því skilið eftir sig
litla slóð hérlendis.
Ekki liggur fyrir hvenær málið verður tekið fyr-
ir í héraðsdómi Reykjaness en Kolbrún segir öll
gögn komin til réttarins og reiknar með að það
verði um miðjan janúar. Mun hún fara með málið
fyrir hönd ákæruvaldsins.
Sex ákærðir í mansalsmálinu
Litháíska stúlkan er á vitnalista ákæruvaldsins í málinu Ekki hefur verið sak-
fellt fyrir mansal hér á landi Málið fer líklega fyrir héraðsdóm um miðjan janúar
» Gæsluvarðhaldið framlengt
» Stúlkan aðeins nítján ára
» Tuttugu manns á vitnalista