Morgunblaðið - 31.12.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 31.12.2009, Síða 34
34 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 HAGSMUNIR Breta og Vestur- Evrópulanda rekast á hagsmuni Íslands á vissum sviðum. Þann- ig hefur það alltaf verið. Þannig mun það alltaf vera. Þessar vinaþjóðir hafa ekki sýnt Íslendingum mik- inn skilning þegar um hagsmunamál hefur verið að ræða. Árið 1952 settu Bretar löndunarbann á Íslendinga, lokuðu þar með breska fiskmark- aðnum. Árið 1958 sendi Breta- stjórn herskip gegn íslenskum varðskipum inn á Íslandsmið. Árið 1960 reyndu nágrannalönd Íslands, þar með talin Norðurlöndin (en ekki Austur-Evrópulönd) að setja bann við landhelgisútfærslu Íslands í 12 mílur á hafréttarráðstefnunni í Genf. Árið 1972 dæmdi Al- þjóðadómstóllinn í Haag 50 mílna landhelgi Íslands ólöglega. Árið 1972 neitaði Evrópubandalagið að skrifa undir samning um fríverslun víð Ísland nema deilan við Breta yrði leyst. Árið 1973 sendi Breta- stjórn herskip á móti íslenskum varðskipum inn í landhelgina. Og aftur árið 1976. Kjarklitlir úrtölu- menn hérlendis vöruðu ávallt við að Ísland mundi útilokast frá við- skiptum við aðrar þjóðir, sér- staklega „vinaþjóðir“, ef landsmenn beygðu sig ekki undir Bretastjórn og þeirra fylgilið. En hrakspárnar rættust aldrei. Þvert á móti. Þeim mun fastar sem Íslendingar stóðu á sínum rétti, þeim mun viljugri virtust flestir útlendingar verða til samskipta. Land sem hafði kjark til að reka sína hagsmuni gagnvart gömlu heimsveldunum í V-Evrópu og stunda sjálfstæð viðskipti við þjóðir heims var traustsins vert (enda hefur stór hluti af þjóðum jarðar enn óbeit á gömlu heimsveldunum sem fóru ránshendi um hnöttinn í hálft ár- þúsund). Á þessu tímabli stöðugra árása varð mesta uppbygg- ing Íslandssögunnar. Landsmenn sem fylgst hafa með fjár- kúgunartilraunum og rógsherferð Breta vita núorðið að ríkisábyrgð á Icesave er ólögleg. En Bretar haga sér svipað og áður við þá sem þeir telja minni máttar: Ísland, með auðlindir sem þeir hafa ekki fengið að komast í, er ekkert of gott til að borga þó aðrir þurfi þess ekki. Af- salssinnarnir meðal landsmanna reyna, eins og í hagsmunabarátt- unni á árum áður, að sannfæra menn um að „við eigum að standa við okkar skuldbindingar“, þeir hafa ekki enn áttað sig á að þjóðin er ekki skuldbundin að taka ábyrgð á braski hlutafélagabanka og árás- argirni Bretastjórnar. Aðal- hræðsluáróðurinn er að Ísland „úti- lokist frá alþjóðasamfélaginu“ ef við borgum ekki: Lánalínur lokist og lán verði afturkölluð, samn- ingum verði sagt upp, viðskipti verði stöðvuð. Þeir sem sjá um við- skipti Íslands við útlönd vita að þetta er falsáróður. Forsvarsmaður eins helsta fisksölufyrirtækis Ís- lands á erlendri grund var spurður í útvarpinu hvort ekki mundi allt lokast ef við samþykktum ekki rík- isábyrgð á Icesave. Hann taldi það af og frá, rifrildi stjórnmálamanna víkur á endanum fyrir hagsmunum frjálsra viðskipta og ef salan fellur hjá einum geta margir aðrir keypt fiskinn. Sama er með álið og lands- fegurðina, ferðageirann og aðra þjónustu. Það er alltaf til lánsfé handa þeim sem eru líklegir til að geta borgað, viðskiptasamningar fyrir þá sem hafa eitthvað að bjóða. En þjóð með drápsklyfjar skulda verður stafkerling í alþjóða- samfélaginu. Stjórnvöld okkar hafa enn ekki haft döngun í sér til þess að krefj- ast bóta af Bretum fyrir árásina á íslensku þjóðina: kyrrsetningu eigna hennar (ríkisstjórnarinnar, Seðlabankans og Fjármálaeftirlits- ins), ófrægingarherferð, upptöku íslenskra einkaeigna. Í staðinn ríf- umst við ráðvillt innbyrðis um ólöglegar ríkisábyrgðir til handa árásaraðilanum. Það hefur ætíð reynst Íslendingum best að taka slaginn strax við Breta. Sama er um þennan slag, hann vinnst að lokum en með undirlægjuhætti vinnst hann aldrei heldur mun ágengnin vaxa og verður að end- ingu ekki hægt að verjast henni. Bretar eru nágrannar okkar og viðskiptaþjóð og það þarf að ríkja eitthvert traust á milli landanna. Íslenska þjóðin mun ekki sættast við bresku þjóðina meðan hin fjandsamlega árás Gordons Brown og hans skutilsveina í október 2008 stendur óhögguð. Það er hvorki hagur bresku þjóðarinnar né hinn- ar íslensku að bæla niður illviljann, hann mun fá útrás fyrr eða síðar og þá mögulega með örlagaríkari hætti en yrði ef menn þyrðu að standa fast á hagsmunum Íslands nú þegar tilefnið er til þess. Það er allra hagur að tala út um málið við Breta sem fyrst svo eðlileg sam- skipti geti aftur hafist. Að útiloka sig frá alþjóðasamfélaginu Eftir Friðrik Daníelsson » Íslenska þjóðin mun ekki sættast við bresku þjóðina meðan hin fjandsamlega árás Gordons Brown og hans skutilsveina stendur óhögguð. Friðrik Daníelsson Höfundur er verkfræðingur. HIÐ ÍSLENSKA náttúrufræðifélag (HÍN) var stofnað 16. júlí 1889 og í ár stát- ar félagið af 120 ára óslitinni starfssögu. Til að fagna þessum merku tímamótum stóð félagið fyrir af- mælisfundi mánudag- inn 28. desember í Þjóðmenningarhús- inu.Yfirskrift fundarins var „Nátt- úruminjasafn Íslands – hvernig safn viljum við eignast?“, en eitt helsta baráttumál félagsins frá upphafi hefur verið að koma upp náttúruminjasafni fyrir þjóðina á höfuðborgarsvæðinu. Á afmæl- isfundinum fluttu valinkunnir fræðimenn erindi og í pallborðs- umræðum tóku þátt m.a. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra. Íslenska þjóðin hefur ekki enn eignast boðlegan húsakost til sýn- ingarhalds á náttúru landsins og staðan í dag er verri en á fyrri hluta síðustu aldar, þegar safn- kostur félagsins var til sýnis í hinu glæsilega Þjóðmenningarhúsi sem þá hét Safnahúsið. Vorið 2008 var sýningarsafninu á Hlemmi lokað og safngripunum pakkað niður í kassa. Alls óvíst er hvar eða hve- nær höfuðsafn þjóðarinnar í nátt- úrufræðum verður opnað á ný. Þetta er að sönnu óboðleg staða og þjóðarskömm af. Hér er ólíku saman að jafna við hin tvö höf- uðsöfn landsins, Þjóðminjasafn Ís- lands og Listasafn Íslands, að ógleymdri tónlistarhöllinni Hörpu, sem er í burðarliðnum þrátt fyrir meiri háttar efnahagsþrengingar í þjóðarbúinu. Ekki er þó svo að menn hafi set- ið auðum höndum í baráttunni fyr- ir betra húsnæði þau 120 ár sem safnamálið hefur verið á dagskrá. Í þeim efnum hefur HÍN lagt drjúgt af mörkum. En meira hefur verið um loforð og skrifræði en efndir og framkvæmdir. Hátt í 20 nefndir hafa fjallað um málið og skilað af sér álitsgerðum, nokkrar teikningar hafa verið gerðar af safnahúsinu, þ. á m. eftir Guðjón Samúelsson, og byggingarlóðum hefur verið úthlutað mörgum sinn- um á höfuðborgarsvæðinu, t.d. þar sem Þjóðleikhúsið er nú. En allt kemur fyrir ekki. Sýningasafn á hrakhólum Frá því safnkostur HÍN var til sýnis á stofnfundi félagsins fyrir 120 árum má segja að sýning- arhald á náttúrgripum þjóðarinnar hafi verið á hrakhólum. Sú hrakn- ingasaga verður ekki rakin hér. Hana má lesa á vef HÍN, hin.is. Þess ber þó að geta að á árunum 1908-1960, þegar safnkosturinn var til sýnis í Safnahúsinu á Hverfisgötu, lifði safnið blómatíma sinn fram til þessa. Hagur safnamálsins vænkaðist nokkuð í upphafi þessarar aldar. Annars vegar með gildistöku safnalaga árið 2001 og hins vegar með setningu laga um Nátt- úruminjasafn Íslands árið 2007. Í safnalögunum er fjallað á heild- stæðan hátt um minja- og nátt- úrusöfn í landinu og þar er í fyrsta sinn kveðið á um heitið Náttúruminjasafn Ís- lands og að safnið hafi stöðu sem höfuðsafn á sviði náttúrufræða. Með lögunum um Náttúruminjasafn Ís- lands varð loksins til lagarammi um fram- kvæmd og starfsemi höfuðsafns þjóðarinnar í náttúrufræðum. Vor- ið 2007 var dr. Helgi Torfason jarðfræðingur ráðinn safnstjóri að stofnuninni og nýlega bættist við annar starfsmaður í fullri stöðu. En þar með er sagan nær því sögð! Ekkert liggur fyrir í dag um húsnæði höfuðsafnsins til sýning- arhalds og því er staðan verri en fyrir rúmri öld. Þá er óljóst um safnkost stofnunarinnar og starfs- menn eru aðeins tveir og geta tæpast sinnt lágmarksskyldum safnsins á sviði söfnunar, skrán- ingar og rannsókna. Fjárveiting til starfseminnar hefur einnig verið skorin stórlega við nögl á fjár- lögum næsta árs og það er slæmt veganesti. Nýtt safnahús Glæsilegt og vandað sýninga- og kennslusafn um náttúrufræði er aðal og stolt hverrar sómakærrar þjóðar og dýrmætur fróðleiks- brunnur fyrir þegna og gesti við- komandi lands. Í ljósi þess að Ís- lendingar byggja afkomu sína á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, sem og þess að langflestir ferðamenn sem sækja landið heim gera það náttúrunnar vegna, er þeim mun mikilvægara og væn- legra að bjóða upp á veglegt sýn- inga- og kennslusafn um náttúru landsins. Náttúra Íslands er um margt mjög athyglisverð og sérstök í hnattrænu samhengi og okkur ber siðferðisleg skylda til að uppfræða um furður hennar og fegurð. Hér er bæði vísað til jarðfræðilegrar sérstöðu, sem felst m.a. í ungri jarðsögu, fjölbreytilegra jarð- myndana og góðu aðgengi þeirra, og til lífríkisins, sem að miklu leyti mótast af jarðfræðinni og legu landsins. Lífríkið einkennist öðru fremur af fáum tegundum, en gjarnan stórum og sterkum stofn- um, auk oft á tíðum óvenjumikils breytileika í útliti og lífsháttum innan tegunda. Aðstæður á Ís- landi, með unga, lítt mótaða nátt- úru í örri þróun, ásamt mynd- rænni fegurð í stórbrotnu landslagi elds og ísa, eru óvíða annars staðar á jörðinni. Og auð- vitaðeigum við, fiskveiði þjóðin mikla, að gera sjávarlífríkinu skil í hinu nýja safnahúsi með lifandi fiskum, sæbjúgum, fíflum og fleiru. Ekki er síður áhugavert að gera stærstu dýrum jarðar skil, t.d. með líkani í raunstærð af steypireyði, Íslandssléttbak o.fl. hvölum. Tækifærin og möguleikarnir hreinlega æpa á okkur. Hæfi- leikafólkið er þarna, hönnuðir, teiknarar, hugvits- og vís- indamenn. Eftir hverju er verið að bíða – næstu öld? Náttúruminjasafn Ís- lands – Hvernig safn viljum við eignast? Eftir Hilmar J. Malmquist Hilmar J. Malmquist » Frá því safnkostur HÍN var til sýnis á stofnfundi félagsins fyr- ir 120 árum má segja að sýningarhald á nátt- úrgripum þjóðarinnar hafi verið á hrakhólum. Höfundur er ritari Hins íslenska náttúrufræðifélags. Stórfréttir í tölvupósti UNDANFARIN ár hefur umfjöllun í fjöl- miðlum og meðal al- mennings á Íslandi oft verið neikvæð í garð íslenskra rík- isstofnana og hefur jafnvel tíðkast að tala niður til þeirra sem þar starfa. Þetta á bæði við um for- stöðumenn stofnana og aðra starfsmenn sem lang- flestir starfa af miklum metnaði að sínum verkefnum. Nú þegar mikið er rætt um að endurreisa ís- lenskt samfélag á grundvelli nýrra gilda er mikilvægt gleyma ekki hlutverki opinberra stofnana. Við viljum geta treyst opinber- um stofnunum og því er mikilvægt að umfjöllun um þær og starfs- menn þeirra sé heiðarleg og ekki lituð af sleggjudómum sem hugs- anlega hafa byggst upp vegna pólitískra átaka. Dæmi um slík átök er umræða um það hver skuli vera verkefni opinberra stofnana og hver skuli vera verkefni einka- fyrirtækja eða jafnvel fé- lagasamtaka. Í þeim átökum hefur því gjarnan verið haldið á lofti að best sé að einkavæða opinberar stofnanir eða bjóða rekstur þeirra út til þess auka hagkvæmnina og bæta þjónustuna. Komið hefur á daginn að þetta er alls ekki alltaf rétt þrátt fyrir kenningar um annað. Margar ríkisstofnanir eru mjög vel reknar og skila þegnunum góðri þjónustu, ekki síðri en einkafyr- irtæki gætu boðið. Það er viðurkennt að gott samfélag þar sem jafnræði og ör- yggi þegnanna er haft að leiðarljósi þarf á traustum ríkisstofn- unum að halda. Við viljum góða löggæslu og við viljum öryggi t.d. þegar fjallað er um sóttvarnir eða flug- umferðarmál. Flest viljum við líka jafnan aðgang þegnanna að góðu skólakerfi og nú upp á síðkastið er aukin krafa um að ríkisstofnanir veiti einkarekstrinum aðhald eða strengi öryggisnet ef einkaaðilar standast ekki kröfur sem gerðar eru. Ekki síst viljum við gott heil- brigðiskerfi sem allir þegnarnir hafa aðgang að þó að lengi megi deila um hvað sé gott í því sam- hengi, það er bæði pólitísk og sið- ferðileg spurning. Þrátt fyrir að á Íslandi séu flestar ríkisstofnanir vel reknar er ljóst að hægt er að gera betur í þeim efnum. Í sumum tilfellum er staða stofnana ekki nægjanleg skýr í lögum og stundum er jafn- vel skörun á verkefnum mismun- andi stofnana. Einnig eru margir sammála um að fjárlagaferlið sé flókið og ógegnsætt þar sem yf- irmenn stofnana hafa takmark- aðan aðgang til að koma að fag- legum sjónarmiðum. Við umbótaverkefni í opinberum rekstri er vænlegt til árangurs að spyrja þá sem best þekkja en það eru oftast starfsmenn og stjórn- endur stofnana. Einnig er mik- ilvægt að nýta það uppbygging- arstarf sem þegar er hafið í samfélaginu eins og Þjóðfundinn sem haldinn var í Laugardagshöll- inni 14. nóvember síðastliðinn. Gagnlegt er að hafa að leiðarljósi þau gildi sem oftast voru nefnd á Þjóðfundinum þ.e. heiðarleika, jafnrétti og virðingu. Gleymum því ekki að opinber rekstur er ein af grunnstoðum í góðu réttlátu sam- félagi. Slíkur rekstur þarf að njóta trausts og vera í góðum tengslum við aðrar greinar atvinnulífsins og samfélagið í heild. Hjálpumst að við að byggja upp og viðhalda því trausti með heiðarlegri og réttlátri umræðu. Fjöllum heiðarlega um íslenskar stofnanir Eftir Magnús Guð- mundsson » Opinber rekstur er ein af grunnstoðum í góðu réttlátu samfélagi. Slíkur rekstur þarf að njóta trausts og vera í góðum tengslum við samfélagið. Magnús Guðmundsson Höfundur er formaður Félags for- stöðumanna ríkisstofnana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.